Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vísaði frá máli um rekstur álbræðslu í Straumsvík Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli eigenda Óttarstaða vegna álversins í Straumsvík. Jörðin er í nágrenni við álverið og vildu eigendur hennar að dómurinn úrskurðaði að óheimilt væri að reka álbræðslu í Straumsvík vegna gastegunda og reyks sem takmarkaði not landeigenda af jörðinni. 24.10.2007 10:47
Boðað til kosninga á næstu vikum Ráðherrar í ríkisstjórn Danmerkur hafa staðfest við danska fjölmiðla að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra hyggist boða til þingkosninga á næstu vikum. 24.10.2007 10:40
Geðvonska af svefnleysi sést á heilanum Heilaskimun getur sýnt hvernig heilinn verður þreyttur og yfir-tilfinninganæmur ef manneskja er svipt svefni. Bandarískir vísindamenn héldu sjálfboðaliðum vakandi í 35 klukkustundir og fundu mjög vaxandi viðbrögð heilans þegar fólkinu voru sýndar myndir sem voru ætlaðar til að gera þau reið eða leið. 24.10.2007 10:39
Auðlindafrumvarp í anda Indónesa Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra fer mikinn á blog-síðu sinni þessa dagana en hann hefur verið í opinberri heimsókn í Indónesíu. Össur er greinilega mjög hrifinn af því hvernig löggjöf Indónesar hafa um orku-og auðlindir sínar og í síðustu blogfærslu skrifar Össur um nýtt auðlindafrumvarp sem hann hefur í smíðum og ber helst að skilja á honum að fordæmi Indónesa verði þar m.a. lagt til grundvallar. 24.10.2007 10:27
Hæstiréttur staðfesti einangrunarvist Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Einar Jökull Einarsson skuli sitja í einangrun til 1. nóvember en verjandi hans hafði kært úrskurðinn. Einar grunaður um að vera annar höfuðpauranna í Fáskrúðsfjarðarmálinu svokallað sem upp komst í síðasta mánuði. Hann er sá eini af þeim sem í gæsluvarðhaldi sitja sem enn er gert að dúsa í einangrun. 24.10.2007 10:26
Jafnréttisviðurkenning afhent í dag Jafnréttisviðurkenning ársins 2007 verður afhent í dag um leið og stjórnvöld úthluta fimm styrkjum til rannsókna á sviði jafnréttismála. 24.10.2007 09:26
Búist við að Rasmussen boði til kosninga í dag Búist er við því að Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra boði til kosninga í dag. Danskir miðlar hafa þetta eftir heimildamönnum út stjórnarliðinu. 24.10.2007 08:57
Enn leitað að móður stúlkunnar sem féll fram af svölum Leit stendur enn yfir að móður sjö ára gamallar breskrar stúlku sem féll af svölum hótelherbergis á Mæjorka á mánudag. Stúlkan liggur enn stórslösuð á spítala en hún féll um tíu metra niður á steypt þak. 24.10.2007 08:42
Búrma mótmæli í 12 borgum Fjöldasamkomur hafa verið skipulagðar í tólf stórborgum víðs vegar um heiminn í dag til þess að mótmæla herforingjastjórninni í Búrma. 24.10.2007 08:36
Eldri borgarar vopnaðir handsprengjum Danir geyma fleiri tonn af sprengjum og sprengiefnum í kjöllurum sínum og háaloftum. Þetta segir yfirmaður sprengjusveitar Danska hersins. Sprengjurnar eru flestar frá tímum seinna stríðs. 24.10.2007 08:30
Mótmæli í Venesúela Þúsundir námsmanna börðust við óeirðalögreglu í höfuðborg Venesúela, Caracas í gærkvöld. Námsmennirnir voru að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá landsins sem gera forsetanum umdeilda Húgó Chaves kleift að bjóða sig endalaust oft fram til endurkjörs. 24.10.2007 08:26
