Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Teymishópur ræðir atvinnumál á Vestfjörðum á morgun Teymishópur sveitarfélaga á norðanverðurm Vestfjörðum sem skipaður hefur verið í kjölfar uppsagna hjá útgerðafyrirtækinu Kambi á Flateyri kemur saman í fyrsta sinn í hádeginu á morgun og ræðir hugsanlegar aðgerðir í atvinnumálum á svæðinu. 22.5.2007 16:37
Sprenging í Tyrklandi Sprengja sprakk í Ankara höfuðborg Tyrklands nú fyrir stundu. Fréttastofa CNN hefur eftir borgarstjóranum í Ankara að fjórir hafi látist í sprengingunni sem varð við inngang verslunarkjarna í Ulus hverfi. 56 munu vera særðir. 22.5.2007 16:35
Spá óvenju virku fellibyljatímabili Yfirvöld í Bandaríkjunum spá því að komandi fellibyljatímabil verði virkara en í meðalári, með um 13 til 17 storma, þar af sjö til tíu sem verði að fellibyljum. Af þeim verði þrír til fimm afar sterkir, eða í flokk þrjú, þar sem vindhviður eru um 180 km á klukkustund. 22.5.2007 16:13
Tónlist.is staðið skil á stefgjöldum Eigendur vefsíðunnar Tónlist.is hafa staðið skil á öllum stefgjöldum til Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF). Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra STEFs. 22.5.2007 16:04
Lugovoj segist hafa sannanir fyrir sakleysi sínu Andrei Lugovoj, fyrrverandi njósnari hjá KGB, neitar því að hafa hafa orðið fyrrverandi félaga sínum, Alexander Litvinenko, að bana og segir ákæru sem bresk stjórnvöld hafa gefið út í málinu eiga sér pólitískar rætur. 22.5.2007 15:47
Byggja 4 þúsund fermetra gagnageymslu á gamla varnarsvæðinu Stefnt er að því að byggja 4 þúsund fermetra húsnæði fyrir gagnageymslu og gagnaþjónustu á gamla varnarsvæðinu við Sandgerðisbæ. Það er Data Íslandia sem stendur fyrir verkefninu en fyrirtækið skrifaði undir viljayfirlýsingu við Sandgerðisbæ í dag vegna framkvæmdarinnar. Gert er ráð fyrir því að um 20 manns vinni við gagnageymsluna til að byrja með. 22.5.2007 15:38
Demókratar ógna innflytjendafrumvarpi Öldungardeildarþing Bandaríkjanna mun í dag ræða og greiða atkvæði um tvær breytingartillögur demókrata á innflytjendafrumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu. Í síðustu viku féllst George Bush Bandaríkjaforseti á tveggja flokka málamiðlunartillögu sem var þrjá mánuði í undirbúningi. Afgreiðslu á frumvarpinu hefur verið frestað um tvær vikur á meðan þingið fjallar um það. 22.5.2007 15:22
Geir fundar með einstökum þingmönnum fram undir kvöldmat Búist er við því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, verði fram undir kvöldmat að ræða við þingmenn flokksins og kynna þeim nýgerða stefnuyfirlýsingu flokksins og Samfylkingarinnar. 22.5.2007 15:21
Ísland til fyrirmyndar varðandi fæðingarorlof Íslenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið er góð fyrirmynd fyrir önnur Evrópuríki að mati Ursulu von der Leyen, félagsmálaráðherra Þýskalands. Þetta kom fram á máli hennar á blaðamannafundi í tengslum við ráðstefnu félags- og jafnréttismálaráðherra í Evrópu sem haldin var í síðustu viku. 22.5.2007 15:20
Lenda á íseyju Vísindamenn hafa lent á risastóri íseyju sem er á stærð við Manhattaneyju. Eyjan flýtur um Atlandshafið og er nú 600 kílómetra fyrir utan Norðurpólinn. 22.5.2007 15:16
Jafnræði kynja í ríkisstjórninni af hálfu Samfylkingarinnar „Já, við erum að tala við þingmennina og svo verður þingflokksfundur hjá okkur klukkan sjö og flokksstjórnarfundur klukkan átta þannig að það er tíðinda að vænta," sagði Ingibjörg Sólrún Gíslasdóttir, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 nú eftir hádegið 22.5.2007 15:09
