Erlent

Bílaeltingaleikur í Hollandi

Vera Einarsdóttir skrifar
Svona leit akurinn út eftir eltingaleikinn
Svona leit akurinn út eftir eltingaleikinn MYND/AP

Ökumaður í Hollandi sem var undir áhrifum kókaíns brást illa við þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Í kjölfarið hófst mikill eltingaleikur sem fjöldi lögreglubíla og þyrla tóku þátt í.

Ökumaðurinn keyrði niður tvö eplatré og stálgrindverk í sveithéraðinu Brabant í suður Hollandi. Hann endaði förina spólandi um hveitiakur rétt utanvið Dussen. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var maðurinn viti sínu fjær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×