Fleiri fréttir NATO banar níu almennum borgurum í Afganistan Níu almennir borgarar í norðurhluta Afganistan létu lífið í loftárásum NATO í dag. NATO gerði þá árásir fyrir mistök á íbúðarhúsnæði en þeir töldu að þar hefðu verið hryðjuverkamenn á ferð. 5.3.2007 17:46 Vilja ræða um hvort stytta eigi leyfistíma nagladekkja Viðræður um styttingu á leyfistíma nagladekkja við Umferðarstofu og athugun á kostum og göllum þess að taka upp einhvers konar takmarkanir eins og gjaldtöku á notkun nagladekkja í samvinnu við ríki og önnur sveitarfélög eru meðal aðgerða sem umhverfisráð borgarinnar samþykkti á fundi sínum í dag. 5.3.2007 16:53 Flestum meintum hryðjuverkamönnum sleppt Meirihluti þeirra sem hafa verið handteknir samkvæmt hryðjuverkalögum, í Bretlandi, síðan árásin var gerð á bandaríkin 11. september 2001, hefur verið látinn laus án ákæru. Samkvæmt tölum frá innanríkisráðuneytinu, sem birtar voru í dag, voru 1.126 handteknir frá árásinni til loka síðasta árs. Fjörutíu til viðbótar sátu í varðhaldi vegna aðgerða lögreglu gegn hryðjuverkum. Af þessum var 652 sleppt án ákæru. 5.3.2007 16:41 Megrunarpilla gefin frjáls Megrunarlyfið Alli hefur verið leyst undan lyfseðilsskyldu í Bandaríkjunum, og verður í sumar hægt að fá það í hvaða verslun sem er. Það var Bandaríska lyfjastofnunin sem ákvað að gefa lyfið frjálst. Lyfið nýtur mikilla vinsælda þar vestra. 5.3.2007 16:35 Lést í umferðarslysi í Hörgárdal Maðurinn sem lést í umferðarslysinu í Hörgárdal aðfaranótt sunnudagsins síðastliðinn hét Marcello Bruno La Fata, fæddur 9. júní 1968, til heimilis að Grettisgötu 43 í Reykjavík. Hann var ítalskur ríksborgari en hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár. 5.3.2007 16:30 Lækka gjaldskrá í félagsmiðstöðvum Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun að lækka gjaldskrá fyrir veitingar í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. 5.3.2007 16:21 Fyrsti fundur nýs hlutafélags um Ríkisútvarpið Stofnfundur Ríkisútvarpsins ohf. fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag en eins og kunnugt er var samþykkt á Alþingi snemma á árinu að breyta stofnuninni í opinbert hlutafélag. 5.3.2007 16:09 Frakkar senda liðsauka til Mið-Afríku Frakkar hafa sent liðsauka frá Gabon til Mið-Afríku lýðveldisins, eftir að hermenn þeirra þar lentu í átökum við uppreisnarmenn um helgina. Um eitthundrað hermenn voru sendir úr liði sem Frakkar hafa í Gabon. Uppreisnarmennirnir vilja steypa Francois Bozize, forseta af stóli. 5.3.2007 15:43 Stjórnarandstaðan tilbúin að greiða fyrir auðlindamáli á þingi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Frjálslynda flokksins lýsa sig reiðubúna til að greiða fyrir því að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum sem ekki eru háðar einkaeignarrétti verði tekið upp í stjórnarskrá. Þetta kom á blaðamannafundi flokkanna í dag í Alþingishúsinu. 5.3.2007 15:40 Slippurinn að líkindum upp á Grundartanga Slippurinn í Reykjavík flyst að líkindum upp á Grundartanga ef hugmyndir eigenda Stálsmiðjunnar ná fram að ganga. Stálsmiðjan hefur rekið það sem eftir er af slippnum við Mýrargötu en hann verður brátt að víkja fyrir íbúðarhúsnæði. 5.3.2007 15:30 Danir vilja grafa 9000 km af raflínum í jörðu Mikil samstaða er um það hjá stjórnmálaflokkum í Danmörku að grafa 9000 kílómetra af raflínum í jörðu, aðallega til þess að losna við risastór möstur og línur sem eru lýti á umhverfinu. Að sögn Jótlandspóstsins er meirihluti fyrir því á þingi að grafa línurnar. 