Fleiri fréttir 16 dagar gegn ofbeldi 16 strákar munu ganga gegn ofbeldi niður Laugaveginn á morgun á vegum V-dags samtakanna til þess að mótmæla kynbundnu ofbeldi. Þetta er gert til að minna á ábyrgð karlmanna varðandi kynferðisofbeldi gagnvart konum. Strákarnir ganga af stað klukkan eitt á morgun og minna aðra karlmenn á að standa saman til að útrýma ofbeldi gegn konum. 8.12.2006 18:05 Kæra flugmenn vegna þotuslyss Tveir bandarískir flugmenn voru í dag ákærðir fyrir að stofna flugöryggi í hættu þegar brasilísk Boeing-þota hrapaði í Amazon-frumskóginum þann 29. september. Mennirnir tveir flugu lítilli einkaþotu sem rakst á væng farþegaþotunnar með þeim afleiðingum að stærri þotan hrapaði og 154 farþegar og áhafnarmeðlimir létust. 8.12.2006 17:49 Tengivegur fyrir Helgafellshverfi þarf ekki í umhverfismat Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um að ekki þurfi að fara fram mat á umhverfisáhrifum vegna tengivegar fyrir Helgafellshverfi. Framkvæmdir munu því hefjast í byrjun næsta árs og vonast landeigendur til þess að þær fari fram í sem mestri sátt. 8.12.2006 17:47 Sjálfstæðisflokkurinn misbeitti ríkisvaldinu Sjálfstæðisflokkurinn misbeitti ríkisvaldinu í hlerunum pólitískra andstæðinga, sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Fjármálaráðherra hafnaði því og sagði að menn mættu ekki vanmeta hlut Alþýðuflokks og framsóknarráðherra í hlerunum. Þingmaður Framsóknar brást hart við þeim orðum og sagði árásir á aðra flokka málinu ekki til framdráttar. 8.12.2006 17:24 Seselj hættur að svelta sig Öfgaþjóðernissinninn serbneski Vojislav Seselj, er hættur við mótmælasvelti sem hann hefur haldið til streitu í 28 daga. Hann svalt sig til að krefjast þess meðal annars að skipt yrði um dómara í máli hans fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag. Hann hefur verið þar í haldi síðan árið 2003, ákærður fyrir stríðsglæpi í fyrrum Júgóslavíu. 8.12.2006 17:19 Sex vilja verða landsbókaverðir Umsóknarfrestur um embætti landsbókavarðar rann út mánudaginn 4. desember sl. Menntamálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna. Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. apríl 2007, og skal landsbókavörður skipaður úr hópi þeirra umsækjenda sem stjórn bókasafnsins telur hæfa. 8.12.2006 17:17 Hafði fimm hangikjötslæri á brott með sér Lögreglan í Reykjavík leitar nú að stórtækum hangikjötsþjófi í einni af matvöruverslunum borgarinnar og segir lögregla engu líkara en sjálfur Ketkrókur hefði verið á ferðinni. Svo reyndist þó ekki vera enda mun jólasveinninn sá ekki vera væntanlegur til byggða fyrr en á Þorláksmessu. 8.12.2006 16:51 Aðlagist okkur eða farið annað -Ton y Blair Fólk sem vill setjast að í Bretlandi verður að semja sig að umburðarlyndum gildum þess, eða fara eitthvað annað, sagði Tony Blair, forsætisráðherra, í erindi sem hann flutti í dag. 8.12.2006 16:44 Gæsluvarðhald staðfest vegna meintrar nauðgunar Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður eru um að hafa nauðgað konu síðastliðinn föstudag. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 20. desember og á að gangast undir geðrannsókn á þessum tíma. 8.12.2006 16:39 Rannsóknarnefnd þingsins eða fræðimenn? Harðar deilur voru á Alþingi í dag um hlerunarmál. Voru allir þingmenn sem tóku þátt í þeim sammála um að rannsaka ætti málin ofan í kjölinn en þeim bar ekki saman um hvernig það ætti að gera. Stjórnarandstaðan vill rannsóknarnefnd en stjórnarliðar vilja bíða niðurstöðu nefndar sem Páls Hreinsson fer fyrir og á fjalla um aðgang fræðimanna að opinberum gögnum um öryggismál landins á árunum 1941-991. 