Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Boeing þjónusti ekki Loftleiðir vegna Kúbuflugs Bandarísk stjórnvöld hafa óskað eftir því við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar að þær þjónusti ekki þær Boeing-vélar sem Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, nota til Kúbuflugs vegna viðskiptabanns Bandaríkjanna á Kúbu. 19.11.2007 09:29
Fundu snák á Egilsstöðum Við húsleit lögreglunnar í íbúð á Egilsstöðum um helgina fannst m.a. svokallaður Cornsnákur. Snákurinn, sem var í glerbúri í opnu rými í íbúiðinni, var haldlagður og færður í trygga geymslu á varðstofu lögreglunnar. Var snákurinn síðan aflífaður og mun fulltrúi heilbrigðiseftirlits annast eyðingu á hræinu, segir í dagbók lögreglunnar. 19.11.2007 09:10
Færeyjar á lista sem mesta ferðamannaparadísin Færeyjar eru efstar á lista yfir eyjar í heiminum sem vert er að heimsækja. Þetta kemur fram í tímaritinu National Geographic, sem birt hefur lista yfir rúmlega eitt hundrað eyjar í heiminum. 19.11.2007 09:03
Neyðaraðstoð streymir til Bangladesh Neyðaraðstoð streymir nú til Bangladesh í kjölfar náttúruhamfaranna þar fyrir helgina. Stjórnvöld hafa staðfest að yfir 3.000 manns eru látnir en óttast er að þegar upp er staðið verði sú tala nokkuð yfir 10.000 manns. 19.11.2007 08:56
Yfirheyrslur yfir hnífstungumanninum í dag Yfirheyrslur hefjast í dag á Selfossi yfir erlendum verkamanni, sem veitti vinnufélaga sínum áverka með hnífi í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í fyrrinótt. 19.11.2007 07:55
Komið í veg fyrir fjöldamorð í þýskum skóla Þýska lögreglan tilkynnti í gær að henni hefði tekist að koma í veg fyrir fjöldamorð við menntaskóla í borginni Köln. Tveir námsmenn voru handteknir og hefur annar þeirra framið sjálfsmorð 19.11.2007 07:39
Fjórir játa stuld á skotvopnum Fjórir ungir menn á aldrinum 16 til 20 ára játuðu við yfirheyrslur hjá lögreglunni í Borgarnesi í gær, að hafa í fyrrinótt brotist inn í flugskýli við Húsafell og meðal annars stolið þaðan skotvopnum. 19.11.2007 07:35
Foreldrar sóttu ræningjana til lögreglu Foreldrar ræningjanna fjögurra, sem frömdu vopnað rán í Sunnubúð við Lönguhlíð í Reykjavík í gærmorgun, sóttu syni sína á lögreglustöðina í Reykjavík í gærkvöldi að loknum yfirheyrslum yfir þeim. 19.11.2007 07:33
Öryggisverðir náðu þjóf á flótta Brotist var inn í apótek á Akureyri í nótt og þaðan stolið lyfjum. Öryggisverðir urðu varir við innbortið, hlupu þjófinn uppi og héldu honum þartil lögregla kom á vettvang og handtók hann. 19.11.2007 07:30
Telur fleiri tengjast hnífsstungumáli Lögreglan á Selfossi telur að fleiri aðilar en meintur gerandi og þolandi í hnífstungumáli í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöld hafi tekið þátt í átökunum sem leiddu til áverkanna 18.11.2007 22:58
Fjölskyldan í sjokki eftir vopnað rán "Vonandi lendi ég aldrei aftur í svona," segir Þórður Björnsson, kaupmaður í Sunnubúð, en þrír vopnaðir og grímuklæddir menn rændu verslun hans í morgun. 18.11.2007 16:27
Tvö hundruð milljóna króna tjón í fjósbruna 200 milljóna króna tjón varð þegar eitt fullkomnasta fjós landsins brann til ösku í gærkvöld ásamt 200 nautgripum. Bruninn er einn sá skelfilegasti sem slökkviðismenn hafa glímt við. 18.11.2007 23:19
Slasaðist töluvert á fjórhjóli á Suðurstrandarvegi Ökumaður fjórhjóls slasaðist töluvert þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Suðurstrandarvegi norðan við Íshólfsskála um þrjúleytið í dag. 18.11.2007 23:07
Kjör stjórnarmanna ekki rædd á hluthafafundi REI Engar breytingar voru gerðar á launakjörum stjórnarmana í REI og nýjir menn voru ekki kosnir í stjórn á hluthafafundi sem lauk í dag. Þessum dagskrárliðum var frestað og verða kláraðir á framhaldshluthafafundi næsta föstudag. 18.11.2007 19:48
Ræningjarnir í Sunnubúð aðeins 16 ára gamlir Fjórir voru handteknir um klukkan fjögur í dag grunaðir um að hafa framið rán í Sunnubúð við Mávahlið fyrir hádegi í dag. Þeir eru allir fæddir 1991 og eru því aðeins 16 ára gamlir. 18.11.2007 18:28