5.3.2007 15:07 Vegi lokað í Steingrímsfirði vegna umferðaróhapps Búið er að loka veginum við Kirkjuból í Steingrímsfirði um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Ísafirði að flutningabíll hefði oltið og að lögreglan á Hólmavík væri á vettvangi. Frekari upplýsingar væri ekki að fá að svo stöddu. 5.3.2007 15:06 Skordýraeitur ógnar regnskógum Kosta Ríka Skordýraeitur ógnar nú mjög vernduðum regnskógum í Kosta Ríka, jafnvel þó að því sé dreift í margra kílómetra fjarlægð frá skógarjaðrinum. Þetta er vegna þess að eitrið leysist upp í rigningarvatni, gufar upp og fellur svo strax aftur sem regn í skógunum. Þetta kemur fram í tímaritinu Enviromental Science & Technology. Meðal afleiðinga þessa er að froskar og skriðdýrategundir í útrýmingarhættu drepast úr eitrinu. 5.3.2007 15:00 Yfir 60 umferðaróhöpp í borginni um helgina Sextíu og fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, flest minni háttar. Í þremur tilfellum var fólk flutt á slysadeild en í þeim hópi var 17 ára piltur sem velti bíl sínum á Suðurlandsvegi. 5.3.2007 14:59 Þrennt flutt á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Þrennt var flutt á slysadeild með minni háttar meiðsl um ellefuleytið í morgun eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar Í Garðabæ. Breytingar standa nú yfir á gatnamótunum. 5.3.2007 14:52 Rauðglóandi Visakort Sænskri móður brá í brún þegar hún fékk Visa reikninginn sinn þar sem fram kom að hún hefði keypt fyrir rífar 260 þúsund krónur í vefversluninni Playahead. Það kom enda á daginn að það var þrettán ára dóttir hennar sem hafði gerst svona umsvifamikil í viðskiptum og keypt bæði fyrir sjálfa sig og fjörutíu félaga sína. 5.3.2007 14:29 Menntaráð vill hækka styrki til einkarekinna grunnskóla Menntaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að beina því til borgarráðs að hækka styrki til einkarekinna grunnskóla í borginni úr rúmum 515 þúsund krónum á nemanda á ári í 600 þúsund og að hækkunin verði afturvirk frá áramótum. 5.3.2007 14:13 Ekkert bendir til þess að Díana hafi verið myrt 5.3.2007 14:02
Sjá næstu 50 fréttir
NATO banar níu almennum borgurum í Afganistan Níu almennir borgarar í norðurhluta Afganistan létu lífið í loftárásum NATO í dag. NATO gerði þá árásir fyrir mistök á íbúðarhúsnæði en þeir töldu að þar hefðu verið hryðjuverkamenn á ferð. 5.3.2007 17:46
Vilja ræða um hvort stytta eigi leyfistíma nagladekkja Viðræður um styttingu á leyfistíma nagladekkja við Umferðarstofu og athugun á kostum og göllum þess að taka upp einhvers konar takmarkanir eins og gjaldtöku á notkun nagladekkja í samvinnu við ríki og önnur sveitarfélög eru meðal aðgerða sem umhverfisráð borgarinnar samþykkti á fundi sínum í dag. 5.3.2007 16:53
Flestum meintum hryðjuverkamönnum sleppt Meirihluti þeirra sem hafa verið handteknir samkvæmt hryðjuverkalögum, í Bretlandi, síðan árásin var gerð á bandaríkin 11. september 2001, hefur verið látinn laus án ákæru. Samkvæmt tölum frá innanríkisráðuneytinu, sem birtar voru í dag, voru 1.126 handteknir frá árásinni til loka síðasta árs. Fjörutíu til viðbótar sátu í varðhaldi vegna aðgerða lögreglu gegn hryðjuverkum. Af þessum var 652 sleppt án ákæru. 5.3.2007 16:41
Megrunarpilla gefin frjáls Megrunarlyfið Alli hefur verið leyst undan lyfseðilsskyldu í Bandaríkjunum, og verður í sumar hægt að fá það í hvaða verslun sem er. Það var Bandaríska lyfjastofnunin sem ákvað að gefa lyfið frjálst. Lyfið nýtur mikilla vinsælda þar vestra. 5.3.2007 16:35
