Fleiri
Stór lottóvinningur 10.11.2006 16:50 Vegur um Óshlíð opnaður á ný Vegagerðin vill koma því á framfæri að búið er að opna Óshlíð en fólki er bent á að vera ekki á ferðinni að ástæðalausu. Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku og snjóþekja og éljagangur er á Fróðárheiði. 10.11.2006 16:48 Náttúrufræðistofnun hefur óskað eftir rannsókn á hvarfi gripa í eigu stofnunarinnar Náttúrufræðistofnun Íslands hefur að höfðu samráði við umhverfisráðuneytið óskað eftir opinberri rannsókn á hvarfi á náttúrurannsóknargögnum og náttúrugripum í eigu íslenska ríkisins sem varðveittir voru í frystigeymslu sem stofnunin hafði á leigu. 10.11.2006 16:39 26 umferðaróhöpp í vikunni Í síðastliðinni viku var tilkynnt um 26 umferðaróhöpp til lögreglunnar og telst það óvenju mikið. Í tveimur þeirra kvörtuðu ökumenn um minni háttar eymsli, en öll teljast þau slysalaus. 10.11.2006 16:28 Pólverjar íhuga að reisa kjarnorkuver vegna vantrausts á Rússum Pólverjar eru að íhuga að reisa kjarnorkuver til orkuframleiðslu, því þeir treysta ekki Rússum til þess að sjá sér fyrir orku. Rússar hafa sýnt sig að vera ekki mjög áreiðanlegir byrgjar, og nota orku sína í pólitískum tilgangi. 10.11.2006 16:24 Vatnajökulsþjóðgarður verður að veruleika Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun tillögu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stjórnarfrumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn verður sá stærsti í Evrópu og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum. 10.11.2006 16:17 Leita leiða til að lifa í breyttu loftslagi Evrópusambandið mun á næsta ári leita eftir hugmyndum um hvernig það getur bætt undirbúning sinn undir loftslagsbreytingar. 10.11.2006 15:41 Vörður um homma og lesbíur Öflugur lögregluvörður var um nokkur þúsund homma og lesbíur og stuðningsfólk þeirra, í skrúðgöngu á Hinsegin dögum í Jerúsalem, í dag. 10.11.2006 15:14 Náttúruverndarráð Noregs vill útrýma kóngakrabba í Noregi Náttúruverndarráð Noregs vill að kóngakrabbar verði álitin umhverfisógn en ekki nytjategund og að veiðar á þeim verði auknar til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Krabbinn er mesti vargur og leggst til dæmis á síldar- og loðnuhrogn. Hann er nýleg tegund í norskri lögsögu og skilur eftir sig sviðna jörð þar sem hann hefur farið um sjávarbotninn. 10.11.2006 15:07 52 krossar reistir við Suðurlandsveg 52 krossar voru reistir við Kögunarhól rétt vestan við Selfoss, við fallega athöfn klukkan þrjú í dag, til minningar um þá sem látið hafa lífið í umferðarslysum á Suðurlandsvegi. Vel á annað hundrað manns voru á staðnum, 2-3 til að reisa hvern kross. Framámenn í sveitarstjórnum og á Alþingi lýstu margir yfir vilja til framkvæmda í samgöngumálum Sunnlendinga. 10.11.2006 15:00 Lendingaræfing Airbus 380 í Keflavík gekk vel Æfing Airbus-vélar 380 á Keflavíkurflugvelli í dag gekk mjög vel en vélin var að æfa lendingu í miklum hliðarvindi. Vélin kom í sérferð hingað til lands í morgun þegar vitað var að vindurinn yrði þetta mikill. Vélin er talsvert stærri en Boeing 757 vélarnar sem eru algengastar á Keflavíkurflugvelli. Hún vegur 560 tonn en 757 vélarnar vega aðeins 99 tonn. 10.11.2006 14:52 Jólabjórinn flæðir í kvöld Íslendingar virðast komnir á bragðið af jólabjór frá Akureyri. Margir þekkja hefðina frá Danmörku þar sem tappinn er sleginn úr jólabjórtunnunni um gjörvallt landið á sama tíma. Hér er þessi hefð einnig að festa sig í sessi að sögn Þrastar Gestssonar, sem rekur nokkra veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík undir nafninu 101-heild. 10.11.2006 14:39 Fyrsta ríkisstjórn Svartfjallalands staðfest Þing Svartfjallalands staðfesti í dag fyrstu ríkisstjórn þessa nýlega sjálfstæða ríkis. 10.11.2006 14:23 Sjá næstu 50 fréttir
