Fleiri fréttir Kosningabaráttan hafin Síðasti þingfundur Alþingis fyrir jólaleyfi leystist upp í kosningafund á lokasprettinum og kallaði formaður Samfylkingarinnar ríkisstjórnina einhverja skæðustu frjálshyggjustjórn Vesturlanda. Þingmaður Framsóknarflokksins sagði þvert á móti að ríkisstjórnin væri velferðarstjórn sem bætt hefði hag allra landsmanna. 10.12.2006 18:11 Augusto Pinochet er allur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, lést í dag, níutíu og eins árs að aldri. Pinochet hafði verið heilsutæpur um nokkurt skeið og fékk alvarlegt hjartaáfall fyrir viku. Hann var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 og ríkti í sautján ár. Á þeim tíma voru yfir þrjú þúsund manns myrtir eða látnir hverfa. 10.12.2006 18:05 Hundruð þúsunda mótmæltu í Beirút Mörg hundruð þúsund mótmælendur komu saman í Beirút, höfuðborga Líbanons, í dag og kröfðust afsagnar Sanioras, forsætisráðherra. Það voru Hizbollah-liðar og bandamenn Sýrlendinga sem fóru fyrir mótmælendum. Þetta eru ein fjölmennustu mótmæli sem efnt hefur verið til í Beirút og tíundi dagurinn í röð sem breytinga er krafist. Saniora hefur neitað að víkja fyrir Hizbollah-liðum sem hann telur vilja ræna völdunum. 10.12.2006 17:59 Latibær beint í 4. sæti á Top40 í Bretlandi 10.12.2006 17:21
Sjá næstu 50 fréttir
Kosningabaráttan hafin Síðasti þingfundur Alþingis fyrir jólaleyfi leystist upp í kosningafund á lokasprettinum og kallaði formaður Samfylkingarinnar ríkisstjórnina einhverja skæðustu frjálshyggjustjórn Vesturlanda. Þingmaður Framsóknarflokksins sagði þvert á móti að ríkisstjórnin væri velferðarstjórn sem bætt hefði hag allra landsmanna. 10.12.2006 18:11
Augusto Pinochet er allur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, lést í dag, níutíu og eins árs að aldri. Pinochet hafði verið heilsutæpur um nokkurt skeið og fékk alvarlegt hjartaáfall fyrir viku. Hann var oddviti herforingjastjórnarinnar sem rændi völdum í Chile árið 1973 og ríkti í sautján ár. Á þeim tíma voru yfir þrjú þúsund manns myrtir eða látnir hverfa. 10.12.2006 18:05
Hundruð þúsunda mótmæltu í Beirút Mörg hundruð þúsund mótmælendur komu saman í Beirút, höfuðborga Líbanons, í dag og kröfðust afsagnar Sanioras, forsætisráðherra. Það voru Hizbollah-liðar og bandamenn Sýrlendinga sem fóru fyrir mótmælendum. Þetta eru ein fjölmennustu mótmæli sem efnt hefur verið til í Beirút og tíundi dagurinn í röð sem breytinga er krafist. Saniora hefur neitað að víkja fyrir Hizbollah-liðum sem hann telur vilja ræna völdunum. 10.12.2006 17:59
Guðný Hrund í 4. sæti Samfylkingar í Suðurkjördæmi Samfylkingin í Suðurkjördæmi kynnti í dag framboðslista sinn fyrir Alþingiskosningarnar í vor, en þar urðu breytingar vegna þess að Ragnheiður Hergeirsdóttir býður sig ekki lengur fram til Alþingis, eftir að hún varð bæjarstjóri nýs meirihluta í Árborg. Guðný Hrund Karlsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri á Raufarhöfn, verður í fjórða sætinu. 10.12.2006 17:11
Þrumur og eldingar á höfuðborgarsvæðinu Fólk á höfuðborgarsvæðinu fór að verða vart við þrumur og eldingar uppúr klukkan þrjú í dag. Þannig hefur fréttastofan spurnir af því að bílar hafi stöðvað för sína á Hafnarfjarðarvegi milli Garðabæjar og Kópavogs, þegar ökumenn urðu varir við skæran blossa allnærri þeim. Og vegfarandi á Sandskeiði hafði svipaða sögu að segja. Veðurstofan hefur séð tugi eldinga á ratsjá og þrumuveðrið gæti haldið áfram. 10.12.2006 15:22