Lést í umferðarslysi í Hörgárdal Maðurinn sem lést í umferðarslysinu í Hörgárdal aðfaranótt sunnudagsins síðastliðinn hét Marcello Bruno La Fata, fæddur 9. júní 1968, til heimilis að Grettisgötu 43 í Reykjavík. Hann var ítalskur ríksborgari en hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár. 5.3.2007 16:30
Lækka gjaldskrá í félagsmiðstöðvum Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun að lækka gjaldskrá fyrir veitingar í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. 5.3.2007 16:21
Fyrsti fundur nýs hlutafélags um Ríkisútvarpið Stofnfundur Ríkisútvarpsins ohf. fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag en eins og kunnugt er var samþykkt á Alþingi snemma á árinu að breyta stofnuninni í opinbert hlutafélag. 5.3.2007 16:09
Frakkar senda liðsauka til Mið-Afríku Frakkar hafa sent liðsauka frá Gabon til Mið-Afríku lýðveldisins, eftir að hermenn þeirra þar lentu í átökum við uppreisnarmenn um helgina. Um eitthundrað hermenn voru sendir úr liði sem Frakkar hafa í Gabon. Uppreisnarmennirnir vilja steypa Francois Bozize, forseta af stóli. 5.3.2007 15:43
Stjórnarandstaðan tilbúin að greiða fyrir auðlindamáli á þingi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Frjálslynda flokksins lýsa sig reiðubúna til að greiða fyrir því að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum sem ekki eru háðar einkaeignarrétti verði tekið upp í stjórnarskrá. Þetta kom á blaðamannafundi flokkanna í dag í Alþingishúsinu. 5.3.2007 15:40
Slippurinn að líkindum upp á Grundartanga Slippurinn í Reykjavík flyst að líkindum upp á Grundartanga ef hugmyndir eigenda Stálsmiðjunnar ná fram að ganga. Stálsmiðjan hefur rekið það sem eftir er af slippnum við Mýrargötu en hann verður brátt að víkja fyrir íbúðarhúsnæði. 5.3.2007 15:30
Danir vilja grafa 9000 km af raflínum í jörðu Mikil samstaða er um það hjá stjórnmálaflokkum í Danmörku að grafa 9000 kílómetra af raflínum í jörðu, aðallega til þess að losna við risastór möstur og línur sem eru lýti á umhverfinu. Að sögn Jótlandspóstsins er meirihluti fyrir því á þingi að grafa línurnar. 5.3.2007 15:07
Vegi lokað í Steingrímsfirði vegna umferðaróhapps Búið er að loka veginum við Kirkjuból í Steingrímsfirði um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Ísafirði að flutningabíll hefði oltið og að lögreglan á Hólmavík væri á vettvangi. Frekari upplýsingar væri ekki að fá að svo stöddu. 5.3.2007 15:06
Skordýraeitur ógnar regnskógum Kosta Ríka Skordýraeitur ógnar nú mjög vernduðum regnskógum í Kosta Ríka, jafnvel þó að því sé dreift í margra kílómetra fjarlægð frá skógarjaðrinum. Þetta er vegna þess að eitrið leysist upp í rigningarvatni, gufar upp og fellur svo strax aftur sem regn í skógunum. Þetta kemur fram í tímaritinu Enviromental Science & Technology. Meðal afleiðinga þessa er að froskar og skriðdýrategundir í útrýmingarhættu drepast úr eitrinu. 5.3.2007 15:00
Yfir 60 umferðaróhöpp í borginni um helgina Sextíu og fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, flest minni háttar. Í þremur tilfellum var fólk flutt á slysadeild en í þeim hópi var 17 ára piltur sem velti bíl sínum á Suðurlandsvegi. 5.3.2007 14:59
Þrennt flutt á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Þrennt var flutt á slysadeild með minni háttar meiðsl um ellefuleytið í morgun eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar Í Garðabæ. Breytingar standa nú yfir á gatnamótunum. 5.3.2007 14:52