Mega sækja felld hreindýr á vélknúnum tækjum utan vega Leiðsögumenn með hreindýraveiðum hafa fengið heimild til að sækja bráðina á léttum vélknúnum ökutækjum ef leiðsögumaður metur það svo að ekki sé hætta á náttúruspjöllum. Í ákvörðun Umhverfisráðuneytisins um þetta segir að ökutækin verði þó að vera minnst sex hjóla. 22.5.2007 14:39
Ríkið dæmt til að greiða yfir 2 milljónir vegna ólögmætrar uppsagnar Íslenska ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag gert að greiða fyrrum starfsmanni á varnarsvæðinu á Miðnesheiði rúmar 2 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar. Manninum var sagt upp vegna trúnaðarbrests. 22.5.2007 14:27
Héldu að danskur veiðimaður ætlaði að ráða Clinton af dögum Danskur veiðimaður vissi ekki hvaða á sig stóð veðrið í gær skömmu eftir að hann hafði ekið á dádýr á vegi nærri Árósum. Eftir því sem segir á vef Jótlandspóstsins hafði maðurinn tekið út riffil sinn og aflífað dýrið eins og lög gera ráð fyrir en skömmu seinna var fjöldi lögreglumanna kominn á vettvang. 22.5.2007 14:20
Á yfir 170 kílómetra hraða á Miklubraut Þrír menn hafa verið gripnir á síðustu fjórum dögum á yfir 140 kílómetra hraða á höfuðborgarsvæðinu. Þannig var tæplega þrítugur maður tekinn á 142 kílómetra hraða á Hringbraut á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardagsins var 17 ára piltur gripinn eftir að hafa ekið á 171 kílómetra hraða á Miklubraut. 22.5.2007 13:52
Geðveikislegir dýragarðar í Kína Mörgum dýragörðum í Kína er lýst sem geðveikislegum og hin mesta hneisa fyrir Kínverja af dýraverndunarsinnum í landinu. Í sumum þeirra sé heimilisdýrum kastað fyrir ljón og tígrisdýr, einungis til að skemmta gestum. Á tíu árum hafi engar framfarir orðið á meðferðum dýra. 22.5.2007 13:49
Fékk skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela jakka Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela jakka úr verslun á Akureyri. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. 22.5.2007 13:44
Aðalmeðferð í klórgasmáli á Austurlandi Aðalmeðferð hófst í dag í Héraðsdómi Austurlands í máli á hendur tveimur starfsmönnum Olís vegna klórgasslyssins á Eskifirði í fyrrasumar 22.5.2007 13:40
Tilfinningaþrungin stund föður Madeleine í heimabænum Það var tilfinningaþrungin stund þegar Gerry McCann faðir Madeleine heimsótti torgið í Rothley heimabæ fjölskyldunnar í Leicestershire. Nú eru 19 dagar frá því stúlkan hvarf í sumarleyfisbænum Praia de Luz í Portúgal. Torgið í Rothley er alþakið gulum borðum sem íbúar bæjarins hafa bundið á tré, bekki, umferðarmerki og á grasflötina sjálfa. Gerry er nú kominn aftur til Portúgal. 22.5.2007 13:10
Siv boðar harða stjórnarandstöðu Framsóknar Siv Friðleifsdóttir, fráfarandi heilbrigðisráðherra, var kjörin þingflokksformaður Framsóknarflokksins á fundi þingflokksins í morgun. Hún boðar harða stjórnarandstöðu Framsóknarflokks gegn því sem hún kallar frjálshyggjustjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. 22.5.2007 12:54
Öryrkjar kæra auglýsingar með Lalla Johns Öryrkjabandalag Íslands hefur ákveðið að kæra auglýsingar Öryggismiðstöðvar Íslands með Lalla Johns til siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa. Telur Öryrkjabandalagið að Öryggismiðstöðin sé að misnota aðstöðu Lalla og ala á ótta almennings gagnvart heimilislausu fólki. 22.5.2007 12:54
Kaupa ekki fisk frá hvalatengdum fyrirtækjum Sjö leiðandi matvöruverslanakeðjur í Bretlandi hafa heitið því að kaupa ekki fisk frá fyrirtækjum sem tengjast hvalveiðum. Hvalur er stór hluthafi í Granda, sem er stærsta útgerðarfélag hér á landi. Keðjurnar eru Waitrose, Tesco, Sainhsbury´s, Marks og Spencer, Co-up og Iceland, sem er að hluta til í eigu Baugs. 22.5.2007 12:45
