Fleiri fréttir

Eina "álverið" í Reykjavík rifið innan skamms

Landsvirkjun ætlar að hætta rekstri eina "álversins" í Reykjavík um næstu mánaðamót. Ástæðan? Landsvirkjun mun afhenda Reykjavíkurborg gamla vararafstöðvarhúsið við Elliðaár til niðurrifs. Rafstöðin hefur stundum verið kölluð "litla álverið" en kælirásir í gólfinu hafa verið griðastaður fyrir ál - lifandi glerál.

Mosfellsbær 20 ára

Mosfellsbær fagnar nú um stundir 20 ára afmæli sínu en bærinn fékk kaupstaðarréttindi 9. ágúst 1987. Í tilefni afmælisins hélt bæjarstjórnin opinn hátíðarfund þar sem ákveðið var að gera Salóme Þorkelsdóttur, fyrrverandi alþingismann, að heiðursborgara bæjarins. Einnig var ákveðið að reisa útivistar- og ævintýragarð innan bæjarmarkana.

Stærstur í heimi

Stærsti maður í heimi ku vera Úkraínumaðurinn Leonid Stadnik en hann mælist 2 metrar og 57 sentimetrar á hæð. Sakvæmt heimsmetabók Guiness þá er Stadnik rúmlega 22 sentimetrum hærri en fyrirrennari hans, Baó Tjintjún en hann er ekki nema tveir metrar og 36 sentimetrar á hæð.

Rússar hefja kaldastríðsflug á ný

Rússar hafa tekið upp kaldastríðs flug sitt á nýjan leik og senda nú sprengjuflugvélar sínar í langar eftirlitsferðir. Stefna þeir að því að endurheimta sinn fyrir sess og sýna hervald sitt langt út fyrir eigin landamæri.

Reksturinn kostar milljarð út næsta ár

Rekstur íslenska ratstjárstöðvakerfisins mun kosta milljarð króna út næsta ár, en ekki er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjárlögum. Formaður Vinstri-grænna gagnrýnir það og er ósáttur við vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í varnarmálum. Aðeins hluti af kerfinu nýtist Íslandi.

Ólögleg seðilgjöld?

Heimilin í landinu greiða upp undir hundrað og tuttugu þúsund krónur í seðilgjöld hvert á ári, sem forstjóri Neytendastofu segir oft tilhæfulaus og jafnvel ólögleg. Hann skorar á viðskiptaráðherra að beita sér fyrir lagasetningu sem dregur úr seðilgjöldum.

Indverjar ætla að opna sendiráð á Íslandi

Indverjar áforma að opna sendiráð á Íslandi. Frá þessu er greint í dagblaðinu Hindustan Times. Auk sendiráðs í Reykjavík er gert ráð fyrir að Indverjar komi sendiráðum á laggirnar í Guatemala, Níger og í Malí.

Von á yfirlýsingu frá bæjarstjórn Akureyrar

Töluverð umræða hefur skapast í kjölfar undirskriftasöfnunar sem Birgir Torfason veitingamaður á Akureyri stendur fyrir vegna þess að ungmennum var bannað að tjalda í bænum um síðustu helgi. Bæjarfulltrúi segir í samtali við Vísi að yfirlýsingar vegna málsins sé að vænta í kvöld eða í fyrramálið.

Nýr strengur fyrir netþjónabú

Ljósleiðarastrengurinn sem fyrirtækið Hibernia Atlantic hyggst leggja til Íslands haustið 2008 er stórt skref í átt til þess að á Íslandi geti erlend fyrirtæki reist netþjónabú.

Bátur lenti undir fallandi ísjaka

Átján ferðamenn slösuðust þegar skipstjóri á útsýnisbáti hætti sér of nærri Hornbreen jökli á Svalbarða í dag. Gríðarlegur jaki klofnaði frá jöklinum og féll í sjóinn. Báturinn steypti stömpum í öldurótinu og fólkið þeyttist til og frá eins og tuskudúkkur. Fregnum ber ekki saman um hvort einhver hluti jakans lenti á bátnum.