Rauðglóandi Visakort Sænskri móður brá í brún þegar hún fékk Visa reikninginn sinn þar sem fram kom að hún hefði keypt fyrir rífar 260 þúsund krónur í vefversluninni Playahead. Það kom enda á daginn að það var þrettán ára dóttir hennar sem hafði gerst svona umsvifamikil í viðskiptum og keypt bæði fyrir sjálfa sig og fjörutíu félaga sína. 5.3.2007 14:29
Menntaráð vill hækka styrki til einkarekinna grunnskóla Menntaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að beina því til borgarráðs að hækka styrki til einkarekinna grunnskóla í borginni úr rúmum 515 þúsund krónum á nemanda á ári í 600 þúsund og að hækkunin verði afturvirk frá áramótum. 5.3.2007 14:13
Stór hluti meintra kynferðisbrotamála felldur niður 262 af 380 málum sem bárust ríkissaksóknara vegna meintra kynferðisbrota voru felld niður á árunum 1999-2006. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars Leós Friðrikssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. 5.3.2007 13:53
Dæmdir fyrir pyntingar á Serbum Hæstiréttur Króatíu hefur staðfest fangelsisdóma yfir átta fyrrverandi herlögreglumönnum fyrir að pynta og myrða serbneska fanga í stríðinu árið 1992. Fórnarlömb þeirra voru bæði serbneskir hermenn og almennir borgarar. Mennirnir fengu sex til átta ára fangelsisdóma. 5.3.2007 13:35
Skattmann stekkur á Alexöndru Þegar Alexandra prinsessa sagði já við kærastann sinn klukkan fjögur á föstudag, urðu umtalsverðar breytingar á hennar högum. Hún er nú ekki lengur prinsessa heldur aðeins greifynja, og danski skattmann mun hér eftir hirða drjúgan skerf af tekjum hennar. 5.3.2007 13:18
Loftmengun minni eftir aldamót vegna meiri úrkomu Loftmengun var meiri í Reykjavík árin 1995 til 2000 heldur en árin 2002 til 2006 að því er segir á vef umhverfisssviðs Reykjavíkurborgar. Ástæðan er sögð meðal annars meiri úrkoma og betri mengunarbúnaður í bifreiðum þrátt fyrir fjölgun bíla. 5.3.2007 13:15
Átta fórust í árekstri flugvéla við skíðastað í Austurríki Átta manns fórust þegar þyrla og lítil einkaflugvél rákust saman í Austurríki, í dag. Slysið varð á skíðastaðnum Zell am See. Sjö manns voru um borð í þyrlunni, sem var að flytja tækjabúnað að nálægri orkuveitu. 5.3.2007 13:04
Konur í aðalhlutverki Sendinefndin sem fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra á ferð hennar um Afríku í síðustu viku var þorra ferðarinnar eingöngu skipuð konum. Ekki eru dæmi um að svo hátt sett sendinefnd hafi verið þannig skipuð. 5.3.2007 13:00
Hvorugur endurskoðenda Baugs vissi um kaupréttarsamninga Endurskoðendur Baugs vissu hvorugir um kaupréttarsamninga yfirmanna Baugs fyrr en eftir að lögreglurannsókn hófst. Anna Þórðardóttir, endurskoðandi Baugs, kom fyrir réttinn í morgun. 5.3.2007 12:52
Einstakar myndir af Satúrnusi Geimfarið Cassini hefur sent til jarðar einstakar myndir af hringum Satúrnusar. Myndirnar eru teknar í um milljón kílómetra fjarlægð. Á myndunum má meðal annars sjá fylgitunglin Dione og Enceladus, sem hanga eins og örlitlir hvítir dílar út við sjóndeildarhringinn. Enceladus 5.3.2007 12:47
Segja þriggja hæða gatnamót ekki auka lífsgæði Íbúasamtök Hlíða, Holta, og Norðurmýrar í Reykjavík telja að hugmyndir um þriggja hæða gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar verði engan vegin til að auka lífsgæði íbúa hverfanna með tilliti til útblásturs bíla og svifryksmengunar. 5.3.2007 12:45
