Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Engin kona forstjóri skráðu félagi Engin kona er forstjóri í skráðu fyrirtæki í Kauphöll Íslands og konur eru aðeins sjö komma fjögur prósent stjórnarmanna. Nefnd, sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði, hefur kynnt tillögur um hvernig fjölga megi konum í stjórnum fyrirtækja. 14.10.2005 00:01
Byssugelt í Haag fyrir stundu Byssugelt heyrðist í Haag í Hollandi fyrir nokkrum mínútum í kjölfar aðgerða lögreglu vegna hryðjuverkaviðvörðunar. Ekki er vitað hver skaut eða hvers vegna. Lögreglumenn umkringdu byggingu þar sem Jan Peter Balkenende forsætisráðherra og fleiri hafa skrifstofur. 14.10.2005 00:01
Eykur eftirlit vegna rjúpnaveiða Lögregla um allt land hyggst auka eftirlit sitt vegna þess að rjúpnaveiðar hefjast á morgun að nýju eftir tveggja ára hlé. Veiðimenn á Vesturlandi eru varaðir við því að á sama tíma og þeir halda til veiða leita bændur fjár. 14.10.2005 00:01
Óveður í Öræfasveit Óveður er komið í Öræfasveit og eru vegfarendur beðnir að fara þar með gát. Hálka og snjókoma eru á Hellisheiði og í nágrenni Selfoss. Hálka eða hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Norðausturlandi og Austurlandi. 14.10.2005 00:01
Fjársöfnun kærð til lögreglu Stígamót hafa kært til lögreglunnar símasöfnun, sem sögð er til stuðnings samtökunum. Stígamót standa ekki fyrir neinni fjársöfnun þessa dagana og vara við slíkum símtölum. 14.10.2005 00:01
Neyðarfundur um fuglaflensu Neyðarfundur um viðbrögð við fuglaflensu verður haldinn í Brüssel í dag. Öruggt þykir að flensan breiðist út um Evrópu næsta vor. Níu eru undir ströngu eftirliti í Tyrklandi vegna ótta við fuglaflensu. Fjörutíu dúfur í eigu þeirra drápust á hálfum mánuði og vaknaði þá grunur um fuglaflensu. Líkurnar á smiti í mannfólk þykja litlar en í kjölfar þess að mannskæði stofn flensunnar fannst í Tyrklandi í gær þykir ástæða til að gera ítrustu varúðarráðstafanir. 14.10.2005 00:01
Útilokaði nánast Samfylkinguna Davíð Oddsson fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins gerði það eitt af sínum síðustu verkum sem formaður, í setningaræðu sinni á landsfundinum í gær, að nánast útiloka stjórnarmyndun með Samfylkingunni, þegar þar að kemur. 14.10.2005 00:01
Samningur ekki endurnýjaður Stjórn KSÍ hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við þá Loga Ólafsson og Ásgeir Sigurvinsson um þjálfun A-landsliðs karla í knattspyrnu. Þess í stað hefur stjórn KSÍ falið formanni sambandsins að ræða við Eyjólf Sverrisson um að taka við starfinu. 14.10.2005 00:01
Nýtt tímarit um þjóðmál Bókafélagið Ugla hefur hafið útgáfu á nýju tímariti sem heitir Þjóðmál og mun koma út fjórum sinnum. Ritstjóri tímaritsins er Jakob F. Ásgeirsson og samkvæmt ritstjórnargrein hans er Þjóðmálum er ætlað að vera "vettvangur fyrir frjálshuga fólk sem er orðið þreytt á yfirborðslegri og einhliða fjölmiðlun um stjórnmál og menningu". Meðal efnis í 1. hefti má nefna að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skrifar af vettvangi stjórnmálanna. 14.10.2005 00:01
Vaxandi sóknarfæri hjá smábátum Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að smábátarnir eigi vaxandi sóknarfæri vegna þess að togveiðar og fleiri veiðiaðferðir eigi nú undir högg að sækja hjá umhverfisverndarsinnum. 14.10.2005 00:01
