Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ölfusárbrú lokuð í kvöld Ölfusárbrú verður lokað í kvöld frá klukkan 21 til tvö í nótt vegna framkvæmda við hringtorgið við brúna á Selfossi. Vegagerðin bendir vegfarendum á Hringveginum á að fara um Ölfusárósabrú á Eyrarbakkavegi meðan á lokun stendur. 26.6.2007 11:03
Dæmdur fyrir að ráðast á lögreglukonu Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á lögreglukonu. Maðurinn réðst gegn konunni í anddyri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á Húsavík í lok árs 2005 og kýldi hana í brjóstkassann þannig að hún marðist. 26.6.2007 10:48
Fellibylur í Pakistan Fellibylur reið yfir strendur Pakistan í morgun, aðeins einum degi eftir að flóð banaði yfir 200 manns í Karachi borg.Yfirvöld í Pakistan hafa flutt þúsundir manna á brott af lágum landsvæðum. 26.6.2007 10:44
Bílaeltingaleikur í Hollandi Ökumaður í Hollandi sem var undir áhrifum kókaíns brást illa við þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Í kjölfarið hófst mikill eltingaleikur sem fjöldi lögreglubíla og þyrla tóku þátt í. 26.6.2007 10:41
Evrópusambandið ræðir við Tyrki Evrópusambandið stækkaði í dag viðræðugrundvöll við Tyrkland þegar hafist var handa að ræða um hagtölur og fjármálastjórn í landinu. Enn var þó horft fram hjá tveimur mikilvægustu punktunum í aðildaviðræðunum, efnahags- og gjaldmiðilsmálum. 26.6.2007 10:40
Skaut fangavörð til bana og lagði á flótta Fangi í Utah ríki í Bandaríkjunum náði byssu af fangaverði sem var að gæta hans og skaut hann til bana í dag. Lögregla yfirbugaði manninnn nokkru síðar á veitingastað í nágrenninu eftir eltingaleik. 25.6.2007 23:31
Gaddafi hvetur til stofnunar Bandaríkja Afríku Forseti Líbíu, Muammar Gaddafi hefur heitið því að berjast fyrir því að sameina ríki Afríku undir einni ríkisstjórn. Í ræðu sem hann hélt í Gíneu í dag sagði hann að sjálfstæð ríki í álfunni ættu sér enga framtíð, eina lausnin fælist í sameinaðri Afríku. 25.6.2007 22:28
Tveir látnir í vatnavöxtum á Bretlandi Tveir eru látnir eftir mikil flóð í kjölfar helliregns sem gengið hafa yfir Bretlandseyjar í dag. Björgunarsveitarmenn fengu ekkert að gert þegar maður drukknaði en fótleggur hans festist í niðurfalli. Þá hefur verið staðfest að þrettán ára gamall drengur hafi drukknað þegar áin Sheaf í Sheffield flæddi yfir bakka sína. 25.6.2007 22:06
Dreng bjargað í Sundlaug Akureyrar Líðan sex ára gamals drengs sem bjargað var frá drukknun í Sundlaug Akureyrar í dag er stöðug. Hann er kominn til meðvitundar og verður á gjörgæslu í nótt til eftirlits, að sögn vakthafandi læknis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. 25.6.2007 21:35
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði gegn málfrelsi Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í dag gegn málfrelsi námsmanna þegar nemandi tapaði máli sínu fyrir réttinum. Nemandinn hafði veifað fána sem á stóð „Bong hits 4 Jesus“, sem útleggja mætti á þá leið: „Fáum okkur í haus fyrir Jesús“. 25.6.2007 21:05
Tvíburum fjölgar með fleiri tæknifrjóvgunum Tvíburafæðingum hefur fjölgað hér á landi síðustu áratugi. Ástæða þessa eru tæknifrjóvganir og hækkandi aldur frumbyrja. 25.6.2007 21:01
Mosaeldur kviknaði út frá sígarettustubbi Vel gekk að ráða niðurlögum elds sem kviknaði við þjóðveginn vestan við Kirkjubæjarklaustur í dag. Eldurinn náði ekki að breiða mikið úr sér og aðeins eru um 12 til 14 fermetrar brunnir. Lögreglan á Hvolsvelli segir að hins vegar hefði getað farið verr en slóði sem varð á vegi eldsins og lítil gola sáu til þess að hann náði ekki að breiða úr sér. 25.6.2007 19:57