Hátt í 90 athugasemdir vegna virkjana í Þjórsá Hátt í níutíu athugasemdir hafa borist skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu vegna þriggja fyrirhugaðra virkjana í Neðri-Þjórsá. Þær koma bæði frá einstaklingum, hópum og samtökum. 5.3.2007 12:30
Grétar Mar Jónsson leiðir í Suðurkjördæmi Grétar Mar Jónsson, skipstjóri í Sandgerði, leiðir lista Suðurkjördæmis Frjálslynda flokksins fyrir kosningarnar í vor. Óskar Þór Karlsson, formaður Samtaka fiskvinnslu án útgerða, tekur annað sætið. 5.3.2007 12:20
Kæfa mótmæli í fæðingu Nokkur ungmenni hafa verið handtekin nærri Ungdomshuset í morgun við það að reyna að stöðva niðurrif hússins. Einhverjir lögðust fyrir flutningabíla sem fjarlægja steypubrot frá húsinu. Jagtvej, gatan sem Ungdomshuset stendur við er lokuð og hefur lögregla það að markmiði að kæfa öll mótmæli í fæðingu. 5.3.2007 11:56
Ung sænsk kona fær Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Sænski rithöfundurinn Sara Stridsberg hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Sara, sem er 33 ára, fær verðlaunin fyrir skáldsöguna Draumadeildina, sem var gefin út í fyrra. Soffía Auður Birgisdóttir, formaður dómnefndar bókmenntaverðlaunanna tilkynnti niðurstöðuna í Norræna húsinu í morgun. 5.3.2007 11:56
Engin niðurstaða komin í auðlindamálið Forystumenn stjórnarflokkanna hittust í morgun til að ræða nýtt stjórnarskrárákvæði um auðlindir, sem stjórnarsáttmálinn gerir kröfu um. Engin niðurstaða er komin í málið. Geir H Haarde forsætisráðherra segir stjórnarsamstarfið ekki í neinni hættu. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir þó "á mörkunum" að niðurstaða fáist fyrir kosningar. 5.3.2007 11:52
Tekinn fyrir ölvunarakstur á flutningabíl Ökumaður flutningabíls með fjörutíu feta gám á tengivagni var í hópi þeirr fjórtán manna sem teknir voru fyrir ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum lyfja á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Maðurinn var gripinn í gær í Mosfellsbæ. 5.3.2007 11:46
Al-Kaída hótar að myrða Harry Hryðjuverkasamtökin Al-Kaída hafa hótað því að ræna Harry bretaprins, þegar hann verður sendur til Íraks, í maí næstkomandi, að sögn breska blaðsins The Sun. Blaðið segir að hótunin hafi komið fram á vefsíðu sem róttækir múslimar halda úti. "Múslimar í Írak munu drepa Harry prins, megi Allah gefa honum það sem hann á skilið," segir meðal annars á vefsíðunni. 5.3.2007 11:37
Reyna að finna Ungdomshuset nýjan stað Styrktarsjóður Ungdomshuset hefur fjárráð til að kaupa nýtt hús fyrir þá starfsemi sem fram hefur farið á Jagtvej 69, í húsinu sem nú á samkvæmt heimildum Politiken að rífa. Þetta segir Knud Foldschack lögmaður styrktarsjóðsins. Lögmaðurinn áréttar hins vegar í samtali við Politiken að ungmennin sjálf hafi fyrirgert rétti sínum til að koma að þeirri ákvörðun hvar skuli kaupa nýtt hús, það sé sjóðsins og stjórnmálamanna að ákveða það. Hann segir að sjóðurinn sé hins vegar tilbúinn að láta unga fólkinu eftir að reka starfsemina eftir sem áður. 4.3.2007 19:59
Stórt vopnabúr í Kaliforníu Slökkviliðsmenn í Kaliforníu í Bandaríkjunum komu niður á milljón skothylki í göngum á einkalóð fyrir helgi. Eldur brenndi hluta þaks af húsinu fyrir ofan og var slökkvilið kallað til. Einhver skotfæri sprungu meðan eldur logaði í húsinu og hitnaði í göngunum. Þar voru, auk skotfæranna, rúm 30 kíló af svörtu byssupúðri, fjölmargar skammbyssur, haglabyssur og árásarrifflar. 4.3.2007 19:30
