Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvítum sendibíl stolið við JL húsið í hádeginu Hvítum Citreoen C3 sendibíl var stolið fyrir utan Nóatún í porti JL hússins í hádeginu í dag um klukkan 12:30. Sendibíllinn er frá heildsölunni Bugt og var að koma með vörur í verslunina. Lyklarnir voru í bílnum. Þjófurinn hefur beðið færis eftir því að ökumaðurinn færi inn í verslunina og keyrt svo á brott. Látið lögregluna vita ef þið hafið upplýsingar um þjófnaðinn. Númerið á hvíta Citreoen sendibílnum er PE 877. 14.5.2007 14:11
Ragnheiður hættir sem bæjarstjóri Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, mun hætta sem bæjarstjóri þegar hún tekur sæti á Alþingi. Þessu lýsti Ragnheiður yfir í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í dag. 14.5.2007 13:54
Fangavörður dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi Fyrrverandi fangavörður á Litla Hrauni var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti og smygl á fíkninefnum inn í fangelsið. Fangi sem aðstoðaði vörðinn við smyglið var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi þar af voru tveir mánuðir skilorðsbundnir. 14.5.2007 13:44
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að aka próflaus Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið bíl án ökuréttinda á Selfossi. Lögregla hafði afskipti af manninum fyrr á árinu þar sem hann var í bílstjórasætinu við hús í bænum. 14.5.2007 13:39
Æ, nei -hola í höggi Það er auðvitað draumur allra golfara að fara holu í höggi. En það getur verið dýrt spaug í stórum klúbbi. Það er nefnilega hefð fyrir því að þeir sem fara holu í höggi verða bjóða drykk á línuna. Í mörgum klúbbum er lögð svo mikil áhersla á þetta að þar er neyðarskápur úr gleri sem hægt er að brjóta til að ná þar í viskíflösku, ef svo óheppilega vill til að holan er farin utan opnunartíma. 14.5.2007 13:30
Atvinnuleysi 1,1 prósent í apríl Atvinnuleysi reyndist 1,1 prósent í apríl síðastliðnum og minnkaði það um rúm þrjú prósent milli mánaða samvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Er atvinnuleysi um 11,7 prósentum minna en á sama tíma í fyrra. 14.5.2007 13:30
Bandaríkjamenn og Pólverjar ræða um eldflaugavarnakerfi Formlegar viðræður bandarískra og pólskra stjórnvalda um uppsetningu eldflaugavarnakerfis í Póllandi hefjast í dag. Bandaríkin vilja fá að setja upp 10 eldflaugar í landinu sem eiga að geta grandað langdrægum eldflaugum sem skotið yrði frá Íran yfir Atlantshafið. 14.5.2007 13:15
Dýr dráttur Kínverskur kaupsýslumaður hefur verið sektaður um fimm milljónir íslenskra króna fyrir að eignast sitt annað barn. Samkvæmt kínverskum lögum má hver fjölskylda aðeins eignast eitt barn. Lögin voru sett árið 1980 til þess að draga úr fjölgun þjóðarinnar. Kínverjar eru nú 1,3 milljarðar talsins. 14.5.2007 13:12
Segir Landsvirkjun hafa verið orðna óstarfhæfa Landsvirkjun var orðin óstarfhæf og þess vegna þurfti að selja eignarhluti sveitarfélaganna, segir fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri. Hann neitar að hafa selt hlut bæjarins á of lágu verði. 14.5.2007 13:00
Frú Sarkozy kaus ekki eiginmanninn Cecilia Sarkozy eiginkona nýkjörins forseta Frakklands greiddi ekki atkvæði í síðari umferð kosninganna, að sögn vefsíðunnar Rue89.com. Þetta er vinstri sinnuð fréttasíða sem fyrrverandi blaðamenn á dagblaðinu Liberation helda úti. 14.5.2007 12:46
Kjósendur voru ekki að sýna Framsóknarflokknum reisupassann Kjósendur voru ekki að senda Framsóknarflokknum þau skilaboð að hann ætti að standa fyrir utan næstu ríkisstjórn. Þetta kom fram í máli Guðna Ágústssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, í hádegisviðtali á Stöð 2. Hann segir fyrst og fremst innbyrðis átök og neikvæða umræðu hafa valdið því að Framsóknarflokkurinn hafi fengið slæma kosningu. Hann reiknar með að flokkurinn missi ráðherrastóla haldi núverandi ríkisstjórnarsamstarf áfram. 14.5.2007 12:29