Ísbjörn, ugla, fálki og örn í Bolungarvík Ísbjörn, ugla, fálki og örn eru meðal þess sem hægt er að sjá á endurbættu Náttúrugripasafni Vestfjarða í Bolungarvík sem opnað var um helgina. 25.6.2007 19:27
Sarkozy skorar á alþjóðasamfélagið Forseti Frakklands skorar á alþjóðasamfélagið að sýna Súdönum hörku taki þeir ekki þátt í samvinnu um endalok átakanna í Darfur. Hann segir þögnina um stríðsglæpi í Darfur viðhalda átökum á svæðinu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir umheiminn hafa brugðist íbúum Darfurs. 25.6.2007 19:25
Hrapaði um tvær hæðir við björgun slökkviliðs Kínverskum manni var naumlega bjargað frá bruna á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Shanghaí á laugardag. Björgunarsveit og nágrannar fylgdust með þegar slökkviliðsmaður klifraði upp stiga og afhenti manninum öryggisbelti sem hann festi í handrið. Hann féll síðan um tvær hæðir en öryggislínan bjargaði honum frá því að hrapa til jarðar. 25.6.2007 19:15
Fomúlubíll í Smáralind Formúlubíllinn sem Nico Rosberg ekur við Smáralind á morgun, þriðjudag, er kominn til Íslands og hefur verið settur upp í Vetrargarði Smáralindar. Í tilkynningu kemur fram að bílnum, sem vegur um 600 kg, fylgi 20 manna starfslið ásamt tæplega 8 tonnum af búnaði. Þetta er 2007 útgáfa Williams sem notuð er í tilraunaakstri Williams liðsins á brautum um allan heim. 25.6.2007 19:13
Skerðing þorkskvóta getur jafngilt lokun frystihúsa Verði að öllu farið að tillögu Hafró um skerðingu þorskvótans getur það jafngilt því að loka þurfi fimmtán til tuttugu frystihúsum. Þetta er mat Starfsgreinasambandsins en fulltrúar þeirra funduðu með sjávarútvegsráðherra í dag. 25.6.2007 19:05
Bylting í heyskap Bændur á Suðurlandi eru sumir farnir að ráða verktaka í heyskapinn. Mikill sparnaður, segir bóndinn á Heiði í Biskupstungum. 25.6.2007 19:05
Fjölgun hjólhýsa og stærri bílafloti hér á landi eru merki um velmegun Stærri bílafloti, fjölgun hjólhýsa og tjaldvagna og betri vegir eru allt merki um aukna velmegun í íslensku samfélagi segir prófessor í félagsfræði. Lögreglan í Reykjavík segir umferðarteppuna á þjóðveginum í gær sjaldan hafa verið eins mikla. Stóraukinn fjöldi hjólhýsa og tjaldvagna á vegunum sé meginástæðan. 25.6.2007 19:03
Fatahreinsun sýknuð af þriggja milljarða skaðabótum Bandarískur dómari tapaði í dag máli sem hann höfðaði gegn eigendum þvottahúss í Washington vegna buxna sem týndust í hreinsun en komu síðar í leitirnar. Fatahreinsunin var sýknuð af rúmlega þriggja milljarða króna skaðabótakröfu. Ákæran var byggð á slagorði hreinsunarinnar sem sagðist tryggja ánægju viðskiptavina. 25.6.2007 18:59
Sökkva Hagavatni Sökkva ætti leirunum við Hagavatn til draga mjög úr moldroki eins og verið hefur í þurrkum á Suðurlandi aðundanförnu, að mati landverndarsérfræðings hjá Landgræslu ríkisins. Hann segir að rík þjóð eins og Íslendingar ætti að vera leiðandi í uppgræðslu á landi. 25.6.2007 18:57
Alcan bíður svars frá Landsvirkjun Væntanlegt svar Landsvirkjunar við ósk Alcan um framlengingu raforkusamnings gæti ráðið miklu um virkjana- og stóriðjuframkvæmdir í landinu á næstu árum og verður þannig prófsteinn á stjóriðjustefnu nýrrar ríkisstjórnar. Forstjóri Alcan vonar að stjórnmálamenn reyni ekki að bregða fæti fyrir áform fyrirtækisins. 25.6.2007 18:53
Enn á gjörgæslu eftir árás á heimili sínu Lithái á fertugsaldri er enn á gjörgæslu eftir árás á heimili hans í Bökkunum í Breiðholti aðfararnótt sunnudags. Enginn er í haldi lögreglu vegna málsins. 25.6.2007 18:45
