Fleiri
Carnage, Calm and Creativity 22.6.2006 13:17 Leysa þarf úr óþolandi ástandi í hluthafahópi Leysa þarf úr því óþolandi ástandi sen ríkir í hluthafahópi Straums Burðaráss, segir Björgólfur Thor Bjorgólfsson, stjórnarfornaður fjárfestingabankans. Hann ásamt meirihluta stjórnar rak í gærkvöld forstjóra bankans og réði nyjan í staðinn. 22.6.2006 13:15 Towel Taken Off Market 22.6.2006 13:06 Magni in Rock Star Supernova 22.6.2006 13:06 Engin aldurstakmörk lengur Nýr meirihluti í menntaráði Reykjavíkur samþykkti á fundi ráðsins í dag að fella úr gildi ákvæði um aldurshámark nemenda við úthlutun fjármagns til tónlistarnáms. 22.6.2006 13:01 Fjölmenni á sumarhátíð leikskóla Kópavogs Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi verið leikskólabörnum í Kópavogi hliðhollir þegar þeir héldu sína árlegu sumarhátíð í bænum í morgun. Í ár söfnuðust leikskólakrakkarnir saman við Hálsatorg við Hamraborg og þaðan var gengið fylktu liði niður á Rútstún við Sundlaug Kópavogs. 22.6.2006 13:00 ESA athugar ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð. EFTA-dómstóllinn ógilti í apríl þá niðurstöðu eftirlitsstofnunarinnar að ríkisaðstoðin væri þjónuta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. 22.6.2006 13:00 Charges Dropped Against Protestors 22.6.2006 12:54 20 ára fangelsi fyrir morð Hæstiréttur Jóhannesborgar hefur dæmt 44 ára konu í 20 ára fangelsi fyrir morðið á Íslendingnum Gísla Þorkelssyni. Gísli var myrtur í júlí á síðusta ári og lík hans falið í ruslatunnu. Konan játaði fyrir dómi aðild sína að morðinu en félagi hennar Willie Theron hefur neitað sök. 22.6.2006 12:39 Ríkisaðstoð við íbúðalánasjóð Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnti í morgun að hún hefi ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð. 22.6.2006 12:22 Tökum heppnina úr umferð Nú skal reyna í eitt skipti fyrir öll að binda enda á hraðakstur og taka heppnina úr umferð. Þjóðarátak VÍS í umferðarmálum hófst í dag, um leið og netsíða fyrir þjóðarsál umferðarinnar var opnuð. 22.6.2006 12:00 Einar Sveinbjörnsson aðstoðarmaður Jónínu Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, hefur verði ráðinn aðstoðarmaður Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra og hóf hann störf í ráðuneytinu í dag. 22.6.2006 11:12 Fjarðaáslverkefnið fær verðlaun sem “teymi ársins”. Á árlegri ráðstefnu Bechtel um öryggis-, umhverfis og heislugæslu sem haldin var í Seattle í Bandaríkjunum var Fjarðaálsverkefninu veitt viðurkenning sem “Teymi ársins” á þessu sviði. Starfsmenn verkefnisins voru valdir úr hópi yfir 100 verkefna á vegum Bechtel sem komu til greina víða um heim. 22.6.2006 11:07 Krefjast þess að Tómas Zoega fari aftur í stöðu sína tafarlaust Stjórn Geðlæknafélags Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun yfirstjórnar Landspítala Háskólasjúkrahúss að virða ekki dóm hæstaréttar í máli Tómasar frá 8. júní síðastliðnum, en hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að brottvikning Tómasar úr stöðu yfirlæknis hafi verið ólögmæt. Stjórnin krefst þess að yfirstjórn Landspítala Háskólasjúkrahúss fari að lögum og Tómas Zoega fari aftur í stöðu yfirlæknis á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss án skilyrða 22.6.2006 10:58 Ármann Kr. Ólafsson nýr formaður Strætó Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfullrúi í Kópavogi, var í gær kjörinn nýr formaður Strætó. Alls starfa um 360 manns við leiðarkerfi Strætó. 