Fleiri fréttir

Etna byrjuð að gjósa

Eldgos hófst í eldfjallinu Etnu á Sikiley í kvöld en ekki er talið að íbúum í nágrenni fjallsins stafi hætta af gosinu. Logandi hraun streymdi niður hlíðar fjallsins og aska barst yfir nærliggjandi þorp. Um lítið gos er að ræða.

Keyrt á rollu á Laugarvatnsvegi

Keyrt var á rollu á Laugarvatnsvegi um klukkan hálf tíu í kvöld. Ökumann sakaði ekki en rollan drapst við ákeyrsluna. Að sögn lögreglu eru slys af þessu tagi nokkuð algeng á þessum árstíma.

Eldur í sumarbústað í Vaðlaheiði

Slökkvilið Akureyrar var kallað út laust eftir klukkan sjö í kvöld eftir að eldur kviknaði í sumarbústað við Geldingsá í Vaðlaheiði. Bústaðurinn stóð í björtu báli þegar slökkvilið bar að garði. Engan sakaði í eldsvoðanum.

Árekstur á Reykjanesbraut

Tveir bílar rákust saman á Reykjanesbraut fyrir ofan Njarðvík rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Báðir ökumenn voru fluttir á sjúkrahús en þeir ekki alvarlega slasaðir.

Bílvelta á Biskupshálsi

Bílvelta varð á hringveginum á Biskupshálsi um klukkan hálf þrjú í dag. Engan sakaði í veltunni.

Búið að finna strokupilta

Piltarnir tveir sem struku frá meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldal á sunnudaginn fundust í íbúð í efra Breiðholti rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Það var íbúi sem gerði lögreglunni viðvart eftir að hann bar kennsl á drengina. Bifreiðin sem þeir stálu fannst skömmu síðar á Akureyri.

Vilja ganga sem fyrst frá sölu Hitaveitu Suðurnesja

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í dag að fresta tilllögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að bærinn seldi hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur. Oddviti sjálfstæðismanna segir brýnt að bærinn gangi sem fyrst frá sölunni.

Eldur í ruslatunnugeymslu í Vesturbænum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan átta í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í ruslatunnugeymslu í íbúðarblokk í Vesturbænum. Það var vegfarandi sem gerði slökkviliðinu viðvart.

Óttast um afdrif Steve Fossett

Leit stendur nú yfir að bandaríska auðkýfingnum og ævintýramanninum Steve Fosset en ekkert hefur til hans spurst síðan hann fór á loft í lítilli flugvél í Nevada fylki í Bandaríkjunum í gær. Frá þessu er greint á vefsíðu dagblaðsins Record-Courier í Bandaríkjunum.

Tíu ára fangelsi fyrir að heilsa að sið þýskra nasista

Yfirvöld í Austurríki rannsaka nú myndband sem sýnir unga austurríska hermenn heilsa að sið þýskra nasista. Myndbandið var tekið upp á farsíma og sett á Netið. Nasískur áróður er bannaður samkvæmt lögum í Austurríki og gætu hermennirnir átt von á því að vera dæmdir í allt að tíu ára fangelsi.

Vilja að kjör aldraðra og öryrkja séu leiðrétt

Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytunum hefur í dag borist fjöldi tölvupósta þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika. Tilefni póstsendinganna er veikindi tveggja kvenna með ólæknandi krabbamein sem búa við tekjuskerðingu vegna veikinda sinna.

Framboð til Öryggisráðs kynnt

Rúmlega 40% þjóðarinnar styðja framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en um þriðjungur er andstæður því. Fundarherferð í samvinnu við alla háskóla landsins hefst í vikunni þar sem alþjóðamál og framboðið verða kynnt.

Varað við skriðuföllum í Óshlíð

Vegna mikillar úrkomu og hættu á skriðuföllum er fólk varað við að vera á ferðinni um Óshlíð að ástæðulausu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Komið í veg fyrir hryðjuverk

Komið var í veg fyrir hryðjuverk þegar danska leyniþjónustan handtók í nótt átta grunaða hryðjuverkamenn í Kaupmannahöfn. Mennirnir eru allir sagðir tengjast al Qaeda.

Unglingur slasaðist þegar mótorkrosshjól skullu saman

Tveir fjórtán ára drengir lentu í árekstri á mótorkrosshjólum í Vestmannaeyjabæ í dag með þeim afleiðingum að annar þeirra slasaðist á fæti. Töluvert hefur borið á því að unglingar og börn aki réttindalaus um á mótorkross- eða fjórhjólum samkvæmt Umferðarstofu.

Meiri umferðarteppur í borginni en nokkru sinni

Meiri umferðateppur eru nú í borginni kvölds og morgna en nokkru sinni fyrr. Allir ætla sér að mæta á hárréttum tíma eftir að skólarnir hófu störf að nýju eftir sumarfrí. Þetta virðist sprungið gatnakerfið ekki þola.

