Geðveikislegir dýragarðar í Kína Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 22. maí 2007 13:49 Tígrisdýrin hakka í sig kálf fyrir framan fjölda áhorfenda. MYND/Enex
Mörgum dýragörðum í Kína er lýst sem geðveikislegum og hin mesta hneisa fyrir Kínverja af dýraverndunarsinnum í landinu. Í sumum þeirra sé heimilisdýrum kastað fyrir ljón og tígrisdýr, einungis til að skemmta gestum. Á tíu árum hafi engar framfarir orðið á meðferðum dýra. Sky sjónvarpsstöðin sýnir á vef sínum myndband sem sýnir ferð í rútum með dýragarðsgesti í Harbin Wildlife Park í Norður-Kína. Garðurinn er stærsti ræktunarstaður síberíutígra. Úr rútunum er gestunum boðið að kaupa lifandi heimilisdýr sem kastað er fyrir rándýrin. Rúturnar eru einnig útbúnar sérstökum lúgum sem gestir geta notað til að henda hænum sem þeir kaupa um borð til dýranna. Stjórn dýragarðsins segir að verið sé að þjálfa tígrisdýrin áður en þeim er sleppt út í frumsóga og segia gjaldið notað til reksturs garðsins. John Wederburn doktor og einn forsprakki herferðar gegn slæmri meðferð á dýrum segir aðferðirnar miðaldarlegar. Heimssamtök fyrir verndun dýra hafa einnig fordæmt þær. Dave Eastham talsmaður herferðarinnar segir aðferðina engan veginn ásættanlega í þeim tilgangi að skemmta fólki. Þá gagnrýna dýraverndunarsinnar dýragarða sem þjálfa birni með logandi kyndlum og láta þá keyra mótorhjól. Sem dæmi er þriggja ára björn í einni sýningunni klæddur í kjól og látinn draga bíl tvisvar á dag fyrir framan sumarleyfisgesti.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira