Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Snákar og byssur fundust í Kópavogi Tveir snákar, skammbyssur og töluvert af hassi var meðal þess sem lögreglan í Kópavogi fann við húsleit í bænum í nótt. Snákarnir eru yfir hálfur metri á lengd hvor, en blátt bann liggur við innflutningi þessháttar dýra bæði vegna þess að bit þeirra geta reynst hættuleg og svo geta þau borið með sér sjúkdóma, enda fara þau ekki í sóttkví, ef þeim er smyglað. 9.12.2005 12:15
Spenna um framtíðarsýn Símans Eitt stærsta viðskiptaleyndarmálið þessa dagana er, í hverju síminn ætlar að fjárfesta eftir að hann eykur hlutafé sitt um 35 milljarða króna, eins og allt stefnir í. 9.12.2005 12:01
Hlýtur að hugleiða að segja af sér Árni Magnússon hlýtur að hugleiða að segja af sér vegna dóms sem féll gegn honum í Hæstarétti í gær, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs. Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, neitar að tjá sig frekar um málið og vísar til yfirlýsingar sem hann sendi frá sér í gær. 9.12.2005 11:53
Slapp ómeidd úr bílveltu Kona slapp óslösuð þegar bíll sem hún ók valt í hálku á Eyrarbakkavegi laust fyrir klukkan átta í morgun. Hálka er á nokkrum stöðum á Suðurlandi en að sögn lögreglu er útlit fyrir að hálkublettirnir hverfi þegar líður á daginn. 9.12.2005 11:48
Kristinn fær engin svör Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, fær ekkert svar við fyrirspurn sinni um íbúðalán banka og sparisjóða. Hann spurði meðal annars hversu mikið hver banki og sparisjóður hefði lánað gegn veði í húsnæði, hversu margir væru í viðskiptum hjá hverjum bankanna í sig og á hvaða kjörum þeir væru. 9.12.2005 11:45
Gary Glitter segist saklaus Fyrrum poppstjarnan Gary Glitter hefur viðurkennt fyrir Víetnömskum yfirvöldum að hafa haft ellefu ára gamla stúlku í rúmi sínu en neitar að hafa misnotað hana. Hinum sextíu og eins árs gamla Glitter er haldið í fangelsi fyrir utan strandborgina Vung Tau, ásakaður um svívirðilegt athæfi með barni en hann er talinn hafa haft kynmök með allnokkrum stúlkum undir lögaldri, þar á meðal er ein ellefu ára og önnur tólf. 9.12.2005 11:15
Bjarni Hafþór ráðinn til KEA Bjarni Hafþór Helgason hefur verið ráðinn fjárfestingastjóri KEA og hefur hann störf um áramót. Hann mun annast framkvæmdastjórn fjárfestingafélaganna Hildings og Upphafs en þau eru dótturfélög KEA. 9.12.2005 11:00
Verður líklega fyrsti kvenkyns forseti Chile Michele Bachelet verður fyrsti kvenkyns forseti Chile, nái hún kjöri í í forsetakosningum á sunnudag. Til að ná kjöri verður forseti að hafa yfir 51 % atkvæða en Bachelet hefur forystuna í skoðanakönnunum með 48% atkvæða. 9.12.2005 10:45
Tveir á sjúkrahús með reykeitrun Eldur kviknaði í einu Bláu húsanna svokölluðu við Faxafen í Reykjavík fyrir um klukkustund síðan og var tvennt flutt á slysadeild vegna gruns um að það væri með reykeitrun. 9.12.2005 10:33
Bíll skorðaðist þversum á Blöndubrú Það var lán í óláni þegar ungur maður missti stjórn á bíl sínum á leið yfir brúna yfir Blöndu í Blöndudal í gærkvöldi að bíllinn skorðaðist þversum á brúnni á milli handriðanna í stað þess að fara út af öðru hvoru megin. 9.12.2005 10:30
Viðurkenna að Rauði krossinn fái ekki aðgang að öllum föngum Rauði krossinn fær ekki aðgang að öllum föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi. Þetta viðurkenndu stjórnvöld í Washington í fyrsta skipti í gær. 9.12.2005 10:00
Hreindýrum fjölgar ört á Grænlandi Hreindýr í Grænlandi hafa aldrei verið fleiri en nú og ef fram fer sem horfir getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði dýr og menn. Politiken greinir frá því að samkvæmt nýjustu talningu Náttúrfræðistofnunar Grænlands hafi hreindýrum í landinu fjölgað um fjórðung á síðustu fimm árum og telur hreindýrastofninn nú um 125 þúsund dýr. 9.12.2005 09:45