8.12.2006 16:39 Kostnaður við Sundabrautarjarðgöng um 16 milljarðar Heildarkostnaður við nýja tillögu að jarðgöngum vegna Sundabrautar er um 16 milljarðar króna sem er fjórum milljörðum króna meira en kostaður við svokallaða innri leið eða eyjalausn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um jarðgangalausn fyrir Sundabraut sem kynnt var á samráðsfundi með íbúasamtökum Grafarvogs og Laugardals í dag. 8.12.2006 16:09 Nýtt fraktflugfélag stofnað á Akureyri Nýtt flugfélag sem flýgur fraktflug frá Akureyri til meginlands Evrópu var stofnað á Akureyri í dag. Félagið heitir Norðanflug ehf. og eru stofnendur þess þrír það er Samherji, Eimskipafélag íslands og SAGA Fjárfestingar. Hefja á fraktflugið vorið 2007. Hlutfé Norðurflugs er 50 milljónir króna. 8.12.2006 16:06 Enn úrsagnir úr Sjálfstæðisflokkunum vegna Árna Johnsen Enn ber á úrsögnum úr Sjálfstæðisflokknum í kjölfar prófkjörssigurs Árna Johnsens fyrir tæpum mánuði. Þetta er óþægindamál fyrir flokkinn, segir Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórmálafræði, sem þarf að klára sem fyrst. Í Pólitíkinni á Stöð 2 klukkan 19:40 í kvöld verður rætt um pólitíska ábyrgð, iðrun og fyrirgefningu. 8.12.2006 15:48 Utanríkisráðherra í Hiroshima 8.12.2006 15:47 Starfshópur fer yfir ólögmæta búsetu í atvinnuhúsnæði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp til að gera tillögur um leiðir til að sporna við ólögmætri búsetu í atvinnuhúsnæði. Umræður um málið kviknuðu á Alþingi í kjölfar úttektar umsjónarmanna fréttaþáttarins Íslands í dag á Stöð 2 en hún leiddi í ljós að víða er pottur brotinn í þessum efnum. 8.12.2006 15:45 Yfirréttur í Englandi ógildir meiðyrðadóm gegn Hannesi Yfirréttur í Lundúnum ógilti í dag dóm sem felldur var sumarið 2005 í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar athafnamanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. 8.12.2006 15:05 Jónínu Ben dæmdar bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóra DV, til að greiða Jónínu Benediksdóttur bætur vegna umfjöllunar DV um einkalíf hennar. 8.12.2006 15:00 Lögregluskólinn útskrifar þrjátíu og fimm nemendur Lögregluskóli ríkisins útskrifar í dag þrjátíu og fimm nemendur frá grunnnámsdeild skólans. Útskriftin fer fram í Bústaðarkirkju og syngur meðal annars Lögreglukórinn fyrir útskriftarhópinn. 8.12.2006 14:27 Tók fimm stráka fyrir veggjakrot Fimm ungir skemmdarvargar voru gripnir í austurborg Reykjavíkur um hálfníuleytið í gærkvöld en þeir eru grunaðir um veggjakrot. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Um var að ræða stráka á grunnskólaaldri og fann lögregla í kjölfarið nokkuð af sprebrúsum og pennum. 8.12.2006 14:23 Þjóðverjar reykja áfram Stjórnvöld í Þýskalandi hafa hafnað tillögum um að ríkisstjórnin banni reykingar í skólum og á veitingastöðum um land allt. Ríkisstjórnin ætlar að láta hvert hinna sextán ríkja ákveða fyrir sig hvort reykingar verða bannaðar. 8.12.2006 14:18 Yfirheyra lykilvitni í njósnaramorði Breskir og rússneskir lögreglumenn eru farnir að yfirheyra lykilvitni í morðinu á KGB njósnaranum Alexander Litvinenko, að sögn rússneskra fjölmiðla. 8.12.2006 14:09 Frumvarpi um RÚV vísað til þriðju umræðu Samþykkt var fyrir um tvöleytið á Alþingi að vísa frumvarpinu um Ríkisútvarpið ohf. til þriðju umræðu með 49 atkvæðum. Eins og fram hefur komið í fréttum fer þriðja umræða um frumvarpið fram eftir áramót samkvæmt samkomulagi stjórnarliða og stjórnarandstöðu. 