Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bóman inn á bílastæði Byggingarkrani sporðreistist skammt neðan Landspítala í Fossvogi í gær og lagðist bóman ásamt hlassinu þvert yfir Sléttuveg og inn á bílastæði Landspítalans. Mildi þykir að enginn skyldi slasast því umferð að spítalanum er að jafnaði talsverð. 19.10.2005 00:01
Afhentu Stígamótum 1,5 milljónir Stígamót tóku á móti 1,5 milljóna króna styrk í dag, en féð safnaðist á uppskeruhátíð byggingariðnaðarins í samvinnu við Steypustöðina. Þar voru seld vinabönd með áletruninni „Sombody to love“ til styrktar Stígamótum. Vísar texti bandanna í texta hljómsveitarinnar Queen, en tónlist þeirra var þema hátíðarinnar að þessu sinni. 19.10.2005 00:01
Borða allt nema grænmetið Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu. 19.10.2005 00:01
Herferð gegn Darwinisma Bandarískur dómstóll fjallar nú um hvort grunnskóli nokkur megi kenna svonefnda heimshönnuðarkenningu sem valkost við þróunarkenninguna. 19.10.2005 00:01
Íbúar mótmæla framkvæmdum Íbúar við Skaftahlíð í Reykjavík hafa sent úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála kæru þar sem farið er fram á að felld verði úr gildi ákvörðun um að veita eigendum húsnæðis á Skaftahlíð 24 sem nýtt er af 365 fjölmiðlum byggingarleyfi á lóðinni. Um hundrað manns mættu á mótmælafund sem haldinn var í fyrradag. 19.10.2005 00:01
Forsetahjón heimsækja Hafnarfjörð Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú fara í opinbera heimsókn til Hafnarfjarðar í dag. 19.10.2005 00:01
Atvinnuleysi aldrei minna Atvinnuleysi á Íslandi mælist nú í sögulegu lágmarki, eða 1,8 prósent, samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands. Aðeins einu sinni áður hefur atvinnuleysi mælst jafnlítið og var það í nóvember 1999 að sögn Lárusar Blöndal, deildarstjóra á hagstofunni. 19.10.2005 00:01
Á rétt á tæpum 2 milljónum Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra, hefur störf sem seðlabankastjóri í dag. Samkvæmt nýju eftirlaunalögunum hefur Davíð rétt á töku eftirlauna fyrir ráðherratíma sinn auk þess að þiggja laun sem seðlabankastjóri. 19.10.2005 00:01
Allt að 79.000 taldir af Stórir eftirskjálftar riðu yfir pakistanska Kasmír í gær og fylgdu þeim skriðuföll. Nú er talið að allt að 79.000 manns hafi farist í skjálftanum mikla 8. október. 19.10.2005 00:01
Einn heima með látinni móður Lögregla í Edinborg -braust inn í íbúð í Leith um helgina og fann þar þriggja ára gamlan dreng illa á sig kominn. Í íbúðinni var einnig lík móður hans en talið er að hún hafi látist hálfum mánuði áður. 19.10.2005 00:01
Róstur á upphafsdegi réttarhalda Uppreisnarmenn úr hópi súnnía myrtu nítján manns í Írak á opnunardegi réttarhaldanna yfir Saddam Hussein. 19.10.2005 00:01
Reifst og skammaðist við dómarann Í réttarhöldunum sem hófust í gær yfir Saddam Hussein og sjö samverkamönnum hans kvaðst einræðisherrann fyrrverandi vera saklaus. Dómhaldi hefur verið frestað um nokkrar vikur. 19.10.2005 00:01
Hætt í Seðlabankaráði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að verða leyst undan setu í bankaráði Seðlabankans. Hún hefur ritað forseta Alþingis bréf þessa efnis sem lagt verður fyrir á fundi Alþingis í dag. 19.10.2005 00:01
