Fleiri fréttir

Höfuðkúpubraut konu með öskubakka

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Vestmannaeyjum á sunnudag grunaður um að hafa slegið konu á fertugsaldri í höfuðið með gleröskubakka þannig að hún höfuðkúpubrotnaði.

Forsetinn leiddi Össur inn í prívatíbúðina

Í bráðskemmtilegri færslu á bloggsíðu sinni greinir Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra frá óvæntum fundi sínum með forseta Indónesíu. Endaði langur fundur þeirra með því að forsetinn dró Össur með sér inn í prívatíbúð sína og höfðu viðstaddir þrír ráðherrar landsins aldrei kynnst öðru eins.

Bara tryggður fyrir tapi verði forsendubrestur af hálfu OR

Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem því er haldið fram að fullyrðing Moggans á forsíðu blaðsins í dag, um samning Bjarna við OR, sé röng.

Verða að fá hagstæð langtímalán til jarðarkaupa

Bændur verða að hafa aðgang að hagstæðum langtímalánum til jarðakaupa, ef koma á í veg fyrir að stóreignamenn eignist allar bújarðir. Þetta segir helsti kúabóndi Vopnafjarðar sem segir brýnt að skipulagsyfirvöld skilgreini hvaða land megi taka undir aðra starfsemi.

Eddutilnefningar kynntar á morgun

Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 verða tilkynntar á morgun. Kosið verður í 16 flokkum auk þess sem heiðursverðlaun verða afhent og almenningur kýs vinsælasta sjónvarpsþáttinn á Vísi.

Tveir menn ábyrgir fyrir árásinni á Bhutto

Tveir tilræðismenn sprengdu sjálfsmorðssprengjurnar sem beint var gegn Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan þegar hún sneri aftur úr útlegð í síðustu viku. Bhutto slapp ómeidd en að minnsta kosti 136 manns létust í tilræðinu á bílalest hennar í Karachi á fimmtudag.

Fjárdráttarkærur velkjast um hjá lögreglu

Kærur Tryggingastofnunar um fjárdrátt upp á eitthvað á annað hundrað milljónir króna velkjast nú hjá lögregluembættum án þess að ákærur séu gefnar út. Forstjóri stofnunarinnar segir þetta vekja spurningar um framgang réttvísinnar.

Hundruð þúsund flýja eldana í Kaliforníu

Tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín í Kaliforníu vegna mikilla skógarelda, einkum í suðurhluta fylkisins. Að minnsta kosti þrettán skógareldar í sunnanverðu Kaliforníufylki hafa eyðilagt sjö hundruð heimili, valdið dauða eins manns og skaðað á fjórða tug manna.

Utanríkisráðherra óskaði eftir uppsögn Ólafs Arnar

Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Ratstjárstofnunar, segir ekki það ekki rétt sem fram hafi komið í fréttum að hann hafi gengið á dyr án þess að upplýsa utanríkisráðuneytið um það.

Norðmenn segja Íslendinga falsa aflatölur

Samtök norskra útgerðarmanna hafa í bréfi til norska sjávarútvegsráðuneytisins dregið í efa að aflatölur íslenskra skipa á makrílveiðum í sumar séu réttar. Í það er látið skína að aflatölurnar hafi verið falsaðar til þess að koma Íslendingum að samningsborðinu við skiptingu makrílkvótans á milli strandríkja.

Upplýsingar um leigukostnað utanríkisráðuneytis ekki til reiðu

Í frétt á norska vefmiðlinum E24 kemur fram að húsaleiga fyrir norska sendiherrabústaði er himinhá í sumum tilfellum. Þannig er leigan á sendiherrabústaði Norðmanna í London heilar 18 milljónir íslenskra króna á mánuði. Vísir leitaði upplýsinga hjá utanríkisráðuneytinu um húsaleigukostnað á vegum Íslensku sendiráðanna, og sundurliðun á því hvar húsnæði er leigt og hvar það hefur verið keypt.

Varað við stórauknu framboði á e-töflum

Framboð e-taflna hefur stóraukist hér á landi undanfarnar vikur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við neyslu þessara taflna og boðaði til blaðamannafundar í morgun vegna málsins.

Steingrímur Njálsson dæmdur fyrir hótanir

Einn alræmdasti barnaníðingur Íslands, Steingrímur Njálsson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tvegja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir í garð Illuga Jökulssonar, fyrrverandi ritstjóra DV.