Auglýsingin er nútímatrúboð

Ný auglýsing Símans, þar sem síðasta kvöldmátíðin er endurgerð, er smekklaus að mati biskups Íslands. Á biskupsstofu er spurt hvort ekkert sé heilagt lengur. Jón Gnarr, höfundur auglýsingarinnar, segir um nútímatrúboð að ræða.

Meira en helmingur tekna Íslandspósts á samkeppnismarkaði

Íslandspóstur gengur langt út fyrir verksvið sitt í samkeppni við einkafyrirtæki, segja talsmenn Hans Petersen hf. Forstjóri Íslandspósts segir að rúmur helmingur tekna Íslandpósts komi frá starfsemi á samkeppnismarkaði.

Sex réttindalausir ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sex réttindalausa ökumenn um síðustu helgi. Einn karlmaður á sextugsaldri var tekinn í Hafnarfirði. Sá sagðist hafa gleymt ökuskírteininu heima en við nánari athugun kom í ljós að búið var að svipta manninn ökuleyfi ævilangt.

MS ósátt við Siggi's skyr

Mjólkursamsalan íhugar að kæra íslenskan skyrframleiðanda í New York fyrir að selja vöru sína undir nafninu Siggi's skyr. Samsalan kveðst eiga einkaleyfi á vörumerkinu skyri.

Friðargæsluliði heim frá Írak

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla íslenska friðargæsluliða heim frá Írak þar sem Íslendingar vilji ekki taka þátt í stríðsrekstri þar.

Skólanemar streyma í strætó

Farþegum Strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um fjórðung á þessu hausti - þökk sé fríkortinu sem sveitarfélögin ákváðu að gefa framhalds- og háskólanemum. Þetta er mat framkvæmdastjóra Strætó.

Bláskógabyggð veðursælasta sveitarfélagið

Bláskógabyggð var veðursælasta sveitarfélagið í sumar samkvæmt veðurleik veðurstofu Stöðvar 2 og Vísis. Borgarbyggð var í öðru sæti en Rangárþing Eystra í því þriðja.

Strokupilta enn leitað

Ekkert hefur enn spurst til piltanna tveggja sem struku frá meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldal að kvöldi síðastliðins sunnudags. Talið er líklegt að piltarnir hafi stolið bíl og keyrt til Reykjavíkur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Barnaverndaryfirvöld hefur nú tekið formlega við málinu af lögreglunni á Húsavík.

Eldur í parhúsi í Breiðholti

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eld í parhúsi í Breiðholti laust eftir klukkan fimm í dag. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið bar að garði.

Dagdeild opnuð við líknardeildina í Kópavogi

Félagar í Oddfellow-reglunni á Íslandi færðu í dag Landspítalanum dag-, göngu- og fimm daga deild fyrir sjúklinga á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Slíkt er nýjung í starfsemi líknardeildar.

Lúðvík Gizurarson á engar kröfur í dánarbú Hermanns Jónassonar

Lúðvík Gizurarson getur ekki gert neinar kröfur um arf eftir Hermann Jónasson, jafnvel þótt forsætisráðherrann fyrrverandi verði úrskurðaður faðir hans. Það mál er nú fyrir dómi eftir að DNA próf leiddi í ljós að 99,9 prósent líkur eru á því að Lúðvík sé sonur Hermanns.

Felldu tillögu um að kaupa Laugaveg 4 og 6

Tillaga fulltrúa Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins í borgarstjórn um að borgarstjóra yrði falið að leita leiða til að festa kaup á húsunum að Laugavegi 4 og 6 með það fyrir augum að varðveita þau í upprunalegri mynd var felld á fundi borgarstjórnar nú í eftirmiðdaginn.

Heildstætt frumvarp um verkefnaflutning í haust

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni í haust flytja heildstætt frumvarp um breytingar á sérlögum vegna verkefnatilfærslna á milli ráðuneyta í samræmi við þær hugmyndir sem kynntar voru þegar ríkisstjórnin var mynduð. Þetta kemur fram í svarbréfi hans til Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins.

Finnar rífast um norrænt samstarf

Framtíð norræns samstarfs hefur verið margumrætt efni í Finnlandi. Í sumar birti dagblaðið Helsingin Sanomat greinaflokk um efnið. Umræðan hófst með grein sem Sampsa Saralehti skrifaði og staðhæfði að leggja mætti Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina niður.

Ósamræmi fagfólks ein ástæða nauðgunarsýknu

Algert ósamræmi í framburði vakthafandi læknis og hjúkrunarfræðings á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota var ein af ástæðum þess að 33 ára karlmaður var í dag sýknaður af því að hafa nauðgað greindarskertri konu á heimili sínu í maí á síðasta ári.

Yfir helmingur ók of hratt fram hjá Ingunnarskóla

Meira en helmingur ökumanna sem ók fram hjá Ingunnarskóla í hádeginu í gær ók of hratt og má eiga von á sekt. Eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni fóru 70 ökutæki um Kristnibraut í Grafarholti fram hjá skólanum á einni klukkustund og óku 39 þeirra of hratt.