115 strætisvagnar aka um leiðarkerfið, samtals 9.300.000 kílómetra á ári um sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og milli Reykjavíkur og Akraness. 22.6.2006 10:10 Leiðtogar Ísraels og Palestínu fallast í faðma Forsætisráðherra Ísraels Ehud Olmert og forseti Palestínu Mahmoud Abbas féllust í faðma í Jórdaníu í dag en þetta er í fyrsta skipti sem þeir hittast síðan flokkur Olmerts vann þingkosningarnar í mars. Leiðtogarnir taka þátt í tveggja daga ráðstefnu undir heitinu Heimur í hættu en formlegur leiðtogafundur er ráðgerður innan tveggja vikna 22.6.2006 09:57 Segist hafa greitt skatta sem nái til þátta í skýrslutöku Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að hann hafi þegar greitt 66 milljónir króna í skatta sem nái til þeirra þátta sem hann hafi verið boðaður til skýrslutöku vegna hjá ríkislögreglustjóra í lok mánaðarins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni. 22.6.2006 09:30 Kröfðust fullkomins prentfrelsis í Rússlandi Áætlað er að fimm til sjö hundruð manns hafi safnast saman í Moskvu til að krefjast fullkomins prentfrelsis í landinu þar sem fólkið segir ríkisvaldið stjórna fjölmiðlum með harðri hendi. 22.6.2006 09:00 Ýja að því að fyrirtæki taki mið af verðlagningu hvor annars Kúabændur láta að því liggja á heimasíðu sinni að fóðursölufyrirtækin Lífland og Fóðurblandan taki mið af verðlagningu hvor annars. Þeir benda á að í fyrradag hafi Fóðurblandan hækkað kjarnfóðurverð um fjögur og hálft prósent, eða upp í 37 krónur kílóið, en strax í gær hafi Lífland gert slíkt hið sama og sé verðið nákvæmlega það sama hjá báðum. 22.6.2006 08:45 Saddam Hussein í mótmælasvelti Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, hefur hafið mótmælasvelti ásamt öðrum sakborningum í réttarhöldunum í Írak eftir að einn af lögfræðingum forsetans var drepinn í gær. Þetta er þriðji lögmaður Husseins sem er drepinn. 22.6.2006 08:30 Sjá næstu 50 fréttir
Ekki alvarleg slys á fólki í þriggja bíla árekstri á Reykjanesbrautinni Tveir þeirra sem fluttir voru á slysadeild eftir áreksturinn á Reykjanesbrautinni fyrr í kvöld eru útskrifaðir. Sá þriðji var lagður inn til eftirlits en að sögn vakthafandi læknis er líðan sjúklingsins eftir atvikum. Einn var fluttur til Keflavíkur og líðan hans góð. 22.6.2006 22:59
Framtíð friðargæslunnar á Sri Lanka rædd í Ósló Fulltrúar þeirra norrænu ríkja sem hafa eftirlit með vopnahlé milli stríðandi fylkinga í Sri Lanka ætla að ræða framtíð friðargæslunar á fundi í Ósló í næstu viku. Uppreisnarmenn Tamíl-tígra vilja að norrænum Evrópusambandsríkin þrjú hætti eftirlit og í dag var hlutverki Norðmanna í landinu einnig mótmælt. 22.6.2006 22:45
8 menn handteknir vegna skotárásar í Hafnarfirði Lögreglan handtók í dag átta menn vegna skotárásar sem gerð var með haglabyssu á raðhús í Hafnarfirði í gær. Fimm hefur verið sleppt en þrír eru enn í haldi. 22.6.2006 22:30
Starfsfólk IGS gengur á dyr verður það krafið um bætur Starfsmenn Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli munu hætta störfum umsvifalaust ef bótakrafa verður gerð á hendur þeim vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar þeirra næstkomandi sunnudag. Það eina sem gæti komið í veg fyrir aðgerðir væri að stjórnendur ræddu við starfsfólk um kjör þeirra. Starfsfólk Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli, eða IGS ground services, ákvað á hitafundi fyrr í vikunni að leggja niður vinnu í þrjár klukkustundir milli klukkan fimm og átta