RKÍ fagnar auknu fé til íslenskukennslu fyrir útlendinga Þeir innflytjendur sem ekki tala íslensku standa einna verst að vígi í þjóðfélaginu samkvæmt könnun sem Rauði krossinn stóð að. Vegna þessa fagnar félagið þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í gær, að verja 100 milljónum króna á næsta ári til íselnskukennslu fyrir útlendinga. 11.11.2006 13:30
Hannes sýknaður af kröfum vegna brota á höfundarlögum Hannes Hólmsteinn Gissurarson var sýknaður í Héraðsdómi í gær af öllum kröfum Auðar Sveinsdóttur, ekkju Halldórs Laxness, vegna brota á höfundarlögum. Dómari taldi þrátt fyrir það að Hannes væri brotlegur. 11.11.2006 13:15
Sýknaðir af ákæru um að hafa kynt undir kynþáttahatri Nick Griffin, leiðtogi Breska þjóðarflokksins, og einn flokksbræðra hans voru í gær sýknaður af ákærum um að hafa kynt undir kynþáttahatri. Upptökur af ræðu Griffins á lokuðum fundi flokksins þar sem hann segir meðal annars að múslimar hafi breytt Bretlandi í kynþáttablandað helvíti voru kveikja ákæranna en þær voru síðar spilaðar í breska ríkisútvarpinu. 11.11.2006 13:00
Engar breytingar á heimsókn sendiherra þrátt fyrir árásir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir að engar breytingar verði á heimsókn sendiherra Ísraels hingað til lands í næstu viku. Stjórnvöld muni þó koma því á framfæri að þau fordæmi árásirnar á óbreytta borgara í bænum Beit Hanoun á Gaza sem kostuðu átján, þar af tíu börn, lífið. 11.11.2006 12:45
Barsmíðar lögreglu í LA vekja reiði Myndir sem sýna lögregluna í Los Angeles beita miklu harðræði við handtöku hafa vakið bæði óhug og reiði. Talsmaður lögreglunnar telur hins vegar að eðlilega hafi verið staðið að handtökunni. 11.11.2006 12:30
Leita þarf samkomulags við landeigendur vegna þjóðgarðs Töluverður hluti af því landssvæði sem áætlað er að falli innan Vatnajökulsþjóðgarðs er í einkaeign og verður ekki hluti af þjóðgarðinum nema til komi samkomulag við landeigendur. 11.11.2006 12:15
Ekkert ferðaveður víða á Norðaustur- og Austurlandi Ekkert ferðaveður er víða á Norðaustur- og Austurlandi allt frá Öxarfirði suður að Hornafirði samkvæmt Vegagerðinni og því fólki ráðið frá því að vera þar á ferðinni. Á Norðausturlandi er víðast hvar hálka og skafrenningur en óveður austan Öxarfjarðar og eins yfir Möðrudalsöræfi. Á Austurlandi er víða mjög hvasst og Öxi er þungfær. 11.11.2006 12:01
Tekist á um fjórðung líklegra þingsæta í dag Nokkrir sitjandi þingmenn, bæði Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, eru taldir í verulegri fallhættu í prófkjörum sem fram fara í dag. Þá má telja nokkuð víst að prófkjörin skili nýliðum inn í örugg sæti á framboðslistum, en alls er tekist á um fjórðung líklegra þingsæta á næsta Alþingi Íslendinga. 11.11.2006 12:00
1850 hafa kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Nýjustu tölur um kjörsókn í prófkjörum dagsins eru þær að í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum höfðu 1850 manns kosið nú rétt fyrir klukkan tólf. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi höfðu um 700 manns kosið nú skömmu fyrir hádegi. 11.11.2006 11:57
Stormviðvörun frá Veðurstofu Íslands Veðurstofa Íslands sendi frá sér viðvörun í kvöld vegna væntanlegs storms á norður- og austurlandi í kvöld og nótt. Á vindurinn að snúast í hvassa norðan- og norðvestanátt með snjókomu eða éljum í kvöld og nótt og þá einkum norðanlands. 10.11.2006 23:21