8.12.2006 14:01 Gæsluvarðhaldsúrskurður í hnífstungumáli felldur úr gildi Hæstiréttur Íslands hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pilti, sem stakk annan pilt með hnífi, í Kópavogi um síðustu helgi. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í vikunni. 8.12.2006 13:58 Þingmenn á leið í skemmtiferð til útlanda? Tekist var á um það á Alþingi nú eftir hádegið hvort ákveðinn hópur þingmanna væri á leið í skemmtiferð nú eftir þinglok. Það var Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sem kvaddi sér hljóðs um fundarstjórn forseta og vakti athygli á orðum Guðjóns Ólafs Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í fréttum Ríkisútvarpisins í hádeginu. 8.12.2006 13:53 Vel þjálfaðar rottur Þær eru vel þjálfaðar rotturnar sem tóku þátt í fjölþraut í Nebraska í Bandríkjunum í gær. Það voru háskólanemar í bænum Lincoln sem efndu til keppninnar og mætti hver þátttakandi með þrautþjálfaða rottuna sína. Þeim var svo gert að klifra upp kaðla, taka þátt í langstökki, synda, hlaupa yfir hindranir og klifra upp veggi. 8.12.2006 13:45 Framlengja bann við dauðarefsingum 8.12.2006 13:22 Neitað um skaðabætur eftir að hafa ekið á hest Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað hestamann og Vátryggingafélag Íslands af ríflega 670 þúsund króna skaðabótakröfu manns vegna tjóns sem varð á bíl hans þegar hann ók á hest hestamannsins. 8.12.2006 13:17 Karlmaður um tvítugt lést í umferðarslysi Karlmaður um tvítugt beið bana í umferðarslysi á Stykkishólmsvegi við afleggjarann að Stykkishólmsflugvelli í nótt. Slysið var rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Nokkur ísing og hálka var á veginum en talið er að maðurinn hafi misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann hafnaði á ljósastaur. Talið er að að maðurinn hafi látist samstundis. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. 8.12.2006 13:16 Lykilvitni líkast til yfirheyrt í dag Allt bendir til þess breskir lögreglumenn yfirheyri í dag lykilvitni í rannsókninni á morðinu á rússneska njósnaranum Alexander Litvinenko. Yfirheyrslunni hefur ítrekað verði frestað vegna þess að vitni hefur verið til rannsóknar hjá læknum í Moskvu. 8.12.2006 13:15 Tugþúsundir lýstu stuðningi við Haniyeh og Hamas Tugþúsundir stuðningsmanna Hamas samtakanna komu saman til útifundar, í dag, þar sem þeir kröfðust þess að Ismail Hanyeh, forsætisráðherra ríkisstjórnar Palestínumanna leiði hvaða ríkisstjórn sem stofnuð verður í landinu. 8.12.2006 13:11 Segir borgarstjóra tvísaga í lóðakaupamáli Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. 8.12.2006 13:00 Skilyrði fyrir þátttöku Bandaríkjaforseti og forsætiráðherra Bretlands segja að ekki verið rætt við Írana og Sýrlendinga um mögulegar lausnir á ástandinu í Írak, líkt og ráðgjafarnefnd Bandaríkjaforseta leggur til, nema að uppfylltum skilyrðum. Formaður nefndarinnar segir um heildstæða tillögu að ræða og ekki hægt að velja eitt og hafna öðru. 8.12.2006 12:45 Baugsmenn ætla ekki að kæra úrskurðinn Verjendur Baugsmanna ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdómur Reykjavíkur þess efnis að Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, þurfi ekki að bera vitni um samskipti sín við við blaðamann á Blaðinu. Lögfræðingar Baugsmanna segja þessa ákvörðun tekna þar sem þeir vilji ekki tefja málið frekar heldur klára það sem fyrst. 