Eldar loga og blóðug slagsmál í Kristjaníu Eldar loga á götum fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn og lögreglan á í blóðugum slagsmálum við íbúana. Átökin hófust þegar lögreglan fór inn í Kristjaníu til þess að rýma hús sem átti að rífia. Skólar í grennd við fríríkið hafa hvatt foreldra til þess að sækja börn sín hið fyrsta. 14.5.2007 12:26
Árni færist að líkindum niður um eitt sæti Landskjörstjórn fær í dag lista yfir útstrikanir á listum Sjálfstæðisflokks á Suðurlandi. Árni Johnsen mun að líkindum færast niður um eitt sæti en fimmtungur kjósenda flokksins strikuðu hann út. Það verður ekki fyrr en síðar í vikunni sem búið verður að fara yfir útstrikanir á Birni Bjarnasyni. 14.5.2007 12:26
Taka nokkra daga til að meta grundvöll fyrir áframhaldandi samstarfi Formenn stjórnarflokkanna segjast ætla að taka sér nokkra daga til að meta hvort grundvöllur sé fyrir áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Formaður Vinstri grænna segir það fley svo laskað að það sé ekki haffært. Formaður Frjálslynda flokksins bauð í gærkvöldi upp á þann valkost að sinn flokkur kæmi inn í ríkisstjórnina. 14.5.2007 12:07
Aðrein að Úlfarsfellsvegi lokað Aðreinin að Úlfarsfellsvegi við hringtorgið á Vesturlandsvegi verður lokað vegna vegaframkvæmda í einn mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 14.5.2007 11:56
Í kúrekaleik á Þorlákshafnarvegi Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af tveimur ungum mönnum á föstudag sem segja má að hafi verið í kúrekaleik. Hafði ökumaður dráttarvélar hringt í lögregluna og greint frá því að hann hefði verið á ferð um Þorlákshafnarveg þegar bifreið var ekið fram úr honum og byssu veifað framan í hann. 14.5.2007 11:52
Eggert styður leitina að Madeleine McCann Eggert Magnússon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, er í hópi þeirra sem heitið hafa fjármunum fyrir upplýsingar sem leitt geta til þess að breska stúlkan Madeleine McCann finnist. 14.5.2007 11:22
Þarf að taka prófið aftur vegna ofsaaksturs Sautján ára ökumaður var tekinn á 171 km hraða á Vesturlandsvegi í nótt þarf að fara á sérstakt námskeið og taka ökuprófið aftur vegna athæfisins samkvæmt nýjum ákvæðum umferðarlaga. 14.5.2007 11:02
Þarf aðeins pólitískan vilja til að viðhalda stjórnarsamstarfi Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir það einungis spurningu um pólitískan vilja að ríkisstjórnarflokkarnir tveir haldi áfram samstarfi sínu. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns. Nafni hans, Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna í borgarstjórn, segir hins vegar á sinni heimasíðu úrslit kosninganna kalla á að Framsóknarflokkurinn endurmeti sína stöðu. 14.5.2007 10:59
Rafmagnslaus við rafstöðvarvegginn Einstaklingar og fyrirtæki hafa orðið fyrir stórtjóni vegna síendurtekinna rafmagnstruflana í Grímsnes-og Grafningshreppi, segir í fundargerð sveitarstjórnar. Henni hefur verið falið að leita skýringa hjá orkusölum, en svo háttar til að allar þrjár Sogsvirkjanirnar eru í hjarta sveitarfélagsins. 14.5.2007 10:53
Óháður ráðherra í þjóðstjórn segir af sér Ráðherra í þjóðstjórn Palestínumanna hefur sagt af sér vegna vaxandi átaka milli fylkinganna sem standa að stjórninni, Fatah og Hamas. 14.5.2007 10:30