Hellisheiði eystri lokað vegna hálku Hellisheiði eystri hefur verið lokað fyrir umferð en þar er flughált. Vegagerðin varar einnig við flughálku á Nesjavallavegi, á Ströndum norðan Bjarnarfjarðar, á Þverárfjallsvegi, Lágheiði, Mývatnsöræfum og á Öxi. 9.12.2005 09:43
Verslunum lokað í Kasmír í mótmælaskyni við skopmyndir Fleiri þúsundum búða og verslana var lokað í gær í indverska hluta Kasmír í mótsmælaskyni við skopmyndir af Múhameð spámanni sem birtust í Jótlands-Póstinum fyrir rúmum tveimur mánuðum. Frá þessu greina fjölmiðlar á svæðinu. 9.12.2005 09:30
Fimmtán fá ríkisborgararétt Fimmtán fá ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi áður en þingi verður frestað fram yfir jól samkvæmt tillögu allsherjarnefndar Alþingis. 21 sótti um að fá ríkisborgararétt, orðið var við beiðni fimmtán en sex hafnað. 9.12.2005 09:15
Samþykktu samning við gæsluna Kjarasamningur skipstjórnarmanna hjá Landhelgisgæslu Íslands var samþykktur með áttatíu og einu prósentu atkvæða. Tuttugu og einn félagi í Félagi skipstjórnarmanna hafði atkvæðisrétt og greiddu allir nema einn atkvæði. 9.12.2005 09:00
Sjúkraliðar samþykkja kjarasamning Sjúkraliðar í Reykjavík hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjavíkurborgar. 28 af 57 á kjörskrá greiddu atkvæði. 27 þeirra greiddu atkvæði með samningnum en einn á móti. 9.12.2005 08:45
Tveir saksóknarar boðaðir í réttarsal Baugsmálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í dag og hafa hvort tveggja Bogi Nilsson ríkissaksóknari og Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari verið boðaðir í þinghaldið. 9.12.2005 08:30
Lögregla fann snáka í Kópavogi Tveir stórir snákar, skammbyssur og töluvert af hassi voru meðal þess sem lögreglan í Kópavogi fann við húsleit í bænum í nótt. Hún naut meðal annars aðstoðar sérsveitarmanna frá Ríkislögreglustjóra við aðgerðina. 9.12.2005 08:15
Drengur í bíl fórst í flugslysi Sex ára gamall drengur lést þegar flugvél rann út af flugbraut á Midway-flugvellinum í Chicago í gærkvöld og út á götu. Vélin, sem er af gerðinni Boeing 737 og var notuð í innanlandsflugi, var í lendingu þegar slysið var. 9.12.2005 08:15
Segir mann ekki hafa sagst vera með sprengju Maðurinn sem var skotinn til bana í flugvél í Miami í fyrradag hrópaði ekki yfir vélina að hann væri með sprengju á sér. Þetta fullyrðir einn farþegi vélarinnar í viðtali við tímaritið Time. Farþeginn segir að lögreglumennirnir hafi verið allt of fljótir að grípa til þess ráðs að skjóta manninn, enda hafi hann verið á leiðinni út úr vélinni og aldrei notað orðið sprengja. 9.12.2005 08:00
Varað við fljúgandi hálku Vegagerðin varar við að flughált er á Þverárfjalli, Lágheiði, Mývatnsöræfum og á Hellisheiði eystri. Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum auk fleiri staða á Suðurlandi, hálka í Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði auk þess sem hálka og hálkublettir eru víða um allt norðanvert landið frá Vestfjörðum til Austurlands. 9.12.2005 07:46
Dæmdur fyrir amfetamínframleiðslu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á fimmtugsaldri í 14 mánaða fangelsi fyrir að framleiða amfetamín í Kópavogi og fyrir fleiri brot, meðal annars fyrir að hóta fólki öllu illu og að ráðast á lækni fyrr á árinu. 9.12.2005 07:45
Páll sveik öll loforð Atli Eðvaldsson, þjálfari knattspyrnuliðs Þróttar, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann greinir frá sinni hlið mála í samskiptum við Pál Einarsson, fyrrverandi fyrirliða Þróttar. Yfirlýsingin er birt í heild sinni í Fréttablaðinu í dag. Páll og Atli gátu ekki starfað saman og lauk ágreiningi þeirra með því að Páll yfirgaf félagið. 9.12.2005 07:30