Lokað fyrir bílaumferð á Gaypride

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu býst við þúsundum gesta í Gleðigöngunni sem fer niður Laugarveginn á laugardag. Lokað verður fyrir almenna umferð á Laugavegi, Bankastræti og í Lækjargötu strax frá laugardag vegna göngunnar. Ökumönnum er því bent á að finna sér aðrar leiðir.

Skorað á bæjarstjórnina að segja af sér

Birgir Torfason, sem rekur veitingastaðinu Kaffi Akureyri og Vélsmiðjuna, hefur opnað vefsíðu á slóðinni www.akureyri.blog.is þar sem safnað er undirskriftum þeirra sem vilja skora á meirihluta bæjarstjórnar á Akureyri til að segja af sér tafarlaust.

Alþjóðlegir fjársvikarar herja á Íslendinga

Embætti ríkislögreglustjóra rannsakar alþjóðlegt fjársvikamál, þar sem nokkrum Íslendingum hefur borist bréf frá bresku fyrirtæki sem kallar sig Australian Lottery. Í bréfinu er fólk hvatt til að hafa samband vegna lotterívinninga sem það á að hafa unnið.

Stór hluti ratsjárkerfisins gagnslaus

Íslendingar hafa ekkert gagn af stórum hluta þeirra upplýsinga sem ratsjárkerfið hér á landi skilar. Eins og staðan er í dag nýtist ekkert sá hluti kerfisins sem Bandaríkjamenn notuðu til þess að hafa eftirlit með ferðum ókunnra véla við landið. Því er spursmál hvort Íslendingar hafa eitthvað að gera við að halda þeim hluta kerfisins gangandi. Með ærnum tilkostnaði.

Endeavour lögð af stað

Geimskutlan Endeavour er lögð af stað í 11 til 14 daga ferðalag til Alþjóðageimsstöðvarinnar. Skutlunni var skotið á loft frá Flórída kl: 22:36 að íslenskum tíma í gær. Geimskotið gekk áfallalaust.

Gjörbylting í fjarskiptum

Fyrirtækið Hibernia Atlantic vinnur að því að leggja nýjan ljósleiðarastreng, sem mun tengja Ísland við neðanjarðarstrengjanet í Norður-Atlantshafi, eftir því sem fram kemur á vefnum Teleography.com.

Sléttumýs skekja Spán

Sístækkandi stofn sléttumúsa, sem herja á Mið-Spán og skemma stærðarinnar ræktarlönd, er orðinn að þvílíkri plágu að þarlend stjórnvöld hyggjast grípa til þess neyðarúrræðis að leggja eld að stórum svæðum til að vinna bug á kvikindunum.

Mætti ekki á friðarfund

Rúmlega sex hundruð pakistanskir og afganskir ætthöfðingjar komu saman á friðarfundi í Kabúl í morgun til að ræða hryðjuverk. Forseti Pakistan, Pervez Musharraf, sem boðaður hafði verið á fundinn mætti ekki.

SAS flugvél nauðlendir á Kastrup flugvelli

Flugvél frá flugfélaginu SAS þurfti að nauðlenda á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í gær eftir að loftþrýstingur féll skyndilega í farþegarými hennar. Vélin, sem er af gerðinni Airbus 340, var á leið frá Kaupmannahöfn til Chicago í Bandaríkjunum þegar atvikið átti sér stað en um 240 manns voru um borð.

Mikill meirihluti kvenna fær of litla fólínsýru

Líkur á brjóstakrabbameini minnka um nærri helming hjá konum ef þær neyta mikillar fólínsýru eða borða nóg af fólasínríku fæði. Þetta sýnir ný og umfangsmikil rannsókn sænskra vísindamanna. Rannsóknin sýnir að mikill meirihluti kvennanna borðar of lítið af fólasíni.

Samfylkingin gagnrýnir aukafund um Kársnes í gær

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi gagnrýnir Sjálfstæðismenn í bænum fyrir að hafa boðað til aukafundar í gær vegna nýs deiliskiplags á Kársnesi, þar sem fjölga á íbúðum. Réttara hefði verið að taka málið fyrir á næsta reglulega fundi bæjarstjórnar í lok ágúst. Bæjarstjóri Kópavogs neitar því að fundinum hafi verið flýtt til að keyra málið í gegn.