Stjórn Alþóðabankans samþykkir tilnefningu Zoellicks Robert Zoellick hefur fengið blessun stjórnar Alþjóðabankans og mun hann því taka við af Paul Wolfowitz sem forseti bankans. Zoellick var tilnefndur af George Bush Bandaríkjaforseta og hann mun setjast á forsetastól 30. júní næstkomandi. 25.6.2007 18:09
Eldur slökktur um borð í Hafsúlunni Eldur kom upp í hvalaskoðunarbátnum Hafsúlunni rétt fyrir klukkan hálf sex. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu tókst skipverjum að ráða niðurlögum eldsins og er báturinn kominn til hafnar. 75 manns voru um borð í bátnum úti fyrir Lundey í Skerjafirði þegar eldurinn kviknaði. 25.6.2007 17:34
Dularfullur hryggur rannsakaður Bandarískir vísindamenn leggja á næstu dögum af stað í 40 daga rannsóknarleiðangur norður á boginn að hinum leyndardómsfulla Gakkel-hrygg. Hryggurinn er staðsettur neðan sjávar milli Grænlands og Síberíu, þar sem Norður-Ameríku-, og Evrópuflekarnir skiljast að. Svæðið vakti athygli eftir að kunnugt varð um mikla uppsprettu heits vatns þar. Margir telja að á þessum afskektu slóðum sé auðugt og sérstakt lífríki að finna sem þróast hafi einangrað umhverfis hverina í aldanna rás. 25.6.2007 17:22
Vilja að virkjun í Hverfisfljóti fari í umhverfismat Landvernd hefur sent umhverfisráðherra bréf þar sem farið er fram á að ráðherra ógildi úrskurð Skipulagsstofnunar varðandi virkjun í Hverfisfljóti í Hnútu í Skaftárhreppi. Stofnunin komst að því að þessi 2,5 megavatta virkjun þyrfti ekki að fara í umhverfismat. 25.6.2007 16:52
Alvarlegum umferðarslysum fjölgar um 60 prósent milli ára Alvarlegum umferðarslysum fjölgaði um 60 prósent á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2007 miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta sýna tölur Umferðarstofu. Alls slösuðust 52 alvarlega í 48 slysum á fyrstu fjórum mánuðum ársins en í fyrra voru þeir 33 í 30 slysum. 25.6.2007 16:37
Skógareldar í Kaliforníu Miklir skógareldar í Kaliforníu hafa eyðilagt meira en 200 heimili og neytt um þúsund manns til að yfirgefa heimili sín. 460 slökkviliðsmenn eru að berjast við eldinn og búist er við sú tala muni tvöfaldast fyrir kvöldið. 25.6.2007 16:37
Fyrsta búrfæðing djöflaskötunnar Á sædýrasafni í Japan er fæðingu djöflaskötu ákaft fagnað en þetta er í fyrsta skipti sem þessi dýrategund fjölgar sér búri. Fæðingin gekk að óskum hjá hinni 4,2 metra löngu móður og litli djöflaskötuunginn byrjaði fljótlega að synda um búrið og leika sér. 25.6.2007 16:35
Embætti borgarritara og borgarlögmanns endurvakin Embætti borgarritara og borgarlögmanns verða endurvakin samkvæmt nýsamþykktum breytingum á stjórnkerfi og skipuriti Reykjavíkurborgar. Það var gert á borgarstjórnarfundi í síðustu viku eftir tillögu Vilhálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra. 25.6.2007 16:27
Kyndill aðstoðar við slökkvilstarf í Skaftárhreppi Allt tiltækt slökkvilið á Kirkjubæjarklaustri ásamt björgunarsveit úr bænum hafa verið kölluð út til þess að slökkva í mosa sem logar rétti við vegamót þjóðvegar eitt og vegar sem liggur í Skaftártungu. 25.6.2007 16:07
Tekinn af lífi á morgun þrátt fyrir banvænan sjúkdóm Jimmy Dale Bland, 49 ára karlmaður, verður líflátinn í Oklahoma á morgun með banvænni sprautu. Bland var dæmdur til dauða árið 1996 fyrir að skjóta Doyle Windle Rains í hnakkann. Lögfræðingur Bland hefur reynt að fá aftökunni aflýst vegna þess að Bland þjáist af krabbameini sem mun draga hann til dauða innan nokkurra mánuða. 25.6.2007 15:53
