Fleiri fréttir

Umferðarálag við þolmörk í Ártúnsbrekku

Umferð um Ártúnsbrekku í Reykjavík um háannatímann á morgnana er alveg við þolmörk þess sem vegurinn ber, að mati sérfræðings hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar. Sundabraut mun taka allt að þriðjung þeirra umferðar þegar hún verður komin í gagnið.

Bílvelta rétt fyrir ofan Flúðir

Bílvelta varð á Skeiða- og Hrunavegi rétt fyrir ofan Flúðir um klukkan átta í morgun. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann lítið meiddur.

Leigubílstjórar í New York leggja niður vinnu

Um 13 þúsund leigubílstjórar í New York borg í Bandaríkjunum héldu sig heima í dag til að mótmæla nýju tölvukerfi sem borgaryfirvöld vilja setja í leigubíla. Ekki urðu miklar truflanir á samgöngum en nú stendur yfir tískuvika þar í borg. Leigubílstjórarnir telja að tölvukerfið muni brjóta á mannréttindum þeirra og auka óþægindi í akstri.

Brotist inn í bifreiðar á söluplani Brimborgar

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot inn í tvær bifreiðar á söluplani Brimborgar klukkan hálf fjögur í dag. Búið var að brjóta hliðarrúður bifreiðanna og gerð tilraun til að nema geislaspilara á brott. Framkvæmdastjóri Brimborgar segir um minniháttar tjón að ræða.

Víetnömsk könguló í heimsókn á Eskifirði

Starfsmenn netaverkstæðis á Eskifirði voru í síðustu viku að tæma gám sem í var efni til netagerðar. Gámurinn var kominn til Eskifjarðar alla leið frá Víetnam og reyndist hann innihalda laumufarþega. Starfsmennirnir ráku augun í köngulóarvef og vefsmiðurinn reyndist sprellifandi eftir ferðalagið langa.

Benedikt hættur Drangeyjarsundi vegna erfiðra aðstæðna

Sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur varð að hætta Drangeyjarsundi sínu nú í eftirmiðdaginn þegar hann var rétt um hálfnaður vegna erfiðra skilyrða. Benedikt sagði í samtali við Vísi að sjórinn hefði reynst kaldari en hann hefði reiknað með.

Ísland næstbest í heimi

Ísland er númer tvö á eftir Noregi í lífsgæðum íbúanna, samkvæmt rannsókn breska tímaritsins The Economist. Í þessari árlegu könnun tímaritsins er skoðaður efnahagur og lífsgæði íbúanna í 200 löndum. Gríðarlega margir þættir eru lagðir til grundvallar útkominni. Og þeir eru ólíkir.

Sala á Land Rover eykst um 43%

Alls seldust 2141 bifreið í ágúst síðastliðnum á móti 1498 í sama mánuði árið á undan. Þetta þýðir aukning um 43%. Þrátt fyrir góða sölu í ágústmánuði er samdráttur í heildar bílasölu á árinu um 11,9% frá 1. janúar talið til 31 ágúst, miðað við sama tímabil árið 2006.

Styttist í að friðarsúlan lýsi í Viðey

Eftir rétt rúman mánuð verður kveikt á friðarsúlunni svokölluðu í Viðey. Súlan verður vígð á afmælisdegi bítilsins John Lennon þann 9. október næstkomandi en súlan er hugmynd ekkju hans, Yoko Ono. Gert er ráð fyrir að kveikt verði á súlunni á hverju ári á afmælisdegi Lennons.

Vilja fljúga með fiskinn beint til útlanda frá Þingeyri

Nýstofnað fiskvinnslufyrirtæki á Flateyri, Eyraroddi, hefur hug að fljúga beint með ferskan fisk til útlanda frá Þingeyrarflugvelli. Þetta hefur Bæjarins besta eftir Teiti Birni Einarssyni, nýráðnum framkvæmdastjóra félagsins.

Benedikt hálfnaður með Drangeyjarsundið

Sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur er nú tæplega hálfnaður í Drangeyjarsundi sínu og fetar þar í kjölfar Grettis Ásmundarsonar fornkappa. Viggó Jónsson, fréttaritari Stöðvar 2 á Sauðárkróki, fylgir Benedikt eftir og í samtali við Vísi sagði hann að sundið gengi vel.

