Fleiri
World Premiere at Belleville 23.6.2006 11:26 Planned Development Causes Controversy 23.6.2006 11:02 Fish Pirates Spotted in Icelandic Waters 23.6.2006 10:45 Forsetinn afhjúpar listaverk Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og John Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, afhjúpa listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur í Húll í Bretlandi til minningar um breska sjómenn sem létust á Íslandsmiðum. 23.6.2006 10:36 Sjá næstu 50 fréttir
Búast má við töfum tvöþúsund farþega Starfsmenn Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli ætla að leggja niður störf frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan átta. Ekkert þokast í deilu starfsfólksins og stjórnenda Flugþjónustunnar þrátt fyrir fundarhöld í dag. Farþegar á leið til og frá landi á morgun mega búast við nokkrum töfum. Deilur hafa staðið í nokkurn tíma milli stjórnenda Flugþjónustunnar og starfsmanna, sem meðal annars sinna innritun í flug og hleðslu farangurs í flugvélarnar. Starfsmennirnir eru óánægðir með kjör sín og vinnuaðstöðu og segja þeir álagið oft keyra fram úr hófi. Ákveðið var að boða til setuverkfalls til krefjast bóta á núverandi ástandi. Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar, fundaði í dag með starfsmönnum hjá öllum deildum. Á fundunum var reynt að afstýra boðum aðgerðum. Gunnar sagði þá hafa rætt málin og útskýrt fyrir stafsmönnum að um ólöglegar aðgerðir væri að ræða sem gætu haft afleiðingar í för með sér. Hann sagði eftir fundina að hann vonaðist til þess að starfsfólkið myndi sinna störfum sínum á morgun en þó væri ómögulegt að segja til um hvort af aðgerðunum yrði. Samkvæmt heimildum NFS er mikill hiti í starfsfólkinu og jókst eftir fundina í dag. Eftir fundi með Gunnari í morgun var þegar boðað til neyðarfundar þar sem allir viðstaddir greiddu atkvæði með aðgerðum á morgun. Starfsmennirnir eru ósáttir við að hafa ekki fengið nein svör í dag og segja viðmót yfirmanna á fundunum síst til þess fallið að lægja öldur. Starfsmennirnir segja ekkert duga nema aðgerðir og segja þá sem verða á vakt á morgun ætla að leggjan niður vinnu og hina að mæta í Flugstöðina og sitja með þeim til að sýna þeim samstöðu en um nokkur hundruð starfsmenn er að ræða. Samkvæmt heimildum NFS er nú enn meiri samstaða meðal starfsfólks og ef bótakrafa verið gerð á hendur þeim eftir aðgerðirnar þá ætli allir starfsmenn að kasta frá sér aðgangskortum og ganga út af vinnustaðnum. Stup Jón Karl. Aðgerirnar, ef af þeim verður, munu hafa áhrif á ferðir um tvö þúsund farþega til og frá landinu. Starfsmenn sem NFS ræddi við í morgun segir erfitt að ráðleggja farþegum hvernig þeir eigi að haga áætlunum sínum á morgun þegar búast má við töfum. En verði af aðgerðum, sem allt bendir til, má búast við að áætlanir riðlist fram eftir degi. 24.6.2006 18:46
64 talibanar drepnir í gær og í dag 64 herskáir talíbanar hafa verið drepnir í aðgerðum bandamanna í Afganistan í gær og í dag. Aðgerðirnar eru til komnar vegna vaxandi ofbeldis í Afganistan en það hefur ekki verið meira frá því að bandamenn steyptu stjórn Talibana af stóli árið 2001. 24.6.2006 18:00
