Fleiri fréttir

Kanóar horfnir af götunum

Tekist hefur að dæla öllu vatni burt af götum Hafnar í Hornafirði, að sögn Helga Más Pálssonar bæjarverkfræðings. Bæjarbúar eru því hættir að róa um göturnar á kanóum og geta gripið til bílanna á ný.

Björn finnur saksóknara

Björn Bjarnason sagði í Silfri Egils  í gær að hann myndi sennilega taka ákvörðun um nýjan saksóknara sem á að taka við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu. Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá málinu fyrir helgi.

Óljóst hvað gerðist

Bilun varð hjá þjónustuaðila Farice-sæstrengsins aðfaranótt sunnudags. Í gær var enn ekki ljóst hvað hefði valdið biluninni.

Brot á samkeppnislögum

Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að sú ákvörðun að semja ekki við klíníska sálfræðinga um greiðsluþátttöku ríkisins í kostnaði sjúkratryggðra gangi gegn markmiðum samkeppnislaga. 

Spara tugþúsundir í matarinnkaupum

Um 33 þúsund krónum minna færi í matarinnkaup hjá meðalfjölskyldu á ári, ef matarskatturinn verður lækkaður úr fjórtán prósentum í sjö.

Ófrjósemisaðgerðum fjölgar

Tæplega þrjú hundruð karlar gangast undir ófrjósemisaðgerð á ári en fyrir 25 árum voru þeir aðeins um þrjátíu. Þvagfæraskurðlæknir segir dæmi um að karlar hafi einnig látið endurtengja sig. Það geta konur ekki gert. 

Bundið í stjórnarsáttmála

„Þetta var hluti af okkar landsfundarályktun síðast og hluti af okkar kosningastefnuskrá,“ sagði Geir H. Haarde á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um matarskattinn. Séra Halldór Gunnarsson í Holti spurði ráðherrann um þetta stefnumál flokksins.

Ofbeldismaður áfram í haldi

 „Árásin var mjög hrottaleg og hending virðist hafa ráðið því að ekki fór verr,“ segir í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness yfir ofbeldismanninum unga sem réðst á jafnaldra sinn, átján ára gamlan, með sveðju í samkvæmi í Garðabæ.

Samstaða um nýjan skóla

Átta af tíu þingmönnum Norðausturkjördæmis og einn þingmaður úr Norðvesturkjördæmi hafa endurflutt á alþingi þingsályktunartillögu um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð en tillagan var einnig lögð fram á síðasta þingi.

Þorpið fylgir ráðherranum

Einar K. Guðfinnsson hélt sína fyrstu ræðu sem sjávar­útvegsráðherra á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda á Grand hóteli.

500 milljarða halli í sjö ár

Steingrímur J. Sigfússon vill yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um að stjóriðjuframkvæmdir verði stöðvarðar til ársins 2012.  Engin höft segir forsætisráðherra.

Verslun varð að félagsmiðstöð

 „Maður verður einhvern veginn að bjarga sér þegar kreppir að,“ segir Ísak Sigurgeirsson en hann og eigin­kona hans, Senee Sankla, eiga verslunina Ásbyrgi í Kelduhverfi sem nú skiptir um hlutverk.

Hundruð óþekktra líka í líkhúsunum

Hundruð óþekktra líka eru enn í líkhúsum í New Orleans og gengur hægt að bera kennsl á þau. Fjölmargir borgarbúar leita ástvina sinna og eru reiðir sökum þess hversu hægt gengur að fá upplýsingar um örlög þeirra.

Nýr erfðaprins í Danmörku

Danir eignuðust nýjan erfðaprins í nótt þegar María Elísabet krónprinsessa ól dreng laust fyrir klukkan tvö að dönskum tíma á Háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Faðirinn, Friðrik krónprins, var viðstaddur fæðinguna og þegar hann ávarpaði blaðamenn í morgun fór hann ekki leynt með þá gleði sem hann fann fyrir þegar erfinginn kom í heiminn.