Sjö handteknir í Hollandi Hollenska lögreglan handtók í dag sjö grunaða hryðjuverkamenn í þremur borgum nú um hádegi. Hópurinn samanstendur af sex körlum og einni konu, en einn karlanna var fyrr á árinu sakfelldur fyrir að skipuleggja hryðjuverkaárás í Hollandi. Lögregla vildi hins vegar ekki greina frá því hvers vegna byssuhvellir hefðu heyrst í einni borganna, Haag, en lögreglumenn umkringdu byggingu þar í borg sem Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands, og fleiri hafa skrifstofur. 14.10.2005 00:01
Rove í fjórða sinn fyrir nefnd Karl Rove, einn helsti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, kom í dag í fjórða sinn fyrir rannsóknarnefnd sem rannsakar það hvernig nafn leyniþjónustumanns hjá CIA var lekið í fjölmiðla árið 2003. Flest bendir til að Rove hafi lekið nafni leyniþjónustukonunnar Valerie Plame og hefur eiginmaður Plame, Joseph Wilson, sakað stjórnvöld um að ljóstra upp nafni hennar til þess að refsa honum fyrir gagnrýni á málflutning stjórnarinnar í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 14.10.2005 00:01
Hafa stöðvað alla mótspyrnu Rússneskir hermenn hafa brotið á bak aftur alla mótspyrnu í borginni Nalstjik í Norður-Kákasus eftir að tsjetsjenskir uppreisnarmenn réðust í gær á lögreglu og opinberar byggingar. Að minnsta kosti 90 féllu í átökunum, flestir þeirra uppreisnarmenn, en rússneskar hersveitir fresluðu í morgun nokkra gísla úr höndum andspyrnumannanna. 14.10.2005 00:01
Sprenging í mosku í Afganistan Múslímaklerkur lést og sextán særðust þegar sprengja sprakk í mosku í Suðaustur-Afganistan í dag. Klerkurinn, Mullah Maulvi Ahmed Khan, var um það bil að hefja bænir þegar sprengjan sprakk, en lögregla á staðnum telur uppreisnarmenn úr röðum talíbana standa á bak við árásina. 14.10.2005 00:01
Hlutur ríkisútgjalda eykst Öll undangengin ár hafa fjárlög íslenska ríkisins gert ráð fyrir myndarlegum afgangi segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. Raunin hefur oftast orðið önnur. Samanburður á rekstrarafgangi fjárlaga og ríkisreikningi síðustu fimm ár sýnir að halli var þrjú ár og að hin tvö var afgangurinn mun minni en að var stefnt. 14.10.2005 00:01
Ríkissaksóknari kemur ekki að máli Bogi Nilsson ríkissaksóknari mun ekki koma að meðferð Baugsmálsins svokallað fyrir hönd ákæruvaldsins, eins og tilkynnt var á dögunum, vegna tengsla sinna við endurskoðunarfyrirtæki Baugs. 14.10.2005 00:01
Vistaskipti sýslumanna Lárus Bjarnason<font face="Courier New">,</font>sýslumaður á Seyðisfirði<font face="Courier New">,</font>hefur óskað eftir því, með tilvísun til tilraunaverkefnis um tímabundin vistaskipti ríkisstarfsmanna<font face="Courier New">,</font>að taka við störfum hjá embætti Tollstjórans í Reykjavík, frá fimmtánda október nk. til 1. maí 2006. 14.10.2005 00:01
Gæsluvarðhald framlengt Framlengt hefur verið til 25. nóvember gæsluvarðhald yfir pilti sem játað hefur að hafa stungið annan á menningarnótt í Reykjavík í ágúst. Pilturinn er grunaður um að hafa stungið tvo, en vill ekki kannast við nema eina árás. 14.10.2005 00:01
