Stjórnarandstæðingar mótmæla í Pétursborg 15. apríl 2007 10:51 Vladímír Pútín og Jean-Claude Van Damme á bardaganum í gær.
Hópur stjórnarandstæðinga í Rússlandi safnaðist saman á torgi í Pétursborg í morgun til þess að mótmæla einræðistilburðum Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands. Lögregla í borginni hefur mikinn viðbúnað líkt og lögreglan í Moskvu gerði í gær þegar hún handtók vel á annað hundrað mótmælendur í höfuðborginni. Þeirra á meðal var Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák og einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi. Hann var í haldi lögreglunnar í nokkrar klukkustundir og var svo leiddur fyrir dómara þar sem hann var sektaður um jafnvirði 2500 króna fyrir að raska almannafriði. Nokkrir mótmælendur voru handteknir í morgun þegar þeir komu til Pétursborgar eftir því sem útvarpsstöð í Rússlandi segir en yfirvöld bönnuðu bæði mótmælagöngurnar í gær og í dag. Hins vegar er haft eftir stjórnarandstæðingum úr hópi Kasparovs á fréttavef BBC að þeir eigi von á meiri fjölda en áætlað var í dag vegna þess hvernig rússnesk yfirvöld brugðust við í mótmælunum í Moskvu í gær. Vladímír Pútín var staddur í Pétursborg í gær þar sem hann sótti bardagakeppni ásamt belgíska leikaranum og bardagatröllinu Jean-Claude Van Damme og Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, sem er mikill áhugamaður um baradagaíþróttir.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira