Innlent

Forsetinn skammar ísraelska sendiherrann

Ólafur Ragnar Grímsson forseti lenti í rifrildi við sendiherra Ísraels á Bessastöðum samkvæmt frétt ísraelsks fréttavefs.

Ástæðan var meðferð landamæravarða í Ísrael á forsetafrúnni. Sagt er að fundurinn hafi endað með því að forsetinn vísaði sendiherranum á dyr og skellti hurðum á eftir. "Litrík frásögn og færð í stílinn" - segir forsetaembættið.

Þessi uppákoma varð á Bessastöðum sextánda júní á fundi Miryam Shomrat, sendirherra Ísraels á íslandi og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta. Sendiherran er með aðsetur í Noregi en var staddur hér á landi í tilefni hátíðarhaldanna sautjánda júní - og sést hér mæta á hátíðarfund á Austurvelli í hópi erlendra stjórnarerindreka.



Ísraelska fréttavefsíðan YNETNEWS segir frá því að forsetinn hafi verið önugur og kvartað yfir meðferðinni á eiginkonu sinni, Frú Dorrit Moussaieff í nýlegri heimsókn til Ísraels. Þar töfðu landamæraverðir hana í nokkrar klukkustundir á þeim grundvelli að hún hefði ekki meðferðis ísraelskt vegabréf. Segir svo frá að á Bessastöðum hafi forsetinn skammað ísraelska sendiherrann fyrir þessa framkomu við eiginkonu forsetans og kvartað yfir því að ísraelsríki hafi ekki enn beðist afsökunar á þessu atviki. Í fréttinni er látið að því liggja að forsetinn hafi skyndilega slitið þessum fundi og hafi sendiherranum virst hurð skellt á hæla sér.

Í sendiráði Ísraels í Osló var NFS tjáð að frú Miryam Shomrat sendirherra myndi ekki tjá sig um þessa frétt en fjölmargar aðrar fyrirspurnir hefðu borist. Í utanríkisráðuneytinu íslenska fengust þau svör að þetta mál hefði ekki komið til kasta ráðuneytisins.

Ekki fæst staðfesting á þessari frétt á forsetaskrifstofunni en

Örnólfur Thorsson, forsetaritari segir þó að frásögn ísraelska veffréttamiðilsins sé "litrík - og færð í stílinn." Segir Örnólfur að forsetinn eigi fjölmarga lokaða fundi með sendimönnum erlendra ríkja og ekki sé hefð fyrir því að greina frá innihaldi þeirra enda tveggja manna tal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×