Lést af völdum fuglaflensu í Taílandi Taílenskur drengur lést af völdum fuglaflensu í vikunni. Banamein piltsins var staðfest í nótt og þar með hafa fjórtán manns látist af völdum fuglaflensu í Taílandi. Alls hafa nú sjötíu manns látist úr flensunni í Asíu allri. 9.12.2005 07:30
Segja forsvarsmenn Merck hafa vitað af aukaverkunum Vioox Virt læknatímarit heldur því fram að lyfjaframleiðandinn Merck hafi vitað af hliðarverkunum gigtarlyfsins Vioxx árið 2000, en ekki afhent upplýsingarnar. Lyfið var ekki tekið af markaði fyrr en í fyrra , þegar ljóst þótti að það tvöfaldaði líkur á hjartaáfalli hjá þeim sem það hefðu tekið í meira en eitt og hálft ár. 9.12.2005 07:15
Hagnaður ríkissjóðs alls 91 milljarður Tekjur ríkissjóðs nema rúmlega 408 milljörðum króna þegar tölur í fjárlögum og fjáraukalögum eru lagðar saman. Gjöldin nema 317 milljörðum. Hagnaðurinn er því 91 milljarður króna. Þar spilar sala Landssímans stærsta hlutverkið. 9.12.2005 07:00
Stökk um borð í rútu með sprengju Að minnsta kosti þrjátíu létust og fjörutíu slösuðust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í gær. Japanar hafa ákveðið að framlengja dvöl herliðs síns í Írak um eitt ár. Árásin var gerð á umferðarmiðstöð í Bagdad en sjálfsmorðsárásarmaðurinn stökk þá um borð í rútu sem var í þann mund að leggja af stað til sjíabæjarins Nasiriyah í suðausturhluta landsins. 9.12.2005 06:45
Sigur fyrir réttarkerfið í landinu "Þetta er ekki aðeins sigur fyrir mig heldur er þetta sigur fyrir réttarkerfið í landinu vegna þess að þetta er fordæmisgefandi dómur," segir Valgerður H. Bjarnadóttir. Hæstiréttur dæmdi í gær að íslenska ríkinu bæri að greiða Valgerði sex milljjónir króna í bætur fyrir að Árni Magnússon félagsmálaráðherra skyldi hafa lagt að henni að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. 9.12.2005 06:30
Slíkur framburður ótækur Sérstakur dómstóll breskra lávarða úrskurðaði í gær að vitnisburð sem fengist hefði með pyntingum væri ekki hægt að nota gegn grunuðum hryðjuverkamönnum. Úrskurðurinn þýðir að taka verður upp mál átta manna sem sitja í öryggisgæslu og á senn að reka úr landinu á grundvelli framburðar fanga úr Guantanamo-búðunum alræmdu. 9.12.2005 06:15
74 verkamenn eru taldir af Talið er að í það minnsta 74 námaverkamenn hafi beðið bana þegar sprenging varð í fyrradag í kolanámu í Hebel-héraði, skammt frá Peking. Þetta er þriðja mannskæða námuslysið í Kína á hálfum mánuði. 9.12.2005 06:15
Krabbameinsleit stór þáttur í að draga úr leghálskrabbameini Leghálskrabbameinsleit er stærsti þátturinn í að draga úr tíðni leghálskrabbameins. Bólusetning kvenna mun ekki koma í veg fyrir nauðsyn þess að konur mæti til leitar. 8.12.2005 22:49
Dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar Lögmaður Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, segir ástæðu þess að Hæstiréttur snýr við dómi Héraðsdóms m. a. þá að ekki nóg með að vera dæmdur fyrir að misbeita valdi sínu, heldur sé félagsmálaráðherra einnig dæmdur fyrir að meiða persónu og æru Valgerðar. Það sé fordæmisskapandi og það sé frekar hlutverk Hæstaréttar en Héraðsdóms að skapa slíkt fordæmi. 8.12.2005 22:35
Bíll lenti þversum á Blöndubrú innri Lögreglan á Blönduósi vinnur nú að því að fjarlægja fólksbíl sem liggur þvert á Blöndubrú innri eftir að ökumaður missti stjórn á bíl sínum. Slysið átti sér stað um níu leytið í kvöld og var ungt par í bílnum og eru þau bæði ómeidd. Blöndubrú innri er í Blöndudal og að sögn lögreglu er flughálka á vegum þar. Um fólksbíl er að ræða og er hann mikið skemmdur en sem fyrr segir liggur bíllinn þversum á brúnni og lokar alveg fyrir umferð. 8.12.2005 22:04
Allt að áttatíu vinnuslys á mánuði Á milli sextíu og fimm og áttatíu vinnuslys verða við Kárahnjúka í hverjum mánuði. Í þriðjungi tilfella missa menn einn dag eða fleiri úr vinnu. Yfirlæknir vinnusvæðisins telur þessa slysatíðni eðlilega miðað við aðstæður. 8.12.2005 20:22