Unglingsstúlkur í brjóstastækkanir Dæmi eru um að stúlkur allt niður í fimmtán ára aldur leiti til lýtalækna til að breyta útliti sínu. Lýtalæknar segja að slíkt sé aðeins gert í undantekninga tilfellum og þá helst ef sálfræðingur vísi þeim til þeirra. Lýtalæknirinn Ottó Guðjónsson sagðist kannast við að svo ungar stúlkur gengjust undir útlitsbreytingar þó hann legði á það ríka áherslu að slíkt væri aðeins gert í undantekninga tilvikum. 24.6.2006 14:07
Stefnir í vinnustöðvun á Keflavíkurflugvelli Enn er stál í stál í deila starfsfólks og stjórnenda Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum NFS hafa fundir framkvæmdastjóra með starfsmönnum í morgun ekki skilað tilætluðum árangri og komið í veg fyrir vinnustöðvun í fyrramálið. 24.6.2006 13:06
Hluti lyflækningadeildar í einangrun Hluti af lyflækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvoginum hefur verið sett í einangrun eftir að veirusýking kom þar upp. Á deildinni eru þrettán sjúklingar og nokkrir starfsmenn og hefur hluti þeirra fengið veirusýkinguna sem felur í sér uppsöl og niðurgang. 24.6.2006 12:22
Vélarvana við strendur Grindavíkur Lítill fiskibátur varð vélarvana úti fyrir ströndum Grindavíkur laust fyrir hádegi . Starfsmenn Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar þar í bæ kváðust hafa sent út bát af öryggisátæðun sem væri að fylgja skipverjum til hafnar. 24.6.2006 12:14
Framleiðandinn Aaron Spelling látinn Sjónvarpsframleiðandinn Aaron Spelling lést í gær á heimili sínu í Los Angeles, áttatíu og þriggja ára að aldri. Spelling fékk heilablóðfall fyrr í mánuðinum. Hann var afkasta mikill framleiðandi og eftir hann liggja fjölmargar kvikmyndir og sjónvarpsþættir. 24.6.2006 12:00
Dauðarefsing afnumin á Filippseyjum Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, undirritaði í morgun lög sem afnema dauðarefsingu í landinu. Dauðarefsing var afnumin á Filippseyjum 1987 en aftur leyfð með lögum sex árum síðar. Sjö hafa verið teknir af lífi síðan þá. 24.6.2006 11:30
Lík eins námamanns af 65 fundið Björgunarsveitarmenn fundu í gær lík námamanns sem var einn 65 sem festust í námu í Mexíkó í febrúar. Sprenging var í námunni og sátu mennirnir fastir og ekkert gekk að komast að þeim. Björgunarmenn leita nú að líku hinna. 24.6.2006 11:00
Tómas Zoëga verður ekki aftur yfirlæknir Tómas Zoëga hefur látið af störfum við Landspítala Háskólasjúkrahús. Hæstiréttur Íslands úrskurðaði fyrr í mánuðinum að tilfærsla Tómasar í starfi hafi verið ólögmæt. 24.6.2006 10:51
Átök lögreglu og landtökufólks í Perú Til átaka kom milli lögreglu og landtökumanna í útjaðri Lima, höfuðborgar Perú, í gær. Fólkið hafði reist sér bráðabirgðahúsnæði á svæðinu og var lögregla send til að reka það á brott og jafna húsin við jörðu. Ekkert leyfi hafði fengist fyrir því að byggja hús þarna en þau voru reist fyrir sex árum. 24.6.2006 10:30
Kattholt yfirfullt og fjárvana Kattholt er yfirfullt og fjárvana. Formaður Kattavinafélags Íslands á í deilum við nágrannasveitarfélögin um greiðslur fyrir dýrin. Sífellt færist í aukana að kettir séu skildir eftir í pappakössum á þröskuldi Kattholts auk þess sem kettir finnast á vergangi hingað og þangað um höfuðborgarsvæðið. 24.6.2006 09:56