næstkomandi sunnudagsmorgun, á háannatíma. Ætla má að vinnustöðvunin muni raska ferðum allt að tvö þúsund farþega Icelandair og Iceland express. Í gær sendu svo Samtök atvinnulífsins bréf til verkalýðsfélaga starfsmanna til að vekja athygli á að samningur sé í gildi og því ríki friðarskylda. Ef af aðgerðum yrði gætu félögin og starfsmenn orðið bótaskyldi vegna þess tjóns sem aðgerðir þeirra valdi. Formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja, annars verkalýðsfélaga starfsmanna, sagði í fréttum NFS í gær að félagið hefði hvatt starfsmenn til að hætta við boðaðar aðgerðir. Hann sagði bréf Samtaka atvinnulífsins lítið annað en hótun. Jóhanna Halldórsdóttir, starfsmaður hjá Flugþjónustunni, segir að fréttir af bréfinu hafi vissulega skotið starfsfólki skelk í bringu en innihald þess hafi stappað í það stálinu. Það sé því ljóst að af aðgerum verði á sunnudagsmorguninn. Jóhanna segir að starfsfólk ætli að ganga út ef það verður krafið um bætur verði af aðgerðunum. Hún segir að það sem geti komið í veg fyrir aðgerðir starfsfólks sé að stjórnendur IGS settust niður með starfsfólki sínu og ræddu við það um kaup og kjör. Reynt hefði verið að ná eyrum þeirra en án árangurs. Trúnaðarmenn hefðu rætt við þá í tvo mánuði en ekkert komið út úr því. 22.6.2006 22:09
Kona dæmd fyrir að hafa slegið aðra konu Kona var dæmd í Héraðdómi Austurlands fyrir að hafa slegið aðra konu hnegahögg í andlitið á skemmtistað á Neskaupsstað í febrúar á þessu ári. Ákvörður refsingarinnar er frestað skilorðsbundið í tvö ár frá uppkvaðningu dómsins. Hún játaði brot sitt greiðlega fyrir dómi en konan hefur frá upphafi gengist við broti sínu og sýnt iðrun. Bótakröfu brotaþola var vísað frá dómi en konunni er gert að greiða allan sakarkostnað, tæpar 100 þúsund krónur. 22.6.2006 20:05
Friðarsamkomulag í Sómalíu Íslamskir skæruliðar sem ráðið hafa ríkjum í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, undanfarna daga hafa samið frið við bráðabirgðaríkisstjórn landsins. 22.6.2006 20:00
Stefnubreyting liggur í loftinu Vel fór á með þeim Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, á óformlegum fundi þeirra í Jórdaníu í dag. Teikn eru á lofti um að Hamas-samtökin muni senn viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. 22.6.2006 19:30
Samningar í höfn - skattleysismörk í 90 þúsund Fulltrúar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins eru nú að undirrita samninga sem tryggja að ekki kemur til átaka á vinnumarkaði um næstu áramót. Forsenda samninganna var yfirlýsing ríkisstjórnarinnar sem gefin var aðilum vinnumarkaðins á sjöunda tímanum. Þar bar helst að skattleysismörk eru hækkuð í 90 þúsund og upphæðin verður verðtryggð frá næstu áramótum. 22.6.2006 19:20
Engin formleg aðkoma Dómsmálaráðuneytið kom ekki nærri bréfi sem sent var til bandaríska dómsmálaráðuneytisins vegna Baugsmálsins. Þetta segir ráðuneytisstjóri, sem segir ráðuneytið hafa orðið að stimpla bréfið frá ríkislögreglustjóra svo að það kæmist á leiðarenda. 22.6.2006 19:00
Illur hugur Jón Ásgeir Jóhannesson er sannfærður um að illur hugur búi að baki nýrri skattrannsókn á hendur honum. Meint skattalagabrot hans nema sextíu og sex milljónum króna. Jón Ásgeir segist ætla að fara yfir það með lögfræðingi sínum hvort hann mæti í boðaða yfirheyrslu til ríkislögreglustjóra eftir viku. 22.6.2006 19:00