Ófærð á Austurlandi

Ófært er um Hvalnes og Þvottárskriður og ekki er víst um að það náist að opna þar í dag samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá er lokað á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs vegna vatnavaxta. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að ástæðulausu á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar vegna skriðuhættu. Það rignir mikið á þessu svæði.

Fuglaflensa í Rúmeníu banvæn

Fuglaflensustofninn sem greindist í fuglum í Rúmeníu er sá stofn sem reynst hefur mönnum banvænn, H5N1. Rannsóknir hafa staðfest þetta og var greint frá tíðindunum fyrir stundu. Þetta staðfestir enn frekar að banvæni stofninn hefur borist til Evrópu. Sextíu hafa týnt lífi í Asíu af völdum fuglaflensunnar þó að hún berist sjaldan frá dýrum í menn.

Kosningaþáttaka góð í Írak

Kosningaþátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá í Írak er sögð hafa verið nokkuð góð og einkum þykir það tíðindum sæta að súnnítar virðast hafa ákveðið að sniðganga ekki kosningarnar eins og þeir gerðu í stórum stíl í við þingkosningarnar í janúar.

Skjálftahrina austur af Grímsey

Skjálftahrina gengur yfir um fimmtán kílómetra austur af Grímsey. Frá því síðdegis í gær hafa um 200 skjálftar mælst á svæðinu, nokkrir stórir, en sá stærsti mældist 3,7 stig á Richter.

Dóu þegar hús hrundi í Barcelona

Fimm fórust þegar þriggja hæða fjölbýlishús í Barcelona á Spáni hrundi til grunna í nótt. Það voru einkum innflytjendur frá Norður-Afríku sem bjuggu í húsinu sem var byggt á átjándu öld. Ekki er vitað um ástæður þess að byggingin hrundi en björgunarsveitir eru enn á vettvangi.

Sleppt eftir yfirheyrslu um dóp

Tveimur karlmönnum og tveimur konum, sem handtekin voru í íbúð í Kópavogi í gær eftir að talsvert magn fíkniefna fannst þar, hefur verið sleppt. Yfirheyrslum yfir fólkinu lauk síðla dags í gær og telst málið upplýst.

Bílvelta á Reykjanesbraut

Bíll valt á Reykjanestbraut til móts við Hafnaveg um klukkan hálfátta í morgun. Þrennt var í bílnum og slasaðist fólkið lítillega en það var flutt á Heilsugæslustöðina í Keflavík til aðhlynningar.

Róleg nótt á höfuðborgarsvæðinu

Nóttin var með allra rólegasta móti hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og virðist sem fáir hafi verið á ferli. Fáir munu hafa verið í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld og nótt og þá hafði lögregla í Kópavogi og Hafnarfirði lítið að gera. Einn var þó stöðvaður grunaður um ölvunarakstur í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglunnar og tveir voru stoppaðir vegna sömu saka í Reykjavík.

Yfir 38 þúsund látnir í Pakistan

Pakistönsk yfirvöld telja nú að yfir 38 þúsund manns hafi látist af völdum jarðskjálftans sem skók Suður-Asíu fyrir viku, en það er þrettán þúsundum fleiri en talið var í upphafi. Talsmaður Pakistanshers segir að talan hafi hækkað þar sem komið hafi í ljós að fjölmargir hefðu látist í afskekktum héruðum sem björgunarmenn komust ekki til fyrr en nokkrum dögum eftir skjálftann. Þá er tala slasaðra komin upp í 60 þúsund.

Gripið til aðgerða innan 3 vikna

Mannskæði stofn fuglaflensunnar hefur nú fundist í Rúmeníu. Sérfræðingar Evrópusambandsins vilja grípa til aðgerða innan þriggja vikna. Á sama tíma berast af því fregnir að helsta vörnin gegn flensunni, flensulyfið Tamiflu, dugi ekki til.

Búið að opna Hvalnesskriður

Búið er að opna Hvalnesskriður en enn er ófært um Þvottárskriður og ekki er víst að það náist að opna þær í dag. Lokað er á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs vegna vatnavaxta. Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferð að ástæðislausu á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar vegna skriðuhættu. Það rignir mikið á þessu svæði.