Þrír teknir á ofsahraða Lögreglan á Keflavíkurflugvelli gómaði í nótt þrjá ökumenn á ofsahraða á Strandarheiði. Sá sem hraðast ók var á 182 km. Hann var sviptur ökuskírteininu á staðnum en við það kom í ljós að pilturinn var ekki kominn með fullgilt skírteini. Í síðustu viku varð slys á þessu svæði og segir lögreglan að það sé leitt að sjá að slíkir atburðir hafi ekki þau áhrif að ökumenn sjái sóma sinn í að aka á skikkanlegum hraða. 24.6.2006 09:51
Missti stjórn á bíl sínum Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum í beygju við gatnamót Sæbrautar og Lauganesvegar í Reykjavík um klukkan sex í morgun, með þeim afleiðingum að hann hafnaði á ljósastaur. Minniháttar meiðsl urðu á bílstjóra og tveimur farþegum sem með honum voru. 24.6.2006 09:47
Strandaði á sandrifi Einn var fluttur á slysadeild eftir að skemmtibátur strandaði á sandrifi skammt frá Snarfarahöfn á fyrsta tímanum í nótt. Fimm voru um borð í bátnum. Kona sem flutt var á slysadeild er ekki talin mikið slösuð. 24.6.2006 09:40
Klink og bank samkomustaður unglinga Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að gamla Klink og bank húsinu við Brautarholt um korter yfir átta í kvöld í þriðja sinn á skömmum tíma. Búið er að slökkva eldinn en slökkviliðsmenn vinna nú að því að reykræsta húsið. 23.6.2006 22:47
Breytt skipting Dagsbrúnar Og fjarskipti er nú dótturfélag Dagsbrúnar en fyrirtækið var áður hluti af móðurfélaginu Dagsbrún. Tekin var ákvörðun um þetta á hluthafafundi í dag. Með breytingunni er verið að fylgja eftir kröfum Samkeppnisráðs um að fjarskiptafyrirtæki og fjölmiðlafyrirtæki séu aðskild. Megin dótturfyrirtæki Dagsbrúnar eru nú þrjú Og fjarskipti, Kögun og 365 prent- og ljósvakamiðlar sem meðal annars rekur NFS. Breytingin hefur engin áhrif á rekstur fyrirtækjanna. 23.6.2006 22:23
Brotist inn í sumarbústaði Sumarbústaðareigendum tveggja bústaða í Galtarholti í Borarbyggð brá heldur betur í brún þegar þeir komu í bústaði sína nú undir kvöldið. Brotist hafði verið inn í bústaði þeirra í gærkvöldi eða í nótt. Höfðu þjófarnir hina ýmsu hluti á brott með sér verkfæri, hljómflutningstæki og myndbandstæki. 23.6.2006 22:22
Loforð svifu um Austurvöll Loforðasneplar svifu um loftin blá við Austurvöll í dag, í gjörningi ungra listamanna, og áttu að minna á svikin eða gleymd loforð stjórnmálamanna. Uppátækið fór þó heldur fyrir brjóstið á þingvörðum, sem þurftu að tína upp papparuslið af lóð Alþingis. 23.6.2006 21:35
Vantar strætóbílstjóra í sumar Svo illa gengur að ráða bílstjóra til sumarafleysinga hjá Strætó bs. að leiðir verða hugsanlega felldar niður. 23.6.2006 21:29
Tveir árekstrar í Kömbunum Tveir árekstrar urðu neðarlega í Kömbunum og ullu töfum á umferð. Fjórir bílar eru mjög skemmdir en ekki urðu mikil meiðsl á fólki. Sjúkrabíll fór á staðinn og dráttarbílar fjarlægðu bílana sem voru óökufærir. 23.6.2006 19:35
Hlutfall kvenna í embættum sjálfstæðismanna í borginni 41% Landssamband sjálfstæðiskvenna vísar ásökunum minnihlutans um að ekki sé hugað að jafnréttismálum í borginni aftur til heimahúsanna. Hlutfall kvenna í þeim embættum borgarinnar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur á að skipa er rúmlega 41%. Framsóknarflokkurinn stendur sig þó sýnu verst allra flokka. 23.6.2006 19:16
Björn segir varnarmálastefnu byggða á óskhyggju Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra telur að það hafi verið óskhyggja að vænta þess að Bandaríkjastjórn samþykkti kröfur íslenskra stjórnvalda um loftvarnir. Hann telur að riftun samningsins sé meiri hótun gagnvart NATO en bandaríkjamönnum. 23.6.2006 19:12