Hafnarvörður ákærður fyrir smygl

Hafnarvörður á Norðurlandi hefur verið ákærður fyrir að að smygla til landsins 32 lítrum af áfengi. Hann keypti áfengið af skipverja á flutningaskipi sem lá við höfn. Að beiðni þriðja aðila tók maðurinn svo á móti áfenginu á hafnarsvæðinu og flutti í áhaldahús.

Íslendingar kalla herlið sitt heim frá Írak

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að Ísland hætti þáttöku í friðargæslu í Írak. Frá og með fyrsta október verða engir íslenskir friðargæsluliðar í landinu. Með þessari frétt fylgir mynd af íslensku friðargæslusveitinni sem væntanlega verður kölluð heim fyrsta október.

Tekist á um hver eigi efsta hluta Esjunnar

Fyrirtaka var í þjóðlendumáli sem íslenska ríkið hefur höfðað á hendur eigendum jarða í kringum Esjuna. Vill íslenska ríkið meðal annars að efsti hluti Esjunnar, eins og það er orðað, verði úrskurðaður þjóðlenda. Ríkið höfðar mál á hendur alls 72 aðilum en meðal þeirra eru Reykjavíkurborg og fyrirtækið Stjörnuegg auk fjölda manna sem eiga lönd allt í kringum Esjuna, allt frá svæðinu innan Mógilsár og inn í Kjós.

Danir halda framhjá í bunkum

Fjórir af hverjum tíu Dönum halda framhjá maka sínum einhverntíma ævinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnuðurinn hefur áhyggjur af því að framhjáhald fari að teljast eðlilegt. Konur óttast mest tilfinningaleg tengsl manna sinna við aðrar konur. Karlmenn óttast hinsvegar mest kynferðislegt samneyti kvenna sinna við aðra menn.

Lögregla hafði afskipti af tugum utanbæjarbarna á Ljósanótt

Á Ljósanótt í Reykjanesbæ síðastliðinn laugardag þurfti lögreglan í Reykjanesbæ að hafa afskipti af 60 börnum sem annað hvort voru ölvuð eða höfðu gerst brotleg við reglur um útivistartíma. Helmingur barnanna var frá sveitarfélögum utan Suðurnesja.

Ólafur og Dorrit láta nágrannadeilu ekki stoppa sig

Ólafur Ragnar Grímsson forseti setur embættisskyldur sínar framar persónulegum hagsmunum. Þrátt fyrir að hann standi í hatrömmum nágrannadeilum við Þorstein Jónsson, stjórnarformann Glitnis, og reyndar fleiri út af fyrirhuguðum bílskúrs- og skjólveggjabyggingum við Laufásveg þá stoppaði það ekki hann og Dorrit Moussaieff í að vera heiðursgestir Glitnis í boði sem bankinn hélt í Rockefeller Center í New York í gærkvöld.

Umferðaröngþveiti á Miklubraut

Miklar umferðartafir eru á Miklubrautinni þessa stundina. Verið er að malbika austurleið frá Lönguhlíð að Kringlumýrabraut. Því hefur verið sett tvístefna á umferðargötuna þar sem alla jafna er umferð í vesturátt. Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er búist við að verkinu verði lokið fyrir síðdegistraffík, eða á milli klukkan 15 og 16.

Geir og Inga Jóna til Írlands

Geir H. Haarde forsætisráðherra sækir Íra heim í næstu viku ásamt eiginkonu sinni Ingu Jónu Þórðardóttur. Eftir því sem írskir miðlar greina frá er þetta opinber heimsókn og mun Geir hitta bæði Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands og Mary McAleese, forseta landsins.

Viðskiptaráðherra væntanlega á Volvo

Viðskiptaráðuneytið mun að öllum líkindum fjárfesta í forláta Volvo XC90 jeppa en eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 á dögunum ók viðskiptaráðherra um á óvistvænasta bílnum í ráðherraflotanum. Volvoinn er með díselvél og töluvert vistvænni en bensínhákurinn sem ráðherrann hefur ferðast í að undanförnu.

