Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lítið upp í skaðann af virkjun Tuttugu milljóna króna styrkur Alcoa vegna þjóðgarða vegur lítið til móts við þann skaða sem verður af Kárahnjúkavirkjun segir formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann telur styrkinn frekar til marks um sýndarmennsku en að fyrirtækið standi sig vel í umhverfismálum. 16.5.2006 13:00
Viðráðanlegt ójafnvægi Vaxandi ójafnvægi í íslenska hagkerfinu er áhyggjuefni. Efnahagshorfur eru þó góðar og ríkisstjórnin ætti að vera í stakk búin að takast á við sveiflur í efnahagsmálum að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 16.5.2006 12:45
Segist iðrast gjörða sinna Eyþór Arnalds segir áhugann á stjórnmálum sinn óbreyttann en framtíðin muni skera út um pólistískan frama hans. Hann segist iðrast gjörða sinna sem hann segir óafsakanlegar. 16.5.2006 12:30
ESSO lækkar bensínverðið ESSO lækkar verðið á bensínlítranum um eina krónu í dag og er algengt verð í sjálfsafgreiðslu 124,40 krónur. Lítrinn af dísilolíu og gasi lækkar einnig um eina krónu. 16.5.2006 12:26
Leit stendur enn Leit stendur enn að Pétri Þorvarðarsyni, sem fór fótgangandi frá Grímsstöðum á Fjöllum aðfaranótt sunnudags. Búið er að leita vandlega á 500 ferkílómetra landsvæði án þess að nokkur vísbending hafi fundist um ferðir Péturs. 16.5.2006 12:20
Óflughæfar nær fimmta hvern dag frá áramótum Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið óflughæfar samtímis nær fimmta hvern dag frá áramótum. Þá daga hefur þurft að treysta alfarið á aðstoð frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli eða danska varðskipinu Triton ef þyrlu hefur þurft til björgunarstarfa. 16.5.2006 12:08
Áfengisverslun sprengd í Bagdad Áfengisverslun var sprengd í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengju var komið fyrir við dyr verslunarinnar og var þetta í þriðja sinn sem hún var skotmark öfgamanna. 16.5.2006 12:00
Milljóna samningur um boranir Jarðboranir hafa gert samning við orkufyrirtæki á Asoreyjum, sem tilheyra Portúgal, um borun á rannsókna- og vinnsluholum, til undirbúnings háhitavirkjunar á eyjunum. Samningurinn er upp á 500 til 700 milljónir króna og er sá stærsti sem Jarðboranir hafa gert í útlöndum. 16.5.2006 11:45
Dæmt vegna ódæðana í Beslan Allt stefnir í að eini eftirlifandi maðurinn sem átti aðild að hryðjuverkaárásinni á barnaskóla í Beslan fyrir um einu og hálfu ári verði sakfelldur. Hryðjuverkamenn hertóku skólann og héldu honum í þrjá daga, þar til hersveitir réðust á skólann og frelsuðu gíslana. 330 féllu í skotbardaganum sem fylgdi, meirihluti þeirra börn. 16.5.2006 11:30
Fjórðungur Skagamanna nýtir sér strætó Rúmlega fjóðrungur Skagamanna hefur nýtt sér þjónustu Strætó á milli Akraness og Reykjavíkur, sem líklega er talsvert hærra hlutfall en á höfuðborgarsvæðinu sjálfu. 16.5.2006 11:15
Sinueldar í skógræktarsvæði Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögreglan börðust í gær við þó nokkurn sinueld á skógræktarsvæði við Rósaselstjarnir ofan við byggðina í Keflavík. Varðeldur hafði verið kveiktur í skógræktinni og af ummerkjum að ráða hafði verið gerð tilraun til að poppa poppkorn á eldinum sem síðan barst í skógræktina. Nokkuð af trjám varð eldinum að bráð og einnig logaði glatt í sinu og mosa á svæðinu. 16.5.2006 11:00
Varnaraðgerðum aflétt Tímabundnum varnaraðgerðum til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla hér á landi, hefur verið aflétt. Þetta er gert í ljósi þess að langflestir farfuglar eru nú komnir til Íslands þetta árið en engin tilfelli sjúkdómsins hafa greinst hér á landi, og fjöldi neikvæðra sýna frá Bretlandseyjum gefa til kynna að sjúkdómurinn hafi ekki náð þar fótfestu þrátt fyrir einangruð tilvik. 16.5.2006 10:45