Rekinn en fær milljarð Þórður Már Jóhannesson, sem rekinn var úr starfi forstjóra Straums-Burðaráss eftir 10 mánuði hagnast um milljarð króna á kaupréttarsamningum. Magnús Kristinsson gerði þennan samning við hann áður en formlega var gengið frá sameiningu Straums og Burðaráss 23.6.2006 19:08
Forsetinn skammar ísraelska sendiherrann Ólafur Ragnar Grímsson forseti lenti í rifrildi við sendiherra Ísraels á Bessastöðum samkvæmt frétt ísraelsks fréttavefs. Ástæðan var meðferð landamæravarða í Ísrael á forsetafrúnni. Sagt er að fundurinn hafi endað með því að forsetinn vísaði sendiherranum á dyr og skellti hurðum á eftir. "Litrík frásögn og færð í stílinn" - segir forsetaembættið. 23.6.2006 19:06
Þurfa hugsanlega að fella niður strætóferðir Svo illa gengur að ráða bílstjóra til sumarafleysinga hjá Strætó bs. að leiðir verða hugsanlega felldar niður. 23.6.2006 19:00
Einnig grunaður um að kasta bensínsprengju Gæsluvarðhald yfir manni, sem grunaður er um að eiga þátt í skotárás á hús í Vallahverfi í Hafnarfirði, í fyrradag, var framlengt í dag. 23.6.2006 18:45
Ætlar að leita réttar síns Helgi Hermannsson fyrrverandi dagskrárstjóri Skjás eins ætlar að leita réttar síns og fara fram á bætur fyrir dómstólum. Hann ákvað þetta eftir að Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að forsvarsmenn sjónvarpsstöðvarinnar hefðu brotið gegn persónuvernd með því að skoða tölvupóst Helga. 23.6.2006 18:45
Forseti Íslands afhjúpar listaverk í Hull Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og John Precott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, voru viðstaddir þegar listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur var afhjúpað í Hull í Bretlandi í dag, til minningar um breska sjómenn sem létust á Íslandsmiðum. Sams konar verk verður síðan vígt í Vík í Mýrdal í næsta mánuði. 23.6.2006 18:15
Býður fólki að græða og gefa af sér um leið Íslendingum gefst nú kostur á nýrri tegund netviðskipta. Bergur Ísleifsson rekur vef þar sem fólki er boðið að kaupa áskrift að þurrmat sem sendur er til sveltandi barna í þriðja heiminum. Tilgangurinn er að græða pening og búa til betri heim um leið. 23.6.2006 17:45
Segir umræðu þarfa um stöðu varnarmála Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir í leiðara blaðsins í dag að hótun um uppsögn varnarsamningsins ef herþoturnar yrðu fjarlægðar af Keflavíkurflugvelli, hafi beinlínis verið óskynsamleg og Íslendingum ekki til framdráttar. Þá segir hann stjórnvöld hafa stuðst við lélega ráðgjöf í varnarmálum. 23.6.2006 17:37
Samgöngumál ósættanleg með öllu Ástand í samgöngumálum milli lands og Vestmannaeyja er óásættanlegt með öllu, að mati hóps þjónustuaðila og áhugamanna um ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Hópurinn óskar eftir nýju gangmiklu skipi svo fjótt sem auðið er og að flug með 30-50 sæta flugvélum verði komið á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja þegar í stað 23.6.2006 17:08