John McCain hyggur á framboð í forsetakosningum í Bandaríkjunum árið 2008 Búist er við því að John McCain, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Arisóna, ætli sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem verða haldnar árið 2008. Þótt engin formleg ákvörðun hafi verið tekin segja nánir samverkamenn hans að vinna við hugsanlegt framboð sé þegar hafin. 10.11.2006 22:30
Rumsfeld hugsanlega sóttur til saka vegna fangelsanna í Abu Ghraib og Guantanamo Bandarísk samtök sem berjast fyrir stjórnarskrárbundnum réttindum fólks ætla sér að höfða mál gegn Donald Rumsfeld, fyrrum landvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna meðferðar á föngum í fangelsunum í Abu Ghraib og Guantanamo. Málin verða sótt í Þýskalandi. 10.11.2006 21:39
Friðarviðræður að hefjast á ný í Sómalíu Sómalskir uppreisnarmenn og meðlimir í bráðabirgðastjórn Sómalíu náðu í dag samkomulagi um að hefja aftur friðarviðræður undi handleiðslu Félags arabískra þjóða og Súdan. 10.11.2006 21:16
Misskilningur hjá Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar Upplýsingafulltrúi skrifstofu borgarstjóra sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem er sagt að fréttir um að Reykjavíkurborg fái minna en stóð til fyrir hlut sinn í Landsvirkjun séu rangar. 10.11.2006 20:58
1087 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 1087 hafa kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Prófkjörið fer fram á morgun laugardag og er kosið í félagsheimili Þróttar, Engjavegi 7, Laugardal (norðan Laugardalshallar). 10.11.2006 20:49
Mikil ófærð á vegum Þæfingur og óveður er á Öxnadalsheiði og þar er ekkert ferðarveður. Búið er að opna Óshlíð en fólki er bent á að vera ekki á ferðinni að ástæðalausu. 10.11.2006 20:41
Ófærð á Öxnadalsheiði Lögreglan á Akureyri var kölluð upp á Öxnadalsheiðina undir kvöld vegna vöruflutningabifreiðar sem að lenti í vandræðum upp á Bakkaselsbrekku vegna vonskuveðurs. 10.11.2006 20:06
Al-Kaída fagnar niðurstöðum þingkosninganna í Bandaríkjunum Leiðtogi Al-Kaída í Írak, Abu Hamza al-Muhajir, fagnaði í dag niðurstöðum bandarísku þingkosninganna og sagði bandaríska kjósendur hafa gert rétta hlutinn. Kom þetta fram í hljóðupptöku sem var birt á netinu í dag en ekki hefur enn verið staðfest að hún sé ósvikin. 10.11.2006 19:51
Fánahylling bönnuð í menntaskóla í Bandaríkjunum Nemendafélag háskóla eins í Orange County í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að banna hina svokölluðu fánahyllingu. Í henni er frasinn "under God" sem útleggjast mætti á hinu ylhýra sem "undirgefin Guði" en á undanförnum árum hefur hæstiréttur Bandaríkjanna bannað ýmsar trúarlega vísanir í hvers kyns opinberum athöfnum og þá sérstaklega í skólum. 10.11.2006 19:32
Spennan magnast í Kongó Ásakanir um kosningasvindl hafa komið fram í Kongó undanfarið og er óttast að þær bæti við þegar eldfimt andrúmsloft í landinu. Samkvæmt síðustu tölum hefur áskorandinn Jean-Pierra Bemba saxað á forskot sitjandi forseta, Joseph Kabila, sem hefur hlotið um 60% atkvæða þegar tveir þriðju atkvæða hefur verið talinn. 10.11.2006 19:03
Deilt á vinnubrögð borgarstjórnar Borgarstjóri situr beggja vegna borðsins í risaverkefni sem felur í sér uppbyggingu búsetuúrræða fyrir eldri borgara, segir fulltrúi Samfylkingarinnar og telur vinnubrögðin tortryggileg. Borgin hefur gert viljayfirlýsingu við hjúkrunarheimilið Eir en borgarstjóri er stjórnarformaður þess og undrast Samfylkingin valið. 10.11.2006 18:59