Félagsmálaráðherra fagnar því að málinu sé lokið Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist, í tilefni dóms Hæstaréttar í dag þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða Valgerði H. Bjarnadóttur sex milljónir króna í skaðabætur, fagna því að málinu sé lokið. Hann dragi þó ekki dul á að þessi niðurstaða Hæstaréttar valdi sér vonbrigðum. Í dóminum segir m.a. að félagsmálaráðherra hafi brotið meðalhófsregluna við starfslok Valgerðar sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. 8.12.2005 20:07
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði vill endurskoða kjarasamninga Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að launanefnd sveitarfélaganna þurfi að taka upp kjarasamninga sem gerðir voru síðasta vor. Hann segist ekki sætta sig við sem yfirmaður starfsmannamála Hafnarfjarðarbæjar að starfsfólk þar sé á mun lægri launum en starfsfólk Reykjavíkurborgar. 8.12.2005 19:59
Frumvarpi frestað vegna bruna Iðnaðarráðherra varð að draga frumvarp sitt til baka um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu á þessu þingi, vegna málþófs stjórnarandstöðu. Rætt var um frumvarpið til klukkan tvö í nótt og átti að halda umræðunni áfram klukkan tíu í morgun, en falla varð frá því þegar eldur kviknaði í rafmagnstöflu Alþingis. Formaður Vinstri - grænna segir að orkuiðnaðurinn hafi gripið í taumana. Samkomulag hefur náðst á milli flokkanna um að þinginu ljúki síðdegis á morgun. 8.12.2005 19:58
Taka að sér verkefnastjórn vegna flugvallarins í Kabúl Íslenska friðargæslan mun taka að sér verkefnisstjórn við uppbyggingu flugvallarins í Kabúl í Afganistan, að ósk þarlendra stjórnvalda. 8.12.2005 19:56
Aukin hætta á krónískum öndunarfærasjúkdómum Aukin svifryksmengun hefur mikil áhrif á einstaklinga með öndunarfærasjúkdóma. En svifrykmengun í Reykjavík hefur tuttugu sinnum farið yfir heilsuverndarmörk á árinu. 8.12.2005 19:05
Forstjóri KB banka segir ekkert hæft í ásökunum Íbúðalánasjóðs Íbúðalánasjóð grunar að KB banki hafi brotið lög og góða viðskiptahætti þegar bankinn seldi íbúðabréf sama dag og síðasta útboð sjóðsins fór fram og hefur óskað eftir umsögn Fjármálaeftirlitsins. Forstjóri KB banka á Íslandi segir ekkert hæft í þessum ásökunum. 8.12.2005 18:23
Slökkviliðið á útopnu vegna vatnsflóðs Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið á útopnu út um allan bæ í dag vegna vatnsflóðs í kjallara húsa. Allir dælubílar slökkviliðsins hafa verið notaðir og hafa á stundum allir verið úti í einu. Á fimmta tímanum var kallaður út aukamannskapur eftir að aðalæð í holræaleiðslum á mótum Laufásvegar og Baldursgötu fór í sundur. 8.12.2005 18:00
Félagsmálaráðherra braut meðalhófsregluna Félagsmálaráðherra braut meðalhófsregluna við starfslok Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Hæstiréttur dæmdi henni 6 milljónir króna í bætur. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað íslenska ríkið af kröfu Valgerðar. 8.12.2005 17:38
5 stjörnu vegir á Íslandi Fimm stjörnu bílar á fimm stjörnu vegum, er markmið Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem í dag kynnti nýtt verkefni í samstarfi við Umferðarstofu og Samgönguráðuneyti þar sem gerðar eru ítarlegar öryggisúttektir á íslenskum vegum undir merkjum EuroRAP. 8.12.2005 16:01
Getur vel séð fyrir sér að verslunarmannafélög sameinist öll Formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur getur vel séð fyrir sér að verslumannafélög landsins sameinist í eitt félag á næstu árum, en Reykjavíkurfélagið hefur nýverið gengið frá samkomulagi sem ljúka á með sameiningu við verslunarmannafélögin í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum. 8.12.2005 15:54