Hérna eru geiturnar -fljúgum svo

Forstöðumenn ríkisflugfélagsins í Nepal fórnuðu tveim geitum síðastliðinn sunnudag til þess að friða skýjaguðinn Akash Bairab. Ástæðan fyrir fórninni var sú að önnur Boeing þota flugfélagsins hafði verið biluð í nokkrar vikur og því þurft að aflýsa mörgum áætlunarferðum.

Sölumenn SS í samúðarverkfalli

Tíu til tólf sölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands mættu ekki til vinnu í morgun og báru við veikindum. Heimildir Vísis herma að sölumennirnir séu ósáttir við að sölustjóra þeirra hafi verið sagt upp. Forstjóri SS segir þetta valda ákveðinni truflun hjá fyrirtækinu en segist ekki vilja ætla mönnum það að þeir geri sér upp veikindi.

Að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna hafnarsvæðis á Kársnesi

„Þetta fer fram úr okkar björtustu vonum," segir Arna Harðadóttir, formaður Betri byggðar á Kársnesi, en bæjaryfirvöldum í Kópavogi bárust að minnsta kosti 1500 athugasemdir vegna skipulagstillögu á hafnarsvæði á Kársnesi. Athugasemdafrestur vegna tillagnanna rann út í gær.

Biskup var búinn að blessa auglýsingar

Jón Gnarr, hugmyndasmiður auglýsingaherferðar Símans, sem sýnir síðustu kvöldmáltíðina í spaugilegu ljósi, fundaði með Biskupi Íslands, Hr. Karli Sigurbjörnssyni, áður en herferðin fór í loftið. Jón leiklas handrit auglýsingarinnar fyrir Biskup sem síðan gerði engar efnislegar athugasemdir við auglýsingarnar en bað Jón um að fara varlega og sýna tillitsemi. Í dag sagði biskup auglýsingarnar smekklausar. Jón Gnarr er undrandi á ummælum biskups.

Kynna niðurstöðu í hugmyndasamkeppni á fimmtudag

Dómnefnd sem skipuð var vegna hugmyndasamkeppni um nýtt skipulag í Kvosinni skilar tillögum sínum á fimmtudag. Þetta kom fram í máli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, formanns skipulagsráðsráðs borgarinnar og formanns dómnefndarinnar, á fundi borgarstjórnar í dag. Þar var verið að ræða niðurrif húsanna að Laugavegi 4 og 6.

Stóri bróðir vaktaði höfund stóra bróður

Breski rithöfundurinn George Orwell, sem bjó til hugtakið "Stóri bróðir," var sjálfur undir eftirliti þessa bróður án þess að hafa um það hugynd. Orwell skrifaði hina frægu bók 1984 um einræðisríki þar sem allir þegnarnir voru undir stöðugu eftirliti. Sumir þeirra voru reyndar jafnari en aðrir.

Fótboltabullan fékk skilorðsbundinn dóm

Frægasta fótboltabulla Norðurlanda, sem ákærð var fyrir að hlaupa inn á völlinn í leik Dana og Svía á Parken í júní síðastliðnum, var í dag dæmd í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi í bæjarrétti í Kaupmannahöfn. Auk þess var hinn 29 ára gamli Dani dæmdur til að sinna 40 klukkustundum í samfélagsvinnu og borga sakarkostnað.

Vill aðgerðaáætlun í landgræðslu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í morgun ræðu á alþjóðlegri ráðstefnu um landgræðslu og loftslagsbreytingar sem haldin er á Selfossi. Ráðstefnan er haldin í tilefni af 100 ára afmæli Landgræðslu ríkisins og fjölmargir sérfræðingar og alþjóðlegir áhrifamenn eru meðal þátttakenda.

Auglýsing Símans er ósmekkleg - Biskupsstofa

Ný auglýsing frá Símanum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum. Verið er að auglýsa nýjan farsíma og talað um að hann breyti gangi sögunnar. Og það er sannarlega farið inn í söguna því inn í þessa auglýsingu er skeytt síðustu kvöldmáltíðinni og samskiptum Júdasar og Krists. Auglýsingin er birt bæði í sjónvarpi og dagblöðum.

Sýknaður af því að hafa nauðgað þroskahamlaðri konu

33 ára gamall misþroska karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af ákæru þess efnis að hann hefði nauðgað 31 árs greindarskertri konu á heimili sínu í maí á síðasta ári. Ákærði viðurkenndi að hafa haft samræði við konuna en hann bar að það hefði verið með samþykki hennar. Í dómsorði kemur fram að framburður konunnar hafi verið efnislítill og óstöðugur og það megi rekja til mikillar greindarskerðingar hennar. Því var það talið ósannað að ákærði hefði þröngvað konunni til samræðis.

Öryggismat ekki gert eftir forskrift forsetans

Ríkislögreglustjóri neitar því að öryggismat sem embættið gerði fyrir Laufásveg 72 hafi ekki verið gert eftir forskrift forseta. Húsið er gestahús forsetaembættisins en nágrannar hússins hafa ekki fengið að gera breytingar á húsum sínum á þeirri forsendu að öryggismat ríkislögreglustjóra komi í veg fyrir þær.

Sjá næstu 50 fréttir