Fleiri fréttir Drífa Snædal ráðin framkvæmdastýra VG Drífa Snædal hefur verið ráðin framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hún tekur til starfa hjá flokknum í haust en þá lætur Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn, af störfum sem framkvæmdastýra. 13.6.2006 17:57 Vinstri-grænir gagnrýna áherslur nýja meirihlutans Vinstri hreyfingin-grænt framboð segja að nýmynduð meirihlutastjórn í Reykjavik sé líklega sú versta fyrir Reykjavík og Reykvíkinga. Í yfirlýsingu sem borgarstjórnarflokkur sendi frá sér í dag segir að nýji meirihlutinn muni innsigla gamaldags karlapólitík þar sem verulega hallar á hlut kvenna í nefndum og ráðum á vegum borgarinnar. 13.6.2006 17:40 Segja lögreglu hafa beitt óþarfa ofbeldi Tveir bræður sem breska lögreglan handtók í áhlaupi gegn meintum hryðjuverkamönnum í síðustu viku tjáðu sig opinberlega í fyrsta skipti í dag. Þeir voru yfirheyrðir í viku eftir áhlaupið áður en þeim var sleppt án nokkurrar ákæru. 13.6.2006 17:40 Vitnaleiðslum að ljúka í máli Saddams Aðaldómarinn í máli Saddams Husseins sagði í morgun að nú væri síðasta tækifæri fyrir verjendur Saddams að leiða vitni fyrir réttinn. Gefur það til kynna að nú fari að draga til tíðinda eftir átta mánaða réttarhöld. Þá eru einungis eftir lokarök verjenda og sækjenda, áður en dómararnir fimm bera saman bækur sínar og kveða upp dóm. 13.6.2006 17:35 Segir húsleit gerða vegna kvörtunar frá keppinauti Halldór Guðbjarnason, framkvæmdastjóri VISA Íslands, segist telja að Samkeppniseftirlitið hafi gert húsleit hjá fyrirtækinu í dag vegna kvörtunar frá keppinauti þess, PBS, sem er danskt fyrirtæki. Þetta kom frá á blaðamannafundi sem fyrirtækið efndi til vegna húsleitarinnar. 13.6.2006 17:34 Kanna áfram möguleika á framleiðslu bóluefnis Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna ætla áfram að kanna möguleika á samstarfi norrænu ríkjanna um að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu ef heimsfaraldur heimur upp. Þetta kemur fram í frétt á vef Norðurlandaráðs. 13.6.2006 17:30 Óásættanlegt að Bandaríkin standi utan við Kyoto-sáttmálann Forstöðumaður Jarðarstofnunar Kólumbíuháskóla í Bandaríkjunum segir óásættanlegt að Bandaríkin skuli standa utan við Kyoto-sáttmálann. Þetta sagði hann eftir undirritun samstarfs við Háskóla Íslands um rannsóknir á sviði loftslagsbreytinga. 13.6.2006 17:26 Heimilar veiðar á 50 hrefnum á árinu Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið leyfi til veiða á fimmtíu hrefnum í vísindaskyni og hefjast veiðarnar væntanlega á næstu dögum. Veiðarnar undanfarin ár virðast ekki hafa haft merkjanleg áhrif á ferðamannastraum hingað til lands. 13.6.2006 17:00 Tafir vegna árekstra í Reykjavík Þrír minniháttar árekstrar urðu í Reykjavík rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Tveir árekstranna urðu á Bústaðarveg og varð Bústaðaraveg við Litlu hlíð lokað tímabundið vegna þessa. Þriðji áreksturinn var við gatnamót Sæbrautar og Laugarnesvegar. Búast má við einhverjum töfum í umferðinni vegna þessa en lögregla og tækjabílar virða hörðum höndum að því að greiða fyrir umferð á ný. 13.6.2006 16:35 Roger Waters causes traffic jam 13.6.2006 16:31 DVD's Only 13.6.2006 16:18
Sjá næstu 50 fréttir
Drífa Snædal ráðin framkvæmdastýra VG Drífa Snædal hefur verið ráðin framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hún tekur til starfa hjá flokknum í haust en þá lætur Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn, af störfum sem framkvæmdastýra. 13.6.2006 17:57