Bush íhugar heimflutning frá Írak

George Bush forseti Bandaríkjanna staðfesti í dag að hann væri byrjaður að hugsa um heimflutning bandarískra hermanna frá Írak, í takt við pólitíska og hernaðarlega þróun þar í landi. Bush sagði þetta á fundi með fréttamönnum í Ástralíu í dag.

Stjörnufréttamaður hrapaði á botninn

Hún var hröð niðurleiðin hjá danska stjörnufréttamanninum Jeppe Nybroe, hjá danska sjónvarpinu. Fyrir nokkrum mánuðum var hann einn af virtustu fréttamönnum Danmerkur. Í dag er hann atvinnulaus og það eru birtar háðslegar myndir af honum á You Tube.

Foreldrar Madeleine að skilja -portúgalskir fjölmiðlar

Foreldrar Madeleine McCann eru að því komin að skilja, að sögn fjölmiðla í Portúgal. Hjónin hafa haldið til í Portúgal síðan dóttir þeirra hvarf fyrir tæpum fjórum mánuðum. Þau segjast enn sannfærð um að litla telpan finnist á lífi. Portúgalskir fjölmiðlar virðast orðnir þreyttir á þeim og hafa birt um þau margar særandi fréttir. Gerry og Kate McCann eiga nú í málaferlum við blað sem hélt því blákalt fram að þau hefðu sjálf valdið dauða dóttur sinnar.

Ber ekki að sundurliða símreikninga að eigin frumkvæði

Símanum ber ekki að sundurliða reikninga áskrifenda sinna í talsímaþjónustu að eigin frumkvæði samkvæmt niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar. Hins vegar ber fyrirtækinu að sundurliða reikninga ef viðskipavinur biður um það og þarf viðskiptavinurinn ekki að greiða fyrir það.

Pirrar mig þegar ungt fólk svarar mér á ensku

Það pirrar mig þegar ungt fólk í afgreiðslustörfum svarar mér á ensku, segir hollensk kona sem hefur lært íslensku þau þrjú ár sem hún hefur búið á landinu. Að hennar mati er lykillinn að því að nýbúar læri íslensku að byrjað sé snemma á því að tala eingöngu íslensku við þá.

Verð á grásleppuhrognum rýkur upp

Verð á grásleppuhrognum hefur rokið upp að undanförnu vegna lélegrar vertíðar við Grænland og Nýfundnaland. Þá var lítið veitt hér við land vegna áhugaleysis út af verðlagningunni.

Action man í hremmingum á Austurlandi

Hreindýraveiðimenn úr Veiðifélaginu Sósunni rákust á Roger Johnson eða Action man í suddaveðri á leið frá Egilsstöðum til Hafnar í Hornafirði. Hann hugðist ná þar rútu til Reykjavíkur. "Roger var kaldur og blautur og alveg búinn að vera. Beiðni hans um aðstoð var vel tekið. Hjóli hans var hent upp á kerru og honum ekið til Reykjavíkur," segir Jónas Sturla Sverrisson, einn liðsmanna í Sósunni.

Sölumenn SS mættu ferskir til vinnu í morgun

Útisölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands, sem flestir tilkynntu sig veika í gær, mættu hressir til vinnu í morgun. Eins og greint var frá í gær herma heimildir Vísis að um verkfall hafi verið að ræða. Forstjóri SS segir engin eftirmál verða að atvikinu, málin hafi verið rædd í morgun.

Danska fótboltabullan mokar inn seðlunum

Danska fótboltabullan sem reyndi að kýla dómarann í leik Dana og Svía í Parken í júní hefur selt danskri sjónvarpsstöð einkarétt á sögu sinni og græðir nú á tá og fingri. Hann bætir svo gráu ofan á svart með því að heimta eina milljón króna af öðrum fjölmiðlum fyrir að veita viðtöl -eftir að búið er að sýna þáttinn á dönsku stöðinni. Í danska og sænska knattspyrnusambandinu eru menn æfir af reiði.