NATO fundar í Hollandi Ráðherrar Nató ríkjanna hittast í Hollandi í dag þar sem fjölgun í herliði bandalagsins í Afganistan og spenna á landamærum Íraks og Tyrklands verður efst á baugi. 24.10.2007 08:22
Segist ætla að slátra Bhutto eins og geit Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra í Pakistan segir að henni hafi borist fleiri morðhótanir, en á annað hundruð manns lét lífið þegar sjálfsmorðssprengjumaður reyndi að sprengja Bhutto í loft upp við komu hennar til landsins í síðustu viku. 24.10.2007 08:06
Hrasaði í skriðu Lögregla og björgunarmenn á Suðurnesjum bjuggust í gærkvöld undir björgunaraðgerð í berginu við Grófina í Keflavík, þar sem talið var að unglingspiltur hefði hrapað fyrir björg. 24.10.2007 08:03
Hálf milljón á flótta frá eldinum Ekkert lát virðist vera á gríðarlegum skógareldum í suður Kalíforníu og nú er svo komið að hálf milljón manna hefur þurft að yfirgefa heimili sín. 24.10.2007 08:01
Ráðuneyti tefur lekaskýrslu „Við eigum þessu ekki að venjast,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi, sem í hálft ár hefur beðið eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu um vatnsleka í íbúðum á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 24.10.2007 07:30
Brakið úr bimmanum þeyttist um allt Það þykir ganga kraftaverki næst að karl og kona skyldu sleppa lítið meidd eftir að bíll þeirra fór bókstaflega í tætlur á Kringlumýrarbraut laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. 24.10.2007 07:27
Skera upp herör gegn glæpagengjum Yfirvöld í Bandaríkjunum og Mexíkó hafa ákveðið að leggja um 504 milljarða króna á næstu þremur árum til efla löggæslusveitir í baráttu þeirra gegn mexíkóskum glæpagengjum. Talið er að glæpagengi í Mexíkó beri ábyrgð á stórum hluta þess fíkniefna sem smyglað er inn í Bandaríkin frá Suður Ameríku. 23.10.2007 20:54
Ekkert barnaklám í tölvu Ágústs Ekkert barnaklám fannst við leit í tölvu Ágústs Magnússonar, dæmds barnaníðings, að sögn Brynjars Níelssonar skipaðs verjanda hans. Lögreglan haldlagði tölvu hans fyrir tíu mánuðum síðan og er rannsókn lokið á gögnum sem í henni voru. 23.10.2007 19:55
Ellefur óbreyttir borgarar láta lífið í Afganistan Ellefu óbreyttir borgarar, þar á meðal konur og börn, létu lífið í bænum Jalrez í Afganistan í gær eftir að herþota á vegum NATO varpaði fyrir mistök sprengju á heimili þeirra. Þetta fullyrðir héraðsstjóri í héraðinu Jalrez í Afganista. Fólkið tilheyrði allt einni og sömu fjölskyldunni en aðeins einn meðlimur hennar slapp lifandi frá árásinni. Sá liggur nú alvarlega særður á spítala. 23.10.2007 19:53
Samstarf við systurkirkjur gæti skaðast Samstarf þjóðkirkjunnar við sumar systurkirkjur sínar gæti skaðast verði prestum hér á landi heimilt að staðfesta samvist samkynhneigðra. Þetta er álit verkefnisstjóra hjá Biskupsstofu. 23.10.2007 19:37
Tálbeitur á barnaníðinga Formaður allsherjarnefndar Alþingis telur að það kunni að vera réttlætanlegt að lögreglan noti sérstakar tálbeitur til að ná til meintra barnaníðinga. Þrír karlmenn sem gengu í gildru sjónvarpsþáttarins Kompáss voru í morgun sýknaðir af ákærum um tilraun til kynferðisbrota. 23.10.2007 19:17