Skoða myndir úr öryggismyndavélum til að finna skemmdarvarga

Málningu var slett á sendiráð Íslands við Norðurbryggju í Kaupmannahöfn í nótt og slagorð gegn áliðnaði á Íslandi skrifuð á bygginguna. Lögreglan í Kaupmannahöfn skoðar meðal annars myndir úr öryggismyndavélum í nágrenni sendiráðsins til þess að reyna að komast að því hver var þarna að verki.

Rússar hefja aftur kalda-stríðs herflug sitt

Rússneski flugherinn er aftur farinn að senda sprengjuflugvélar sínar í langar eftirlitsferðir til svæða þar sem Bandaríkin og NATO halda uppi eftirliti. Gera má því skóna að rússneskar sprengjuflugvélar fari aftur að sjást í grennd við Ísland. Rússar stefna ákveðnir að því að endurheimta sinni fyrri sess og sýna hervald sitt langt útfyrir eigin landamæri. Reuters fréttastofan orðar þetta á þá leið að Rússar hafi tekið upp kalda-stríðs flug sitt á nýjan leik.

Gömul sprengja drepur fjóra

Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja frá tímum seinni heimsstyrjaldar sprakk í Zamboangaborg á Filippseyjum í morgun. Mennirnir sem létust voru sjómenn en þeir ætluðu sér að selja sprengjuna í brotajárn.

Fjölmargir Norðurlandabúar unnu fyrir Stasi

Sænski rannsóknarblaðamaðurinn Björn Cederberg segir að fjölmargir Norðurlandabúar hafi unnið fyrir Stasi, hina illræmdu leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Cederberg hefur verið að rannsaka skjalasafn leyniþjónustunnar undanfarin fimm ár. Íslensk stjórnvöld létu á sínum tíma rannsaka hugsanleg tengsl nokkurra Íslendinga við Stasi. Cederberg hefur ekki enn nafngreint þá Norðurlandabúa sem hann telur hafa unnið fyrir Austur-Þjóðverja.

Malarbíll valt á Krýsuvíkurvegi

Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl þegar malarbíll valt á Krýsuvíkurvegi um níuleytið á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þurfti að senda tækjabíl á vettvang til að hreinsa upp olíu sem lak úr bílnum.

Þrír láta lífið í veðurofsa á Filippseyjum

Að minnsta kosti þrír létu lífið og 17 slösuðust þegar hitabeltisstormurinn Wutip gekk yfir Filippseyjar í nótt. Storminum fylgdi mikil úrkoma sem olli fjölmörgum aurskriðum. Þá flæddu ár yfir bakka sína og þurftu þúsundir manna að flýja heimili sín til að leita skjóls frá veðurofsanum.

Utanríkismálanefnd fundar um nýtt varnarsamkomulag

Utanríkismálanefnd Alþingis fundar nú um nýtt varnarsamkomulag við NATÓ og fyrirhugaðar heræfingar hér á landi. Það var Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna og fulltrúi flokksins í nefndinni, sem óskaði eftir fundinum.

Bíll gereyðilagðist í eldi

Eldur kviknaði í bíl af gerðinni Ford Transit við Urriðakvísl í Reykjavík, rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn kyrrstæður og enginn í honum þegar atvikið varð. Bíllinn er gerónýtur.

Bílainnbrotahrina í Hafnarfirði

Brotist hefur verið inn í sex bíla við miðbæ Hafnarfjarðar síðustu þrjár nætur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að þetta sé óvenjumikið á svo skömmum tíma. Þó sé algengt að innbrotum fjölgi þegar rökkva tekur á haustin.

Jarðskjálfti skekur Los Angelesborg

Jarðskjálfti að styrk 4,5 á Richter skók Los Angelesborg í morgun en skjálftinn átti upptök sín um 51 kílómetra norðvestur af borginni. Innanstokksmunir hristust og myndir féllu af veggjum. Að öðru leyti olli skjálftinn engu tjóni.