8.12.2006 12:43 Sautján ára piltar missa nýfengin ökuskírteini sín Þrír sautján ára piltar, með glæný ökuskírteini, voru teknir úr umferð í nótt eftir að hafa mælst á allt of miklum hraða. 8.12.2006 12:30 Full samstaða stjórnarliða um RÚV Full samstaða er meðal stjórnarliða um RÚV-frumvarpið segir menntamálaráðherra og átelur menn fyrir að setja frestun lokaumræðunnar í annarlegt ljós. 8.12.2006 12:25 Ekið frá Selfossi til Alþingis með undirskriftir í dag Sunnlendingar og fleiri hyggjast fjölmenna í bílalest þar sem ekið verður frá Tryggvaskála á Selfossi og niður að Alþingishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Þar ætla þeir að afhenda Alþingi undirskriftir 25 þúsund Íslendinga sem skora á þingið að lögfesta tvöföldun Suðurlandsvegar án tafar. 8.12.2006 12:12 Fullar atvinnuleysisbætur hækka um 3.000 krónur um áramótin Atvinnuleysisbætur hækka um 2,9% 1. janúar á næsta ári. Hækkun atvinnuleysisbóta helst í hendur við hækkun launa í landinu almennt. Fullar atvinnuleysisbætur hækka um rúmar 3.000 krónur. Þær eru nú 111.015 krónur en verða 114.234 krónur 1. janúar 2007. 8.12.2006 11:51 Læknafélagið vill endubætur á vegum Stjórn Læknafélags Íslands telur brýnt að gerðar verði viðunandi endurbætur á fjölförnum vegum við þéttbýli eins og þeim sem mesta umferð bera við höfuðborgina. Stjórnin telur sannað að úreltir vegir séu ástæða slysa sem orðið hafa á vegum landsins. Hún telur þó rétt að minna á að flest slys megi forðast með varlegum akstri og réttri notkun öryggisbúnaðar. 8.12.2006 11:41 Vann lúxusferð á Eragon í London Frá því að nýr Vísir var opnaður hafa þeir sem gert hafa vefinn að upphafssíðu sinni farið í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Í gær vann Birgitta Sigursteinsdóttir ferð fyrir tvo á sérstaka gala forsýningu Eragon í London með öllum leikurum myndarinnar. 8.12.2006 11:23 Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Mannlífs Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri grænir bæta við sig verulegu fylgi frá síðustu kosningum, samkvæmt könnun sem Mannlíf lét gera í samvinnu við Plúsinn. Meirihluti stjórnarflokkanna á Alþingi er fallinn samkvæmt henni. 8.12.2006 11:11 Neytendasamtökin standa á bak við áfrýjun vegna olíusamráðsmáls Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að standa á bak við kæru Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, til Hæstaréttar vegna frávísunar héraðsdóms á máli hans á hendur Keri hf., sem áður var Olíufélagið Esso. 8.12.2006 11:01 VRRRÚÚMMMM Skrúðvagnar eru vinsælir í skrúðgöngum, í Bandaríkjunum. Þeir eru gjarnan fullir af fögrum meyjum, eða þá einhverjum fígúrum. Pallbílar eru gjarnan notaðir í þessum tilgangi. Ökumaður eins slíks var í gær handtekinn fyrir ölvun við akstur. 8.12.2006 10:58 Miklar annir á lokaspretti þingsins fyrir jól Miklar annir verða á Alþingi Íslendinga í dag enda hafa stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar orðið ásáttir um að hefja jólafrí þingsins á morgun. 35 mál eru á dagskrá þingfundar í dag sem hófst klukkan tíu. 8.12.2006 10:49 Bandaríkjaher banar 20 grunuðum al-Kaída liðum Bandarískar hersveitir felldu í dag 20 grunaða al-Kaída liða, þar á meðal tvær konur, í áhlaupi á búðir uppreisnarmanna í miðhluta Íraks. 8.12.2006 10:46 Fór einn hring í mjúkum snjó Lítil meiðsl urðu á ökumanni og farþega fólksbíls sem valt einn hring í mjúkum snjó á Háreksstaðaleið, norðan við Jökuldal í kvöld. Lögregla dró bílinn upp á veginn og var hann keyrður á leiðarenda áfallalaust eftir það. Skafrenningur er og blint á köflum fyrir austan að sögn lögreglu. 7.12.2006 23:30 Sjá næstu 50 fréttir
