Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búnaður björgunarsveitarinnar nær ónýtur Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í flugeldum í húsnæði Hjálparsveitar skáta í Hveragerði í dag. Um tíu manns voru inni í húsinu að versla flugelda fyrir kvöldið þegar slysið varð. 31.12.2005 15:00
Um 53% þjóðarinnar styður ríkisstjórnina Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings tæplega 42% kjósenda samkvæmt könnun Gallups í desember. Samfylkingin nýtur stuðnings 27% landsmanna, Vinstri hreyfingin Grænt framboð hefur tæplega 18% fylgi og um 11% styðja Framsóknarflokkinn. Þá styður um 2% þjóðarinnar Frjálslynda flokkinn. Ríkisstjórnina styðja því um 53% þjóðarinnar samkvæmt könnuninni. Íslendingar eru bjartsýnir hvað varðar atvinnuástand í landinu á komandi ári, en þó eru þeir heldur svartsýnni á efnahagshorfur en þeir voru í fyrra. 31.12.2005 14:41
Vel gengur að ráða niðurlögum eldsins Vel gengur að ráða niðurlögum eldsins í Hveragerði en lögreglan á Selfossi segir þó að enn sé mikil sprengihætta og að erfitt sé að segja til um hvenær hættan sé liðin hjá. Svæðið hefur verið girt af en lögreglan biður þó fólk um að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Samkvæmt lögreglunni kviknaði í þegar verið var að undirbúa flugeldasýningu en hvaða liður það var sem fór úrskeiðis sé of snemmt að segja til um. 31.12.2005 14:16
Að minnsta kosti sex fórust í sprengingu í Indónesíu Sprengjan sprakk á svínakjötsmarkaði í Indónesíu morgun. Mikið fjölmenni var á markaðnum, enda almenningur að kaupa sér veislukvöld til að fagna áramótunum í kvöld. Í héraðinu hafa verið hörð átök síðustu ár á milli kristinna manna og múslima. Talið er að yfir eitt þúsund manns fallið vegna átakanna á árunum 2001 og 2002. Flest fórnarlöm þessarar árásar eru talin kristin. Engin hryðjuverkasamtök hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum og hefur lögreglan lítið viljað tjá sig um málið en segir það þó vera í rannsókn. 31.12.2005 14:11
Ætla ekki að framlengja samninginn Samtök herskárra Palestínumanna sem tengjast Mahmud Abbas, forseta heimastjórnar Palestínu, segjast ekki lengur bundnar af samningi um vopnahlé í uppreisn Palestínumanna gegn Ísrael en vopnahléið rennur út á miðnætti. Helstu samtök Palestínumanna féllust snemma árs á að gera hlé á aðgerðum gegn Ísrael út þetta ár. Samtökin sögðu í tilkynningu sem send var út í síðasta mánuði að þau myndu ekki framlengja samninginn. 31.12.2005 13:49
Að minnsta kosti einn slasaður Eldur kviknaði í flugeldasölu í í húsnæði björgunarsveitarinnar í Hveragerði í dag. Einn maður er slasaður en lítið var af fólki á staðnum þegar eldurinn kom upp. Talsverður eldur er í byggingunni en Slökkvilið í Hveragerði og á Selfossi er á staðnum. Þá var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sett í viðbragðsstöðu. Lögreglan hefur girt svæðið af vegna sprengihættu en eldurinn mun hafa kviknað eftir að sprenging varð í byggingunni. 31.12.2005 13:33
Gíslunum sleppt Þremur breskum gíslum hefur verið sleppt á Gasasvæðinu í Palestínu. Um er að ræða Kate Burton, 24 ára gamlan hjálparstarfsmann, og foreldra hennar. Herská samtök, sem nefna sig Mujahideen herdeildirnar í Jerúsalem, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem þau sögðust hafa fallist á að láta gíslana lausa eftir að hafa fengið tryggingar fyrir því að Bretar og Evrópusambandið muni vinna að því að Ísraelsmenn falli frá öryggissvæði sem þeir hafa markað á Gasasvæðinu. Breskir sendimenn segja þó engar viðræður hafa átt sér stað við mannræningjana. 31.12.2005 09:14
Jarðskjálfti í Panama Jarðskjálfti sem mældist 6,2 stig á Richter varð undan vesturströnd Panama í Mið-Ameríku í gærkvöld. Ekki hafa enn borist upplýsingar um hvort eða hversu margir féllu í skjálftanum eða af skemmdum á mannvirkjum. Skjálftinn átti upptök sín um 20 metra undir sjávarbotni nálægt borginni David. 31.12.2005 09:12
Stúlkan flutt til Bandaríkjanna Þriggja mánaða gömul íröksk stúlka, með klofinn hrygg, var í gær flutt frá Bagdad, höfuðborg Íraks til Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum til að gangast undir aðgerð. Stúlkan var flutt með herflutningavél til Kúveit og fer þaðan með farþegavél til Atlanta. Bandarískir hermenn fundu barnið fyrir þremur vikum þegar þeir réðust inn í hús í fátækrahverfi í Bagdad og sáu að stúlkan var ekki heil. Hermennirnir hófu að vinna að því að barnið gæti gengist undir aðgerð í Bandaríkjunum og hafa heilbrigðisstofnanir og læknar í Georgíu ákveðið að taka á móti barninu án endurgjalds og gera á því aðgerð. 31.12.2005 09:09
Sex farast í sprengingu Að minnsta kosti sex manns fórust og yfir fimmtíu eru særðir eftir að sprengja sprakk á svínamarkaði í Indónesíu í dag. Hörð átök hafa verið á milli kristinna manna og múslima síðustu ár en síðustu fjórum árum hafa yfir eitt þúsund manns fallið vegna þeirra. Talið er að flest fórnarlöm þessarar árásar hafi verið kristnir. Engin hryðjuverkasamtök hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum. Lögreglan hefur lítið viljað tjá sig um málið en segir það vera í rannsókn. 31.12.2005 09:07
Svipað veður fram á þorra Félagar í Veðurklúbbi Dalbæjar telja að veður verði svipað og það er nú fram á þorra. Þeir segja að það gæti kólnað dálítið frá 20. janúar og jörð hvítnað eitthvað en telja ekki ástæðu til að búast við vonskuveðri. 30.12.2005 23:45
Freyðivín fyrir börn selst vel Freyðivín fyrir börnin rokselst í verslunum Hagkaupa fyrir áramótin. Framkvæmdastjóri Hagkaupa segir freyðivínið á boðstólum til gamans svo börnin geti skálað með fullorðnum og fagnað nýju ári. Taka skal fram að freyðivínið er óáfengt. 30.12.2005 22:00
Afli íslenskra skipa hefur ekki verið minni í tíu ár. Afli íslenskra skipa hefur ekki verið minni í tíu ár. Aflinn er áætlaður 1.667 þúsund lestir en svo lítill hefur hann ekki verið síðan 1995 þegar hann var 1.605 þúsund lestir. Mestur var aflinn árið 1997 eða 2.199 þúsund lestir 30.12.2005 22:00
40 manns sem fengu meðferð á Vogi létust á árinu Fjörutíu manns sem fengu meðferð á Vogi á árinu létust fyrir aldur fram á fyrstu átta mánuðum ársins vegna ofneyslu vímuefna. Þar af létust níu fyrir fertugt. Margt þessa fólks hlaut voveiflegan dauðdaga að sögn yfirlæknis á Vogi. Þá bendir hann á að því fjölgi nú ört fullorðnu fólki, komið yfir þrítugt, sem leiti sér hjálpar vegna dagdrykkju. 30.12.2005 21:22
Fer enn í reglulegar lýtaaðgerðir Piltur sem slasaðist í andliti þegar flugeldur sprakk framan í hann fyrir þremur árum fer enn reglulega í augnaðgerðir til þess að laga lýti í kringum augun. Hann var svo heppinn að halda sjóninni og vill hann minna fólk á að fara varlega því allir geti lent í slysi sem þessu. 30.12.2005 21:19