Kjarnorkukapphlaupinu ekki lokið Bretar boða endurnýjun á kjarnorkuvopnabúrum sínum og Norður-Kóreumenn áforma að skjóta langdrægri tilraunaeldflaug á loft. Kjarnorkuafvopnun virðist jafn fjarlægt takmark og hún var á tímum kalda stríðsins. 22.6.2006 19:00
ÍE hefur prófanir á tilraunalyfi við æðakölkun Íslensk erfðagreining hefur hafið prófanir á tilraunalyfi við æðakölkun í fótleggjum, eða svokölluðum útæðasjúkdómi. Stefnt er að því að um 150 íslenskir sjúklingar taki þátt í prófununum, en markmið þeirra er að kanna öryggi lyfsins, þol meðal sjúklinga og áhrif mismunandi skammtastærða. 22.6.2006 18:13
Nýr meirihluti vill ekki endilega ódýrustu lausnina við byggingu Sundabrautar Nýi meirihlutinn í borginni vill hærra hlutfall sérbýlis á Geldinganesi og glæsilega lausn Sundabrautar. Þetta var meðal þess sem kom fram í hádegisviðtali NFS við Gísla Martein Baldursson, formann skipulagsráðs. 22.6.2006 17:30
Vongóður um að Íranar falli frá kjarnorkuáætlun Kofi Annan framkvæmdarstjóri Sameinuðu Þjóðanna segist vongóður um að Íranar taki tilboði Vesturlanda gegn því að þeir falli frá kjarnorkuáætlun sinni. Annan átti í dag fund með Mottaki utanríkisráðherra Íran í Genf í Sviss. 22.6.2006 17:09
Ákæra birt skipstjóra og stýrimanni færeyska togarans Héraðsdómur Austurlands birti skipstjóri og stýrimaður á færeyska togaranum Sancy ákæru laust eftir klukkan þrjú í dag og standa ný yfir yfirheyrslur á mönnunum fyrir dómi. Mennirnir eru meðal annars ákærðir fyrir fiskveiðibrot og verður gerð krafa um veiðarfæri og þess afla sem sýnt þykir að sé veiddur innan íslenskrar lögsögu. 22.6.2006 17:06
Menntaráði skipt í tvennt Á fundi menntaráðs í morgun báru fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndaflokksins upp tilllögu gegn skiptingu menntaráðs í tvö aðskilin ráð. 22.6.2006 16:55
Reyndi að smygla fölsuðum iPod Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli gerði í vikunni upptækt nokkurt magn falsaðra iPod spilara. Sendingin var á leið frá Kína til verslunnar einnar í Reykjavík. 22.6.2006 16:11
Fundi forystumanna ASÍ og forsætisráðherra seinkað Fundi forystumanna Alþýðusambandsins með Geir H Haarde forsætisráðherra og nokkrum öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, hefur verið frestað til klukkan sex. Ráðgert hafði verið að fundurinn yrði klukkan hálf fjögur. Að öllum líkindum hafa forystumenn verkalýðshreyfingarinnar þurft lengri tíma til að meta tilboð ríkisstjórnarinnar, en óformlegir fundir og samtöl hafa átt sér stað milli aðila fyrr í dag. 22.6.2006 15:57
Átta sjórængingjaskip staðin að verki Sjö sjóræningjaskip sáust í eftirlitsflugi Synar, flugvél Landhelgisgæslunnar, yfir úthafskarfamiðunm á Reykjaneshrygg í gær. Áttunda sjóræningjaskipið Ulla frá Georgíu lá bundið utan í frystiskipinu Polestar frá Panama en verið var að lesta á milli skipanna. Polestar er komið á svarta lista Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins vegna þjónustu sinnar við sjóræningjaskip. Grunur leikur á að ýmsu fleiru en afla sé umskipað í Polestar en frystiskipið var fyrst staðið að verki í eftirlitsferð Landhelgisgæslunnar 9. júní síðastliðinn. 22.6.2006 15:52
Stjórn dvalarheimilisins Höfða braut ekki jafnréttislög Kærunefnd jafnréttismála hefur kveðið upp þann úrskurð að stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hafi ekki brotið jafnréttislög með ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi alþingismanns, í starf framkvæmdastjóra heimilisins á síðasta ári. 22.6.2006 15:10