Varðveitum sátt fjölmiðlanefndar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði forsætisráðherra í upphafi þingfundar í gær hvort til stæði að rjúfa þá sátt sem hún teldi liggja fyrir í fjölmiðlamálinu og lagður hefði verið grunnur að í fjölmiðlanefnd sem skilaði niðurstöðum sínum síðastliðið vor. 19.10.2005 00:01
Engin einkavæðing strax <font size="1"> </font>„Einkavæðing Landsvirkjunar hefur ekki verið rædd í ríkisstjórninni," segir Halldór Ásgrímsson forsætisræðaherra. Halldór segir að verið sé að stíga þar fyrstu skrefin til breytinga á raforkumarkaðnum og menn sjái ekki alveg hvernig það muni ganga. 19.10.2005 00:01
Enginn fundur Ekkert varð af fyrirhuguðum fundi íslensku og bandarísku samninganefndanna í gær um endurskoðun varnarsamningsins. Fundinn átti að halda í Bandaríkjunum og var íslenska samninganefndin farin utan. 19.10.2005 00:01
Segir lyfsala vera með hótanir Formaður Lyfjagreiðslunefndar segir lyfsala hóta að skrúfa fyrir afslátt á lyfjaverði í kjölfar fullyrðinga um að verðlækkanir komi sjúklingum ekki til góða. 19.10.2005 00:01
Réðst á lögregumenn með hnífi Málflutningi í máli manns sem ákærður er fyrir að hafa ráðist á lögreglumenn með hnífi í fyrra og hótað barnsmóður sinni lífláti lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn neitar sök. 19.10.2005 00:01
Skoða ný lög um sölu ríkiseigna Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur að endurskoða þurfi verklagsreglur um einkavæðingu og hugsanlega setja lög um sölu ríkiseigna. Hann hyggst nú skipa starfshóp sem í samráði við framkvæmdanefnd um einkavæðingu á að gera á tillögur um hvort rétt sé að endurskoða verklagsreglurnar. Tillaga Halldórs var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gær. 19.10.2005 00:01
Hættir að taka við sjúklingum Sjálfstætt starfandi hjartasérfræðingar íhuga nú að segja upp samningi við Tryggingastofnun ríkisins, að sögn Axels Sigurðssonar sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt starfandi hjartalækna. Þeir eru farnir að stöðva bókanir þar til eftir áramót, nema mikið liggi við. Þetta á sér einnig stað í öðrum sérfræðigreinum. 19.10.2005 00:01
Lífslíkur aukast Ný bresk rannsókn sýnir að lífslíkur hafa aukist meðal kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein. Danskar rannsóknir benda til svipaðra niðurstaða. Ný lyf og bætt meðferðarúrræði hafa á síðustu áratugum aukið lífslíkur meðal þeirra sem greinast með brjóstakrabbamein. 18.10.2005 00:01
Minningardagskrá á Flateyri Flateyringar heima og heiman hyggjast minnast þess 26 október næstkomandi að tíu ár eru liðinn frá snjóflóðunum mannskæðu á þorpið við Önundarfjörð. Mun skipulögð dagskrá fara fram allan daginn auk þess sem sérstök minningardagskrá mun fara fram að kvöldi dags í íþróttahúsi staðarins. 18.10.2005 00:01
Forsendur kjarasamninga ræddar Fulltrúar Verkalýðshreyfingarinnar og fulltrúar Samtaka Atvinnulífsins munu í dag ganga til fundar við forystumenn ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðinu þar sem forsendur kjarasamninga verða ræddar. 18.10.2005 00:01
Bretar bregðast við fuglaflensu Landlæknir í Bretlandi segir ekki ólíklegt að 750 þúsund manns smitist af fuglaflensu í Bretlandi á næstu tveimur árum. 18.10.2005 00:01
Ung stúlka finnst á lífi Sex ára stúlku var bjargað úr rústum húss í fjallaþorpi austur af Balakot í Pakistan í dag en níu dagar eru síðan jarðskjálfti af stærðinni 7,6 á Richter reið yfir norðurhluta landsins. 18.10.2005 00:01
