Erlent

Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði gegn málfrelsi

MYND/Getty

Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í dag gegn málfrelsi námsmanna þegar nemandi tapaði máli sínu fyrir réttinum. Nemandinn hafði veifað fána í skólanum sem á stóð „Bong hits 4 Jesus", sem útleggja mætti á þá leið: „Fáum okkur í haus fyrir Jesús".

Rétturinn klofnaði í málinu en meirihluti hans komst að þeirri niðurstöðu að skólastjóri nemandans hefði verið í fullum rétti þegar hann rak hann úr skólanum og gerði fánan upptækan.

Dómararnir sögðu að skilaboðin á fánanum mætti túlka sem hvatningu fyrir eiturlyfjaneyslu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem málfrelsi námsmanna er tekið fyrir í Hæstarétti Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×