Loðnutorfa gekk á land í Ingólfsfirði Loðnutorfa gekk á land í Ingólfsfirði á Ströndum fyrr í vikunni. Samkvæmt fréttavef Bæjarins besta.is, kemur fram að þetta sé fátíður atburður en svo virðist sem torfan hafi komið inn á morgunflóðinu, synt upp í á og þegar fjaraði aftur út, varð mikið af loðnunni eftir í ánni og fjörunni. Mjög sjaldgæft er að loðnana hagi sér með þessum hætti en dæmi eru um að síld gangi upp ár. Tveir fiskifræðingar hjá Veiðimálastofnum tóku sýni úr loðnunni en hún var væn og vel á sig komin. 22.6.2006 14:52
Mæðraeftirlit endurskipulagt vegna flutninga í Mjódd Endurskipuleggja þarf mæðraeftirlit á höfuðborgarsvæðinu vegna flutnings á Miðstöð mæðraverndar frá Barnónsstíg og upp í Mjódd, segir sviðsstjóri lækninga á kvennasviði Landspítalans. Hann tekur undir kröfur starfsmanna Heilsverndarstöðvarinnar á Barónsstíg um að ríkið reyni að eignast húsið aftur. 22.6.2006 14:50
Forsætisráðherra þingar með ASÍ Geir H Haarde forsætisráðherra hefur boðað forystu Alþýðusambands Íslands til fundar í Ráðherrabústaðnum klukkan hálf fjögur. Þar mun forsætisráðherra kynna forystumönnum ASÍ hugmyndir ríkisstjórnarinnar um aðkomu hennar að endurnýjun kjarasamninga. NFS sendir beint frá Ráðherrabústaðnum. 22.6.2006 14:12
BA sakað um brot á samkeppnislögum Breska flugfélagið British Airways, sem hóf áætlunarflug til Íslands í vor, sætir nú rannsókn vegna meintra brota á samkeppnislögum og meintra ólöglegra olíugjalda á flugfargjöld. 22.6.2006 13:45
Ákærðu færu mikinn í fjölmiðlum Settur saksóknari í Baugsmálinu sagði í Héraðsdómi í morgun, að ákærðu í málinu hefðu farið mikinn í fjölmiðlum með ósanngjarni gagnrýni á ákæruvald og dómsmálaráðherra. Verjandi Jóns Geralds Sullenberger sagði engin ný gögn komin fram í málinu sem réttlættu að hann væri ákærður. 22.6.2006 13:30
Leysa þarf úr óþolandi ástandi í hluthafahópi Leysa þarf úr því óþolandi ástandi sen ríkir í hluthafahópi Straums Burðaráss, segir Björgólfur Thor Bjorgólfsson, stjórnarfornaður fjárfestingabankans. Hann ásamt meirihluta stjórnar rak í gærkvöld forstjóra bankans og réði nyjan í staðinn. 22.6.2006 13:15
Engin aldurstakmörk lengur Nýr meirihluti í menntaráði Reykjavíkur samþykkti á fundi ráðsins í dag að fella úr gildi ákvæði um aldurshámark nemenda við úthlutun fjármagns til tónlistarnáms. 22.6.2006 13:01
Fjölmenni á sumarhátíð leikskóla Kópavogs Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi verið leikskólabörnum í Kópavogi hliðhollir þegar þeir héldu sína árlegu sumarhátíð í bænum í morgun. Í ár söfnuðust leikskólakrakkarnir saman við Hálsatorg við Hamraborg og þaðan var gengið fylktu liði niður á Rútstún við Sundlaug Kópavogs. 22.6.2006 13:00
ESA athugar ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð. EFTA-dómstóllinn ógilti í apríl þá niðurstöðu eftirlitsstofnunarinnar að ríkisaðstoðin væri þjónuta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. 22.6.2006 13:00
20 ára fangelsi fyrir morð Hæstiréttur Jóhannesborgar hefur dæmt 44 ára konu í 20 ára fangelsi fyrir morðið á Íslendingnum Gísla Þorkelssyni. Gísli var myrtur í júlí á síðusta ári og lík hans falið í ruslatunnu. Konan játaði fyrir dómi aðild sína að morðinu en félagi hennar Willie Theron hefur neitað sök. 22.6.2006 12:39
Ríkisaðstoð við íbúðalánasjóð Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnti í morgun að hún hefi ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð. 22.6.2006 12:22