Höfðu mikið magn efna til sprengjugerðar undir höndum

Ríkissaksóknari Þýskalands, Monika Harms, sagði í morgun að mennirnir þrír sem voru handteknir í gær grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk hefðu hlotið þjálfun í Pakistan. Harms sagði á blaðamannafundi um málið að mennirnir hefðu haft undir höndum 680 kíló af vetnisperoxíði til sprengjugerðar.

Frestar því að gefa út tilmæli vegna FIT-kostnaðar

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur í bili hætt við að gefa út formleg tilmæli til banka og sparisjóða vegna svokallaðs FIT-kostnaðar og hyggst bíða niðurstöðu starfshóps sem viðskiptaráðherra skipaði til þess að fara yfir gjaldtöku bankanna.

Varnarmálaráðherra Svíþjóðar fór í fússi

Varnarmálaráðherra Svíþjóðar hefur sagt af sér vegna deilna við fjármálaráðherrann um framlög til landvarna. Ráðherrarnir eru flokksbræður í hægriflokknum Moderatarna. Svíþjóð heldur úti vel þjálfuðum her búnum hátæknivopnum. Framlög til varnarmála hafa hinsvegar verið skorin verulega niður undanfarin ár.

Ökumaður slapp ómeiddur þegar vörubíll valt

Vörubíll valt á hliðina rétt austan við Hala í Suðursveit á miðnætti. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Höfn í Hornafirði fór bíllinn út af veginum í vindhviðu og fór síðan á hliðina eftir að hann stöðvaði. Ökumann sakaði ekki en hann var einn í bifreiðinni.

Myrti mann og skrifaði reifara

Pólskur reifarahöfundur hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að fremja morð - á nákvæmlega eins hátt og hann hafði lýst í einni bóka sinna. Í ,,Amok", bók sinni frá árinu 2003, lýsir rithöfundurinn Krystian Bala því í smáatriðum hvernig pólskur kaupsýslumaður er myrtur á hrottalegan hátt.

Sprengdi hjákonuna í loft upp

Háttsettur kínverskur embættismaður var tekinn af lífi í dag fyrir að myrða hjákonu sína með bílsprengju. Aðeins liði tveir mánuðir á milli morðsins og aftökunnar. Vitorðsmaður hans var einnig tekinn af lífi og annar dæmdur í lífstíðar fangelsi. Málið hefur vakið mikla hneykslan í Kína þar sem spilling embættismanna hefur mjög verið til umræðu undanfarin misseri.

Meintar galdranornir brenndar lifandi

Nemendur við menntaskóla í Suður-Afríku brenndu lifandi tvær fullorðnar konur sem þeir grunuðu um að hafa lagt bölvun á skóla þeirra. Nemendurnir ruddust inn á heimili kvennanna í Natal héraði að drógu þær út á nærliggjandi íþróttaleikvang. Þar helltu þeir yfir þær bensíni og kveiktu í þeim.

Árásirnar mögulega áætlaðar 11. september

Varnarmálaráðherra Þýskalands sagði í morgun að yfirvöld hefðu traustar heimildir fyrir því þrír grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handteknir í gær hefðu ætlað að láta til skarar skríða fljótlega. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að skipuleggja hryðjuverkaárásir á flugvöllinn í Frankfurt og á herstöð bandaríkjahers í Ramstein.

Farþegum um Leifsstöð fjölgar um nærri tíu prósent milli ára

Um 671 þúsund farþegar komu til landsins um Keflavíkurflugvöll á fystu átta mánuðum ársins samanborðið 613 þúsund farþega á sama tíma í fyrra. Nemur aukningin níu og hálfu prósenti á milli ára eftir því sem segir í Hagvísum Hagstofunnar.

Héraðsdómur fellst á heilaskaðavörn í nauðgunarmáli

Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í morgun að kvaddir verði til matsmenn til að meta sakhæfi Jóns Péturssonar, margdæmds nauðgara. Jón var í apríl síðastliðnum dæmdur í fimm ára fangelsi í Hæstarétti fyrir hrottfengin brot gegn tveimur konum og í júní fékk hann annan fimm ára dóm fyrir að hafa nauðgað og misþyrmt á annan hátt fyrrverandi sambýliskonu sinni.

Sjá næstu 50 fréttir