Yunus tekur við friðarverðlaunum Nóbels Bangladessbúinn Mohammad Yunus veitti friðarverðlaunum Nóbels viðtöku við hátíðlega athöfn í Osló í Noregi í dag. Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði deila með sér verðlaununum í ár. 10.12.2006 13:25
Tveir danskir hermenn særðust Í Írak Tveir danskir hermenn úr skriðdrekasveit Dana eru særðir eftir átök norður af borginni Basra í Írak. Annar mannanna særðist á hálsi og var fyrst talinn alvarlega særður en hinn fékk skot í handlegginn. Hvorugur er í lífshættu, að sögn læknis dönsku herdeildarinnar, Sørens Dervings. Hermennirnir tveir eru á hersjúkrahúsi á herstöðinni Shaiba Log, þar sem dönsku bækistöðvarnar, Danevang, eru einnig staðsettar. 10.12.2006 13:01
Vísar á rússnesk yfirvöld Marina Litvinenko, eiginkona KGB njósnarans Alexanders Litvinenko, segir margt benda til þess að rússnesk yfirvöld beri ábyrgð á dauða hans. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirka efninu polon 210 í síðasta mánuði. 10.12.2006 12:30
Bátar, flugvélar, bílar og trampolín af stað í óveðri Smábátar sukku og binda þurfti einkaflugvélar niður á Reykjavíkurflugvelli vegna óveðursins í gær, en björgunarsveitir unnu linnulaust fram á nótt við að koma í veg fyrir tjón og slys á fólki. Mikið álag var á slökkviliði og björgunarsveitum fram eftir nóttu vegna veðursins. Jónas Guðmundsson hjá svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu segir um 70 björgunarsveitarmenn í Reykjavík og nágrenni hafa unnið við ýmis verkefni fram á nótt 10.12.2006 12:28
Risatjald reist í heimalandi Borats Forseti Kazakstan, Nursultan Nazarbayev, slær ekki slöku við í uppbyggingu hinnar nýju höfuðborgar landsins á steppunum norðan Baikalvatns. Hann hefur öðru sinni fengið hinn heimsfræga arkitekt Norman Foster, lávarð, til að hanna byggingu í borginni, í þetta skiptið risavaxið tjald, sem nær 150 m hæð, og þekur svæði á við 10 knattspyrnuvelli. 10.12.2006 11:51
Víða hálka á vegum Hálkublettir eru á Hellisheiði, Sandskeiði og Þrengslum. Hálka og hálkublettir eru víða á Vesturlandi. Á Vestfjörðum er hálka, mokstur stendur yfir á Klettshálsi, ófært er um Eyrarfjall. Á Norðurlandi vestra er víða hálka og hálkublettir. Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka og hálkublettir, flughált er á Jökuldal, Sandvíkurheiði, Skriðdal og á Breiðdalsheiði. Ófært er bæði yfir Lágheiði og Öxi. 10.12.2006 11:33
Óvænt heimsókn í 13. sinn Donald Rumsfeld, fráfarandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór í óvænta heimsókn til Íraks í gær. Þetta var í 13. sinn sem hann heimsótti bandaríska hermenn þar. 10.12.2006 11:00
Gengu gegn ofbeldi 16 ungir karlmenn gengu niður Laugaveginn í dag til að hvetja karlmenn til að taka afstöðu gegn ofbeldi gegn konum. Einhverjum var misboðið vegna þessa framferðis og kallaði til lögreglu. 9.12.2006 18:46
Reykdalsvirkjun endurreist Í dag var hundrað ára afmælis Reykdalssvirkjunar minnst í Hafnarfirði. Virkjunin er með þeim fyrstu sem reist var hér á landi. Það var athafnamaðurinn Jóhannes Reykdal sem reisti virkjun á þessum stað fyrir rétt liðlega hundað árum. 9.12.2006 18:43
Málaferlin kostuðu 8 milljónir Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir málaferlin gegn sér í Bretlandi hafa kostað sig 8 milljónir. Hann fagnar því að dómurinn frá í fyrra hafi verið ógildur og vonar að nú sé málinu lokið. 9.12.2006 18:39
