Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Röð óhappa á Reykjanesbraut Tvennt slasaðist, en hvorugt alvarlega, þegar fimm bílar lentu í msimunandi miklum ógöngum í skyndilegri ísingu og þoku á Reykjanesbrautinni upp úr klukkan sjö í morgun, á móts við afleggjarann að Innri-Njarðvík. Fyrst ók sendibíll á ljósastaur. 31.1.2006 10:30
Styrkur veittur úr minningarsjóði Dagsbrúnarformanns Stjórn Alþýðusambandsins hefur ákveðið að veita styrk úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar 1. maí næstkomandi og verður það í fyrsta skipti sem styrkur er veittur úr sjóðnum. Styrkurinn verður að hámarki hálf milljón króna. 31.1.2006 10:00
Seinkun á kalkþörungaverksmiðju Þriggja mánaða seinkun hefur orðið á byggingu kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. Þetta kemur fram á fréttavefnum BB.is. Ástæður fyrir seinkuninni eru meðal annars þær að gögn vantaði í sambandi við hönnun hússins og einnig var lóðin ekki eins aðgengileg og haldið var. En vonast er til að byrjað verði á framkvæmdunum innan tíu daga og að verksmiðjan taki til starfa seinnipart sumars. 31.1.2006 10:00
Biðlar til Bandaríkjamanna Nýtt myndband af bandarísku blaðakonunni Jill Carroll, sem haldið er í gíslingu í Írak, var sýnt á arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera í gær. Biður Carroll Bandaríkjastjórn að sleppa úr haldi þeim konum sem enn eru í fangelsi í Írak, annars munu gíslatökumennirnir, sem kenna sig við Flokk hefndarinnar, taka hana af lífi. Fimm konum var sleppt í síðustu viku úr íröskum fangelsum en fjórar sitja enn inni. 31.1.2006 09:45
Sáu tvær hvalatorfur Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem verið hefur við loðnuleit fyrir austan land að undanförnu, siglir nú fulla ferð í átt að svæði, þar sem flugvél Landhelgisgæslunnar sá tvær stórar hvalatorfur í gær. Það var um 75 sjómílur austur af mynni Vopnafjarðar og er talið að hvalirnir séu þar í æti, og að ætið sé loðna. 31.1.2006 09:30
Engar kærur bárust Engar kærur bárust skrifstofu Framsóknarflokksins vegna framkvæmdar við prófkjörið í Reykjavík um helgina en kærufrestur rann út klukkan sex í gærkvöldi. Óskar Bergsson, sem hafnaði í þriðja sæti, og stuðningsmenn hans, virðast því ætla að una niðurstöðunni án frekari athugasemda. 31.1.2006 09:15
Mál Írana fyrir öryggisráðið Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í gærkvöld að mál Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra yrði tekið fyrir í Öryggisráðinu. Ekki hefur verið ákveðið hvort refsiaðgerðum gegn þeim verði beitt en málið verður tekið fyrir í mars. Breskur stjórnarerindreki sagði að loknum viðræðum við fulltrúa Íransstjórnar í gær að þær hefðu engu skilað. Íranar sögðu hins vegar að viðræðurnar hefðu gengið vel og að frekari viðræður væru framundan. 31.1.2006 09:00
Þiggur ekki annað sætið Valgerður H. Bjarnadóttir, eini bæjarstjórnarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri á kjörtímabilinu, hefur ákveðið að þiggja ekki annað sætið á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hún sóttist eftir fyrsta sætinu, en Baldvin H. Sigurðsson varð hlutskarpari í forvali flokksins og náði fyrsta sætinu. Valgerður, sem jafnframt á sæti í bæjarráði, er þó ekki að yfirgefa flokkinn og segist áfram ætla að taka þátt í flokksstarfinu. 31.1.2006 09:00
Myndlist eftir Hitler á uppboði Til stendur að bjóða upp tuttugu og eitt listaverk eftir Adolf Hitler á uppboði hjá Jeffrey's í Bretlandi. Um er að ræða vatnslitamyndir og skissur eftir kappann sem hann ku hafa gert á árunum 1916 til 1918. Myndirnar fundust í kistli á háalofti einu í gömlu húsi í Belgíu þar sem þær höfðu legið í um sjötíu ár. Þrátt fyrir að þykja ekki mikið augnakonfekt er gert ráð fyrir að fyrir myndirnar fáist rúmlega ellefu milljónir íslenskra króna eða um hálf milljón fyrir hverja þeirra. 31.1.2006 08:45