16 dagar gegn ofbeldi 16 strákar munu ganga gegn ofbeldi niður Laugaveginn á morgun á vegum V-dags samtakanna til þess að mótmæla kynbundnu ofbeldi. Þetta er gert til að minna á ábyrgð karlmanna varðandi kynferðisofbeldi gagnvart konum. Strákarnir ganga af stað klukkan eitt á morgun og minna aðra karlmenn á að standa saman til að útrýma ofbeldi gegn konum. 8.12.2006 18:05
Kæra flugmenn vegna þotuslyss Tveir bandarískir flugmenn voru í dag ákærðir fyrir að stofna flugöryggi í hættu þegar brasilísk Boeing-þota hrapaði í Amazon-frumskóginum þann 29. september. Mennirnir tveir flugu lítilli einkaþotu sem rakst á væng farþegaþotunnar með þeim afleiðingum að stærri þotan hrapaði og 154 farþegar og áhafnarmeðlimir létust. 8.12.2006 17:49
Tengivegur fyrir Helgafellshverfi þarf ekki í umhverfismat Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um að ekki þurfi að fara fram mat á umhverfisáhrifum vegna tengivegar fyrir Helgafellshverfi. Framkvæmdir munu því hefjast í byrjun næsta árs og vonast landeigendur til þess að þær fari fram í sem mestri sátt. 8.12.2006 17:47
Sjálfstæðisflokkurinn misbeitti ríkisvaldinu Sjálfstæðisflokkurinn misbeitti ríkisvaldinu í hlerunum pólitískra andstæðinga, sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Fjármálaráðherra hafnaði því og sagði að menn mættu ekki vanmeta hlut Alþýðuflokks og framsóknarráðherra í hlerunum. Þingmaður Framsóknar brást hart við þeim orðum og sagði árásir á aðra flokka málinu ekki til framdráttar. 8.12.2006 17:24
Seselj hættur að svelta sig Öfgaþjóðernissinninn serbneski Vojislav Seselj, er hættur við mótmælasvelti sem hann hefur haldið til streitu í 28 daga. Hann svalt sig til að krefjast þess meðal annars að skipt yrði um dómara í máli hans fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag. Hann hefur verið þar í haldi síðan árið 2003, ákærður fyrir stríðsglæpi í fyrrum Júgóslavíu. 8.12.2006 17:19
Sex vilja verða landsbókaverðir Umsóknarfrestur um embætti landsbókavarðar rann út mánudaginn 4. desember sl. Menntamálaráðuneyti bárust sex umsóknir um stöðuna. Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. apríl 2007, og skal landsbókavörður skipaður úr hópi þeirra umsækjenda sem stjórn bókasafnsins telur hæfa. 8.12.2006 17:17
Hafði fimm hangikjötslæri á brott með sér Lögreglan í Reykjavík leitar nú að stórtækum hangikjötsþjófi í einni af matvöruverslunum borgarinnar og segir lögregla engu líkara en sjálfur Ketkrókur hefði verið á ferðinni. Svo reyndist þó ekki vera enda mun jólasveinninn sá ekki vera væntanlegur til byggða fyrr en á Þorláksmessu. 8.12.2006 16:51
Aðlagist okkur eða farið annað -Ton y Blair Fólk sem vill setjast að í Bretlandi verður að semja sig að umburðarlyndum gildum þess, eða fara eitthvað annað, sagði Tony Blair, forsætisráðherra, í erindi sem hann flutti í dag. 8.12.2006 16:44
Gæsluvarðhald staðfest vegna meintrar nauðgunar Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður eru um að hafa nauðgað konu síðastliðinn föstudag. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 20. desember og á að gangast undir geðrannsókn á þessum tíma. 8.12.2006 16:39
Rannsóknarnefnd þingsins eða fræðimenn? Harðar deilur voru á Alþingi í dag um hlerunarmál. Voru allir þingmenn sem tóku þátt í þeim sammála um að rannsaka ætti málin ofan í kjölinn en þeim bar ekki saman um hvernig það ætti að gera. Stjórnarandstaðan vill rannsóknarnefnd en stjórnarliðar vilja bíða niðurstöðu nefndar sem Páls Hreinsson fer fyrir og á fjalla um aðgang fræðimanna að opinberum gögnum um öryggismál landins á árunum 1941-991. 8.12.2006 16:39