Alnæmissamtökin styrkt Það hljóp á snærið hjá Alnæmissamtökunum á Íslandi nú síðdegis þegar Alnæmissjóður MAC afhenti samtökunum fimmhundruð þúsund króna styrk við hátíðlega athöfn í snyrtivörubás MAC í Debenhams Smáralindinni. Hver króna af seldum viva glam varalit rennur í sjóðinn. Styrkurinn kemur sér ákaflega vel að sögn framkvæmdastjóra samtakanna en hann verður nýttur í fræðslu og forvarnarverkefni. Til samanburðar má geta þess að fjárveitingar ríkisins til samtakanna á síðasta ári námu tveimur og hálfri milljón króna. 9.12.2006 18:38
Konungur Sáda segir Arabaheiminn suðupott sem gæti sprungið Leiðtogar arabaríkja við Persaflóa funda í dag og á morgun á vegum leiðtogaráðs Persflóaríkja (GCC) í Riyadh höfuðborg Saudi Arabíu til að ræða sameiginlegt gjaldeyrisbandalag ríkjanna, sem fyrirhugað er að koma á laggirnar 2010. Vaxandi áhrif Írana á Persflóasvæðinu verða líka til umræðu. Abdullah, konungur Sádí Arabíu varaði við því í opnunarræðu, að arabaheimurinn væri eins og suðupottur sem lokið væri við það að springa af. 9.12.2006 18:33
6,6% íslenskra barna býr við fátækt Á fimmta þúsund íslenskra barna býr við fátækt, samkvæmt nýrri skýrslu sem forsætisráðherra lét taka saman að beiðni þingmanna Samfylkingarinnar. Þetta er óviðunandi ástand, segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, sem vill meðal annars skoða hækkun barnabóta. 9.12.2006 18:15
Starfsfólk reyndi ekki að bjarga konunum Talið er að kveikt hafi verið í sjúkrahúsi í Moskvu, höfuðborg Rússlands, þar sem fjörtíu og fimm konur létust í nótt. Slökkvilið borgarinnar deilir á starfsfólk fyrir að reyna ekki að koma fólkinu út. Þetta er mannskæðasti bruni í borginni í þrjú ár. Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. 9.12.2006 17:59
Opinberir starfmenn skjóta mótmælaskotum á Gaza 2500 lögreglumenn í Palestínu þustu í dag inn í byggingu ríkisstjórnarinnar í miðborg Gaza, til að mótmæla því að fá ekki greidd laun. Þeir saka stjórnmálaarm Hamas um að greiða eigin öryggissveitum, en ekki laun hundrað sextíu og fimm þúsund opinberra starfsmanna. 9.12.2006 17:09
Sýslumaður starfrækir greiningardeild á Vellinum Fjögurra manna greininingardeild hefur verið starfrækt við sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli undanfarin tvö ár. Deildin hefur sinnt gerð hættumats fyrir Utanríkisráðuneytið vegna starfsemi Íslensku friðargæslunnar í Afghanistan, Sri Lanka og víðar, að því er kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir að deildin hafi haft afgerandi áhrif á ákvarðanir friðargæslunnar. 9.12.2006 15:39
SUS tætir í sig frumvarp um starfsemi stjórnmálaflokka Framkvæmdsastjórn sambands ungra sjálfstæðismanna telur frumvarpið, sem nú liggur fyrir Alþingi um fjármál stjórnmálaflokka, meingallað og varar við þeim grundvallarsjónarmiðum sem ráðið hafa för við gerð þess. Ungir sjálfstæðismenn telja, að með frumvarpinu séu stjórnmálaflokkarnir að misnota umboð sitt frá almenningi í þeim tilgangi að viðhalda eigin völdum. 9.12.2006 14:35
Hlíðarfjall í beinni Mikill snjór er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri og verður opið þar frá klukkan tíu til fimm í dag. Í morgun var nánast logn í Hlíðarfjalli og fjögurra stiga frost og "jólasnjókoma", eins og forráðamenn svæðisins orðuðu það. Allar lyftur verða opnar í dag og göngubraut hefur verið troðin. Búið er að taka fjórar vefmyndavélar í gagnið í fjallinu og getur fólk skoðað aðstæður í brekkunum á hliðarfjall.is. 9.12.2006 14:04