Vinstri-grænir gagnrýna áherslur nýja meirihlutans Vinstri hreyfingin-grænt framboð segja að nýmynduð meirihlutastjórn í Reykjavik sé líklega sú versta fyrir Reykjavík og Reykvíkinga. Í yfirlýsingu sem borgarstjórnarflokkur sendi frá sér í dag segir að nýji meirihlutinn muni innsigla gamaldags karlapólitík þar sem verulega hallar á hlut kvenna í nefndum og ráðum á vegum borgarinnar. 13.6.2006 17:40
Segja lögreglu hafa beitt óþarfa ofbeldi Tveir bræður sem breska lögreglan handtók í áhlaupi gegn meintum hryðjuverkamönnum í síðustu viku tjáðu sig opinberlega í fyrsta skipti í dag. Þeir voru yfirheyrðir í viku eftir áhlaupið áður en þeim var sleppt án nokkurrar ákæru. 13.6.2006 17:40
Vitnaleiðslum að ljúka í máli Saddams Aðaldómarinn í máli Saddams Husseins sagði í morgun að nú væri síðasta tækifæri fyrir verjendur Saddams að leiða vitni fyrir réttinn. Gefur það til kynna að nú fari að draga til tíðinda eftir átta mánaða réttarhöld. Þá eru einungis eftir lokarök verjenda og sækjenda, áður en dómararnir fimm bera saman bækur sínar og kveða upp dóm. 13.6.2006 17:35
Segir húsleit gerða vegna kvörtunar frá keppinauti Halldór Guðbjarnason, framkvæmdastjóri VISA Íslands, segist telja að Samkeppniseftirlitið hafi gert húsleit hjá fyrirtækinu í dag vegna kvörtunar frá keppinauti þess, PBS, sem er danskt fyrirtæki. Þetta kom frá á blaðamannafundi sem fyrirtækið efndi til vegna húsleitarinnar. 13.6.2006 17:34
Kanna áfram möguleika á framleiðslu bóluefnis Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna ætla áfram að kanna möguleika á samstarfi norrænu ríkjanna um að framleiða bóluefni gegn fuglaflensu ef heimsfaraldur heimur upp. Þetta kemur fram í frétt á vef Norðurlandaráðs. 13.6.2006 17:30
Óásættanlegt að Bandaríkin standi utan við Kyoto-sáttmálann Forstöðumaður Jarðarstofnunar Kólumbíuháskóla í Bandaríkjunum segir óásættanlegt að Bandaríkin skuli standa utan við Kyoto-sáttmálann. Þetta sagði hann eftir undirritun samstarfs við Háskóla Íslands um rannsóknir á sviði loftslagsbreytinga. 13.6.2006 17:26
Heimilar veiðar á 50 hrefnum á árinu Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið leyfi til veiða á fimmtíu hrefnum í vísindaskyni og hefjast veiðarnar væntanlega á næstu dögum. Veiðarnar undanfarin ár virðast ekki hafa haft merkjanleg áhrif á ferðamannastraum hingað til lands. 13.6.2006 17:00
Tafir vegna árekstra í Reykjavík Þrír minniháttar árekstrar urðu í Reykjavík rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Tveir árekstranna urðu á Bústaðarveg og varð Bústaðaraveg við Litlu hlíð lokað tímabundið vegna þessa. Þriðji áreksturinn var við gatnamót Sæbrautar og Laugarnesvegar. Búast má við einhverjum töfum í umferðinni vegna þessa en lögregla og tækjabílar virða hörðum höndum að því að greiða fyrir umferð á ný. 13.6.2006 16:35
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Visa Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Visa Ísland í dag og lagði hald á ýmis gögn. Forsvarsmenn Visa hafa boðað til blaðamannafundar vegna atviksins í húsakynnum sínum að Laugavegi 77 klukkan 17 í dag. 13.6.2006 16:13
Guðlaugur Þór nýr formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur kaus Guðlaug Þór Þórðarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í embætti formanns stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag. Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarmanna í borgarstjórn, var kjörin varaformaður. 13.6.2006 15:31
Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir inndlutning á fíkniefnum. Maðurinn reyndi að smygla inn tæpum 3,8 kílóum af amfetamíni til landsins í ferðatösku í byrjun febrúar fyrr á þessu ári en hann var þá að koma með flugi frá París í Frakklandi. 13.6.2006 15:26