Kostnaður við Sundabrautarjarðgöng um 16 milljarðar Heildarkostnaður við nýja tillögu að jarðgöngum vegna Sundabrautar er um 16 milljarðar króna sem er fjórum milljörðum króna meira en kostaður við svokallaða innri leið eða eyjalausn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um jarðgangalausn fyrir Sundabraut sem kynnt var á samráðsfundi með íbúasamtökum Grafarvogs og Laugardals í dag. 8.12.2006 16:09
Nýtt fraktflugfélag stofnað á Akureyri Nýtt flugfélag sem flýgur fraktflug frá Akureyri til meginlands Evrópu var stofnað á Akureyri í dag. Félagið heitir Norðanflug ehf. og eru stofnendur þess þrír það er Samherji, Eimskipafélag íslands og SAGA Fjárfestingar. Hefja á fraktflugið vorið 2007. Hlutfé Norðurflugs er 50 milljónir króna. 8.12.2006 16:06
Enn úrsagnir úr Sjálfstæðisflokkunum vegna Árna Johnsen Enn ber á úrsögnum úr Sjálfstæðisflokknum í kjölfar prófkjörssigurs Árna Johnsens fyrir tæpum mánuði. Þetta er óþægindamál fyrir flokkinn, segir Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórmálafræði, sem þarf að klára sem fyrst. Í Pólitíkinni á Stöð 2 klukkan 19:40 í kvöld verður rætt um pólitíska ábyrgð, iðrun og fyrirgefningu. 8.12.2006 15:48
Starfshópur fer yfir ólögmæta búsetu í atvinnuhúsnæði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp til að gera tillögur um leiðir til að sporna við ólögmætri búsetu í atvinnuhúsnæði. Umræður um málið kviknuðu á Alþingi í kjölfar úttektar umsjónarmanna fréttaþáttarins Íslands í dag á Stöð 2 en hún leiddi í ljós að víða er pottur brotinn í þessum efnum. 8.12.2006 15:45
Yfirréttur í Englandi ógildir meiðyrðadóm gegn Hannesi Yfirréttur í Lundúnum ógilti í dag dóm sem felldur var sumarið 2005 í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar athafnamanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. 8.12.2006 15:05
Jónínu Ben dæmdar bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóra DV, til að greiða Jónínu Benediksdóttur bætur vegna umfjöllunar DV um einkalíf hennar. 8.12.2006 15:00
Lögregluskólinn útskrifar þrjátíu og fimm nemendur Lögregluskóli ríkisins útskrifar í dag þrjátíu og fimm nemendur frá grunnnámsdeild skólans. Útskriftin fer fram í Bústaðarkirkju og syngur meðal annars Lögreglukórinn fyrir útskriftarhópinn. 8.12.2006 14:27
Tók fimm stráka fyrir veggjakrot Fimm ungir skemmdarvargar voru gripnir í austurborg Reykjavíkur um hálfníuleytið í gærkvöld en þeir eru grunaðir um veggjakrot. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Um var að ræða stráka á grunnskólaaldri og fann lögregla í kjölfarið nokkuð af sprebrúsum og pennum. 8.12.2006 14:23
Þjóðverjar reykja áfram Stjórnvöld í Þýskalandi hafa hafnað tillögum um að ríkisstjórnin banni reykingar í skólum og á veitingastöðum um land allt. Ríkisstjórnin ætlar að láta hvert hinna sextán ríkja ákveða fyrir sig hvort reykingar verða bannaðar. 8.12.2006 14:18
Yfirheyra lykilvitni í njósnaramorði Breskir og rússneskir lögreglumenn eru farnir að yfirheyra lykilvitni í morðinu á KGB njósnaranum Alexander Litvinenko, að sögn rússneskra fjölmiðla. 8.12.2006 14:09
Frumvarpi um RÚV vísað til þriðju umræðu Samþykkt var fyrir um tvöleytið á Alþingi að vísa frumvarpinu um Ríkisútvarpið ohf. til þriðju umræðu með 49 atkvæðum. Eins og fram hefur komið í fréttum fer þriðja umræða um frumvarpið fram eftir áramót samkvæmt samkomulagi stjórnarliða og stjórnarandstöðu. 8.12.2006 14:01