Mótmæla spilavíti Háskóla Íslands í Breiðholti Íbúasamtök Breiðholts mótmæla því að Háskóli Íslands skuli ætla að setja upp spilavíti í hverfinu. Formaður samtakanna segir siðlaust að skólinn skuli þurfa að standa á bak við slíkan rekstur. 10.11.2006 18:57
Rauði kross Íslands fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um íslenskukennslu fyrir útlendinga Rauði kross Íslands fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að verja 100 milljónum króna á næsta ári til sérstaks verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Félagið telur þessa ákvörðun mikilvægt skref í að gera innflytjendum kleift að nýta hæfileika sína og menntun til að verða fullgildir og sjálfstæðir þáttakendur á öllum sviðum samfélagsins. 10.11.2006 18:53
Þrjú spennandi prófkjör á morgun Nærri lætur að um fjórðungi þingsæta verði ráðstafað í þremur prófkjörum sem fram fara á morgun. Samfylkingin velur frambjóðendur sína í báðum Reykjavíkurkjördæmum og Sjálfstæðisflokkur sína menn í Suður - og Suðvesturkjördæmi. 10.11.2006 18:51
Íslenskan er málið Útlendingar sem vilja setjast hér að geta átt von á því að þurfa að sýna fram á lágmarkskunnáttu í íslensku með því að standast sérstök próf vilji þeir sækja um ríkisborgararétt. Gerðar verða kröfur um að útlendingar sýni viðlíka færni í þeim prófum og Íslendingar þurfa að sýna á grunnskólaprófum í ensku og dönsku. 10.11.2006 18:18
946 manns höfðu kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík núna kl. 18.00 Alls höfðu 946 manns kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík núna kl. 18.00. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu Samfylkingarinnar Hallveigarstíg 1 og stendur hún yfir til kl. 20 í kvöld. 10.11.2006 18:15
Evrópsk varnarsamvinna að komast á nýtt stig Á mánudaginn mun Evrópusambandið stofna sjóð sem á að standa straum af kostnaði við evrópska varnarsamvinnu og það þrátt fyrir að Bretland ætli sér ekki að taka þátt. 10.11.2006 18:04
Ekkert ferðaveður er á landinu í kvöld og í nótt Versnandi veður er á Vestfjörðum og með norðurströndinni með kvöldinu og má búast við að þar verði 18-23 m/s með snjókomu og skafrenningi í kvöld og nótt. 10.11.2006 17:48
Fyrrum yfirmaður verkefnis breska hersins um fljúgandi furðuhluti varar við árás geimvera Rétt eftir að yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varaði við hryðjuverkaógninni kom önnur viðvörun, en í þetta sinn frá fyrrverandi yfirmanni verkefnis breska hersins um fljúgandi furðuhluti. Hann varaði við árásum geimvera, sagði að þær gætu átt sér stað hvenær sem er og einna helst á Bretlandi. 10.11.2006 17:31
Gæslan fylgist með olíuskipi í vonskuveðri Landhelgisgæslan hefur sent varðskip í áttina að 50 þúsund tonna olíuskipi, NS Pride, sem er í vonskuveðri suður af landinu á leiðinni frá Murmansk til New York með 25 þúsund tonna bensínfarm. Skipið kom inn í AIS eftirlitskerfi Vaktstöðvar siglinga þegar það nálgaðist suð-austurland seint í gærkvöldi. 10.11.2006 17:27
Skóladansleik FS aflýst á Selfossi Forrráðamenn Fjölbrauta Suðurlands ásamt stjórn nemendaráðs, hafa ákveðið að fella niður skóladansleik, sem fram átti að fara í klukkan 22 í kvöld í Ölfushöllinni, vegna veðurs og óhagstæðrar veðurspár. 10.11.2006 17:12
Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag. Verður athugað með flug í fyrramálið. Á þetta við um bæði Flugfélag Íslands og flugfélagið Landsflug. 10.11.2006 16:58
Vegur um Óshlíð opnaður á ný Vegagerðin vill koma því á framfæri að búið er að opna Óshlíð en fólki er bent á að vera ekki á ferðinni að ástæðalausu. Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku og snjóþekja og éljagangur er á Fróðárheiði. 10.11.2006 16:48