Kaldur vetur blasir við Úkraínumönnum Kaldur vetur blasir við Úkraínumönnum ef svo fer sem horfir og skrúfað verður fyrir gas sem þeim berst með leiðslum frá Rússlandi. Þá er einnig óvíst um sölu á gasi til Evrópusambandslanda, því leiðslurnar frá Rússlandi fara um Úkraínu og í dag boðaði Evrópusambandið til neyðarfundar vegna þess 30.12.2005 21:15
Niðurstaða komin í leikskólakennaradeiluna Kjaradeila leikskólakennara og borgaryfirvalda tók á sig nýja mynd í dag á fundi deilenda í Ráðhúsinu. Niðurstaðan varð sú að deilendur fá þriggja vikna andrými til að leysa deiluna og móta hugmyndir um kjör leikskólakennara sem lagðar verði fyrir Launamálaráðstefnu sveitarfélaga þann 20. janúar næstkomandi. 30.12.2005 20:53
Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina hafa farið illa með tímann Laun embættismanna hækka um tvö og hálft prósent eftir mánuð, en fram að því gildir úrskurður Kjaradóms. Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina hafa farið illa með tímann og leysa hefði mátt málið fyrir áramót. Forseti ASÍ fagnar niðurstöðunni en skilur ekki hvers vegna beðið er með að láta hana taka gildi. 30.12.2005 20:48
ALCAN svarar ásökunum starfsmanna Forsvarsmenn Alcan hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þeir mótmæla fullyrðingum og ásökunum starfsmanna í garð fyrirtækisins og segja þær einfaldlega rangar. 30.12.2005 20:30
Einkaaðilar í flugeldasölu reyna að líkja eftir sölustöðum Landsbjargar Fjöldi einkaaðila sem selja flugelda eykst árlega. Sumir fara þá leið að líkja eftir skiltum og auglýsingaaðferðum Landsbjargar og Hjálparsveita Skáta. 30.12.2005 20:28
Árið sekúndu lengra en venjulega Árið 2005 verður óvenjulangt því á miðnætti annað kvöld verður hlaupasekúndu bætt við árið. Klukkur heimsins ganga í samræmi við frumeindaklukkur, sem mæla tímann með mikilli nákvæmni, en jörðin hefur snúist óvenjuhægt um öxul sinn að undanförnu. Því þarf í fyrsta sinn í sjö ár að bæta sekúndu við árið til að næsta ár geti byrjað á hárréttum tíma. 30.12.2005 20:15
Hamfarir og stríð fréttir ársins Árið 2005 var ár hamfara og stríðs og margir kveðja það með litlum söknuði. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem var gerð í 27 löndum með viðtölum við rúmlega 30 þúsund manns. 30.12.2005 19:48
Tvöfalda stærri hluta Reykjanesbrautar Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Reykjanesbrautar milli Kópavogs og Hafnarfjarðar en verkið er unnið í samráði við bæjaryfirvöld í Kópavogi og Garðabæ. 30.12.2005 19:35
Má heita Súla og Þrastar en ekki Arnsted Súla og Beníta eru tvö nýjustu nöfnin í mannanafnaskrá. Mannanafnanefnd ákvað á síðasta fundi sínum að nöfnin tvö uppfylltu skilyrði laga um mannanöfn þar sem þau fallbeygjast og bætti þeim því í mannanafnaskrá. 30.12.2005 18:45
Sex yfir þúsund tonnin Sex krókaaflamarksbátar veiddu meira en þúsund tonn á árinu samkvæmt upplýsingum á vef Landssambands smábátaeigenda. Guðmundur Einarsson ÍS veiddi mest, alls 1.360 tonn, en næstur kom Hrólfur Einarsson ÍS með 1.346 tonn. 30.12.2005 18:30
