Erlent

Skaut fangavörð til bana og lagði á flótta

Maðurinn er þakinn húðflúri eins og sést á myndinni.
Maðurinn er þakinn húðflúri eins og sést á myndinni. MYND/AP

Fangi í Utah ríki í Bandaríkjunum náði byssu af fangaverði sem var að gæta hans og skaut hann til bana í dag. Fanginn hafði verið fluttur á sjúkrahús vegna bakverks og þar skaut hann vörðinn og flúði í jeppabifreið. Lögregla yfirbugaði manninnn nokkru síðar á veitingastað í nágrenninu eftir eltingaleik.

Fanginn, Curtis Allgier er svokallaður snoðkollur og er líkami hans þakinn húðflúri eins og sést á myndinni, hann var í fangelsi vegna rána og fölsunarmála. Lögregla náði að stöðva för hans með því að koma fyrir gaddabeltum á veginum og gera flóttabílinn með því óökuhæfan. Þá snaraðist fanginn inn á nærliggjandi veitingastað þar sem lögreglu tókst að yfirbuga hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×