Hnífamaður handtekinn Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn eftir hádegi í dag grunaður um að hafa lagt til vinnufélaga síns með hnífi í gærkvöld. Maðurinn, sem er af erlendum uppruna, er starfsmaður við Hellisheiðarvirkjun. 18.11.2007 14:58
Mývetningar felldu sameiningu Mývetningar felldu sameiningu þriggja dreifbýlissveitarfélaga í Suður-Þingeyjarsýslu í gær. Íbúar Þingeyjarsveitar og Aðaldælahrepps samþykktu hins vegar og geta því sameinast. 18.11.2007 14:07
Einn versti skaði á sveitabæ hérlendis Um tvöhundruð nautgripir drápust þegar nýuppgert fjós brann á bænum Stærri-Árskógi í Dalvíkurbyggð í Eyjafirði í gærkvöldi. 18.11.2007 14:05
Eiginkona og dóttir urðu vitni að slysinu Maðurinn sem lést í umferðarslysinu á Suðurlandsvegi við Rauðhóla í fyrrakvöld hét Kristinn Guðbjartur Óskarsson, til heimilis að Álfhólsvegi 151 í Kópavogi. 18.11.2007 13:59
Fórnarlamba umferðarslysa minnst Í dag, 18. nóvember er minnst fórnarlamba umferðarslysa um allan heim. Af því tilefni sendi biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, prestum Þjóðkirkjunnar bréf og bað þá að minnast þessa í messum sunnudagsins. Í bréfi biskups segir meðal annars: 18.11.2007 13:53
Vopnað rán í Sunnubúð Þrír menn réðust inn í Sunnubúð við Mávahlíð rétt fyrir klukkan 11:20 í dag. Þeir voru vopnaðir kylfu og exi. Mennirnir ógnuðu starfsmanni sem var í búðinni og höfðu með sér á brott peninga úr sjóðsvél og tóbak. Skýrslutökur standa nú yfir og er ræningjanna leitað. 18.11.2007 13:46
Þúsundir nota Vefþuluna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði á föstudag nýja íslenska vefþjónustu sem fengið hefur nafnið Vefþula. Vefþulan er ætluð lesblindum námsmönnum og gerir þeim kleift að fá lesinn hvaða texta sem er á netinu, auk þess sem þeir geta sjálfir skrifað texta og fengið hann lesinn fyrir sig. 18.11.2007 13:09
100% viss um að Maddie sé á lífi Einkaspæjarar sem foreldrar Maddie McCann hafa ráðið til að leysa ráðgátunum um hvarf hennar eru handvissir um að hún sé á líf og að ekki líði á löngu þar til þeir hafi upp á henni. 18.11.2007 12:58
Nágranni þakkar fyrir að ekki fór verr í bruna í Fannarfelli "Lögreglan sparkaði gat í hurðina hjá mér og kom svo öskrandi inn," segir Gunnar Sverrrisson öryrki og íbúi í Fannarfelli í Breiðholti. Eldur kom upp íbúð fyrir ofan hann í morgun. 18.11.2007 11:37
Brúðkaup aldarinnar Tvær af ríkustu fjölskyldum landsins tengdust saman í dag þegar Jón Ásgeir Jóhannesson, sonur Jóhannesar í Bónus og Ingibjörg Pálmadóttir, dóttir Pálma í Hagkaupi, gengu í það heilaga. 17.11.2007 18:49
Eldur í verslun á Laugarvegi Eldur kom upp á Laugarvegi 12 nú á níunda tímanum í kvöld, en í þessu húsi rekur Rauði krossinn nytjaverslun. Að sögn lögreglunnar var um minniháttar atvik að ræða og er búið slökkva eldinn. 17.11.2007 20:44
Óveður veldur tjóni við Selfoss Bíll fór út af Skeiðarvegi norðan við Flúðir rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Ökumaður slasaðist ekki alvarlega, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Þá fauk bíll, sem var með tóma hestakerru, út af veginum undir Ingólfsfjalli um þrjúleytið í dag. Mikið hvassviðri er á Selfossi þessa stundina og stendur lögregla í ströngu við að bjarga ýmsum lausamunum sem fjúka um bæinn og geta skapað tjón. 17.11.2007 20:57
Eftirlýstur maður gaf sig fram Maðurinn sem lýst var eftir í gær, grunaður um kynferðisbrot, gaf sig fram við lögreglu seint í gærkvöld. Að sögn lögreglu var ekki talin ástæða til að halda manninum og var hann því látinn laus að lokinni skýrslutöku. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.11.2007 19:23
1.600 týndu lífi hið minnsta Tæplega 1.600 manns hið minnsta fórust þegar fellbylurinn Sadr fór yfir Bangladess í gær og fyrradag. Óttast er að mörg þúsund manns til viðbótar finnist látnir. 17.11.2007 18:45
Útlitið svart Mannkyn mun þjást og þriðjungur dýrategunda jafnvel deyja út verði ekkert gert til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í lokaskýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag. Formaður nefndarinnar segir hana leiðbeina leiðtogum í leit að lausnum. 17.11.2007 18:30