Þrír sýknaðir í Kompásmáli

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þrjá karlmenn af ákærum um tilraun til kynferðisbrota. Ákæran var byggð á tálbeitugögnum frá sjónvarpsþættinum Kompási.

Vinnur að söngleik um Múhameðsteikningamál

Sænski listamaðurinn Lars Vilks, sem komst í fréttirnar á dögunum eftir að sænskt dagblað birti myndir hans af Múhameð spámanni í hundslíki, vinnur nú að söngleik um mál sitt en hann hefur sætt líflátshótunum vegna myndanna.

Írakar hjálpa Tyrkjum með Kúrda

Írak hefur samþykkt að aðstoða Tyrki við að ná tökum á ástandinu gegn kúrdískum uppreisnarmönnum í norðurhluta Íraks. Hoshyar Zebari utanríkisráðherra Íraks sagði í dag að spennan á milli aðilanna yrði leyst með samningaviðræðum og þar yrði engum leyft að skemma fyrir. Zebari sagði þetta eftir fund með Ali Babacan utanríkisráðherra Tyrkja.

Íslandsmet í að steikja hamborgara

Kokkurinn á Vitabar hefur örugglega sett Íslandsmet í að steikja hamborgara á laugardaginn var en þá afgreiddi hann yfir 200 pantanir frá hádegi og fram til klukkan tíu um kvöldið, það er pöntun á 3 mínútna fresti. Þeir sem pöntuðu voru að mestu gestir á Airwaves-hátíðinni en svipuð örtröð var á staðnum í fyrra er hátíðin stóð yfir.

ESB stefnir á 'bláa kortið'

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögu um að koma bláum kortum í gagnið fyrir faglærða innflytjendur. Græna kortið í Bandaríkjunum er fyrirmynd bláa kortsins og myndi gefa faglærðum og fjölskyldum þeirra leyfi til að búa og vinna í sambandslöndunum.

Hafa mánuð til að meta Jón nauðgara

Tveir matsmenn hafa verið dómkvaddir til að meta hvort Jón Pétursson, sem hefur fengið tvo fimm ára dóma fyrir nauðganir á skömmum tíma, sé í raun ósakhæfur. Þeir hafa rétt rúman mánuð til að meta Jón því seinna mál hans verður tekið fyrir í Hæstarétti 28. nóvember næstkomandi.

Stúlka féll af svölum - móðurinnar leitað

Sjö ára gömul bresk stúlka féll fram af svölum á fimmtu hæð hótels á Mæjorka í gær. Stúlkan er í lífshættu en lögregla leitar nú móður hennar en ekkert hefur spurst til hennar eftir að stúlkan fannst á þaki viðbyggingar hótelsins.

Stökk í veg fyrir lest á Amager

Fertug kona lést í morgun á Tarnby lestarstöðinni á Amager í Kaupmannahöfn . Svo virðist sem konan hafi stokkið á teinana í þann mund sem lestin kom inn á stöðina og lést hún samstundis.

Mafían veltir gríðarlegum upphæðum

Ítalskir verslunarmenn hafa fengið sig fullsadda af ágangi ítölsku mafíunnar. Mafían þykir hafa fært sig upp á skaftið og nú heimtar hún nú verndargjöld frá stórum fyrirtækjum jafnt sem smáum.

200 minkar enn á flótta

Talið er að um 200 minkar leiki enn lausum hala, eða skotti, á Jótlandi eftir að brotist var inn í minnkabú í fyrrinótt og fimm þúsund minkum var sleppt lausum.

Konan sem rændi barni úr móðurkviði dæmd

Kviðdómendur í Missouri í Bandaríkjunum sakfelldu í gær konu fyrir morð sem vakti mikinn óhug árið 2004. Konan, sem er á fertugsaldri réðst þá á 23 ára gamla ólétta konu, myrti hana og fjarlægði barnið úr legi hennar.

Tannlæknir í rannsókn

Lögregla rannsakar nú meint misferli tannlæknis gagnvart Tryggingastofnun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er upphæðin, sem stofnunin telur að hann hafi dregið sér með ólögmætum hætti, töluvert hærri en sú, sem talið er að svæfingalæknir hafi dregið sér af stofnuninni með fölsuðum reikningum.

Tólk stútar teknir um helgina

Tólf ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helgina fyrir ölvunarakstur, samkvæmt helgaruppgjöri lögreglunnar.