Treg laxveiði truflar ekki eftirspurn næsta sumars

Hin trega laxveiði í ám landsins það sem af er sumri hefur ekki haft áhirf á eftirspurn eftir veiðileyfum fyrir næsta sumar. Bjarni Júlíusson formaður SVFR segir ennfremur að ekki sé merkjanlegur munur á að menn falli frá veiðileyfum sínum í ár miðað við fyrri ár. "Það er að vísu ívíð meir um slikt nú miðað við fyrri ár en vart merkjanlegur munur," segir Bjarni.

Stígamót hljóta styrk í kjölfar tónleika

Hundrað þúsund krónur söfnuðust á tónleikum sem haldnir voru þann fyrsta ágúst síðastliðinn þar sem kynbundnu ofbeldi var mótmælt. Fjölmargir listamenn komu fram en gestir voru hvattir til að veita frjáls framlög til Stígamóta.

Endeavour tekst á loft

Mönnuð geimskutla, Endeavour, tókst á loft frá Florída rétt í þessu. Flugtakið virðist hafa gengið áfallalaust. För Endeavour er heitið til Alþjóða geimsstöðvarinnar þar sem byggingu hennar verður haldið áfram. Ráðgert er að ferðalagið taki 11 til 14 daga. Endeavour er á vegum Nasa. Þetta er önnur mannaða geimförin af fjórum sem Nasa hefur áætlað á árinu.

Flugfarþegi smyglaði apa undir hatti sínum

Maður hefur verið yfirheyrður af lögreglu á La Guardia flugvelli í New York eftir að api skaust undan hatti hans þar sem hann sat í flugvél á leið til borgarinnar frá Flórída. Farþegar urðu apans varir þar sem hann hékk í tagli mannsins og undi sér vel, að því er talskona flugfélagsins greindi frá í dag.

Mikil flóð í Suðuraustur-Asíu

Milljónir manna þurfa á aðstoða að halda eftir flóð í Suðuraustur-Asíu. Einna verst er ástandið í Assam-héraði á Indlandi en þar hafa fjölmargir íbúar þurft að flýja heimili sín.

Yfirvöld á Akureyri hvött til afsagnar

Hafin er undirskriftasöfnun á meðal bæjarbúa á Akureyri þar sem Bæjarstjórinn, Sigríður Björk Jakobsdóttir, er hvött til að segja af sér. Einnig er skorað á meirihlutann eins og hann leggur sig að gera slíkt hið sama. Undirskriftalistanum er ýtt úr vör í kjölfar umdeildrar ákvörðunar bæjaryfirvalda að banna ungmennum á aldrinum 18 til 23 ára að tjalda í bænum yfir verslunarmannahelgina.

Náttúran gegn Tourette

Sonur Heiðu Bjarkar Sturludóttur greindist með touretteheilkenni fyrir einu og hálfu ári síðan og var bent á að ekkert væri hægt að gera nema að láta drenginn á lyf ef einkennin versnuðu.

Hugmynd Björns ekki framkvæmanleg

Ívar Agnarsson, rekstrarstjóri veitingastaðarins Sólon í Bankastræti, gefur ekki mikið fyrir þá hugmynd Björns Bjarnasonar ráðherra að taka sér aðgerðir Akureyringa um verslunarmannahelgina til fyrirmyndar í viðleitni við að draga úr óreglu og ólátum í miðborginni um helgar eins og hann orðar það á heimasíðu sinni.

Séríslenskur sjúkdómur nýtist til rannsókna á Alzheimers og Parkinson

Rannsóknir á arfgengri heilablæðingu, sem er séríslenskur sjúkdómur, nýtast til rannsókna á Alzheimers og Parkinson sjúkdómunum. Heilablæðingin er einn sjaldgæfasti sjúkdómur í heimi. Doktor í sameindalíffræði segir að aðeins séu um 20 arfberar enn á lífi með genið.

Bið til jóla eftir úthlutuðum leikskólaplássum í Reykjavík

Foreldrar sem hafa fengið pláss fyrir börn sín á leikskólum Reykjavíkur nú í haust gætu sumir þurft að bíða til jóla eftir því að börnin komist að vegna manneklu. Um tvö hundruð manns vantar í störf á leikskólum borgarinnar. Skortur er líka á grunnskólakennurum og starfsmönnum skólavistunar.

Sjá næstu 50 fréttir