Bush birtist óvænt í Bagdad Bush Bandaríkjaforseti kom í óvænta heimsókn til Bagdad í dag til að funda með Nuri al-Maliki forsætisráðherra Íraks. Til stóð að þeir ræddust við í fjarfundakerfi í dag, en al-Maliki fékk svo að vita með fimm mínútna fyrirvara, að Bush væri væntanlegur á staðinn. 13.6.2006 15:21
Bjarni Ármanns nýr formaður háskólaráðs HR Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, var kjörinn nýr formaður háskólaráðs Háskólans í Reykjavík á aðalfundi ráðsins sem haldinn var í dag. Sverrir Sverrisson lét af formennsku í ráðinu en hann hefur setið í háskólaráði frá stofnun skólans árið 1998, þar af síðustu sex árin sem formaður þess. 13.6.2006 14:51
Eldur kom upp í íbúðarhúsi Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Hæðargarði í Nesjum á Höfn í Hornafirði um klukkan eitt í dag. Fréttavefurinn Horn.is greinir frá því að mikinn reyk hafi lagt frá húsinu þegar Slökkvilið Hornafjarðar kom á staðinn. 13.6.2006 14:46
Aldrei fleiri umsóknir um nám við HÍ Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um nám við Háskóla Íslands. Um tvö þúsund og fjögur hundruð stúdentar sóttu um í grunnnámi næsta skólaár og um átta hundruð í meistar- og doktorsnámi og viðbótarnámi til starfsréttinda. 13.6.2006 14:12
Stefnir í harkalega lendingu að mati Fitch Ratings Íslenska hagkerfið stefnir á harkalega lendingu og Seðlabankinn þarf að hækka vexti enn frekar til að halda aftur af verðbólgu að mati forsvarsmanna Fitch Ratings á fundi í Lundúnum í dag. Greint er frá þessu í hálffimmfréttum KB banka. 13.6.2006 14:07
Ríkisstjórnin hefur hundsað viðvaranir Ríkisstjórnin hefur hundsað viðvaranir um að efnahagsstjórnin sé í ólagi og hefur stór hluti launafólks orðið fyrir verulegri kaupmáttarrýrnun undanfarið vegna þróunar efnahagsmála. Forseti Alþýðusambandsins segir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tillögum ASÍ um aðkomu stjórnvalda að endurskoðun kjarasamninga valda vonbrigðum. Forsætisráðherra er þó vongóður um að samkomulag náist í vikunni. 13.6.2006 13:38
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson kjörinn borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var kjörinn borgarstjóri rétt í þessu. Vilhjálmur þakkaði Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, fráfarandi borgarstjóra, fyrir velunin störf og sagði Vilhjálmur að hann yrði borgarstjóri allra Reykvíkinga. Ólafur F. Magnússon, oddviti F-listans, lagði fram bókun eftir kosninguna þar sem hann lofaði öflugu aðhaldi af hálfu F-listans. 13.6.2006 13:18
Hanna Birna er nýr forseti borgarstjórnar Hanna Birna Kristjánsdóttir er nýr forseti borgarstjórnar en kosningu var að ljúka á borgarstjórnarfundi sem nú stendur yfir. Hún hlaut átta atkvæði en sjö af fimmtán borgarfulltrúm skiluðu auðu. Björn Ingi Hrafnsson var kosinn fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Júlíus Vífill Ingvarsson var kosinn annar varaforseti borgarstjórnar. 13.6.2006 13:03
9 létust og 20 særðust í loftárás á Gaza Níu létust, þar á meðal tvö börn, og tuttugu særðust í loftárás Ísraelshers á Gazaströndina í morgun. Ísraelsk stjórnvöld lýstu því yfir eftir árásina að henni hefði verið beint að bifreið sem notuð væri til eldflaugaárása á skotmörk hinum megin landamæranna. 13.6.2006 10:33
Aukning í landsframleiðslu fyrsta ársfjórðung 2006 Landsframleiðsla hefur vaxið um 5% á fyrsta ársfjórðungi 2006 miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í þjóðhagsreikningum Hagstofu Íslands sem birtir voru í dag. 13.6.2006 10:15