Betra að róa menn niður en handtaka þá Lögregla ætti ekki að beita menn, sem ganga berserksgang og eru með óráði, valdi heldur reyna að róa þá. Þetta segir danski réttarmeinafræðingurinn Peter Leth í samtali við fréttaskýringaþáttinn Kompás sem er á dagskrá í kvöld. Þar er fjallað um andlát Jóns Helgasonar, í höndum lögreglu, í lok nóvember á síðasta ári. 4.3.2007 18:56
Siv á að segja af sér Heilbrigðisráðherra á að segja af sér, að mati Sigurðar Kára Kristjánssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, vegna hótana ráðherrans um stjórnarslit ef sjálfstæðismenn samþykki ekki að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Hann efast um að sjálfstæðismenn verði við þessari kröfu framsóknarmanna. Heilbrigðisráðherra neitar að tjá sig um yfirlýsingar Sigurðar Kára. 4.3.2007 18:32
Tollkvótar hækka matarverð Ákvörðun stjórnvalda, um að bjóða upp innflutningskvóta á kjöti og ostum, stuðlar að hærra vöruverði og er andstæð markmiðum ríkisstjórnarinnar um að lækka matarverð. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Dæmi eru um að framleiðendur hafi keypt kvóta til að hindra innflutning og halda verðinu uppi. 4.3.2007 18:30
Uppörvandi fyrir hægri grænt framboð Gallup-könnun, á fylgi við nýtt framboð umhverfisverndarsinna, sýnir að það hefur hljómgrunn meðal þjóðarinnar, segir Ómar Ragnarsson sem verður á lista flokksins í Reykjavík ásamt Margréti Sverrisdóttur og Jakobi Frímanni Magnússyni. Listinn býður fram í öllum kjördæmum fyrir kosningarnar í vor. 4.3.2007 18:30
Hellir Íslandsmeistari skákfélaga Taflfélagið Hellir tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í skák eftir spennandi keppni í Rimaskóla. Hellir sigraði Taflfélag Vestmannaeyja öruggt, 6-2 í úrslitaviðureign. Hellir hlaut 47 vinninga af 56 mögulegum og tapaði sveitin einungis einni skák í allri keppninni sem er nýtt met. Eyjamenn urðu í öðru sæti með 42,5 vinninga og Taflfélag Reykjavíkur í 3. sæti með 35 vinninga. Þetta er fjórði titill Hellis, sem nú er orðið næstsigursælast íslenskra taflfélaga, einungis TR hefur unnið oftar. 4.3.2007 17:57
Alvarlegt bílslys við Hvolsvöll Alvarlegt bílslys varð rétt vestan við Hvolsvöll nú síðdegis þegar fólksbíll og sjúkrabíll rákust saman. Ökumaður fólksbílsins slasaðist illa í árekstrinum og er á leið til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Lögregla sagði líklegt að þyrla Landhelgisgæslunnar mundi fljúga á móti sjúkrabílnum til að flytja manninn á slysadeild. 4.3.2007 17:51
Ákvarðanir um gæslu teknar af utanríkisráðuneyti Ákvarðanir um umfang öryggisgæslu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, þ.m.t. fjöldi öryggisvarða eru teknar af utanríkisráðuneytinu, samkvæmt yfirlýsingu sem dómsmálaráðuneytið hefur sent Stöð 2. 4.3.2007 16:54
Morðingi í leyfi drap aftur Norskur karlmaður, Quang Minh Pham hefur verið handtekinn grunaður um að hafa myrt 31 árs gamlan mann sem saknað hafði verið í viku en fannst í skottinu á bíl Pham í gær. Pham, sem er 34 ára var dæmdur fyrir manndráp fyrir átta árum en var í leyfi frá fangelsinu þar sem hann afplánar 21 árs dóm. Verdens Gang í Noregi greinir frá þessu. 4.3.2007 16:51
Arababandalagið vill skýr svör Arababandalagið vill að Bandaríkjamenn gefi afsvar með það hversu lengi þeir ætla að hafa herafla í Írak. Aðalritari bandarlagsins Amr Moussa segir þetta helsta baráttumál bandalagsins sem nú fundar í Kaíró. 4.3.2007 16:36