Óttast um afdrif 200 nautgripa Mikill eldur kom upp í fjósi við Stærri-Árskóga í Eyjafirði rétt fyrir klukkan fimm í dag. Vegna mikilst hvassviðris gengur erfiðlega að slökkva eldinn og hefur hann nú læst sig í hlöðu sem er tengd fjósinu. Lögreglan á Akureyri segir að um 200 nautgripir hafi verið í fjósinu og óttast er að þeir hafi allir orðið eldinum að bráð. Bæði Slökkvilið Akureyrar og Slökkviliðið á Dalvík eru á vettvangi. 17.11.2007 17:56
Fáfnismenn enn við Frakkastíg Eigendur húsnæðisins við Frakkastíg og Hverfisgötu, þar sem vélhjólaklúbburinn Fáfnir heldur til, eru byrjaðir að ræða við Fáfnismenn um að þeir yfirgefi húsið. 17.11.2007 16:35
OR tekur í notkun nýja aflvél Orkuveita Reykjavíkur tekur í dag formlega í notkun nýja aflvél í Hellisheiðarvirkjun, sem mun spara fyrirtækinu 700 milljónir króna árlega í raforkukaupum fyrir almennan markað, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni. 17.11.2007 15:11
Vara-utanríkisráðherra Bandaríkjanna hitti Musharraf John Negroponte, vara-utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Pervez Musharraf, forseta Pakistan, á tveggja klukkustunda löngum fundi í dag. Á fundinum hvatti Negroponte forsetann til að leggja sitt af mörkum til þess að koma á friði í landinu, afnema neyðarlög og undirbúa frjálsar kosningar. 17.11.2007 14:39
Dregið úr kolmunnaveiðum Þriðja árið í röð verður dregið úr kolmunnaveiðum. Þetta var ákveðið á ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar sem lauk í Lundúnum í gær. 17.11.2007 13:42
Síldinni mokað upp úr Grundarfirði Síldarævintýrið á Grundarfirði heldur áfram og nú sem aldrei fyrr. Nótaveiðiskipið Guðmundur VE náði í gær 2000 tonna síldarkasti rétt fyrir utan byggðarlagið. 17.11.2007 13:39
Kosið um sameiningu í Suður-Þingeyjarsýslu Kosið er í dag um sameiningu þriggja sveitarfélaga í Suður-Þingeyjarsýslu, Aðaldælahrepps, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar. 17.11.2007 13:31
Misheppnuð heimsmetstilraun Aðstandendur hollensk sjónvarpsþáttar fóru ansi nálægt því að setja heimsmet í gærkvöldi. Ætlunin var að fella rúmlega fjórar milljónir dómínókubba í röð. Aðeins tókst af fella rúm 80% þeirra rúmlega fjögurra milljóna sem var raðað. 17.11.2007 13:29
Rústir þar sem áður stóðu hús Fjölmargir íbúar í strandhéruðum Bangladess fengu að snúa heim í morgun eftir að fellibylurinn Sidr gekk yfir landið í gær og fyrradag. Rústir húsa og bambuskofa var það sem beið flestra. Þeir sem áttu steinhús enn standandi skjóta nú skjólshúsi yfir þá sem hafa misst allt sitt. 17.11.2007 13:23
Kosið í Kósóvó Íbúar í Kósóvó-héraði ganga að kjörborðinu í dag og kjósa héraðsþing - þrátt fyrir að enn ríki algjör óvissa um framtíð héraðsins. 17.11.2007 13:18
Áhirf loftslagsbreytinga eru ótvíræð Áhrif loftslagsbreytinga eru ótvíræð og 90% líkur á því að útblástur gróðurhúsalofttegunda af mannvöldum sé helsta orsökin. Þetta er niðurstaðan í lokaskýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna - sem kynnt var í morgun. 17.11.2007 12:24
Látnir í Bangladesh um 2000 Vel yfir 900 lík hafa fundist í Bangladesh eftir að fellibylurinn Sidr reið þar yfir á fimmtudag. Fjölmiðlar í landinu segja að mun fleiri hafi látist og eru líkur leiddar að því að tala látinna sé um 2000. 17.11.2007 11:33
Forsetinn hefur frumkvæði af forvarnardegi Miðvikudaginn 21. nóvember verður haldinn Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Í 9. bekkjum verður dagskrá helguð baráttunni gegn fíkniefnum þar sem áhersla er lögð á uppbyggilegar forvarnir og þátttöku ungmennanna sjálfra. 17.11.2007 10:48
Vinur McCann hjónanna þjakaður af sektarkennd Vinur McCann hjónanna hefur nú stigið fram og segist hafa séð þegar Madelaine litla McCann var numin á brott. Hún segist nú þjökuð af sektarkennd fyrir að hafa ekki aðhafst neitt í málinu. 17.11.2007 10:29
Fulltrúar eigenda OR hittast aftur eftir viku Á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur, sem fram fór fyrr í kvöld, voru teknar aftur ákvarðanir á umdeildum eigendafundi 3. október sl. varðandi samruna Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy. 16.11.2007 22:46