Fleiri fréttir Skortur á hæfu starfsfólki helsta ógnunin Helsta ógnunin í starfsumhverfi nýrra íslenskra tæknifyrirtækja, að mati stjórnenda, er skortur á hæfu starfsfólki, frekar en framboð á fjármagni eða almennt efnahagsumhverfi. Mikill meirihluti þessara fyrirtækja eru þjónustufyrirtæki og um helmingur þeirra sérhæfir sig í tölvutækni. 10.11.2006 13:26 Innheimtumiðstöð frestar opnun Sýslumaðurinn á Blönduósi hefur ákveðið að fresta opnun innheimtumiðstöðvar sekta og sakarkostnaðar, sem átti að fara fram á morgun. Fyrirhugað var að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra opnaði miðstöðina með formlegum hætti. 10.11.2006 13:19 10 farþegar sluppu lítið meiddir á Holtavörðuheiði Rúta valt út af veginum í kafaldsbyl á Holtavörðuheiði rétt fyrir hádegi í dag. Lögreglubílar frá Borgarnesi og Blönduósi fóru á staðinn en óhappið varð norðan megin í heiðinni. 10 farþegar voru í rútunni en þeir munu ekki hafa slasast mikið. Þegar björgunarsveit kom á staðinn var búið að taka alla farþegana upp í og fóru 6 þeirra suður yfir og 4 norður. 10.11.2006 13:10 Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir flottrollsveiðum við Snæfellsnes Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir ákvörðun Einars Kristins Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra, frá í síðustu viku, sem heimilar síldveiðar með flottrolli innan 12 sjómílna við Snæfellsnes. Segir í ályktun bæjarstjórnarinnar að "heimild til flotvörpuveiða við landsteina, eingöngu á Snæfellsnesi, sé ekki í takt við vinnureglur fiskveiðistjórnunar á undanförnum áratugum." 10.11.2006 12:45 Ríkisstjórnin eflir íslenskukennslu Ríkisstjórnin ætlar að verja 100 milljónum króna til að stórefla íslenskukennslu fyrir útlendinga á næsta ári. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jafnframt verður kröfunni um að útlendingar læri íslensku fylgt fast eftir. 10.11.2006 12:14 Breska leyniþjónustan rannsakar áform um 30 hryðjuverkaárásir Elísa Manningham-Buller, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, segir 30 hryðjuverkaárásir í rannsókn í Bretlandi og að leyniþjónustan fylgist með yfir 1600 einstaklingum, sem margir væru í tengslum við Al-Kæda í Pakistan. 10.11.2006 12:14 Family Performance 10.11.2006 12:07
Expecting a storm 9.11.2006 15:18 Best að búa í Noregi og á Íslandi Noregur og Ísland eru í efstu tveimur sætunum á nýjum lista Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna yfir lönd þar sem bestu lífsskilyrði í heiminum eru. Öll norrænu ríkin eru meðal þeirra fimmtán landa þar sem best er að búa, Svíar í fimmta sæti, Finnar í ellefta og Danir í fimmtánda. 9.11.2006 15:00 Sjá næstu 50 fréttir
Skortur á hæfu starfsfólki helsta ógnunin Helsta ógnunin í starfsumhverfi nýrra íslenskra tæknifyrirtækja, að mati stjórnenda, er skortur á hæfu starfsfólki, frekar en framboð á fjármagni eða almennt efnahagsumhverfi. Mikill meirihluti þessara fyrirtækja eru þjónustufyrirtæki og um helmingur þeirra sérhæfir sig í tölvutækni. 10.11.2006 13:26
Innheimtumiðstöð frestar opnun Sýslumaðurinn á Blönduósi hefur ákveðið að fresta opnun innheimtumiðstöðvar sekta og sakarkostnaðar, sem átti að fara fram á morgun. Fyrirhugað var að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra opnaði miðstöðina með formlegum hætti. 10.11.2006 13:19
10 farþegar sluppu lítið meiddir á Holtavörðuheiði Rúta valt út af veginum í kafaldsbyl á Holtavörðuheiði rétt fyrir hádegi í dag. Lögreglubílar frá Borgarnesi og Blönduósi fóru á staðinn en óhappið varð norðan megin í heiðinni. 10 farþegar voru í rútunni en þeir munu ekki hafa slasast mikið. Þegar björgunarsveit kom á staðinn var búið að taka alla farþegana upp í og fóru 6 þeirra suður yfir og 4 norður. 10.11.2006 13:10
Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir flottrollsveiðum við Snæfellsnes Bæjarstjórn Grundarfjarðar mótmælir ákvörðun Einars Kristins Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra, frá í síðustu viku, sem heimilar síldveiðar með flottrolli innan 12 sjómílna við Snæfellsnes. Segir í ályktun bæjarstjórnarinnar að "heimild til flotvörpuveiða við landsteina, eingöngu á Snæfellsnesi, sé ekki í takt við vinnureglur fiskveiðistjórnunar á undanförnum áratugum." 10.11.2006 12:45