Þingmenn Samfylkingar funda með Ingibjörgu Sólrúnu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er nú að kalla til sín þingmenn flokksins einn af öðrum. Fréttastofa Stöðvar 2 náði tali af Steinunni Valdís Óskarsdóttur, nýjum þingmanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra þegar hún var að koma af fundi með Ingibjörgu Sólrúnu. 22.5.2007 12:26
Kvenkyns stjórnarformönnum fækkar á milli ára Kvenkyns stjórnarformönnum í hundrað stærstu fyrirtækjum landsins hefur fækkað á milli ára og sömuleiðis hefur konum í stjórnum þeirra fækkað. 22.5.2007 12:15
Peningamálastefna stjórnvalda gengur að sjávarútvegi dauðum Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum, segir nauðsynlegt að horfið verði frá núverandi peningamálastefnu stjórnvalda og vextir lækkaðir. Núgildandi stefna sé að ganga frá sjávarútveginum dauðum og ný ríkisstjórn hljóti að breyta stefnunni. 22.5.2007 11:59
Ný ríkisstjórn tekur við á morgun Samkomulag hefur tekist um myndun ríkisstjórnar milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar og er fastlega búist við að ríkisstjórnarskipti verði á Íslandi á morgun. Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar liggur fyrir og formennirnir kynna hann nú þingmönnum sínum. 22.5.2007 11:56
Á annað þúsund ökutæki kolefnisjafna útblástur sinn Á annað þúsund ökutæki á vegum fyrirtækja og einstaklinga hafa kolefnisjafnað útblástur sinn. Rúmlega sextíu þúsund tré verða gróðursett á Geitasandi sem er fyrsta skógtæktarland fyrir kolviðaskóga hér á landi. Ef kolefnisjafna ætti alla bíla á Íslandi þyrfti að gróðursetja um sjö milljónir trjáa á ári. 22.5.2007 11:52
Stjórnvöld og Ísafjarðarbær grípi strax til aðgerða Vinstri græn á Ísafirði vilja að stjórnvöld og Ísafjarðarbær grípi strax til aðgerða til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búsetuflótta frá Flateyri eftir lokun fiskvinnslufyrirtækisins Kambs í bænum. 22.5.2007 11:42
Sofnaði á rauðu ljósi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu glímdi við heldur óvenjulegt mál á einum af fjölförnustu gatnamótum borgarinnar aðfaranótt sunnudags. Tilkynnt hafði verið um kyrrstæða bifreið á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar en þar var ökumaður í fastasvefni í bifreið sinni. 22.5.2007 11:25
„Hélt að þeir myndu drepa vin minn“ Sjálfboðaliði á vegum Félagsins Ísland-Palestína varð fyrir árás hóps ísraelskra ungmenna á götum borgarinnar Hebron í Ísrael í fyrradag. Spörkuðu þeir meðal annars í maga sjálfboðaliðans og köstuðu grjóthnullungi í höfuðið á öðrum grískum sjálfboðaliða. 22.5.2007 11:17
Vopnahlé boðað í Líbanon Fatah al-Islam ætlar að leggja niður vopn klukkan 11:30 að íslenskum tíma í von um að friður og ró komist á í einhvern tíma. Talsmaður hópsins sagði frá þessu nú í morgun og sagði að vopnahléið myndi halda svo lengi sem líbanski herinn gerði ekki árás. Hópurinn hefur barist við líbanska herinn í þrjá daga samfleytt. Hann tilkynnti í morgun að liðsmenn hans hefðu staðið á bak við sprengjutilræði í borginni en það hefur enn ekki verið staðfest. 22.5.2007 11:11
Sýknaður af óspektum vegna breytts tíðaranda Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað karlmann af ákæru um að hafa verið ölvaður og valdið óspektum, hættu og hneykslan á almannafæri á þeim grundvelli að viðhorf til drykkjskapar og óspekta sé allt annað nú en það var þegar lögreglusamþykkt sem snýr að málinu var gerð. 22.5.2007 11:00
Sumarið kemur seinna Það er í alvörunni 22. maí. Samkvæmt dagatalinu allavega Þeim sem þurftu að skafa af bílum sínum í morgun væri þó fyrirgefið að halda að þeir hafi tekið feil á dagsetningunni. 22.5.2007 10:38