Átak hjá Selfosslögreglu Ljósabúnaði var áfátt á fimmtíu og sjö bílum af þeim 290, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær, einkum til að kanna ástand ljósa. Þetta var fyrsti dagur í þriggja daga átaki Selfosslögreglunnar á þessu sviði. Ökumenn fengu áminningu, en nokkrir voru sektaðir vegna annarra atriða, sem voru í ólagi. 18.10.2005 00:01
Biðraðir til trafala Eigandi veitingastaðar í Whitby á Norður Englandi á yfir höfði sér kæru vegna gríðarlegra biðraða við veitingastaðar hans. Ekki er óalgengt að sjá yfir eitt hundrað manns í biðröð eftir að komast inn en kokkurinn, sem er verðlaunakokkur, hefur auglýst að þar sé að fá besta fisk og bestu franskar í heimi. 18.10.2005 00:01
Baðolía í stað vodka Vodki hefur lengi vel verið vinsæll drykkur í Rússlandi og ódýr. Svo virðist þó sem nýr drykkur hafi tekið við hjá þeim Rússum sem hafa einfaldlega ekki efni á vodka, sem kostar frá 140 krónum, og drekka þeir því í staðinn baðolía sem inniheldur mikið magn af alcoholi og kostar aðeins 30 krónur. 18.10.2005 00:01
Fáir ferðamenn í New Orleans Illa gengur að fá ferðamenn til New Orleans þrátt fyrir öfluga markaðsherferð heimamanna til að fá fólk til borgarinnar. Bourbon stræti, sem er hvað þekktust fyrir líflega tónlist og góða veitingastaði, hefur smám saman verið að taka við sér. 18.10.2005 00:01
Starfslokasamningur kærður Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur nú fengið til rannsóknar starfslokasamning Jóhannesar Sigurgeirssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sameinaða Lífeyrissjóðsins, sem hann og stjórn sjóðsins gerðu þegar Jóhannesi var gert að víkja störfum vegna bágrar afkomu sjóðsins fyrir ári. 18.10.2005 00:01
Vill takmarka eignarhald fjölmiðla Geir H Haarde, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að hann telji að málamiðlum fjölmiðlanefndarinnar, svokölluðu um að eignharhald eins aðila eða aðila honum tengdum megi ekki vera meira en 25%, sé of há. 18.10.2005 00:01
Sífellt fleiri í framhaldsnám Aldrei hafa fleiri útskrifast úr námi á háskólastigi á Íslandi og á skólaárinu 2003 - 2004. Sama má segja um útskrifaða nema af framhaldsskólastigi. Örlítil fækkun er þó í útskrift nýstúdenta en sífellt fleiri útskrifast með stúdentspróf verkgreina og viðbótarnám til stúdentsprófs að loknu starfsnámi. 18.10.2005 00:01
Enn í haldi Rússa Norskum strandgæslumönnum er enn haldið nauðugum um borð í rússneska togaranum Electron sem stefnir á Múrmansk í Rússlandi eftir að norskt varðskip skipaði því að stöðva á Barentshafi vegna ólöglegra veiða. Skipið er nú komið inn í rússneska landhelgi. 18.10.2005 00:01
Lithárnir án atvinnuleyfis Forsvarsmenn Afls Starfsgreinafélags á Austurlandi segja ljóst að enginn leyfi né samningar séu til staðar fyrir fjóra Litháa sem starfað hafa hjá fyrirtækinu Járn@járn á Reyðarfirði undanfarið. Lögregla hefur gefið fyrirtækinu frest til morguns til að afla gagna í málinu. 18.10.2005 00:01
Fær að leiða fram vitni Hæstiréttur hefur samþykkt kröfu Lúðvíks Gisurarsonar um að fá að leiða fram vitni sem varpað gætu ljósi á meint ástarsamband móður hans og Hermanns Jónassonar, fyrrverandi forsætisráðherra og lögreglustjóra í Reykjavík. Lúðvík heldur því fram að Hermann hafi verið faðir hans og eru vitnaleiðslurnar liður í viðleitni hans til að fá lífsýni úr Hermanni heitnum. 18.10.2005 00:01
