Reyna að finna Ungdomshuset nýjan stað 4. mars 2007 19:59
Styrktarsjóður Ungdomshuset hefur fjárráð til að kaupa nýtt hús fyrir þá starfsemi sem fram hefur farið á Jagtvej 69, í húsinu sem nú á samkvæmt heimildum Politiken að rífa. Þetta segir Knud Foldschack lögmaður styrktarsjóðsins. Lögmaðurinn áréttar hins vegar í samtali við Politiken að ungmennin sjálf hafi fyrirgert rétti sínum til að koma að þeirri ákvörðun hvar skuli kaupa nýtt hús, það sé sjóðsins og stjórnmálamanna að ákveða það. Hann segir að sjóðurinn sé hins vegar tilbúinn að láta unga fólkinu eftir að reka starfsemina eftir sem áður. Óttast er að erfitt verði að finna starfseminni stað þar sem enginn vilji fá fólkið sem staðið hefur fyrir ofbeldisfullum mótmælum inn í sitt hverfi, það sé ungmennunum sjálfum að kenna að þannig sé komið fyrir. Þá segir Foldschack að ungmennin hafi gert stjórnmálamönnum erfitt fyrir að styðja við þá ákvörðun að nýtt hús verði fundið undir starfsemina. Foldschack segir styrktarsjóðinn ekki geta aðstoðað þá sem orðið hafa fyrir barðinu á eignaspjöllum og hermdarverkum mótmælenda. Allt hefur verið með kyrrum kjörum í Kaupmannahöfn í dag en eftir sem áður er lögregla með hámarksviðbúnað, skyldi enn sjóða upp úr. Um 1000 manns mættu í sérstaka reiðhjóla-mótmælagöngu á Ráðhústorg í dag og hringdu allir reiðhjólabjöllum sínum samtímis til stuðnings við Ungdomshuset. Þeir mótmælendur sem höfðu sig helst í frammi ofbeldisfullar aðfararnætur föstudags og laugardags sitja flestir enn í gæsluvarðhaldi og bíða þess að lögregla gefi út ákærur á þá. Þá hefur fjölda erlendra mótmælenda verið vísað úr landi. Faderhuset-trúfélagið, eigendur hússins við Jagtvej 69 tilkynna klukkan níu í fyrramálið ákvörðun sína um framtíð hússins en Politiken hefur fyrir því heimildir að ákveðið hafi verið að það skuli rifið. Í öllu falli hefur Faderhuset aflað allra tilskilinna leyfa frá skipulagsyfirvöldum til þess, þrátt fyrir að húsið sé það gamalt að það sé sjálfkrafa friðað.
Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Ráðherra byrjar með hlaðvarp Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Sjá meira