Erlent

Tveir látnir í vatnavöxtum á Bretlandi

Stræti Sheffield á Englandi fóru á kaf í dag.
Stræti Sheffield á Englandi fóru á kaf í dag. MYND/Getty

Tveir eru látnir eftir mikil flóð í kjölfar helliregns sem gengið hafa yfir Bretlandseyjar í dag. Björgunarsveitarmenn fengu ekkert að gert þegar maður drukknaði en fótleggur hans festist í niðurfalli. Þá hefur verið staðfest að þrettán ára gamall drengur hafi drukknað þegar áin Sheaf í Sheffield flæddi yfir bakka sína. Veðurspár gera ráð fyrir enn meiri rigningu og gæti úrkoma á næsta sólarhring jafnast á við venjulega meðalúrkomu í öllum júnímánuði.

Maðurinn sem festist í niðurfallsgrindinni var 28 ára gamall starfsmaður fiskeldisstöðvar í Hull og börðust björgunarsveitarmenn í marga klukkutíma við að bjarga lífi hans án árangurs. Þeir skiptust á að halda höfði hans ofan vatnsborðsins og voru farnir að undirbúa aflimun fótarins þegar maðurinn lést.

Þá var þyrla breska flughersins kölluð út í Sheffield til þess að bjarga hópi fólks sem var á þaki byggingar og komst hvergi. Byggingin var að hruni komin vegna vatnavaxtanna en flugmönnum þyrlunnar tókst að bjarga fólkinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×