Þurfa ekki að greiða 3,3 milljarða vegna glataðra buxna Dómari í Washington í Bandaríkjunum sýknaði í dag eigendur fatahreinsunar af kröfu dómara í borginni um 3,3 milljarða króna skaðabætur vegna buxna sem týndust í hreinsun. 25.6.2007 15:49
Vesturlandabúar lögleg skotmörk „Málaliðar munu halda áfram að ráðast á vesturlandabúa á götum Indónesíu til að verja íslamska trú,“ sagði hryðjuverkamaðurinn Abu Dujana við CNN. Hann segir að vesturlandabúar séu lögleg skotmörk. 25.6.2007 15:19
Ákærður fyrir morð á barnshafandi kærustu sinni Bandarískur lögreglumaður, Bobby Cutts, verður færður fyrir rétt í dag og formlega ákærður um að hafa myrt barnshafandi kærustu sína. Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Kærastan, Jesse Davis, fannst látin á laugardag en ýmislegt þykir benda til að hún hafi verið myrt á heimili sínu, þar sem tveggja ára sonur hennar og Cutts fannst yfirgefinn 15. júní. 25.6.2007 14:52
Dýr valda deilum í Húnavatnshreppi Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á karl og konu um sextugt vegna deilna þeirra um dauð lömb og hunda. 25.6.2007 14:47
Dauða seli rekur á land í Danmörku Fjöldi selkópa hefur rekið á land við Anholt eyju í Danmörku. 41 kópur hefur fundist á svæðinu. Ekki er vitað með vissu hvaða veira það er sem er að drepa selina. Skógar- og náttúrustofnun í Danmörku er að rannsaka málið. 25.6.2007 14:23
Hálfs árs fangelsi fyrir vörslu hass Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í sinni vörslu nærri sjö hundruð grömm af hassi. Lögreglan fann efnin við leit í bifreið mannsins í Hörgárbyggð í febrúar síðastliðnum en efnin hafði hann flutt með sér frá Reykjavík. 25.6.2007 14:23
Vilja að Bandaríkin framselji 13 leyniþjónustumenn Saksóknarar í Þýskalandi hafa óskað eftir því við Bandaríkin að 13 leyniþjónustumenn C.I.A verði framseldir til Þýskalands. Saksóknarnir halda því fram að leyniþjónustumennirnir hafi átt þát í að ræna þýskum ríkisborgara árið 2003. 25.6.2007 13:59
Al-Zawhari lýsir stuðningi við Hamas Ayman al-Zawhari, einn leiðtoga Al Qaeda og hægri hönd Osama Bin-Laden, ávarpaði múslima um allan heim á upptöku sem gengur um á netinu. Al-Zawhari lýsti yfir stuðningi við Hamas og óskaði eftir því að múslimar um allan heim myndu styðja Hamas með vopnum, peningum og ásrásum á bandaríkjamenn og Ísrael. 25.6.2007 13:42
Kynna aðalskipulagstillögur vegna Urriðafossvirkjunar Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Flóamenn að styðja við hreppsnefnd Flóahrepps í því að standa við nýja skipulagstillögu þar sem ekki er gert ráð fyrir Urriðafossvirkjun í neðri hluta Þjórsár. Skipulagstillögur með og án virkjunarinnar verða kynntar á íbúafundi í Flóanum í kvöld. 25.6.2007 13:41
Heilbrigðisyfirvöld í Kína setja reglur um líffæraígræðslu Heilbrigðisyfirvöld í Peking hafa veitt 13 sjúkrahúsum leyfi til að stunda líffæraígræðslur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir ólögleg viðskipti líffæra. Reglugerð sem bannar viðskipti með líffæri í Kína tók gildi 1. maí síðastliðinn. 25.6.2007 13:13
Rækjuvinnslu hætt hjá Miðfelli á Ísafirði Rækjuvinnslu fyrirtækisins Miðfells á Ísafirði hefur verið hætt ótímabundið frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta. Þar er vitnað í tilkynningu frá Elíasi Oddssyni, framkvæmdastjóra Miðfells, sem segir að ekki hafi verið teknar ákvarðanir um uppsagnir starfsfólks að svo stöddu, en tugir manna vinna hjá fyrirtækinu. 25.6.2007 13:12
Fundu eftirlýstan stríðsglæpamann með gagnabanka Interpol Yfirvöld í Frakklandi handtóku fyrir skemmstu karlmann frá Rúanda, Issac Kamali, sem eftirlýstur hefur verið fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. 25.6.2007 13:00