Snjónum kyngir niður í Evrópu Jólasnjónum beinlínis kyngir niður um alla Evrópu, á sama tíma og auð jörð ræður ríkjum í flestum landshlutum hér á fróni. 30.12.2005 17:57
Keyptu fasteignir fyrir 300 milljarða Landsmenn keyptu og seldu fasteignir fyrir um 300 milljarða króna á árinu sem nú er að líða að mati Fasteignamats ríkisins. Veltan í ár er sú mesta sem hefur nokkru sinni verið skráð hjá Fasteignamati ríkisins á einu ári. Í fyrra seldust fasteignir fyrir 226 milljarða króna en aukningin milli ára nemur 76 milljörðum eða þriðjungi heildarsölunnar í fyrra. 30.12.2005 17:44
Sveitarfélög í fyrsta sinn færri en hundrað Sveitarfélögum landsins fækkar um þrjú á nýársdag þegar sameining fjögurra sveitarfélaga undir nafni Húnavatnshrepps tekur gildi. 30.12.2005 16:58
Erill hjá slökkviliði Erill hefur verið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag. Dælubílar hafa fimm sinnum verið kallaðir út, slökkva hefur þurft eld í tveimur blaðagámum og bíl í Kirkjuteigi auk þess sem eldur kom upp í íbúð við Kambsveg en íbúa tókst að slökkva hann áður en slökkviliðið kom á staðinn. 30.12.2005 16:43
Sextíu bíla árekstur í Ungverjalandi Átta ára gamall drengur lést og tíu slösuðust í sextíu bíla árekstri á harðbraut í Ungverjalandi í dag. Mjög slæm færð var á brautinni þegar áreksturinn varð. Ökumaður flutningabíls missti stjórn á bíl sínum, sem rásaði til á veginum og lenti síðan utan í vegriði. 30.12.2005 16:39
Ríkisstjórnin klúðraði málinu Klúður er orðið sem stjórnarandstæðingar nota yfir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við úrskurði kjaradóms. Þeir eru afar ósáttir við að forystumenn ríkisstjórnarinnar vildu ekki kalla þing saman til að fresta gildistöku launahækkunar þingmanna og ráðherra. 30.12.2005 16:32
Landamærum Gaza og Egyptalands lokað Landamærum Gaza og Egyptalands var lokað í morgun, þegar palestínskir lögreglumenn réðust inn í landamærastöð og hröktu evrópska eftirlitsmenn á flótta. 30.12.2005 16:30
Nýr kjarasamningur Vélstjórafélagsins, LÍÚ og SA Vélstjórafélag Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins gerðu í dag nýjan kjarasamning um kjör vélstjóra á fiskiskipum. Kjarasamningurinn kemur í stað samnings aðilanna frá 2001 sem rennur út þann 31. desember 2005. Gildistími er til 31. maí 2008. 30.12.2005 16:27
Fimmtán gefa kost á sér Prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi vegna framboðslista flokksins við bæjarstjórnarkosningar á komandi vori, verður haldið 21. janúar næstkomandi. Fimmtán manns gefa kost á sér í prófkjörinu. 30.12.2005 16:19
Nýtt útgáfufélag tekur við Vikudegi Hildingur ehf. sem er dótturfélag KEA, Kristján Kristjánsson, Birgir Guðmundsson og Ásprent Stíll hafa stofnað útgáfufélag sem keypt hefur allar eignir Vikudags á Akureyri og mun félagið hefja rekstur blaðsins frá og með áramótum. Kristján verður ritstjóri blaðsins og framkvæmdastjóri útgáfunnar. 30.12.2005 15:43
6 létust og 23 særðust í Írak í morgun Sex manns féllu og á þriðja tug særðust í tveimur aðskildum árásum í miðborg baghdad, höfuðborg Íraks í morgun. 30.12.2005 15:33
Bréf í Dagsbrún rjúka upp Hlutabréf í Dagsbrún hafa hækkað um rúmlega níu prósent í dag, eftir að tilkynnt var um breytingar í stjórn fyrirtækisins í morgun. 30.12.2005 15:30