Mörg stjórnarmynstur í spilunum Reiknað er með því að viðræður Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins um áframhaldandi stjórnarsamstarf haldi áfram á næstu dögum. Formenn flokkanna ræddust saman í gær en engir formlegir fundir hafa þó verið boðaðir. Ríkisstjórnin fundar á morgun. Formenn tvegga stærstu stjórnarandstöðuflokkanna segja marga möguleika vera í spilunum. 14.5.2007 10:23
Óðir hundar drápu ær og lömb í Danmörku Æði rann á tvo hunda frá hundabúgarði í grennd við Ringsted í Danmörku og réðust þeir á fjárhóp. Þeir eltu uppi og drápu sextán ær og mörg lömb. Þegar eigandinn ætlaði að hemja þá réðust þeir líka á hann. 14.5.2007 10:20
Sagðist vera hryðjuverkamaður í flugvél SAS Flugvél SAS-flugfélagsins sem stödd var í Björgvin var rýmd í morgun vegna þess að farþegi um borð lýsti því yfir að hann væri hryðjuverkamaður. 14.5.2007 10:09
Verðmæti útfluttra sjávarafurða eykst um þrettán prósent Verðmæti sjávarafurða sem fluttar voru út á síðasta ári nam rúmum 124 milljörðum króna sem er tæplega þrettán prósentum meira en árið 2005 samkvæmt tölum Hagstofunnar. 14.5.2007 09:54
Bílvelta í Heiðmörk Bíll fór út af malarveginum í Heiðmörk um hálfáttaleytið í kvöld. Ökumaðurinn virðist hafa misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að bílinn valt og endaði á hvolfi. Þrennt var í bílnum. Farþegarnir hlutu aðeins minniháttar meiðsl og voru þeir komnir út úr bílnum þegar lögregla kom á vettvang. 13.5.2007 21:13
Þúsundir hermanna leita að félögum sínum Hópur með tengsl við Al Kaída samtökin hefur í yfirlýsingu sagst vera með þrjá bandaríska hermenn í haldi í Írak. Þúsundir bandarískra og íraskra hermanna leita nú að mönnunum sem hurfu eftir að sveit þeirra lenti í fyrirsát í úthverfi Baghdad á laugardag. 13.5.2007 20:51
Leiðtogarnir flestir á því að breytinga sé þörf á kjördæmakerfinu Formenn stjórnmálaflokkanna hittust í fjörlegum umræðum á Stöð 2 í kvöld. Þar voru úrslit kosninganna rædd og spáð í framhaldið. Menn virtust almennt á því að kjördæmakerfinu þyrfti að breyta. 13.5.2007 19:55
Ríkisstjórnin hélt naumlega velli Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt naumlega velli í þingkosningunum í gær og hefur nú samtals þrjátíu og tvo þingmenn gegn þrjátíuogeinum þingmanni stjórnarandstöðu. Framsóknarflokkurinn beið versta ósigur í níutíu ára sögu flokksins, tapaði fimm af tólf þingsætum, en stærstu sigurvegarar kosninganna teljast Vinstri grænir og Sjálfstæðisflokkur. 13.5.2007 19:35
Fjörugar umræður í Silfrinu Nýr þingmaður Framsóknarflokks, segir meiri grundvöll fyrir því að flokkurinn fari í vinstri stjórn heldur en að hann haldi áfram í núverandi stjórnarsamstarfi. Þingflokksformenn Vinstri grænna og Samfylkingar, sökuðu hvorn annan í Silfri Egils í dag um að stíga í vænginn við Sjálfstæðisflokkin. 13.5.2007 19:31
Hlutfall kvenna á þingi minnkar Konum á Alþingi fækkar um þrjár frá fyrra tímabili þegar tuttugu og þrír kvenkyns þingmenn sátu á þingi. Alls er hlutfall kvenna eftir Alþingiskosningarnar í gær innan við þriðjungur. 13.5.2007 18:56
Gríðarleg kjörsókn í fámennasta kjördæminu Kjörsókn var gríðarlega góð á fámennasta kjörstað landsins í gær. Aðeins ein manneskja nýtti ekki atkvæðarétt sinn. Í Mjóafirði voru tuttugu og átta manns á kjörskrá og kusu þar 27. Stemningin með besta móti í Sólbrekku, enda boðið upp á pönnukökur, rjómatertu og fleiri veitingar. 13.5.2007 18:49
Óvænt endurkoma og stutt stopp Það var stutt á milli hláturs og gráturs í nótt og morgun þegar frambjóðendur duttu inn og út af þingi með stuttu millibili. Einn reyndur þingmaður átti óvænta endurkomu á meðan annar nýliði staldraði stutt við á hinu háa Alþingi. 13.5.2007 18:45