Ríkisstjórnin eflir íslenskukennslu Ríkisstjórnin ætlar að verja 100 milljónum króna til að stórefla íslenskukennslu fyrir útlendinga á næsta ári. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jafnframt verður kröfunni um að útlendingar læri íslensku fylgt fast eftir. 10.11.2006 12:14
Breska leyniþjónustan rannsakar áform um 30 hryðjuverkaárásir Elísa Manningham-Buller, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, segir 30 hryðjuverkaárásir í rannsókn í Bretlandi og að leyniþjónustan fylgist með yfir 1600 einstaklingum, sem margir væru í tengslum við Al-Kæda í Pakistan. 10.11.2006 12:14
Akureyrarbær endurnýjar samning um eldsneytiskaup Akureyrarbær og Olíufélagið undirrituðu í morgun framlengingu á samningi um eldsneytiskaup til tveggja ára, auk kaupa á smurolíu og öðrum tengdum vörum. Olíufélagið rekur Esso-stöðvarnar. 10.11.2006 11:49
Réttindi samkynhneigðra aukin í Mexíkóborg Þingið í Mexíkóborg lögleiddi í dag borgaralega hjónavígslu samkynhneigðra. Í Mexíkó er næstmesti fjöldi kaþólikka og mómæltu margir þessum nýju lögum. 9.11.2006 23:50
Björgunarsveitir á suðvesturhorninu í viðbragðsstöðu Björgunarsveitir í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins sem á að ganga yfir suðvesturhluta landsins í nótt og í fyrramálið. Bílar frá þeim keyra sem stendur um hverfi og aðstoða fólk við að tryggja lausa hluti. Eitthvað er um að þau hafi líka fest niður hluti á byggingarsvæðum, svo sem stillasa. 9.11.2006 23:26
Yfirmaður MI5, bresku leyniþjónustunnar, varar við hryðjuverkaógninni Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, Lafði Eliza Manningham-Buller, skýrði frá því í ræðu í morgun að vitað væri um allt að 30 áætlanir um hryðjuverk í Bretlandi. Fréttavefur BBC skýrir frá þessu. 9.11.2006 22:58
Kjörsókn í bandarísku þingkosningunum ekki verið meiri síðan 1982 Talið er að um 83 milljónir, eða um 40,4% kjósenda, hafi kosið í þingkosningum í Bandaríkjunum þann 7. nóvemeber síðastliðinn. Þetta er aukning frá þingkosningunum 2002 en þá kusu um 39,7% kjósenda. 9.11.2006 22:39
Ný skýrsla um vatnsmál í Afríku dregur upp dökka mynd Samkvæmt nýrri skýrslu sem þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér í dag er nauðsynlegt að eyða mun meiri fjármunum en nú er gert í hreinsun vatns. Skýrslan segir einnig að mun fleiri láti lífið úr sjúkdómum sem berast með óhreinu vatni heldur en af HIV/AIDS og malaríu samanlagt. 9.11.2006 22:18
Björgunarsveitir í viðbragsstöðu Björgunarsveitir á suðvesturlandi eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins sem á að ganga yfir í nótt. Veður er þegar byrjað að versna og hefur Lögreglan í Reykjavík kallað út svæðisstjóra til þess að undibúa nóttina. 9.11.2006 22:08
Eldur á tjaldsvæði Akraness Klukkan tuttugu mínútur yfir átta í kvöld fékk lögreglan á Akranesi tilkynningu um eld í aðstöðu á tjaldsvæði bæjarins. Logaði glatt þegar slökkvilið bar að garði en um rúman hálftíma tók að ráða niðurlögum eldsins. 9.11.2006 22:02
Allt skólahald fellur niður í Grunnskóla Grindavíkur á morgun, föstudaginn 10.nóvember. Allt skólahald fellur niður í Grunnskóla Grindavíkur á morgun, föstudaginn 10.nóvember. Ástæðan er að kennarar sem eru í námsferð í Bandaríkjunum komast ekki heim í tæka tíð þar sem flugi var frestað vegna veðurs. 9.11.2006 21:30
Fólk beðið að tryggja lausahluti Björgunarsveitin Ársæll, sem starfar á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, og Lögreglan í Reykjavík vilja koma því á framfæri við fólk að binda niður garðhúsgögn, trampólín og allt annað lauslegt sem gæti tekist á loft í veðrinu sem á að ganga yfir í fyrramálið. Minnt er á fólk þarf að borga fyrir þær skemmdir sem hljótast af eigum þeirra. 9.11.2006 21:21
Erfðabreyttur vírus sem krabbameinslyf? Erfðabreyttur vírus getur sýkt og drepið krabbameinsfrumur í heila fólks án þess að skaða heilbrigðar frumur. Þetta kom fram í nýjum rannsóknum sem voru birtar í dag. 9.11.2006 20:57
Allen viðurkennir ósigur George Allen, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Virgínufylki viðurkenndi rétt í þessu ósigur sinn í kosningunum sem fram fóru þann 7. nóvember síðastliðinn. 9.11.2006 20:17
Nýtt bænahús gyðinga opnar í Munchen Nýtt bænahús gyðinga opnaði í Munchen í Þýskalandi í dag, 68 árum eftir að Adolf Hitler lét rífa niður bænahúsið sem stóð þar áður. Litið er á byggingu bænahússins sem staðfestingu á fjölgun gyðingasamfélagsins í Munchen en nasistar hreinsuðu borgina af gyðingum á valdatíma sínum. 9.11.2006 20:05
Vegagerðin varar við grjóthrunni Mikið grjóthrun er í Hvalnes- og Þvottárskriðum og er fólk vinsamlegast beðið um að vera ekki á ferð á þessum slóðum að ástæðulausu. 9.11.2006 19:52
Fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna í prófkjörum hugsanlega bönnuð Fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna í prófkjörum verða bönnuð nái tillaga þingnefndar um málefnið fram að ganga. Verði tillögurnar samþykktar mun bannið taka gildi fyrir alþingiskosningarnar í vor. 9.11.2006 19:15
Demókratar nær öruggir um sigur Allt bendir til að demókratar hafi náð meirihluta í báðum deildum í bandarísku þingkosningunum, í fyrsta sinn í tólf ár. George Bush forseti hefur rétt út sáttahönd til leiðtoga þeirra og kveðst nú opinn fyrir öllum hugmyndum um hernaðinn í Írak. 9.11.2006 19:15
Olmert segir að mistök hafi verið gerð Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að um "tæknileg mistök" hafi verið að ræða þegar stórskotaliðsárás var gerð á bæinn Beit Hanoun á Gazaströndinni sem kostaði átján lífið, þar af tíu börn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræddi árásina á fundi sínum í dag. 9.11.2006 19:00
Milljónir sýnishorna á víð og dreif og fáum til gagns Náttúrufræðistofnun Íslands hefur verið í bráðabirgðahúsnæði frá árinu 1968 og án fjárveitinga til viðhalds frá árinu 1991, vegna þess að þá hugðust stjórnvöld leysa húsnæðisvanda stofnunarinnar. Rúmlega tvær milljónir sýnishorna í eigu stofnunarinnar eru meira og minna óaðgengileg vísindamönnum, þar sem þau eru geymd í geymsluhúsnæði á fjórum stöðum á landinu. 9.11.2006 18:46
Palestínumenn hrópa á hefnd Tugir þúsunda Palestínumanna grétu og hrópuðu á hefnd þegar þeir fylgdu þeim sem létust í árásum Ísraela á Beit Hanoun til grafar í dag. Alls létust 18 óbreyttir borgara í árásinni sem Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kallaði "tæknileg mistök". 9.11.2006 18:42
Vill íhuga að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael Íslensk stjórnvöld fordæma árás Ísraelsmanna á óbreytta borgara á Gasa og ætla að setja fram formleg mótmæli við sendiherra Ísraels þegar hann kemur hingað í næstu viku. Steingrímur J. Sigfússon, fomaður Vinstri grænna, vill ganga enn lengra og jafnvel slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. 9.11.2006 18:40
Andvirði heilsuverndarstöðvarinnar brennur upp í leigu á 10-15 árum Peningarnir sem fengust fyrir Heilsuverndarstöðina á Barónsstíg munu étast upp á 10-15 árum í leigu undir Heilsugæsluna í Mjóddinni. Forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna sakar ráðamenn um embættisafglöp við söluna en ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins segir að það hefði kostað ríkið 1100 milljónir að halda gömlu Heilsuverndarstöðinni. 9.11.2006 18:35
Fréttahaukurinn Ed Bradley látinn Fréttahaukurinn Ed Bradley, sem sjónvarpsáhorfendur þekkja úr fréttaskýringarþáttunum 60 mínútur, lést í dag á Mount Sinai spítalanum í New York. Hann var 65 ára og var banameinið hvítblæði. 9.11.2006 18:29
Flugi Icelandair frestað að morgni 10. nóvember vegna stormviðvörunar Icelandair hefur ákveðið að fresta millilandaflugi til og frá Keflavíkurflugvelli í fyrramálið vegna spár um fárviðri. Iceland Express hefur frestað morgunflugi sínu til Lundúna og Kaupmannahafnar til 9:15 í fyrramálið. Sem stendur er áætlun í innanlandsflugi óbreytt. 9.11.2006 18:16
Hæfileikakeppni grunnskóla haldin í 16. sinn Undanúrslitakvöld Skrekksins eru að hefjast. Kvöldin eru þrjú og verða haldin 13., 14. og 15. nóvember 2006 í Borgarleikhúsinu. Allir grunnskólarnir í Reykjavík hafa skráð sig til þátttöku að þessu sinni. 9.11.2006 18:01
Demókratar að ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins Búist er við því að repúblikaninn George Allen samþykki í dag að hann hafi tapað í kosningum, til öldungadeildar bandaríska þingsins, fyrir demókratanum Jim Webb. Ef þetta gengur eftir munu demókratar ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins í fyrsta sinn í tólf ár. 9.11.2006 17:45
Flóttamenn framtíðarinnar munu flýja sjóinn Ef þær loftslagsbreytingar sem nú eru í gangi halda áfram að versna verða þjóðir heims verða að vera tilbúnar til þess að hjálpa milljónum "sjávarflóttamanna", en það er fólk sem þarf að flýja heimili sín vegna hækkandi yfirborðs sjávar. 9.11.2006 17:25
Dæmt til að greiða stýrimanni á 17 milljón vegna vinnuslyss Ísfélag Vestmannaeyja var í Hæstarétti í dag dæmt til að greiða stýrimanni á loðnuskipinu Tunu GR 18 tæplega 16,5 milljónir króna vegna slyss sem hann varð fyrir á veiðum. Þá festi hann hönd sína í nót sem verið var að draga um borð. 9.11.2006 16:59
Tveggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms að karlmaður skyldi sæta tveggja mánaða fangelsi og verða sviptur ökuréttindum ævilangt fyrir að aka bifreið bæði ölvaður og án ökuskírteinis. 9.11.2006 16:49
Bush er tilbúinn til að hlusta á allt og alla George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri opinn fyrir öllum tillögum um hvernig skuli leysa málin í Írak. Forsetinn lét þessi orð falla á fundi með fréttamönnum, í Rósagarðinum. Þar var forsetinn mættur ásamt ríkisstjórn sinni. 9.11.2006 16:44
Sjóorrusta við strendur Sri Lanka Tuttugu og þrem hraðskreiðum fallbyssubátum var sökkt í mikilli sjóorrustu undan ströndum Sri Lanka, í dag, að sögn stjórnvalda. 9.11.2006 16:29
Hefur ekki tekið ákvörðun um að taka sæti á lista Samfylkingarinnar Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún taki sæti á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. 9.11.2006 16:24
Það eru pabbarnir sem skipta máli Ný bandarísk rannsókn bendir til þess að ef feður tala gott og vandað mál, þá hafi það mikil áhrif á málþroska barna. Það skiptir hinsvegar engu máli hvort móðirin talar gott og vandað mál, eða ekki. 9.11.2006 16:03
Stjórnvöld hugi alvarlega að þjónustu við erlent starfsfólk Samtök ferðaþjónustunnar segja erlent starfsfólk hafa verið mjög mikilvægt í þeim vexti sem verið hafi síðustu ár í greininni og hvetur stjórnvöld til að huga alvarlega að því að það fái tilhlýðilegar móttökur og þjónustu hér á landi. 9.11.2006 16:01
Íslenski sýningarskálinn verðlaunaður á Feneyjatvíæringnum Íslenski sýningarskálinn á Feneyjatvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag hlaut í gær sérstaka viðurkenningu dómnefndar fyrir framúrskarandi framsetningu og samspil listamanns og arkistektastofu, en þar kynna Íslendingar tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn í Reykjavík ásamt tilheyrandi skipulagi og uppbyggingu í miðborginni. 9.11.2006 15:33
Andlitslausi maðurinn er látinn Austur-þýski njósnarinn Markus Wolf er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Lengst af kalda stríðinu var hann einn valdamesti maður Austur-Þýskalands. 9.11.2006 15:32
Þrefalt fleiri atvinnuleyfi á fyrstu fjórum mánuðum ársins en í fyrra Um þrefalt fleiri ný tímabundin atvinnuleyfi voru gefin út á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar. Þar segir að 2.350 ný atvinnuleyfi hafi verið gefin út frá ársbyrjun til aprílloka og voru um tveir þriðju leyfanna vegna starfa í bygginariðnaði. 9.11.2006 15:19
Best að búa í Noregi og á Íslandi Noregur og Ísland eru í efstu tveimur sætunum á nýjum lista Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna yfir lönd þar sem bestu lífsskilyrði í heiminum eru. Öll norrænu ríkin eru meðal þeirra fimmtán landa þar sem best er að búa, Svíar í fimmta sæti, Finnar í ellefta og Danir í fimmtánda. 9.11.2006 15:00