BUGL fær 1,5 milljónir Ein og hálf milljón króna söfnuðust á styrktartónleikum sem haldnir voru af Lýsingu dagana 29. og 30. nóvember í Grafarvogskirkju. Allur ágóðinn rennur óskiptur til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. 30.12.2005 15:15
Borgarstjóri skipar nefnd með leikskólakennurum vegna kjaramála Á fundi Steinunnar Valdísar Óskarsdóttir borgarstjóra í dag með Björgu Bjarnadóttur formanni og Þresti Brynjarssyni varaformanni Félags leikskólakennara vegna kjaramála leikskólakennara var ákveðið að fela hópi skipuðum fulltrúum Reykjavíkurborgar, Félags leikskólakennara, samráðs leikskólastjóra í Reykjavík auk fulltrúa frá Launanefnd sveitarfélaga að móta hugmyndir sem lagðar verði fyrir Launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður 20. janúar nk. Jafnframt beina aðilar þeim tilmælum til leikskólakennara, sem sagt hafa upp störfum eða hafa ákveðið að segja upp, að endurskoða hug sinn og gefa vinnuhópnum kost á takast á við þá stöðu sem uppi er. 30.12.2005 15:00
Íslandspóstur og Súðavíkurhreppur semja um aukna þjóustu Íslandspóstur hf. og Súðavíkurhreppur hafa gengið frá samkomulagi um þjónustu við íbúa á bæjum við Ísafjarðardjúp. Samkomulagið tryggir samgöngutengingu úr Djúpinu við Súðavík og Ísafjörð. 30.12.2005 14:58
Ákvörðun LSH felld úr gildi Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi ákvörðun Landspítala háskólasjúkrahúss um að stöðu Tómasar Zoega geðlæknis yrði breytt úr stöðu yfirlæknis á geðsviði í starf sérfræðilæknis. Þá var Landsspítalanum einnig gert að greiða Tómasi 950 þúsund krónur í málskostnað. Ákvörðunin var tekin í lok apríl á þeim forsendum að Tómas hefði neitað að samþykkja að hætta rekstri á eigin læknastofu. Hún hafði í för með sér launalækkun fyrir Tómas og eins minni ábyrgð. Hann ákvað þegar í stað að kæra ákvörðunina og krafðist ógildingar. Í dómnum frá í morgun segir að engin ástæða hafi verið til að víkja Tómasi úr starfi eða áminna hann, enda hafi hann í engu vanrækt skyldur sínar. 30.12.2005 14:54
Mikil hálka á Mosfellsheiði Vegagerðin varar við mikilli hálku á Mosfellsheiði en þar er unnið að hálkuvörnum. Á Vesturlandi og vestfjörðum er hálka og hálkublettir og þá eru hálkublettir sömuleiðis víða á Norður- og Suðurlandi. Á Norðaustur- og Austurlandi er hálka, hálkublettir og snjóþekja en greiðfært er um Suðausturland. 30.12.2005 14:10
Starfsmenn Ísal/Alcan lýsa yfir andstyggð á starfsmannastefnu fyrirtækisins Starfsmenn á aðalverkstæði Ísal/Alcan funduðu í morgun vegna þess að einum starfsmanni fyrirtækisins var sagt upp fyrirvaralaust. Starfsmaðurinn sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í mörg ár var kallaður fyrirvaralaust til yfirmanns og tilkynnt um brottrekstur án skýringa að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fundinum. 30.12.2005 13:56
Bílasafn Fornbílaklúbbsins rís í Elliðaárdalnum. Fyrsta skóflustunga að fyrirhuguðu bílasafni og félagsheimili Fornbílaklúbbs Íslands og þjónustuhúsi Orkuveitu Reykjavíkur var tekin í dag klukkan eitt í Elliðaárdalnum. 30.12.2005 13:46
Sala á sykurlausum gosdrykkjum að verða meiri en á sykruðum Allt stefnir í að Íslendingar verði fyrstir Norðurlandabúa til að taka sykurlausa kóladrykki fram yfir sykraða og útlit er fyrir að vinsældir sykurlausra gosdrykkja haldi áfram að aukast á næsta ári. 30.12.2005 13:45