Fimmtán milljónir á kjörskrá

Fimmtán milljónir Íraka hafa í dag tækifæri til að kjósa um stjórnarskrá landsins. Kosningaþátttaka er sögð góð þrátt fyrir árásir og hótanir uppreisnar- og hryðjuverkamanna.

Margir búa undir berum himni

Staðfest hefur verið að ekki færri en 38 þúsund týndu lífi í jarðskjálftanum í Kasmír fyrir viku. Talið er að allt að tvær og hálf milljón hafi misst heimili sín og hafist við undir berum himni í nýstingskulda.

Rjúpnaveiði hafin á ný

Rjúpnaveiðimenn taka eflaust gleði sína á ný því í dag hófst rjúpnaveiði eftir tveggja ára veiðibann.

Mikil gleði í Danmörku vegna prins

Mikil gleði ríkir í Danmörku vegna fæðingar litla prinsins í nótt. Krónprinsaparið Friðrik og María eignaðist 14 marka son sem var 51 sentímetri.

Berrössuð á diskói í Lundúnum

Hundruð breskra skemmtanafíkla streyma hverja helgi á næturklúbb í Lundúnum. Ástæðan er ekki endilega sú að klúbburinn er sá flottasti í borginni heldur að hann er sá eini þar sem allir skemmta sér berrassaðir.

Vilja úttekt á flutningi flugs

Samgöngunefnd landsfundar Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til að gerð verði flugtæknileg, fjárhagsleg, öryggisleg og hagsmunaleg úttekt á því að hvort færa eigi miðstöð innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni og byggja upp flugvöll á stórhöfuðborgarsvæðinu, sem sátt gæti náðst um á landsvísu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi nefndarinnar í dag.

Bandaríkjaher nær rakara í Írak

Bandaríkjaher greindi frá því í dag að tekist hefði að handsama mann sem grunaður er um að hafa verið rakari háttsettra al-Qaida liða í Írak og aðstoðað þá við að breyta útliti sínu þannig að þeir kæmust undan. Maðurinn, sem gengur undir því frumlega nafni Rakarinn, var handtekinn í síðasta mánuði ásamt öðrum manni sem talinn var náinn aðstoðarmaður Abus Azzams, næstæðsta manns al-Qaida í Írak, sem drepinn var 23. september síðastliðinn.

Úrhelli á Suðausturlandi

Úrhelli hefur verið á Suðaustur- og Austurlandi í nótt og í dag og hafa verið töluverðir vatnavextir í ám og fljótum. Slökkvilið á Höfn í Hornafirði var kallað út í nótt vegna þess að það flæddi inn í hús við Hæðargarð og var vatni dælt þaðan. Lögregla á Höfn kannar nú ástand vega á leiðinni til Reykjavíkur og að sögn hennar er töluverður vöxtur í ám en þó ekki þannig að flætt hafi yfir þjóðveginn.

Níu manns í Tyrklandi ekki sýktir

Heilbrigðisyfirvöld í Tyrklandi greindu frá því í dag að níu manns, sem lagðir voru inn á sjúkrahús í vesturhluta landsins vegna gruns um að fólkið hefði smitast af fuglaflensu, hefði verið leyft að fara heim. Rannsóknir leiddu í ljós að fólkið var ekki með hina banvænu fuglaflensuveiru H5N1, en staðfest var að veiran hefði greinst í fuglum í landinu á fimmtudag.

Mannskætt rútuslys í Bangladess

Að minnsta kosti 18 létust og 25 slösuðust þegar rúta fór út af vegi og lenti í fljóti í norðurhluta Bangladess í dag. Fimmtí farþegar voru í rútunni þegar hún steyptis í ána. Ekki er ljóst hvers vegna rútan fór út af veginum.

Lítið um árásir á kjördag í Írak

Kjörstöðum í Írak vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórnarskrá landsins var lokað klukkan tvö að íslenskum tíma. Flest bendir til að kjörsókn hafi verið góð. Fimmtán milljónir Íraka voru á kjörskrá og var búist við að fleiri myndu neyta atkvæðisréttar síns nú en í þingkosningum sem fóru fram í lok janúar á þessu ári.