Neita að viðurkenna Ísraelsríki Hamas-samtökin hafa neitað kröfu Kofis Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis og að afneita ofbeldisverkum. Æðstu ráðamenn innan Hamas hafa þó beðið ESB um að stöðva ekki fjárstuðning sinn við Palestínu en aðildarríkin veittu rúma 36 milljarða króna til Palestínu í fyrra. 31.1.2006 08:30
Mikill ótti á nautaati í Mexíkó Mikill ótti greip um sig á nautaati í Mexíkóborg í gær þegar þúsund punda naut að nafni Pajarito eða litli fugl, gerði sér lítið fyrir og stökk upp í áhorfendastúku með þeim afleiðingum að yfir tíu manns slösuðust. Eins og sést á myndum af atburðinum reyndi tryllt dýrið að komast upp áhorfendapallana en mannskepnan hafði þó betur og stakk dýrið til bana með sverði. Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr en tveir voru þó lagðir inn á spítala með minniháttar meiðsli. 31.1.2006 08:16
Bandaríkjamenn koma Dönum til bjargar Bandaríkjamenn koma dönskum útflutningi til bjargar í kjölfar þess að danskar vörur hafa verið sniðgengnar meðal múslíma víða um heim. Á fjölmörgum bandarískum vefsíðum er hvatt til þess að menn kaupi danskar vörur og búist er við því að söluaukning verði á dönskum smjörkökum, bjór og skinku í Bandaríkjunum. 31.1.2006 08:15
Samið um kjör á Herjólfi Sjómannasamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gengið frá kjarasamningi fyrir háseta og þjónustufólk á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi. Samningurinn gildir til ársloka 2010 en aðrir samningar við starfsmenn á kaupskipum gilda almennt til loka næsta árs. 31.1.2006 08:15
Námumönnum bjargað Búið er að bjarga öllum upp úr kanadískri námu þar sem eldur kviknaði í gærmorgun. Alls voru 72 námamenn í námunni þegar eldurinn braust út og leituðu þeir skjóls í sérstökum öryggisherbergjum. Þar dvöldu þeir á meðan eldurinn var slökktur. Að sögn námufélagsins eru allir námamennirnir við góða heilsu. 31.1.2006 08:12
Kjósa um sameiningu verkalýðsfélaga Félagar í Félagi járniðnaðarmanna hafa samþykkti að gengið verði til atkvæða um sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna. Alls eru tæplega fjögur þúsund félagsmenn í félögunum tveimur. 31.1.2006 08:00
Þrjár danskar stúlkur brunnu inni Þrjár danskar stúlkur létust í nótt í eldsvoða í kofa í Noregi. Stúlkurnar, sem allar voru undir 18 ára aldri, voru í fjölmennum hópi danskra nema sem gistu í kofum í Hovden í Setesdal. Þrjú önnur ungmenni náðu að forða sér úr brennandi kofanum í tæka tíð. 31.1.2006 07:44
Vegir víðast greiðfærir Flestir vegir landsins eru greiðfærir en hálka og hálkublettir á stöku fjallvegum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hins vegar er þoka á Hellisheiði og í Þrengslum. 31.1.2006 07:35
Ekki sá seki Lögreglan í Reykjavík sleppti í gærkvöldi manni um tvítugt, sem handtekinn var í gærdag, grunaður um að hafa framið vopnað rán í afgreiðslu Happdrættis Háskólans við Tjarnargötu laust fyrir hádegi í gær. Maðurinn neitaði sök og í ljós kom að hann mun ekki vera sá seki. Engin annar hefur verið handtekinn vegna málsins og er fréttastofu ekki kunnugt um hvort einhver sérstakur liggur undir grun. Þjófurinn náði 95 þúsund krónum úr peningaskúffu í afgreiðslunni áður en hann hvarf af vettvangi. 31.1.2006 07:29
Hvetur múslíma til að sýna stillingu Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hvatti í gær leiðtoga danskra múslíma til að lægja öldurnar meðal múslíma og taka afstöðu gegn því að danskar vörur verði sniðgengnar eins og átt hefur sér stað í fjölda ríkja í hinum íslamska heimi vegna birtingu á skopmyndum af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum. 31.1.2006 07:16
Valgerður gefur ekki kost á sér Valgerður H. Bjarnadóttir bæjarstjórnarfulltrúi Vinstri-grænna á Akureyri hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í annað sætið á lista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Valgerður sóttist eftir því að leiða listann. 30.1.2006 22:09