Nýjar rannsóknir á dauða Díönu en sama niðurstaða DNA rannsókn hefur leitt í ljós að Henri Paul, ökumaður Díönu prinsessu, var ölvaður hina örlagaríku nótt París 1997 þegar hann ók á steinstólpa og Díana lést. Þetta kemur fram í heimildarmynd BBC sjónvarpsstöðvarinnar. Mohamed al Fayed hefur samt barist fyrir opinberum vitnaleiðslum um málið sem fara fram í næsta mánuði. 9.12.2006 13:47
Síðasti þingfundur fyrir jólafrí Alþingi kom saman til síðasta fundar síns fyrir jólaleyfi klukkan hálf tíu í morgun. Fyrir fundinum liggja þrjátíu mál. Búast má við að nokkur þeirra verði afgreidd sem lög frá Alþingi í dag. 9.12.2006 12:28
Gosið lækkar meir en mörg hollustan Stjórnvöld eru að senda fólki röng skilaboð með því að lækka virðisaukaskatt á gosdrykkjum og sykruðum svaladrykkjum, segir forstjóri Lýðheilsustöðvar. 9.12.2006 12:17
Pilturinn sem lést á Stykkishólmsvegi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Stykkishólmsvegi aðfararnótt föstudags hét Valtýr Guðmundsson. Hann var til heimilis að Árnatúni 5 í Stykkishólmi. Hann var 22 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 9.12.2006 12:12
Staða Palestínumanna verri en blökkumanna undir Apartheid Stefna Ísraelsmanna í málefnum Palestínu býr Palestínumönnum verri aðbúnað en svartir bjuggu við á tímum aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku. Þetta sagði Jimmy Carter fyrrverandi Bandaríkjaforseti þegar hann svaraði spurningum um efni bókar sinnar um Palestínumálið. 9.12.2006 12:12
Djúpa lægðin nálgast landið Ein dýpsta lægð í langan tíma nálgast suðvestanvert landið síðdegis í dag með suðaustan stormi og sumstaðar ofsaveðri. Lægðin kemur að öllum líkindum upp að landinu um kvöldmatarleitið og Veðurstofan gerir ráð fyrir stormi á suðurströndinni. Veðurhæðin verður einna mest um klukkan 21. Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu. 9.12.2006 11:33
Uppselt í Liverpool hjá Garðari Cortes Frægðarsól Garðars Cortes fer hækkandi með hverjum deginum. Uppselt er á tónleika hans og söngsystur hans Katherine Jenkins í Liverpool Philharmonic Hall á sunnudagskvöld. Garðari er líkt við ungan Pavarotti í viðtalsgrein í staðarblaðinu Liverpool Daily Post. Blaðið segir frá því, að Garðar hafi í tvígang verið kjörin kynþokkafyllsti maður Íslands og fyrsta plata hans hafi slegið öll sölumet á Íslandi og náð tvöfaldri platínusölu á þremur mánuðum. 9.12.2006 11:23
Drukkinn og próflaus og stakk af Lögreglan í Keflavík handtók undir morgun karlmann á þrítugsaldri, grunaðan um ölvunarakstur. Hann keyrði yfir á rauðu ljósi við Hringbrautina í Keflavík. Lögreglan hóf eftirför en ökumaðurinn reyndi að stinga hana af á mikilli ferð. Hann reyndist ökuréttindalaus. 9.12.2006 10:52
Indverskir karlmenn með of stutt typpi Rannsókn á rúmlega 1000 indverskum karlmönnum hefur leitt í ljós að alþjóðlegar staðalstærðir á smokkum eru fullrúmar fyrir indversk typpi. Samkvæmt niðurstöðum vísindamannanna er rúmur helmingur indversku mannanna með of stutta limi til að fylla upp í verjurnar. Þess vegna verður núna boðið upp á smokka í mismunandi stærðum á Indlandi. 8.12.2006 23:15
Aldurstakmörk á fyrirsætur í Brasilíu Skipuleggjendur tískuvikunnar í Sao Paulo, sem haldin verður í næsta mánuði, ætla að setja 16 ára aldurstakmark á fyrirsætur sem koma fram á tískusýningum, eftir að brasilísk fyrirsæta lést úr anorexíu í síðasta mánuði. Ríkisstjórn Brasilíu stendur nú fyrir átaki gegn átröskunarsjúkdómum. 8.12.2006 22:59