Atlantsskip leigja gámaskip Atlantsskip hafa tekið á leigu nýtt skip vegna mikillar aukningar í flutningum félagsins bæði á Evrópu- og Ameríkuleiðum. Hið nýja skip nefnist Camira. Fyrsta hlutverk þess verður að létta á miklum Evrópuflutningum sem eru í bígerð hjá Atlantsskipum en síðan fer það í siglingar fyrir félagið á milli Íslands og Ameríku. 13.6.2006 09:45
Ofbeldishrina í Afganistan af völdum eiturlyfjabaróna Eiturlyfjabarónar í suðurhluta Afganistans reyna nú að kynda undir ófriði í héraðinu til að spilla herferð stjórnvalda gegn eiturlyfjum. Þetta er álit sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan. 13.6.2006 09:30
Umferðartafir af völdum Roger Waters Talsverðar tafir urðu á umferð á Vesturlandsvegi í gærkvöld vegna tónleika Rogers Waters, forsprakka hljómsveitarinnar Pink Floyd, í Egilshöll. Lögregla var með aukamannskap við umferðarstjórn í Grafarvogi en umferð gekk mjög hægt þar sem aðein ein akrein liggur frá Vesturlandsvegi og upp í Egilshöll. 13.6.2006 09:30
Hópferðabíll með 16 ferðamenn valt Hópferðabíll með sextán erlenda ferðamenn innanborðs valt á Bláfellshálsi á Kjalvegi í gær. Enginn slasaðist alvarlega en ökumaðurinn var fluttur á Landspítalann. Lögreglu- og sjúkrabílar voru sendir á vettvang en þá var fólkið komið yfir í annan hópferðabíl. Að sögn lögreglu var vegurinn eitt forarsvað og djúpar rákir í honum, en ferðinni var heitið í snjósleðaferð á jökul. Samkvæmt hálendiskorti Vegageraðinnar virðist vegurinn þarna enn vera lokaður vegna aurbleytu. 13.6.2006 09:00
Sýknaður af líkamsárásarkæru Karlmaður var í gær sýknaður af ákærum um líkamsárás á konu á skemmtistaðnum Players í Kópavogi í nóvember síðastliðnum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa veist að konunni inni á klósetti þannig að hún hlaut eymsli og bólgur hægra megin í andliti, glóðarauga og sprungu eða brot í augnbotni. Þar sem framburður vitna var misvísandi þótti sekt mannsins ekki hafin yfir allan vafa og var hann því sýknaður. 13.6.2006 09:00
Aðildarviðræður við Tyrki hafnar Evrópusambandið hóf formlega fyrsta hluta aðildarviðræðna við Tyrkland í gær. Þetta er gert þrátt fyrir tilraunir ráðamanna á Kýpur til að reyna að koma í veg fyrir þær. Í gær var rætt um vísindi og rannsóknir og tókst að ljúka samningum um það svið. Enn standa þó eftir samningar um þrjátíu og fjögur svið. 13.6.2006 09:00
Borgarbúar muni finna þegar nýr meirihluti tekur við Sjálfstæðismenn eru fullir tilhlökkunar yfir meirihlutassamstarfi sínu við Framsóknarmenn í borginni. Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík segir að borgarbúar muni stax á næstu dögum sjá að nýr meirihluti sé tekinn við borginni. 13.6.2006 08:45
Slökkvistarf í fallgöngum Kárahnjúkavirkjunar Slökkviliðsmenn á Héraði unnu afrek þegar þeir slökktu eld, sem logaði á vinnupöllum inni í lóðréttum fallgöngum Kárahnjúkavirkjunar undir kvöld í gær. Eldsins varð vart laust fyrir klukkan fimm og voru öll nálæg vinnusvæði rýmd þar sem reyk lagði frá eldinum. 13.6.2006 08:45
Kaup Barcelona á Eiði Smára frágengin? Samkvæmt nýjustu fréttum hefur verið gengið frá kaupum spænska knattspyrnurisans Barcelona á Eiði Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Frá þessu er greint á vefsíðunni Goal.com og segir að kaupverðið sé 12 milljónir evra, eða rúmlega 1,1 milljarður króna. Almanntengslafulltrúi Eiðs segir þetta ekki rétt 13.6.2006 08:37
Eldur í sportvöruverslun í Grafarvogi Töluvert tjón varð í verslanamiðstöðinni Hverafold í Grafarvogi, þegar eldur kom þar upp í sportvöruverslun í nótt og reykur barst um allt húsið. Þegar slökkvilið kom á vettvang var svo mikill reykur að erfitt var að finna upptök eldsins og munaði minnstu að eldur næði að læsa sig í þak hússins, en eftir að reykkafarar fundu eldinn, gekk slökkvistarf vel. Tjón varð mest í sportvöruversluninni en víða urðu skemmdir af reyk. Slökkviliðsmenn voru fram á morgun að reykræsta húsið. Eldsupptök eru ókunn. 13.6.2006 08:30