Miðnæturhlaup í Laugardalnum Hið árlega Miðnætur- og Ólympíufjölskylduhlaup fer fram í kvöld klukkan tíu við Laugardalslaug. Þetta er í fjórtánda sinn sem hlauið er haldið og hefur þátttakendur fjölgað ár frá ári. Enn er hægt að skrá sig í hlaupið en hægt er að skrá sig í þriggja kílómetra skemmtiskokk án tímatöku og fimm og tíu kílómetra hlaup með tímatöku. Hlaupið er haldið í tengslum við Jónsmessumót fjölskyldunnar sem verður í Laugardalnum, Heiðmörk og Viðey í kvöld. 23.6.2006 16:35
14 látnir í Bagdad í dag þrátt fyrir útgöngubann Útgöngubann tók gildi í Bagdad strax að loknum föstudagsbænum, klukkan tvö í dag að staðartíma, og verður til dagrenningar í fyrramálið. Það hefur þó ekki virkað sem skyldi, því þegar hafa að minnsta kosti 14 manns látið lífið í sprengjuárásum í Bagdad í dag. 23.6.2006 15:00
Bandaríkjamenn prófa eldflaugavarnir sínar Bandarískt herskip skaut niður meðaldræga eldflaug rétt ofan við lofthjúp jarðar í gær. Bandaríkjamenn prófa nú nýjustu hlutana af eldflaugavarnarkerfi sínu, einmitt þegar Norður-Kóreumenn búa sig undir tilraunir á langdrægum eldflaugum, sem gætu náð alla leiðina til Bandaríkjanna. 23.6.2006 14:49
Sænskur fjölmiðlamaður skotinn til bana í Mogadishu Sænskur myndatökumaður var skotinn til bana í Mogadishu í Sómalíu í dag. Mörg þúsund manna flykktust á götur Mogadishu í morgun til að fagna friðarsamkomulag sem stríðandi fylkinga undirrituðu í gær. Ekki er ljóst hver skaut Svíann eða af hverju, en talið er að það muni grafa undan trú á íslömsku andspyrnuhreyfinguna, sem náði borginni á sitt vald fyrir tveimur vikum, en hún sagðist myndu tryggja öryggi í höfuðborginni. 23.6.2006 14:43
Valgerður ræður aðstoðarmann Sigfús Ingi Sigfússon hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Hann starfaði áður í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu en tekur til starfa í utanríkisráðuneytinu á næstu dögum. 23.6.2006 14:38
Skorður settar við efnistöku úr Ingólfsfjalli Forstjóri Landverndar segir áfangasigur í náttúruvernd hafa náðst með úrskurði Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála um efnistöku úr Ingólfsfjalli. Nefndin stöðvaði framkvæmdir að hluta til með bráðabirgðaúrskurði sínum í gær. Enn er þó til meðferðar aðalkrafa kærenda, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Suðurlands, um afnám framkvæmdaleyfis vegna efnistöku úr Ingólfsfjalli. 23.6.2006 13:04
Sancy heldur heim Færeyski togarinn Sancy hélt frá Eskifirði í gærkvöldi, eftir að tryggingar voru settar, og hefur skipstjórinn nú samviskusamlega kveikt á sjálfvirka fjareftirlits-búnaðinum. 23.6.2006 12:57
Hryðjuverkamenn í Miami Sjö voru handteknir í gærkvöldi í Miami í Bandaríkjunum, vegna gruns um að þeir legðu á ráðin um hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum. Talið er að ætlunin hafi verið að sprengja Sears-turninn í Chicago og aðrar byggingar í Bandaríkjunum. 23.6.2006 12:51
Valgerður sátt við málalok Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segist sátt við að rannsókn lögreglu á meintri morðhótun í hennar garð sé lokið. Fjórir umhverfisverndunarsinnar báru mótmælaspjald í göngu Íslandsvina sem á stóð: Drekkjum Valgerði, ekki Íslandi. 23.6.2006 12:42
Forsetinn afhjúpar listaverk Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og John Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, afhjúpa listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur í Húll í Bretlandi til minningar um breska sjómenn sem létust á Íslandsmiðum. 23.6.2006 10:36