Tökum heppnina úr umferð Nú skal reyna í eitt skipti fyrir öll að binda enda á hraðakstur og taka heppnina úr umferð. Þjóðarátak VÍS í umferðarmálum hófst í dag, um leið og netsíða fyrir þjóðarsál umferðarinnar var opnuð. 22.6.2006 12:00
Einar Sveinbjörnsson aðstoðarmaður Jónínu Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, hefur verði ráðinn aðstoðarmaður Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra og hóf hann störf í ráðuneytinu í dag. 22.6.2006 11:12
Fjarðaáslverkefnið fær verðlaun sem “teymi ársins”. Á árlegri ráðstefnu Bechtel um öryggis-, umhverfis og heislugæslu sem haldin var í Seattle í Bandaríkjunum var Fjarðaálsverkefninu veitt viðurkenning sem “Teymi ársins” á þessu sviði. Starfsmenn verkefnisins voru valdir úr hópi yfir 100 verkefna á vegum Bechtel sem komu til greina víða um heim. 22.6.2006 11:07
Krefjast þess að Tómas Zoega fari aftur í stöðu sína tafarlaust Stjórn Geðlæknafélags Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun yfirstjórnar Landspítala Háskólasjúkrahúss að virða ekki dóm hæstaréttar í máli Tómasar frá 8. júní síðastliðnum, en hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að brottvikning Tómasar úr stöðu yfirlæknis hafi verið ólögmæt. Stjórnin krefst þess að yfirstjórn Landspítala Háskólasjúkrahúss fari að lögum og Tómas Zoega fari aftur í stöðu yfirlæknis á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss án skilyrða 22.6.2006 10:58
Ármann Kr. Ólafsson nýr formaður Strætó Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfullrúi í Kópavogi, var í gær kjörinn nýr formaður Strætó. Alls starfa um 360 manns við leiðarkerfi Strætó. 115 strætisvagnar aka um leiðarkerfið, samtals 9.300.000 kílómetra á ári um sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og milli Reykjavíkur og Akraness. 22.6.2006 10:10
Leiðtogar Ísraels og Palestínu fallast í faðma Forsætisráðherra Ísraels Ehud Olmert og forseti Palestínu Mahmoud Abbas féllust í faðma í Jórdaníu í dag en þetta er í fyrsta skipti sem þeir hittast síðan flokkur Olmerts vann þingkosningarnar í mars. Leiðtogarnir taka þátt í tveggja daga ráðstefnu undir heitinu Heimur í hættu en formlegur leiðtogafundur er ráðgerður innan tveggja vikna 22.6.2006 09:57
Segist hafa greitt skatta sem nái til þátta í skýrslutöku Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að hann hafi þegar greitt 66 milljónir króna í skatta sem nái til þeirra þátta sem hann hafi verið boðaður til skýrslutöku vegna hjá ríkislögreglustjóra í lok mánaðarins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni. 22.6.2006 09:30
Kröfðust fullkomins prentfrelsis í Rússlandi Áætlað er að fimm til sjö hundruð manns hafi safnast saman í Moskvu til að krefjast fullkomins prentfrelsis í landinu þar sem fólkið segir ríkisvaldið stjórna fjölmiðlum með harðri hendi. 22.6.2006 09:00
Ýja að því að fyrirtæki taki mið af verðlagningu hvor annars Kúabændur láta að því liggja á heimasíðu sinni að fóðursölufyrirtækin Lífland og Fóðurblandan taki mið af verðlagningu hvor annars. Þeir benda á að í fyrradag hafi Fóðurblandan hækkað kjarnfóðurverð um fjögur og hálft prósent, eða upp í 37 krónur kílóið, en strax í gær hafi Lífland gert slíkt hið sama og sé verðið nákvæmlega það sama hjá báðum. 22.6.2006 08:45
Saddam Hussein í mótmælasvelti Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, hefur hafið mótmælasvelti ásamt öðrum sakborningum í réttarhöldunum í Írak eftir að einn af lögfræðingum forsetans var drepinn í gær. Þetta er þriðji lögmaður Husseins sem er drepinn. 22.6.2006 08:30