Bandaríkjamenn yfirgefi ekki Íraka

Bandaríkjamenn munu ekki yfirgefa Íraka eins og þeir yfirgáfu Víetnama í stríðinu þar á sínum tíma. George Bush, forseti Bandaríkjanna, lýsti þessu yfir fyrir stundu. Hann fagnaði kosningunni um stjórnarskrá landsins og sagði hana skref í lýðræðisátt.

Vatnselgur á Höfn í Hornafirði

Mikill vatnselgur er á götum Hafnar í Hornafirði og hefur víða flætt inn í kjallara húsa. Rignt hefur látlaust síðan í gærmorgun og mældist sólarhringsúrkoma í Akurnesi 149 millímetrar. Fram kemur á vefnun hornafjörður.is að bæjarstarfsmenn hafi staðið í ströngu við að dæla burt vatni úr og frá húsum því fráveitukerfið hafi ekki undan.

Vilja banna sölu á byssum

Bann við sölu á byssum og skotfærum til almennra borgara í Brasilíu gæti orðið raunin áður en langt um líður. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu þess efnis og mun þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram um málið í lok mánaðarins en það er í fyrsta sinn sem málefni af þessum toga er lagt í dóm almennings. Rúmlega 36 þúsund manns létust af skotsárum í Brasilíu á síðasta ári, fleiri en í nokkru öðru landi veraldar.

Sprengjutilræði í Suðvestur-Íran

Tveir létust og 50 særðust þegar tvær sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í borginni Ahvaz í suðvesturhluta Írans fyrir stundu. Sprengjurnar sprungu við verslunarmiðstöð í miðborg Ahvaz. Enginn hefur lýst ábyrgð á árásunum en róstursamt hefur verið á svæðinu í Khuzestan-héraði, meginolíuhéraði Írans.

Framsókn minnst í borginni

Framsóknarflokkurinn mælist minnstur allra flokka í borginni samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, en aðeins 2,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu styðja hann. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur fylgis tæplega 46 prósenta en Samfylkingin er með næstmest fylgi, eða 30,8 prósent. Vinstri - grænir fengju 14,8 prósent ef kosið yrði nú en frjálslyndir 3,9 prósent.

Telja 10 milljónir hafa kosið

Kjörstjórn í Írak telur að um tíu milljónir manna hafi kosið í þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórrnarskrá landsins í dag en það eru um tveir þriðju hluta manna sem voru á kjörskrá. Endaleg kjörsókn liggur ekki fyrir en Reuters-fréttastofan hefur eftir einum kjörstjórnarmanna, Farid Ayar, að hann hafi vonast eftir um 11 milljónum á kjörstað en líklega náist sú tala ekki, m.a. vegna þess að föstumánuðurinn Ramadan stendur yfir.

Hrafn á lokasprettinum í maraþoni

Hrafn Jökulsson hefur nú lokið 239 skákum af 250 í maraþontafli sínu sem hann hóf í Kringlunni klukkan níu í gærmorgun. Búist er við að hann ljúki skákunum 250 á næsta klukkutímanum, en hann hafði sett sér það markmið að klára þær á innan við 40 klukkustundum.

Howard sendir Maríu heillaóskir

John Howard, forsætisráðherra Danmerkur, óskaði í dag Maríu Elísabetu, krónprisessu Danmerkur, til hamingju með frumburðinn, en hún og Friðik krónpins eignuðust í nótt hraustan dreng á Háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Howard sagði á blaðamannafundi í dag að hann væri viss um að öll ástralska þjóðin sendi Maríu heillaóskir, en eins og kunnugt er er María frá Ástralíu.

Vatnsyfirborð nær upp að vegi

Lögreglan á Höfn hefur í dag kannað ástand vega á leiðinni til Reykjavíkur. Að sögn hennar er töluverður vöxtur í ám og nær vatnsyfirborðið á nokkrum stöðum í umdæmi hennar upp að þjóðveginum. Þó mun vera óhætt að aka þar um en fólki er bent á fara með gát.

Sjá næstu 50 fréttir