Annar elsti karlmaður heims látinn Moses Hardy, sem talinn var annar elsti maður heims, lést í dag, 113 ára að aldri. Hann var eini eftirlifandi svarti maðurinn sem barðist í fyrri heimsstyrjöldinni. Hardy var sjötti á lista heimsmetabókar Guinness yfir elsta fólk í heimi, sú sem er efst á þeim lista er 116 ára gömul. 8.12.2006 22:19
Kynþokki Cortes vekur athygli í Bretlandi Netblað í Liverpool fjallar í dag um Garðar Thor Cortes, sem kemur fram á tónleikum með Catherine Jenkins í LIverpool á sunnudagskvöld. Greinin byrjar á stuttri kynningu á landi og þjóð, 13 jólasveinum og nafnahefðina, og segir síðan frá einum besta óperusöngvara landsins sem einnig hafi verið útnefndur kynþokkafyllsti maður landsins í tvígang. 8.12.2006 21:53
65 fangar sluppu nærri Cancun Tugir fanga í mexíkósku fangelsi nærri ferðamannastaðnum Cancun brutu lása á klefadyrum sínum, börðu verði og sluppu út úr fangelsinu í dag. Tveir létust í slagnum. Hundruð fanga byrjuðu að mótmæla þegar nokkrir fanganna voru færðir í annað fangelsi, þeirra á meðal Marcos Gallegos, sem hefur verið kallaður "guðfaðirinn" í fangelsinu. 8.12.2006 21:50
Kveikt á kertum til minningar um mann í Vogunum Kveikt var á kertum meöfram öllum Vogaafleggjaranum í kvöld til að minnast manns sem lést eftir að hafa fengið hjartastopp í haldi lögreglu fyrir tæpum tveimur vikum. Maðurinn var frá Vogum. 8.12.2006 21:21
Siniora segir Hisbollah stefna á valdarán Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, sakaði leiðtoga Hisbollah um að vilja ræna völdum af réttkjörinni ríkisstjórn í óvenju harðorðri ræðu í kvöld. Ræðan var send út frá skrifstofu hans, þar sem hann hefur hafst við í rúma viku, síðan stuðningsmenn Hisbollah lögðu undir sig göturnar fyrir utan stjórnarráðið í Beirút. 8.12.2006 20:56
Rumsfeld ekki ábyrgur fyrir pyntingum Bandarískur dómari sagðist í dag efast um að hægt væri að sækja Donald Rumsfeld til saka fyrir pyntingar bandarískra hermanna á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Thomas Hogan, dómari, sagði að þó að pyntingar væru óásættanlegar, þá væri ekki víst að níu írösk fórnarlömb þeirra gætu dregið varnarmálaráðherrann til ábyrgðar. 8.12.2006 20:39
Quebecsk erfðagreining Líkt og Íslendingar, eru íbúar Quebec-héraðs komnir af nokkrum fjölskyldum, sem fluttu frá Frakklandi til Quebec í Kanada. Erfðafræðingar telja að erfamengi Quebec-búa í Kanada geti af þessum ástæðum hentað vel til erfðarannsókna og hugsa sér gott til glóðarinnar að þróa lyf og læknismeðferðir út frá rannsóknum í Quebec. 8.12.2006 20:19
Ætlaði að kúga auðjöfra KGB maðurinn Alexander Litvinenko, sem myrtur var í síðasta mánuði, ætlaði að ljóstra upp um spillingarmál tengd valdamiklum auðjöfri sem mun tengjast ráðamönnum í Moskvu. Þetta fullyrti rússneskur doktorsnemi á blaðamannafundi í Lundúnum í dag. 8.12.2006 20:00
16 ára á tveggja ára skilorði Héraðsdómur Austurlands frestaði í dag ákvörðun refsingar yfir 16 ára gömlum strák fyrir bifreiðastuld. Refsingin fellur niður haldi hann skilorð næstu 2 árin. Drengurinn stal bíl á Vopnafirði og keyrði hana um götur bæjarins uns hann hafnaði utan vegar. 8.12.2006 19:45
Hlýtt í Evrópu Vísindamenn segja ekki hafa verið hlýrra í Evrópu á þessum árstíma í fimm hundruð ár. Óttast er að skíðamenn fái lítið sem ekkert að renna sér í Ölpunum þennan veturinn og þurfi þess í stað að taka fram gönguskóna vilji þeir njóta náttúrunnar þar. 8.12.2006 19:30
Karpað um mat Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Borgarstjóri segir oddvitann hins vegar snúa út úr orðum embættismanns. 8.12.2006 19:17