Fann rándýrt málverk í ruslatunnu Málverk sem fannst fyrir tilviljun í rusltunnu í New York verður boðið upp á tæpar 45 milljónir hjá Sotheby í næsta mánuði. Um er ræða verkið Þrjár persónur eftir mexíkóska málarann Rufion Tamayo en því var stolið fyrir um 20 árum síðan. 23.10.2007 19:16
Gaf manni á baukinn við Gamla Bauk Þrítugur karlmaður hefur játað að hafa skallað tvítugan mann við veitingastaðinn Gamla Bauk við Húsavíkurhöfn aðfaranótt sunnudagsins 30. september síðastliðinn. 23.10.2007 18:52
Tyrkir reiðubúnir til innrásar hvenær sem er Tayyip Erdogan forsætisráðherra Tyrklands sagði í dag að Tyrkir kynnu að ráðast inn í Írak hvenær sem er til að elta uppi kúrdíska skæruliða. Spenna magnast á landamærunum og fátt bendir til að diplómatísk lausn sé í sjónmáli. 23.10.2007 18:48
Tvær íslenskar fjölskyldur hafa flúið elda í Kaliforníu Hundruð þúsunda manna eru á flótta undan skógareldum í Kaliforníu, þeirra á meðal Íslendingar sem búa í San Diego sýslu, suður af Los Angeles. Heimili að minnsta kosti eitt þúsund fjölskyldna hafa þegar orðið eldhafinu að bráð. 23.10.2007 18:46
Orkuveitan krafði viðskiptavini um margfalt vanskilagjald Orkuveita Reykjavíkur krafði suma viðskiptavini sína um margfalt vanskilagjald af einum og sama greiðsluseðlinum. Dæmi eru um að viðskiptavinir hafi verið krafðir um þúsundir króna þegar krafan átti einungis að vera 450 krónur. Orkuveitan segir að þetta hafi verið mistök. 23.10.2007 18:45
Ráðherra vill ekki hefta jarðakaup auðmanna Fjárfestingar þéttbýlisbúa í jörðum eru ekki ógn við sveitirnar heldur skapa ný tækifæri, að mati landbúnaðarráðherra, sem telur ekki ástæðu til að stemma stigu við miklum jarðakaupum efnafólks. 23.10.2007 18:45
Kennsluflugvél hrapar í Svíþjóð Tveir létu lífið þegar lítil kennsluflugvél hrapaði nærri bænum Jönköping í Svíþjóð í dag. Flugvélarinnar hafði verið saknað í nokkurn tíma áður en yfirvöldum var gert viðvart. 23.10.2007 18:42
Stuðningur við landbúnað mestur á Íslandi Stuðningur við landbúnað í heiminum er mestur á Íslandi og er hann metinn á fimmtán milljarða króna á síðasta ári, samkvæmt skýrslu OECD sem birt var í dag. Athygli vekur að kjúklingabændur njóta mests ríkisstuðnings hérlendis hlutfallslega, mun meiri stuðnings en kúa- og sauðfjárbændur. 23.10.2007 18:30
Kompásþátturinn stendur fyrir sínu Jóhannes Kr. Kristjánsson ritstjóri Kompás segir að Kompásþátturinn standi fyllilega fyrir sínu þrátt fyrir sýknu Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. 23.10.2007 18:13
Fullviss um refsiaðgerðir gegn Íran David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, segist vera fullviss um að Rússar og Kínverjar samþykki að beita refisaðgerðum gegn Íran á næsta fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram í máli Miliband á blaðamannfundi í Washington í dag. 23.10.2007 17:57
Slökkviliðið kallað að Flétturima Slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu fengu tilkynningu um reyk í íbúð við Flétturima í Reykjavík fyrir fáeinum mínútum. Um minniháttar eld var að ræða sem má rekja til bilunar í rafmagnstöflu. Íbúðin var reykræst. 23.10.2007 17:48
Discovery skotið á loft Geimferjunni Discovery var skotið á loft frá Canaveralhöfða á Flórída í dag en förinni er heitið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Um borð í geimferjunni er sjö manna áhöfn og tækjabúnaður sem ætlaður er fyrir rannsóknarstofur á vegum geimferðarstofnana Evrópu og Japans. 23.10.2007 17:37