Náttúrufræðistofnun hefur óskað eftir rannsókn á hvarfi gripa í eigu stofnunarinnar Náttúrufræðistofnun Íslands hefur að höfðu samráði við umhverfisráðuneytið óskað eftir opinberri rannsókn á hvarfi á náttúrurannsóknargögnum og náttúrugripum í eigu íslenska ríkisins sem varðveittir voru í frystigeymslu sem stofnunin hafði á leigu. 10.11.2006 16:39
26 umferðaróhöpp í vikunni Í síðastliðinni viku var tilkynnt um 26 umferðaróhöpp til lögreglunnar og telst það óvenju mikið. Í tveimur þeirra kvörtuðu ökumenn um minni háttar eymsli, en öll teljast þau slysalaus. 10.11.2006 16:28
Pólverjar íhuga að reisa kjarnorkuver vegna vantrausts á Rússum Pólverjar eru að íhuga að reisa kjarnorkuver til orkuframleiðslu, því þeir treysta ekki Rússum til þess að sjá sér fyrir orku. Rússar hafa sýnt sig að vera ekki mjög áreiðanlegir byrgjar, og nota orku sína í pólitískum tilgangi. 10.11.2006 16:24
Vatnajökulsþjóðgarður verður að veruleika Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun tillögu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stjórnarfrumvarpi um Vatnajökulsþjóðgarð. Þjóðgarðurinn verður sá stærsti í Evrópu og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum. 10.11.2006 16:17
Leita leiða til að lifa í breyttu loftslagi Evrópusambandið mun á næsta ári leita eftir hugmyndum um hvernig það getur bætt undirbúning sinn undir loftslagsbreytingar. 10.11.2006 15:41
Vörður um homma og lesbíur Öflugur lögregluvörður var um nokkur þúsund homma og lesbíur og stuðningsfólk þeirra, í skrúðgöngu á Hinsegin dögum í Jerúsalem, í dag. 10.11.2006 15:14
Náttúruverndarráð Noregs vill útrýma kóngakrabba í Noregi Náttúruverndarráð Noregs vill að kóngakrabbar verði álitin umhverfisógn en ekki nytjategund og að veiðar á þeim verði auknar til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Krabbinn er mesti vargur og leggst til dæmis á síldar- og loðnuhrogn. Hann er nýleg tegund í norskri lögsögu og skilur eftir sig sviðna jörð þar sem hann hefur farið um sjávarbotninn. 10.11.2006 15:07
52 krossar reistir við Suðurlandsveg 52 krossar voru reistir við Kögunarhól rétt vestan við Selfoss, við fallega athöfn klukkan þrjú í dag, til minningar um þá sem látið hafa lífið í umferðarslysum á Suðurlandsvegi. Vel á annað hundrað manns voru á staðnum, 2-3 til að reisa hvern kross. Framámenn í sveitarstjórnum og á Alþingi lýstu margir yfir vilja til framkvæmda í samgöngumálum Sunnlendinga. 10.11.2006 15:00
Lendingaræfing Airbus 380 í Keflavík gekk vel Æfing Airbus-vélar 380 á Keflavíkurflugvelli í dag gekk mjög vel en vélin var að æfa lendingu í miklum hliðarvindi. Vélin kom í sérferð hingað til lands í morgun þegar vitað var að vindurinn yrði þetta mikill. Vélin er talsvert stærri en Boeing 757 vélarnar sem eru algengastar á Keflavíkurflugvelli. Hún vegur 560 tonn en 757 vélarnar vega aðeins 99 tonn. 10.11.2006 14:52
Jólabjórinn flæðir í kvöld Íslendingar virðast komnir á bragðið af jólabjór frá Akureyri. Margir þekkja hefðina frá Danmörku þar sem tappinn er sleginn úr jólabjórtunnunni um gjörvallt landið á sama tíma. Hér er þessi hefð einnig að festa sig í sessi að sögn Þrastar Gestssonar, sem rekur nokkra veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík undir nafninu 101-heild. 10.11.2006 14:39
Fyrsta ríkisstjórn Svartfjallalands staðfest Þing Svartfjallalands staðfesti í dag fyrstu ríkisstjórn þessa nýlega sjálfstæða ríkis. 10.11.2006 14:23