2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á fimmtugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlkum. Stúlkurnar voru á aldrinum þriggja til tólf ára þegar brotin áttu sér stað. 16.5.2006 10:30
120 störf í hættu í Noregi Á næstunni verður tekin ákvörðun um að bæta við framleiðslu Íslenska járnblendifélagsins, en norska ríkisútvarpið segir að 120 störf séu í hættu vegna þessa í Noregi. 16.5.2006 10:15
Brotist inn í íbúð á Rauðarárstíg Brotist var inn í íbúð við Rauðarárstíg í Reykjavík í nótt og þaðan meðal annars stolið þremur málverkum og fartölvu. 16.5.2006 10:00
Slapp við reykeitrun Kona var flutt á Slysadeild Landsspítalans undir morgun vegna gruns um að hún hafi fengið reykeitrun, eftir að íbúð við Bergþórugötu fylltist af reyk. 16.5.2006 09:45
Fara enn huldu höfði Ungu mennirnir þrír, sem lögreglan hefur lýst eftir um allt land eftir að þeir numu ungan mann af heimili hans í Garðabæ á laugardagsvköldið og misþyrmdu uppi í Heiðmörk, fara enn huldu höfði. 16.5.2006 09:30
Pétur Þorvarðarson enn ófundinn Leit stendur enn að Pétri Þorvarðarsyni, sem fór fótgangandi frá Grímsstöðum á Fjöllum aðfararnótt sunnudags. Engar vísbendingar hafa fundist um afdrif Péturs. 16.5.2006 09:15
Fangauppreisn lokið Uppreisn fanga í 70 fangelsum í Sao Paulo í Brasilíu er lokið og hafa um 200 gíslar verið látnir lausir. Minnst 80 hafa látist í öldu ofbeldis á svæðinu sem hófst á föstudaginn. 16.5.2006 09:00
Álag á krókódílaveiðimenn mikið Eftir þrjár bannvænar árásir krókódíla í síðastliðinni viku í Flórída í Bandaríkjunum hefur álagið hjá krókódílaveiðimönnum aldrei verið meira. Fjöldi símtala sem þeir fá hefur meira en þrefaldast og eru áhyggjur Flórídabúa miklar. Árásir krókódíla á menn eru fátíðar. 16.5.2006 08:45
Hamas viðurkenni ekki Ísraelsríki Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, hafnaði í gær kröfum alþjóðasamfélagsins um að Hamas-stjórn hans viðurkenni Ísraelsríki og afneitaði ofbeldismönnum. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti um tíu þúsund stuðningsmönnnum sínum í borginni Rafah á Gaza-ströndinni í gær. 16.5.2006 08:30
Enn hætta við Merapi Gas og grjót halda áfram að falla niður hliðar eldfjallsins Merapi á indónesísku eyjunni Jövu. Eitthvað virðist þó hafa hægst en eldfjallasérfræðingar vara þó við að gosið geti færst í aukana fljótlega þó það virðist í rénun nú. 16.5.2006 08:15
Þjóðvarðliðar að landamærum Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að hann ætlaði að senda allt að 6000 þjóðvarðliða til landamæranna að Mexíkó og er það liður í nýrri áætlun sem miðar að því að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Mexíkó eru uggandi og stjórnmálaskýrendur segja áætlunina útþynnta. 16.5.2006 08:00
Jimmy Carter gagnrýnir Bandaríkjastjórn harðlega Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkjanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, gagnrýnir harðlega stefnu Bandaríkjastjórnar í málefnum Palestínu. Hann segir að komið sé fram við saklaust fólk eins og dýr eingöngu vegna þess að það kaus Hamas til að stjórna landinu. 15.5.2006 22:14
Íslensk börn fá þriðjung orku sinnar úr næringarlausu fæði Íslensk börn fá allt að þriðjung orku sinnar úr sælgæti, kexi og öðrum neysluvörum sem innihalda litla sem enga næringu. Engin önnur börn í Evópu neyta jafn lítils magns af ávöxtum og grænmeti. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrra rannsókna á mataræði skólabarna á aldrinum 9-15 ára. 15.5.2006 21:48