Sporvagnaslys í Japan Á þriðja tug manna slasaðist þegar tveir sporvagnar rákust saman í Tokyo í morgun. Enginn er þó talinn alvarlega slasaður en nokkur fjöldi manna var um borð í vögnunum þegar þeir rákust saman. Ekki er vitað á þessari stundu hvað olli slysinu en vagnarnir eru nokkuð skemmdir. Slysið varð í norðurhluta Tokyo. Lestarslys hafa verið fátíð í Japan enda mikil áhersla lögð á öryggismál á þessu sviði. Á síðasta ári léstust hins vegar rúmlega hundrað manns þegar lest fór út af teinunum og lenti á íbúðarhúsi. 13.6.2006 08:15
Þyrluæfing skaðar æðarvarp Lýður Jónsson, sem annast hefur æðarvarpið í Engey í nokkur ár, segir æðarvarpið í molum eftir æfingu Slysavarnaskólans nú fyrir helgi. 13.6.2006 08:00
Þaulsætnasti þjóðhöfðinginn Kóngafólk og aðalsmenn hvaðanæva úr heiminum flykktust í Konungshöllina í Taílandi í gær til að minnast sextíu ára krýningarafmælis hins 78 ára gamla konugs, Bhumibol Adulyadejs, en enginn núlifandi þjóðhöfðingi hefur setið honum lengur á valdastóli. Hundruð manna söfnuðust saman við höllina og hlýddu á þegar þjóðsöngurinn var fluttur fyrir konungshjónin. 13.6.2006 08:00
Flytja átti einn fangann Bandaríkjaher hafði ákveðið að flytja til annars lands einn fanganna þriggja sem frömdu sjálfsvíg í Guantanamo-fangabúðunum á laugardag. Fanganum, sem var frá Sádi-Arabíu, hafði ekki verið tilkynnt um ákvörðunina. Þetta kom fram í upplýsingum sem talsmenn hersins gáfu í gær. 13.6.2006 08:00
Mönnum bjargað úr Seley Björgunarsveitarmenn voru sendir á björgunarskipi Landsbjargar frá Neskaupstað í gærkvöldi til að aðstoða tvo menn sem voru í erfiðleikum við Seley, sem er lítil eyja austur af Reyðarfirði, en þá var farið að brima við eynna. 13.6.2006 08:00
Bruni í Brautarholti Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað að gamla Hampiðjuhúsinu við Brautarholt um klukkan sex í morgun eftir að elds varð vart á efstu hæð hússins. Tilkynning um brunann kom klukkan átta mínútur í sex í morgun. 13.6.2006 07:50
Er ekki að kaupa Fróða Sigurður G. Guðjónsson lögmaður er ekki að kaupa tímarit Fróða og kveðst heldur ekki sjá um kaupin fyrir einhvern annan. "Ég var einfaldlega að veita framkvæmdastjóranum lögfræðilega ráðgjöf. Hún vann hjá mér í mörg ár uppi á Stöð 2 og ég rek bara mína lögfræðistofu," segir hann. 13.6.2006 07:45
Úrskurður kærður til Hæstaréttar Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar hafa kært úrskurð héraðsdóms, að Sigurður Tómas Magnússon og Helgi I. Jónsson þurfi ekki að bera vitni. Verjendur krefjast svara um aðdraganda endurákæru í Baugsmálinu. 13.6.2006 07:15
Framsóknarmenn fá tvö af sjö fagráðum Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur taka við stjórn Reykjavíkur í dag. Framsóknarmenn fá forræði í tveimur af sjö fagráðum, auk formennsku í borgarráði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður sautjándi borgarstjóri Reykjavíkur. 13.6.2006 07:15
Segir uppsagnirnar ofsóknir Öllum starfsmönnum sundlaugar og íþróttahúss á Ólafsvík, sex talsins, var sagt upp störfum af bæjarstjóra Snæfellsbæjar, Kristni Jónassyni, í byrjun mánaðar. Oddviti minnihlutans í bænum kallar uppsagnirnar pólitískar ofsóknir. 13.6.2006 07:00
Helmingur rekinn án leyfis Elías Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu, telur um 150 tjaldsvæði starfrækt í landinu en einungis 68 þeirra hafi tilskilinn leyfi. 13.6.2006 07:00