Sýknuð af kókaínsmygli Sautján ára stúlka sem ákærð var fyrir smygl á kókaíni í Bretlandi var nú fyrir stundu sýknuð. Stúlkan kom fyrir dómara í Inner London Crown Court. Hún hélt því fram fyrir dómi að hún hefði verið burðardýr og haldið að hún væri að flytja peninga. Stúlkan grét við dómsuppkvaðningu þegar henni var ljóst að hún yrði látin laus. 18.10.2005 00:01
Veggur mældur á 27 kílómetra hraða Það er ekki alltaf að marka hraðamælingar lögreglunnar. Það sannreyndu blaðamenn breska dagblaðsins Daily Mail þegar þeir prófuðu radarmæla lögreglunnar. Veggur, sem eðli málsins samkvæmt var kyrrstæður, mældist á tuttugu og sjö kílómetra hraða og kyrrstæður bíll á bílastæði mældist á fjórtán kílómetra hraða. 18.10.2005 00:01
Kastaði köku í nýja ráðherrann Kristin Halvorsen fékk óblíðar móttökur þegar hún mætti í fjármálaráðuneytið í fyrsta skipti eftir að hafa tekið við embætti fjármálaráðherra í norsku ríkisstjórninni, að því er vefútgáfa Verdens Gang greinir frá. 18.10.2005 00:01
Skoða reglur einkavæðingarnefndar Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa starfshóp til að skoða verklagsreglur einkavæðingarnefndar og athuga hvort ástæða sé til að breyta þeim. Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis. 18.10.2005 00:01
Stöðvar ekki fyrr en í Rússlandi Skipstjóri rússneska togarans sem er á flótta undan norskum varðskipum með tvo norska strandgæslumenn innanborðs segist ekki ætla að nema staðar fyrr en hann er kominn í rússneska landhelgi. 18.10.2005 00:01
Bankar í höndum vinstrimanna Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, skammaði marga helstu bankastjóra landsins í dag fyrir að taka þátt í prófkjörum vinstriflokka á Ítalíu um síðustu helgi. Stjórnendur fjögurra af helstu bönkum landsins greiddu atkvæði í prófkjöri þar sem Romano Prodi, fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bar sigur úr býtum. 18.10.2005 00:01
Vilma orðin að fellibyl Hitabeltisstormurinn Vilma er nú formlega orðin að fellibyl. Vindkviðurnar ná allt að eitthundrað sjötíu og sjö kílómetra hraða á klukkustund en þegar vindhraðinn er kominn í eitthundrað og nítján kílómetra á klukkustund eru óveður skilgreind sem fellibylir. 18.10.2005 00:01
Gruna tengdabróður Assad um morð Tengdabróðir Bashar al-Assad Sýrlandsforseta er meðal þeirra sem liggja undir grun um morðið á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta kemur fram í skýrslu þeirra sem hafa rannsakað morðið fyrir Sameinuðu þjóðirnar að sögn þýska blaðsins Stern. 18.10.2005 00:01
Kenneth Clarke kosinn út Kenneth Clarke, fyrrum fjármálaráðherra Bretlands, varð fyrsti frambjóðandinn til leiðtogaembættis breska Íhaldsflokksins til að falla úr leik. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði um frambjóðendurna fjóra rétt í þessu og fékk Clarke fæst atkvæði. David Davis fékk flest atkvæði, en 62 af 198 þingmönnum greiddu honum atkvæði sitt. 18.10.2005 00:01
Leyfir ekki innflutning erfðaefnis Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir ekki koma til greina að leyfa innflutning erfðaefna til að blanda við íslenska kúastofninn. Hann furðar sig á ályktun borgfirskra bænda um að undirbúningur að slíkum innflutningi skuli hafinn. 18.10.2005 00:01