Vinstri flokkarnir farnir að gæla við Sjálfstæðisflokk Guðni Ágústsson segir að í Silfri Egils í hádeginu í dag hafi komið fram að vinstriflokkarnir virðist báðir vera að gæla við samstarf við Sjálfstæðisflokkinn, þvert á fyrri yfirlýsingar. Siv Friðleifsdóttir segir ótímabært að tjá sig um líkur á áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna. 13.5.2007 17:45
Tæplega 22 prósent strikuðu yfir Árna Johnsen Tæplega 22 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi strikuðu yfir nafn Árna Johnsen í kosningunum í gær. Samkvæmt reglum fyrir kjördæmið þarf tólf og hálft prósent kjósenda flokksins að stroka frambjóðanda út svo hann falli niður um sæti. 13.5.2007 16:53
45 létust í sprengingu í norðurhluta Íraks Að minnsta kosti 45 létust í sprengjuárás í norðurhluta Íraks, í sjálfstjórnarhéraði Kúrda í dag. Vörubíl hlöðnum sprengiefni var ekið inn í skrifstofur kúsrdísks stjórnmálaflokks þar sem fundur var í gangi. 13.5.2007 15:54
Meiri grundvöllur fyrir vinstristjórn Nýr þingmaður Framsóknarflokksins, Bjarni Harðarson í Suðurkjördæmi, segir meiri grundvöll fyrir vinstristjórn með þáttöku Framsóknarflokksins heldur en að Framsókn starfi áfram með Sjálfstæðisflokki. 13.5.2007 14:56
Wigan yfir á móti Sheffield United Nú stendur yfir lokaumferðin í Ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. West Ham United á möguleika á því að forða sér falli úr deildinni en liðið keppir við Manchester United. Mikill fallbaráttuslagur ár sér líka stað á milli Sheffield United og Wigan. 13.5.2007 14:33
Jón segir ekki af sér Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins ætlar ekki að segja af sér formennsku að eigin frumkvæði, þrátt fyrir mikið fylgistap. Hann segir að frekara stjórnarsamstarf sé á valdi Geirs Haarde, forsætisráðherra. 13.5.2007 13:14
Geir segir áframhaldi stjórnarsamstarf blasa við Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í hádegisfréttum á Stöð 2 að flokkurinn væri ótvíræður sigurvegari kosninganna. Hann segir áframhaldandi stjórnarsamstarf blasa við. 13.5.2007 12:55
Kosningavefur Vísis sló í gegn Margföld umferð hefur verið á Vísis-vefnum frá því í gær miðað við meðalumferð og virðist almenningur hafa notfært sér kosningavefinn vel. Um fjórðungur þeirra sem fylgdust með kosningunum á vefnum voru staddir erlendis.Þá hafa viðbrögð við kosningasjónvarpi Stöðvar 2 verið framar vonum. Fjöldi fólks fylgdist með því á visir.is. 13.5.2007 12:36
Guðjón Arnar segist þokkalega sáttur Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist þokkalega ánægður með útkomu kosninganna. Flokkurinn heldur sama þingmannafjölda og fyrir kosningarnar þó töluverðar breytingar verði á þingliðinu. Flest atkvæði eru á bakvið hvern einstakan þingmann flokksins af öllum þingflokkunum. 13.5.2007 12:18
Kynjaskipting á nýju Alþingi Tuttugu konur munu sitja á nýju Alþingi Íslendinga á nýju kjörtímabili. Það er tæpur þriðjungur þingmanna. Þegar kemur að kynjaskiptingu eru Vinstri grænir sterkastir með tæplega helming, eða fjórar konur af fimm þingmönnum. 13.5.2007 12:06
Fjórðungur sjálfstæðismanna beitti útstrikunum í Suðurkjördæmi Tæplega 25 % kjósenda D-lista í Suðurkjördæmi strokuðu mann út af listanum í kosningunum í gær. Að sögn Karls Gauta Hjaltasonar formanns kjörstjórnar verður skoðað í dag hvaða nöfn eiga í hlut. Árni Johnsen vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu en samkvæmt RÚV beindust flestar útstrikanirnar gegn honum. 13.5.2007 10:51
Leiðtogi Talíbana fallinn Múlla Dadúlla, leiðtogi Talíbana í Afganistan, féll í átökum við herlið Atlantshafsbandalagsins í Helmand héraði í suðurhluta landsins um helgina. Talsmaður Bandaríkjahers greindi frá þessu í morgun og var blaðamönnum sýnt líkið. Fall Dadúlla er sagt mikið áfall fyrir Talíbana. 13.5.2007 10:18