Slökkvilið dældi vatni í tveimur húsum

Ýmislegt smálegt fauk, vatnselgur myndaðist víða á götum, og slökkvilið þurfti að dæla vatni út úr tveimur húsum í hvassviðri og mikilli rigningu á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær.

Hundruð óeirðarseggja í palestínsku fangelsi

Hundruð palestínskra fanga gerðu aðsúg að ísraelskum fangavörðum í Negev eyðimörkinni í suðurhluta Israel. Fimmtán Palestínumenn og 15 fangaverðir særðust í átökunum að sögn ísraelskra yfivalda.

Karlmaður á þrítugsaldri syrgir níræða eiginkonu

Argentínska parið Adelfe Volpes og Reinaldo Waveqche höfðu búið saman í nærri áratug þegar þau loks ákváðu að ganga í það heilaga í lok síðasta mánaðar. Nokkur aldursmunur var á þeim hjónum en Adelfe var 82 ára gömul en Reinaldo 24 ára. Aðeins nokkrum vikum eftir athöfnina lést Volpes.

Einar vill ítarlega umræðu um kýrnar

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt að niðurstaða um að flytja inn nýtt kúakyn til Íslands verði ekki tekin í fljótfærni. Hann vill að bændur ræði málið á sínum vettvangi og komist að niðurstöðu sín í milli.

Discovery skotið á loft á morgun

Geimskutlunni Discovery verður skotið á loft frá Flórídaskaga á morgun en för hennar heitið að alþjóðlegu geimstöðinni. Þar mun geimskutlan dvelja í fjórtán daga á meðan áhöfn hennar sinnir viðhaldi og endurbætum á geimstöðinni.

Annríki hjá lögreglu og slökkviliði

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Dalsmára í Kópavogi um sexleytið vegna þess að vatn lak úr læk í nágrenninu og inn í hús.

Fjárfestir í Lúxemborg eignast fjórðung jarða í Vopnafirði

Fjárfestir, búsettur í Lúxemborg, og aðilar honum tengdir, hafa á fáum árum eignast fjórðung allra jarða í Vopnafirði. Einn helsti kúabóndi sveitarinnar vill að stjórnvöld setji lög eða reglur sem takmarki fjöldakaup á jörðum.

SA: Einbeita sér að þeim launalægstu

Samtök atvinnulífsins vilja hækka laun þeirra sem ekki hafa notið launaskriðs og hafa setið eftir á meðan laun annarra hafa hækkað umfram launataxta.

Rússar opna leynilega flugstöð

Rússar stunda þessa dagana viðamiklar heræfingar í lofti, meðal annars með sprengjuflugvélum sem hafa verið að fljúga meðfram Íslandi. Hinn háleynilegi herflugvöllur í sunnanverðu Rússlandi, þar sem miðstöð vélanna er, hefur ekki áður verið opnaður vestrænum fréttamönnum.

Fundu 12 þúsund fornmuni á heimili ellilífeyrisþega

Lögreglan í Feneyjum á Ítalíu lagði í morgun hald á nærri 12 þúsund fornmuni sem fundust á heimili ellilífeyrisþega þar í borg. Maðurinn hafði í mörg ár stundað ólöglegan fornleifauppgröft víða á Ítalíu. Elstu munirnir sem fundust á heimilinu voru nærri 3.600 ára gamlir.

Atlantsolía í skaðabótamál við Olís

Atlantsolía sakar Olís um að hafa með ólögmætum hætti látið fjarlægja auglýsingabifreið félagsins af bílaplani við Skúlagötu. Bíllinn var fluttur upp í höfuðstöðvar Vöku þar sem lögmaður Atlantsolíu leysti hann út í dag. Félagið hyggst fara í skaðabótamál við Olís vegna málsins.

Færeyingar vilja íslenskt rafmagn

Færeyingar telja að þeir geti dregið úr útblæstri gróðurhúsaloftegunda um nærri 30 prósent fái þeir rafmagn frá Íslandi í gegnum sæstreng. Í dag eru flest öll heimil í Færeyjum hituð upp með olíu.

Tyrkir safna liði við landamæri Íraks

Tyrkneskar hersveitir héldu í dag að landamærunum við Írak eftir hörð átök við kúrdíska skæruliða alla helgina. Erdogan forsætisráðherra Tyrklands segir þó að ekki verði ráðast inn í Írak fyrr en fullreynt væri að aðrar leiðir dygðu ekki til að binda enda á árásir skæruliða.

Sjá næstu 50 fréttir