Réðst að lögreglumönnum í Leifsstöð Lögregla á Suðurnesjum yfirheyrði í dag karlmann sem handtekinn var á öðrum tímanum í nótt í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. 23.10.2007 17:04
Öryggiskerfi í sundlaug yfirfarið eftir banaslys Öryggiskerfi Sundlaugar Kópavogs hefur verið vandlega yfirfarið eftir sviplegt slys síðastliðið vor sem dró ungan pilt í skólasundi til dauða. 23.10.2007 16:56
Hæstiréttur staðfestir farbann yfir Litháum Hæstiréttur hefur staðfest farbann yfir tveimur Litháum sem taldir eru tengjast litháísku þjófagengi sem grunað er um stórfelldan þjófnað úr fjölmörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. 23.10.2007 16:55
Skógareldarnir ógna 72 þúsund heimilum Skógareldarnir í sunnanverðri Kaliforníu ógna nú 72 þúsund heimilum og hafa þegar eyðilagt eitt þúsund og þrjú hundruð heimili. Meira en 300 þúsund manns hafa flúið heimili sín í San Diego sýslu þar sem fjöldi neyðarskýla eru orðin yfirfull. George Bush lýsti yfir neyðarástandi í dag í sjö sýslum Kaliforníu. Um leið fór í gang stórslysaáætlun landsins. 23.10.2007 16:54
Össur undirritar í Indónesíu Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Purnomo Yusgiantoro orkumálaráðherra Indónesíu undirrituðu í dag samstarfssamning á milli þjóðanna tveggja í jarðvarmaámálum. 23.10.2007 16:29
Tólf vilja stýra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu Tólf manns sækja um stöður ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en skipað verður í stöðuna frá og með áramótum. Meðal umsækjenda eru Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri, Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og Belinda Theriault, fyrrverandi forstöðumaður alþjóðamála á skrifstofu Alþingis. 23.10.2007 16:07
Gátu ekki tengst Leifsstöð vegna hvassviðris Nokkrar tafir urðu á millilandaflugi í gær vegna hvassviðris og þá gekk urðu vélar að bíða í röðum eftir því að fá afgreiðslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Þegar mest var náði vindhraðinn 27 metrum á sekúndu en öryggishámark á vellinum er 25 metrar á sekúndu. 23.10.2007 15:56
Bush ítrekar mikilvægi eldflaugavarnakerfis í Evrópu Nauðsynlegt er að setja upp eldflaugavarnakerfi í Evrópu til að verja Bandaríkin og bandalagsríki þeirra gegn mögulegum árásum frá Íran og öðrum óvinveittum þjóðum. Þetta kom fram í máli Bush, Bandaríkjaforseta, í Washington í dag. Lagði Bush mikla áherslu á að kerfinu væri ekki beint gegn Rússlandi. 23.10.2007 15:41
Vilja fullan aðskilnað ríkis og kirkju Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að styðja hugmyndir Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra um að leggja niður ráðuneyti kirkjumála. 23.10.2007 15:12
Offita orðin að „heimsfaraldri“ Fólk um allan heim er að verða feitara samkvæmt nýrri könnun Circulation journal sem framkvæmd var á einum degi víða um heim. Einungis íbúar Asíu eru möguleg undantekning samkvæmt könnuninni. 23.10.2007 15:04
Ráðherra tjáir sig ekki um yfirlýsingu Ólafs Arnar Haraldssonar Utanríkisráðherra mun ekki tjá sig um yfirlýsingu Ólafs Arnar Haraldssonar, fyrrverandi forstjóra Ratsjárstofnunar, í tengslum við brottvikningu hans úr starfi. Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir ráðherra ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna. 23.10.2007 15:03