Dansinn dunar hjá eldri borgurum Eldri borgarar koma saman á hverjum mánudegi til að dansa línudans og samkvæmisdansa. Við litum á dansæfingu þar sem óhætt er að segja að dansinn duni tímunum saman. 30.1.2006 21:55
Móðir brasilíubarns fundin Simone da Silva var handtekin í Belo Horizonte í Brasilíu í dag. Hún segist hafa skilið nýfætt barn sitt í höndum heimilislausrar konu sem hún gekk fram á. Sjálf hafi hún ekki verið í sálrænu ástandi til að ala upp barn. 30.1.2006 21:31
Græðandi á skipaskráningarkerfi Íslenska ríkið fengi tvö hundruð milljónir í kassann, með því að taka upp skipaskráningarkerfi að færeyskri fyrirmynd. Þetta segir Kristján Möller alingismaður, sem vill ekki bara bjarga íslenskri farmannastétt, heldur nota féð til að styrkja strandsiglingar hér við land. 30.1.2006 21:28
Þjóðarsorg í Póllandi Þjóðarsorg ríkir í Póllandi eftir að sextíu og sjö manns létu lífið þegar þak sýningarhallar hrundi á fimm hundruð manns á laugardagskvöld. Pólverjar frá Katowice, sem búsettir eru hér á landi, segja að sýningarhöllin hafi augljóslega verið illa hönnuð. 30.1.2006 21:23
Samþykktu sjálfir „skipulagsslys“ Sjálfstæðismenn í borgarráði samþykktu fyrir rúmu ári, að flytja bensínstöðina við Geirsgötu í Vatnsmýrina, en segja nú að flutningurinn sé skipulagsslys. 30.1.2006 21:15
ÍAV fá verk án útboðs Bróðurpartur lóðaframkvæmda vegna Tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn verður boðinn út, segir borgarstjóri. Sérstakar aðstæður réttlæti hins vegar að samið verði án útboðs við Íslenska aðalverktaka um fyrsta hlutann, upp á fjögur hundruð milljónir króna. 30.1.2006 21:13
Einn handtekinn fyrir vopnað rán Einn hefur verið handtekinn grunaður um að hafa rænt Happdrætti Háskóla Íslands við Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf í dag. Sá sem er í hald var dæmdur fyrir vopnað rán árið 2004. 30.1.2006 21:07
Múslimar sárir við Dani og Norðmenn Danska stjórnin varaði danska ríkisborgara í dag við því að ferðast til Sádi-Arabíu, þar sem mikil reiði ríkir vegna birtinga teikninga af Múhameð spámanni. Reiðin er einnig farin að beinast gegn Norðmönnum eftir að norskt blað birti teikningarnar. 30.1.2006 21:05
ASÍ vill sambærilegar hækkanir Varaforseti Alþýðusambandsins segir að sambandið verði strax að sækja launahækkanir fyrir sitt fólk. Þessi staða sé komin upp eftir að launanefnd heimilaði hækkun á lægstu launum starfsmanna sveitarfélaga. 30.1.2006 21:01
Sendiferðabíll ók í veg fyrir steypubíl Litlu munaði að alvarlegt slys hefði orðið á Reykjanesbraut í dag þegar sendiferðbíll ók í veg fyrir fulllestaðann steypubíll. Steypubíllinn lenti aftan á sendiferðabílnum með þeim afleiðingum að vörulyfta og afturhleri fóru af honum. Ökumaður steypubifreiðarinnar slasaðist lítillega. Nokkrar skemmdir urðu á ökutækjum. 30.1.2006 20:49
Fjórir segja upp á Hlaðhömrum í Mosfellsbæ Fjórir starfsmenn á leikskólanum Hlaðhömrum í Mosfellsbæ hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Leikskólastjórinn segist jafnvel eiga von á fleiri uppsögnum muni sveitafélagið ekki nýtta sér heimild launanefndar sveitafélaganna til launahækkunnar, sem samið var um síðastliðinn laugardag. 30.1.2006 20:05
Hótel Saga og Hótel Ísland ekki seld Búnaðarþing Íslands felldi rétt í þessu tillögu um að Hótel Ísland og Hótel Saga yrðu seld. Samningurinn var felldur með miklum mun og Hótel Saga og Hótel Ísland verða því ekki seld að svo komnu máli. 30.1.2006 17:33
Stjórnvöld standi við skuldbindingar Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun þar sem þung áhersla er lögð á að stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni. Bókunin veitir Íslendingum svigrúm til að auka framleiðslu á áli um 280 þúsund tonn til ársins 2012. Í ályktuninni segir að það svigrúm verði að nýta af varfærni og vara við áformum um að skilja eftir framtíðarvandamál sem tengjast of mikilli losun gróðurhúsalofttegunda. 30.1.2006 16:47