Gæsluvarðhaldsúrskurður í hnífstungumáli felldur úr gildi Hæstiréttur Íslands hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pilti, sem stakk annan pilt með hnífi, í Kópavogi um síðustu helgi. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í vikunni. 8.12.2006 13:58
Þingmenn á leið í skemmtiferð til útlanda? Tekist var á um það á Alþingi nú eftir hádegið hvort ákveðinn hópur þingmanna væri á leið í skemmtiferð nú eftir þinglok. Það var Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sem kvaddi sér hljóðs um fundarstjórn forseta og vakti athygli á orðum Guðjóns Ólafs Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í fréttum Ríkisútvarpisins í hádeginu. 8.12.2006 13:53
Vel þjálfaðar rottur Þær eru vel þjálfaðar rotturnar sem tóku þátt í fjölþraut í Nebraska í Bandríkjunum í gær. Það voru háskólanemar í bænum Lincoln sem efndu til keppninnar og mætti hver þátttakandi með þrautþjálfaða rottuna sína. Þeim var svo gert að klifra upp kaðla, taka þátt í langstökki, synda, hlaupa yfir hindranir og klifra upp veggi. 8.12.2006 13:45
Neitað um skaðabætur eftir að hafa ekið á hest Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað hestamann og Vátryggingafélag Íslands af ríflega 670 þúsund króna skaðabótakröfu manns vegna tjóns sem varð á bíl hans þegar hann ók á hest hestamannsins. 8.12.2006 13:17
Karlmaður um tvítugt lést í umferðarslysi Karlmaður um tvítugt beið bana í umferðarslysi á Stykkishólmsvegi við afleggjarann að Stykkishólmsflugvelli í nótt. Slysið var rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Nokkur ísing og hálka var á veginum en talið er að maðurinn hafi misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann hafnaði á ljósastaur. Talið er að að maðurinn hafi látist samstundis. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. 8.12.2006 13:16
Lykilvitni líkast til yfirheyrt í dag Allt bendir til þess breskir lögreglumenn yfirheyri í dag lykilvitni í rannsókninni á morðinu á rússneska njósnaranum Alexander Litvinenko. Yfirheyrslunni hefur ítrekað verði frestað vegna þess að vitni hefur verið til rannsóknar hjá læknum í Moskvu. 8.12.2006 13:15
Tugþúsundir lýstu stuðningi við Haniyeh og Hamas Tugþúsundir stuðningsmanna Hamas samtakanna komu saman til útifundar, í dag, þar sem þeir kröfðust þess að Ismail Hanyeh, forsætisráðherra ríkisstjórnar Palestínumanna leiði hvaða ríkisstjórn sem stofnuð verður í landinu. 8.12.2006 13:11
Segir borgarstjóra tvísaga í lóðakaupamáli Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. 8.12.2006 13:00
Skilyrði fyrir þátttöku Bandaríkjaforseti og forsætiráðherra Bretlands segja að ekki verið rætt við Írana og Sýrlendinga um mögulegar lausnir á ástandinu í Írak, líkt og ráðgjafarnefnd Bandaríkjaforseta leggur til, nema að uppfylltum skilyrðum. Formaður nefndarinnar segir um heildstæða tillögu að ræða og ekki hægt að velja eitt og hafna öðru. 8.12.2006 12:45
Baugsmenn ætla ekki að kæra úrskurðinn Verjendur Baugsmanna ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdómur Reykjavíkur þess efnis að Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, þurfi ekki að bera vitni um samskipti sín við við blaðamann á Blaðinu. Lögfræðingar Baugsmanna segja þessa ákvörðun tekna þar sem þeir vilji ekki tefja málið frekar heldur klára það sem fyrst. 8.12.2006 12:43
Sautján ára piltar missa nýfengin ökuskírteini sín Þrír sautján ára piltar, með glæný ökuskírteini, voru teknir úr umferð í nótt eftir að hafa mælst á allt of miklum hraða. 8.12.2006 12:30
Full samstaða stjórnarliða um RÚV Full samstaða er meðal stjórnarliða um RÚV-frumvarpið segir menntamálaráðherra og átelur menn fyrir að setja frestun lokaumræðunnar í annarlegt ljós. 8.12.2006 12:25
Ekið frá Selfossi til Alþingis með undirskriftir í dag Sunnlendingar og fleiri hyggjast fjölmenna í bílalest þar sem ekið verður frá Tryggvaskála á Selfossi og niður að Alþingishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Þar ætla þeir að afhenda Alþingi undirskriftir 25 þúsund Íslendinga sem skora á þingið að lögfesta tvöföldun Suðurlandsvegar án tafar. 8.12.2006 12:12
Fullar atvinnuleysisbætur hækka um 3.000 krónur um áramótin Atvinnuleysisbætur hækka um 2,9% 1. janúar á næsta ári. Hækkun atvinnuleysisbóta helst í hendur við hækkun launa í landinu almennt. Fullar atvinnuleysisbætur hækka um rúmar 3.000 krónur. Þær eru nú 111.015 krónur en verða 114.234 krónur 1. janúar 2007. 8.12.2006 11:51
Læknafélagið vill endubætur á vegum Stjórn Læknafélags Íslands telur brýnt að gerðar verði viðunandi endurbætur á fjölförnum vegum við þéttbýli eins og þeim sem mesta umferð bera við höfuðborgina. Stjórnin telur sannað að úreltir vegir séu ástæða slysa sem orðið hafa á vegum landsins. Hún telur þó rétt að minna á að flest slys megi forðast með varlegum akstri og réttri notkun öryggisbúnaðar. 8.12.2006 11:41
Vann lúxusferð á Eragon í London Frá því að nýr Vísir var opnaður hafa þeir sem gert hafa vefinn að upphafssíðu sinni farið í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Í gær vann Birgitta Sigursteinsdóttir ferð fyrir tvo á sérstaka gala forsýningu Eragon í London með öllum leikurum myndarinnar. 8.12.2006 11:23
Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Mannlífs Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri grænir bæta við sig verulegu fylgi frá síðustu kosningum, samkvæmt könnun sem Mannlíf lét gera í samvinnu við Plúsinn. Meirihluti stjórnarflokkanna á Alþingi er fallinn samkvæmt henni. 8.12.2006 11:11
Neytendasamtökin standa á bak við áfrýjun vegna olíusamráðsmáls Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að standa á bak við kæru Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, til Hæstaréttar vegna frávísunar héraðsdóms á máli hans á hendur Keri hf., sem áður var Olíufélagið Esso. 8.12.2006 11:01
VRRRÚÚMMMM Skrúðvagnar eru vinsælir í skrúðgöngum, í Bandaríkjunum. Þeir eru gjarnan fullir af fögrum meyjum, eða þá einhverjum fígúrum. Pallbílar eru gjarnan notaðir í þessum tilgangi. Ökumaður eins slíks var í gær handtekinn fyrir ölvun við akstur. 8.12.2006 10:58
Miklar annir á lokaspretti þingsins fyrir jól Miklar annir verða á Alþingi Íslendinga í dag enda hafa stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar orðið ásáttir um að hefja jólafrí þingsins á morgun. 35 mál eru á dagskrá þingfundar í dag sem hófst klukkan tíu. 8.12.2006 10:49
Bandaríkjaher banar 20 grunuðum al-Kaída liðum Bandarískar hersveitir felldu í dag 20 grunaða al-Kaída liða, þar á meðal tvær konur, í áhlaupi á búðir uppreisnarmanna í miðhluta Íraks. 8.12.2006 10:46
Fór einn hring í mjúkum snjó Lítil meiðsl urðu á ökumanni og farþega fólksbíls sem valt einn hring í mjúkum snjó á Háreksstaðaleið, norðan við Jökuldal í kvöld. Lögregla dró bílinn upp á veginn og var hann keyrður á leiðarenda áfallalaust eftir það. Skafrenningur er og blint á köflum fyrir austan að sögn lögreglu. 7.12.2006 23:30