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlkum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á fimmtugsaldri í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlkum. Stúlkurnar voru á aldrinum þriggja til tólf ára þegar brotin áttu sér stað. 15.5.2006 21:40
Eftirlýstir af lögreglunni í Kópavogi Þrír menn eru eftirlýstir af lögreglu vegna alvarlegrar líkamsárásar á laugardagskvöld. Mennirnir rændu fórnarlambinu af heimili þess og liggur það nú þungt haldið á spítala. Mennirnir þrír eru þekktir í undirheimum Garðabæjar og hafa allir komið marg oft við sögu lögreglu. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að í það minnsta einn þeirra sé viðriðinn sveðjuárás í Garðabæ í fyrra og að hinir tveir séu á skilorði. 15.5.2006 21:03
Leitin að Pétri Þorvarðarsyni hefur engan árangur borið Leitin að Pétri Þorvarðarsyni sem saknað hefur verið frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan í fyrrinótt hefur engan árangur borið. Á þriðja hundrað björgunarmanna og nokkrir sporhundar taka nú þátt í leitinni, en þyrla varnarliðsins er hætt leit í dag og ekki hefur verið ákveðið hvenar leit hefst aftur á morgun. 15.5.2006 21:02
Varðeldur kveiktur í skógrækt við Rósaselstjarnir Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja og lögreglan börðust síðdegis við þó nokkurn sinueld á skógræktarsvæði við Rósaselstjarnir ofan við byggðina í Keflavík. Varðeldur hafði verið kveiktur í skógræktinni og af ummerkjum að ráða hafði verið gerð tilraun til að poppa poppkorn á eldinum sem síðan barst í skógræktina. 15.5.2006 20:36
Járnblendistörf kunna að flytjast til Íslands Á næstunni verður tekin ákvörðun um að bæta við framleiðslu Íslenska járnblendifélagsins, sem kann að hafa í för með sér 30 - 40 viðbótarstörf við járnblendið á Grundartanga. Norska ríkisútvarpið segir að 120 störf séu í hættu í Aalvik í Harðangri ef svo fer sem horfir að framleiðsla á magnesíum kísiljárni flytjist frá Noregi til Íslands. 15.5.2006 20:00
Óttast um á fjórðu milljón manna í Darfur Óttast er um afdrif þriggja og hálfrar milljónar manna í Darfúr héraði í Súdan, eftir að mataraðstoð Sameinuðu þjóðanna var skorin niður um helming. Mikill þrýstingur er á stríðandi fylkingar að semja um frið. 15.5.2006 19:22
Vilja tómstundastarf á vinnutíma Tómstundastarf barna á skólaaldri er frambjóðendum í Reykjavík ofarlega í huga og vilja þeir tvinna það við skólastarfið svo því verði lokið innan hefðbundins vinnutíma. Skiptari skoðanir eru um skólabúninga, fríar máltíðir í skólum og gjaldfrjálsa leikskóla 15.5.2006 18:42
Viðbrögð við Fuglaflensu á áhættustig 1 Þar sem ekki hefur verið staðfest tilvik fuglaflensu (Avian Influensu af H5N1 stofni) á Íslandi hefur landbúnaðarráðherra, að fengnum tillögum Landbúnaðarstofnunar, ákveðið að aflétta þeim ráðstöfunum sem mælt var fyrir um tímabundnar varnaðaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa eða Avian Influensa berist í alifugla. 15.5.2006 17:43
Sala á greiningarlyfjum gæti skapað tekjur innan skamms Íslensk erfðagreining og bandaríska fyrirtækið Illumina, sem sérhæfir sig í þróun tækja sem notuð er til erfðarannsókna, greindu frá því í dag að þau hafi tekið upp samstarf um að þróa og markaðssetja DNA-greiningarpróf fyrir algenga sjúkdóma. 15.5.2006 17:25
Vilja ekki stækkun álversins Vinstri-grænir í Hafnarfirði eru andvígir stækkun álversins í Straumsvík og hyggjast beita sér gegn henni í bæjarstjórn nái þeir til þess kjöri. Þeir vilja auk þess auka vægi íbúa Hafnarfjarðar í ákvarðanatöku um mál sem snerta þá. 15.5.2006 16:47
