Margir búa undir berum himni 15. október 2005 00:01
Staðfest hefur verið að ekki færri en 38 þúsund týndu lífi í jarðskjálftanum í Kasmír fyrir viku. Talið er að allt að tvær og hálf milljón hafi misst heimili sín og hafist við undir berum himni í nýstingskulda. Yfirvöld töldu þar til í morgun að fjöldi látinna væri nærri 25 þúsundum, en eftir að fregnir tóku af berast frá einangruðum byggðum og bænum Balakot hækkaði talan í 38 þúsund. Talsmenn stjórnvalda segja allar líkur á að hún muni enn hækka. Úrhellisrigning og haglél varð þess valdandi að allt björgunarflug lá niðri í morgun þar sem þyrlur geta ekki flogið undir þeim kringumstæðum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna telja að milljón sé heimilislaus en heimamenn segja nær lagi að gera ráð fyrir að tvær og hálf milljón hafi misst heimili sín. Mikilvægt er að koma fólkinu til bjargar sem fyrst þar sem vetur er í nánd. Víðast hvar hefst fólk við meira og minna undir berum himni en bráðabirgðatjaldborgir spretta upp hratt. Fólk safnar öllu sem það getur til að mynda einhvers konar skjól sem dugir þó lítið þegar gengur á með þrumum og eldingum og hitastigið yfir nóttina er aðeins þrjár gráður. Fólk brennir drasli, timbri úr húsarústum og jafnvel fötum sem hjálparstofnanir hafa flutt á staðinn til að halda á sér hita. Fnykur af þessu brennandi drasli blandast nálykt af líkum í húsarústum. Talsmenn hjálparstofnana hafa ekki síst áhyggjur af börnum við þessar kringumstæður og segja sérfræðingar barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna að þau séu í bráðri lífshættu. Börnin eigi erfitt með að þola vannæringu, kulda og jafnvel farsóttir. Starfsfólk Oxfam á hamfarasvæðinu segir að þegar hafi borist fregnir af börnum sem lifðu af skjálftann en þoldu ekki afleiðingarnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Sjá meira