Alitalia fellir niður 400 flug Ítalska flugfélagið Alitalia hefur fellt niður næstum 400 flug í dag vegna verkfalls flugliða og flugumferðarstjóra. Verkfallið tekur til bæði innan- og utanlandsflugs og stendur til klukkan 15 í dag að íslenskum tíma. Deila stendur milli aðilanna og flugfélagsins vegna kjarasamninga. 22.5.2007 10:30
Lugovoy ákærður fyrir morðið á Litvinenko Rússinn Andrei Lugovoy verður ákærður fyrir morðið á fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko. Saksóknari bresku krúnunnar skýrði frá þessu í morgun. „Í dag komst ég að þeirri niðurstöðu að sönnunargögnin sem lögreglan sendi okkur nægja til þess að ákæra Andrei Lugovoy fyrir að hafa eitrað fyrir og þannig myrt Alexander Litvinenko." sagði Ken MacDonald, ríkissaksóknari Bretlands, á fréttamannafundi. 22.5.2007 10:30
Fresta atvinnuviðtölum vegna mögulegrar vanhæfni Fresta þarf atvinnuviðtölum við 72 umsækjendur um starf markaðsstjóra Ferðamálastofu í Bandaríkjunum sökum þess að ferðamálstjóri telur sig mögulega vanhæfan til að fjalla um ráðninguna. Einn af umsækjendunum er skyldur starfsmanni Ferðamálastofu. 22.5.2007 10:30
Valt með átján tonn af fiski Stór fiskflutningabíll ásamt tengivagni ultu á hliðina í gær þegar vegkantur á Þverfjallsvegi í Skagafirði gaf sig undan þunga þeirra. Ökumaður slapp ómeiddur. 22.5.2007 10:23
Ofnæmisfrí jarðarber Sænskur vísindamaður hefur fundið út hvernig hægt er að rækta jarðarber sem valda ekki ofnæmi. Lífefnafræðingurinn Rikard Alm hefur skrifað doktorsritgerð um þetta og segist hafa verið í sambandi við áhugasama ræktendur. Það má því búast við að ofnæmisfrí jarðarber líti dagsins ljós á næstunni. 22.5.2007 10:00
Chavez fjármagnar mynd um þrælauppreisn Þing Venezuela hefur samþykkt að styrkja bandaríska leikarann Danny Glover um 18 milljónir bandaríkjadala en hann vinnur nú að gerð myndar um þrælauppreisn á Haiti. Hugo Chavez forseti landsins segist vonast til þess að myndin nýtist sem vopn í baráttunni við bandaríska heimsvaldastefnu. 21.5.2007 23:02
Jón vísar fregnum af afsögn á bug Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, vísar því á bug að hann hyggist segja af sér. Þetta kom fram í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins. Í Íslandi í dag fyrr í kvöld var sagt frá því að Jón hefði tilkynnt samstarfsmönnum sínum að hann ætli að segja af sér. 21.5.2007 22:27
Ruslahaugur nefndur í höfuðið á John Cleese Stórleikarinn og „Íslandsvinurin“ John Cleese móðgaði borgarbúa í Palmerston á Nýja Sjálandi svo heiftarlega að ruslahaugur borgarinnar hefur verið nefndur eftir leikaranum. 21.5.2007 22:03
Danskur ráðherra vill nota GPS tækni til þess að fylgjast með öldruðum Danski félagsmálaráðherrann Eva Kjer Hansen hefur lagt fram tillögur þess efnis að eldri borgarar í Danmörku sem þjást af heilabilun eða elliglöpum verði útbúnir búnaði sem gerir umsjónarmönnum kleift að finna þá með GPS tækjum ef þeir týnast. 21.5.2007 21:33
Jimmy Carter segir orð sín mistúlkuð Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjana segir að orð sín hafi verið mistúlkuð en fyrir nokkrum dögum var haft eftir honum í dagblaði í Arkansas að George W. Bush sé versti forseti í sögu landsins. 21.5.2007 21:20
Slökkviliðsstjórinn á Suðurnesjum hvetur til umbóta Slökkviliðsstjórinn á Suðurnesjum segir í pistli á vefsíðu Brunavarna Suðurnesja að breytingar og stækkun á samfélaginu á Suðurnesjum hvetji kalli á ábyrgari þjónustu. Aðeins fjórir eru á vakt auk stjórnenda bakvaktar á hverjum tíma. 21.5.2007 20:25
Þekkt seglskip brann í Lundúnum Eitt þekktasta seglskip 19. aldar, Cutty Sark, nær eyðilagðist í miklum bruna í Lundúnum í dag. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í því. Skipið hefur dregið að sér fjölmarga forvitna ferðamenn en er nú skaðbrennt flak. 21.5.2007 19:30