Málþing hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands Mannréttindaskrifstofa Íslands og Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, standa að málþingi sem ber yfirskriftina Trúfrelsi og lífsskoðanafélög. Lífsskoðanafélög eru félög sem fjalla um siðferði og lífsskoðanir og sjá meðlimum fyrir félagslegum athöfnum eins og nafngift, fermingu, giftingu og greftrun (dæmi Siðmennt á Íslandi og Human Etisk Forbund í Noregi) en tilgangur málþingsins er að fjalla um jafnræði trúfélaga, skráningu lífsskoðanafélaga og trúfrelsi á Íslandi. 15.5.2006 16:00
Ekkert verður af setuverkfalli Ekkert verður af setuverkfalli stuðningsfulltrúa hjá svæðisskrifstofum fatlaðra sem átti að hefjast í kvöld. Trúnaðarmenn starfsmanna samþykktu nýgerðan stofnanasamning á fundi í hádeginu og var hann undirritaður klukkan þrjú. 15.5.2006 15:56
Þyrla Varnarliðsins aðstoðar við leit Þyrla varnarliðsins er farin í loftið til að aðstoða við leit að Pétri Þorvarðarsyni 17 ára pilti, sem saknað er frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan í fyrrinótt. Á þriðja hundrað björgunarmanna og nokkrir sporhundar taka nú þátt í leitinni og er búið er að kalla út björgunarsveitir frá svæði 9 og 10, einnig er verið að kalla út menn af höfuðborgarsvæðinu sem fara flugleiðis með flugvél Lanhelgisgæslurnar kl.17:00. 15.5.2006 15:32
Bjarni Ármannsson nýr formaður stjórnar SBV Bjarni Ármannsson var kjörinn formaður stjórnar Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja á stjórnarfundi SBV sem haldin var í dag, 15. maí. Bjarni var kjörinn formaður til næstu tveggja ára, en ný stjórn var kjörin á aðalfundi SBV 27. apríl sl. 15.5.2006 15:23
Lækkun fasteignaskatts samþykkt Bæjarráð Akraness hefur samþykkt tillögur gjaldskrárnefndar sveitarfélagsins um reglur er varða lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. 15.5.2006 14:32
Engir biðlistar eftir leikskólaplássi Gert er ráð fyrir að öll börn fædd árið 2004, sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi í Fljótsdalshéraði, verði komin á leikskóla í haust. Á Fréttavefnum Austurlandið.is kemur fram að um er að ræða rúmlega 90% þeirra barna sem eru fædd á þessu ári og búa í sveitafélaginu. 15.5.2006 14:15
Fannst látinn á Fjarðarheiði Maður á sjötugsaldri fannst látinn á Fjarðarheiði um klukkan ellefu í gærkvöldi. Maðurinn hafði farið á bíl sínum upp á Fjarðarheiði til að ganga á skíðum. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita rétt fyrir miðnætti þegar hann skilaði sér ekki innan eðlilegra tímamarka. Um tíu björgunarsveitarmenn fóru á vélsleðum til leitarinnar. Maðurinn fannst síðan stuttu síðar í nágrenni við Heiðarvatn eða um einn kílómeter frá bíl sínum. Hann var þá látinn en talið er að hann hafi orðið bráðkvaddur. 15.5.2006 14:04
Ýsuverð á uppleið Verð á ýsu hefur hækkað miðað við síðastliðinn mánudag. Á heimasíðu Interseafood.com er greint frá því að verð á þorski og ufsa hafi lækkað í Hanstholm í Danmörku en framboð hefur aukist af öllum þremur fisktegundunum. Mest var framboðið af ýsu í Hanstholm í dag eða um 43% af heildarframboði. Nokkuð framboð var einnig af karfa en lítið hefur verið um karfa síðustu vikur. Framboð var þó mest af þorski. 15.5.2006 13:19
Humar sumar á Hornafirði Það er sannkallað humar sumar framundan á Hornafirði. Rúmlega fimmtíu skólakrakkar hafa verið ráðnir í humarvinnslu í Skinney-Þinganesi í sumar, en það er mun meiri fjöldi en hefur verið ráðinn til humarvinnslu síðustu ár. 15.5.2006 12:30
Heilbrigðiskerfið gjaldþrota ef ekki fæst fé Heilbrigðiskerfi Palestínumanna verður gjaldþrota innan tveggja mánaða ef Ísraelar og vesturveldin tryggja heimastjórninni ekki fé. Fjárskortur hefur þegar kostað sjúklinga lífið. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, hvetur Ísraela til að setjast að samningaborðinu með sér og Hamas-liðum. 15.5.2006 12:15