Einn handtekinn vegna ráns Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið einn mann sem er grunaður um vopnað rán hjá Happdrætti Háskólans í hádeginu. Lögreglan verst allra nánari frétta af málinu þar sem það er í rannsókn. Ekki er enn vitað hversu miklu af peningum þjófurinn náði. Skrifstofa Happadrættisins er enn lokuð vegna vettvangsrannsókna. 30.1.2006 16:24
Hamas verði að viðurkenna Ísrael Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir vel koma til greina að ný stjórn Palestínu hljóti áfram stuðning Evrópusambandsins. Þó séu ákveðin skilyrði fyrir hendi þá meðal annars þau að stjórnin viðurkenni Ísraelsríki. Það hafa Hamas-samtökin hinsvegar þverneitað að gera. 30.1.2006 16:18
OgVodafone-númer í símaskrá Nýjustu upplýsingar um símanúmer og heimilisföng viðskiptavina Og Vodafone, verða hér eftir aðgengilegar á simaskra.is og í Símaskránni. Þetta er vegna samkomulags Og Vodafone og Já, sem rekur simaskra.is, 118 og gefur út Símaskrána. Áður var aðeins hægt að fá nýjustu upplýsingar um viðskiptavini Og Vodafone í 118 hjá Já. 30.1.2006 15:36
Segir morðið óviljaverk Sigurður Freyr Kristmundsson sagði að það hefði verið óviljaverknaður þegar hann varð Braga Halldórssyni að bana með því að stinga hann í íbúð við Hverfisgötu 20. ágúst síðastliðinn. 30.1.2006 15:25
Skipa nefnd til að fara yfir lög um kjaradóm Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til að fara yfir lög um Kjaradóm og kjaranefnd. Er henni ætlað að gera tillögur um breytingar á þeim lögum í ljósi reynslunnar og ábendinga sem fram hafa komið um annmarka á þeim. Nefndinni er sérstaklega ætlað að skoða hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi launaákvarðana Kjaradóms og kjaranefndar. 30.1.2006 15:04
Fær stærsti árgangur sögunnar inn í framhaldsskólana? Í vor útskrifast stærsti árgangur Íslandssögunnar úr grunnskólum landsins. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, hefur áhyggjur af því hvort framhaldsskólarnir rúmi alla þá sem óska eftir inngöngu. 30.1.2006 14:48
Ræningjans enn leitað Lögreglan leitar enn mannsins sem rændi Happdrætti Háskólans í hádeginu. Maðurinn var klæddur í dökkbláan Kraft-galla. Þeir sem gefið geta upplýsingar eru beðnir um að hafa samband við Lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100. 30.1.2006 14:42
Alvarlegri áhrif gróðurhúsalofttegunda Aukin samþjöppun gróðurhúsalofttegunda getur haft alvarlegri áhrif en fyrr var talið að því er fram kemur í nýrri breskri skýrslu. Þar segir að litlar líkur séu á því að losun gróðurhúsalofttegunda verði haldið undir hættumörkum. 30.1.2006 14:08
Undirrita umsókn fyrir Surtsey Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra undirrita í dag umsókn íslenskra stjórnvalda um að Surtsey verði samþykkt á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. 30.1.2006 14:01
Jaxlinn kynntur í tannverndarviku Árleg tannverndarvika Lýðheilsustöðvar hófst í dag. Þetta árið verður lögð sérstök áhersla á mikilvægi góðrar tannhirðu en meginmarkmiðið með tannverndarvikunni er að vekja athygli á mikilvægi þess fyrir líf og heilsu fólks að vera með heilbrigðar tennur. 30.1.2006 13:49
Forsetinn í Grundaskóla Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Grundaskóla á Akranesi á morgun í tilefni af því að Grundaskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin í flokki skóla sem sinnt hafa nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. 30.1.2006 13:43
Vopnaður maður rændi HHÍ í Tjarnargötu Vopnaður ræningi rændi Happdrætti Háskóla Íslands í Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf. Maðurinn kom inn með byssu og sagðist vera að ræna útibúið: Hann vatt sér síðan að næsta peningakassa, tók laust fé úr honum og hvarf á braut. Honum var veitt eftirför en hefur enn ekki fundist. 30.1.2006 12:44
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent