Erlent

Mikil gleði í Danmörku vegna prins

Mikil gleði ríkir í Danmörku vegna fæðingar litla prinsins í nótt. Krónprinsaparið Friðrik og María eignaðist 14 marka son sem var 51 sentímetri. 37 ára er krónprins Friðrik orðin faðir í fyrsta sinn. Hin ástralska eiginkona hans María, sem er 33 ára, fæddi heilbrigðan son í nótt, þegar klukkuna vantaði þrjár mínútur í tvö að dönskum tíma. Fæðingin fór fram á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og tók um 10 klukkustundir. Danir sofnuðu þó spenntir því í gærkvöldi bárust fréttir af því að María prinsessa væri komin á sjúkrahúsið, þótt ekki væri staðfest að fæðingin væri farin af stað.  Fulltrúar danskra fjölmiðla biðu spenntir fyrir utan Ríkisspítalann í alla nótt og aukafréttatímar hafa verið í sjónvarpi í morgun. Á blaðamannafundi í anddyri sjúkrahússins í morgun sagði prins Friðrik tilfinningar þeirra hjóna ólýsanlegar og viðurkenndi að hann hefði fellt tár með þeim orðum að á svona stundu ætti maður ekki að leika Súpermann. Drottningin hefur heimsótt fjölskylduna á spítalann og nú í hádeginu var skotið 21 fallbyssuskoti til heiðurs nýfædda prinsinum. Danska þjóðin getur sem dæmi nýtt tæknina til að senda heillaóskir í gegnum SMS-þjónustur og rúlla kveðjurnar stanslaust yfir borða sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Tekið verður á móti gjöfum frá almenningi í Amalíuborgarhöllinni í Kaupmannahöfn í dag og á morgun. Klukkan hálfsjö að dönskum tíma verða tendraðir 200 bálkestir um alla Danmörku til að fagna fæðingu litla prinsins, en sérfræðingar veðja á að eitt fjögurra nafna hans verði Kristján samkvæmt hefðinni. Litli prinsinn er þriðja barnabarn Margrétar drottningar og prins Hinriks, en fyrir eiga hin nýskildu Jóakim og Alexandra tvo drengi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×