Borgin hótar lögsókn Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir standa af hálfu borgarinnar að farið verði með samráðsmál olíufélaganna fyrir dómstóla fá borgin ekki greiddar bætur.Í gær rann út frestur sem Reykjavíkurborg gaf olíufélögunum til greiðslu bóta vegna verðsamráðs sem þau höfðu í tengslum við tilboðsgerð vegna olíusölu árið 1996. 14.10.2005 00:01
Ríkið borgar Saltkaupum Íslenska ríkið þarf að greiða Saltkaupum ehf. tæplega 9,8 milljónir króna auk 700.000 króna málskostnaðar samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Upphæðin er 4,5 milljónum hærri en kveðið var á um í dómi Héraðsdóms Reykjaness í desember í fyrra. 14.10.2005 00:01
Tíu mánuðir fyrir fjárdrátt Fyrrum framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfjarða hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir að draga sér rúmar 17 milljónir króna á árunum 2002 og 2003. Maðurinn játaði fjárdráttinn, en hann færði upphæðir til skuldar og endurgreiddi í mörgum greiðslum. Hæst varð skuldin rúmar 5 milljónir. Dómurinn var skilorðsbundinn. 14.10.2005 00:01
Óvissa um nýjan vef dómstólanna Anna Mjöll Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Dómstólaráðs, segir ekki hægt að segja til um hvernær ný heimasíða héraðsdómstóla landsins komist í loftið, en búið er að loka þeirri sem fyrir var. Nú er á slóðinni domstolar.is einungis að finna tilkynningu um að ný síða sé væntanleg. 14.10.2005 00:01
Funda eftir helgi Vilhjálmur H. Vilhjálmssson hæstaréttarlögmaður segir að honum hafi ekki enn borist neitt svar um skaðabótakröfu þá, sem Reykjavíkurborg krefst að olíufélögin Ker, Olís og Skeljungur, greiði vegna samráðs sem þau höfðu við tilboðsgerð á vegum borgarinnar árið 1996. 14.10.2005 00:01
Lífeyrissjóður var sýknaður Hæstiréttur féllst ekki á kröfu fyrrum bankastarfsmanns um að breyting á reglugerð um lífeyrisgreiðslur hefði svipt hann áunnum réttindum. Fyrir gildistöku reglugerðar í árslok 1997 var miðað við laun eftirmanns, en vísitölu neysluverðs á eftir. 14.10.2005 00:01
Skuldfært fyrir sekt Skeljungs Hagar, eignarhaldsfélag olíufélagsins Skeljungs, hafa skuldfært hjá sér 250 milljónir króna í ársreikningi síðasta árs vegna sektar fyrir olíusamráð. Allt umfram þá upphæð sækir félagið til fyrri eigenda Skeljungs. 14.10.2005 00:01
Þrotabúskrafa tekin fyrir í dómi Tekin var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær krafa Sparisjóðs Vestfjarða í þrotabú Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, eins sakborninga úr Landssímamálinu. Björn Jóhannesson, lögmaður sparisjóðsins, segir deilt um hvers eðlis krafa sjóðsins sé, en hún sé til komin vegna láns til fyrirtækisins Lífsstíls. 14.10.2005 00:01
Ríkisútgjöld hafa aukist Samtök atvinnulífsins segja að Ísland skeri sig úr meðal Norðurlanda að því leiti að ríkisútgjöld í hlutfalli við landsframleiðslu hafi aukist verulega. Alls staðar annars staðar á Norðurlöndum hafi ríkisútgjöld farið lækkandi í hlutfalli við landsframleiðslu. Þá benda Samtök atvinnulífsins á í tilkynningu að þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir myndarlegum afgangi á fjárlögum hafi raunin oftast orðið önnur. 14.10.2005 00:01
Kona fær greiddar bensíndælur Kona sem leigði olíufélaginu Skeljungi land og húsnæði í Kópavogi undir bensínstöð fær að eiga tanka og dælubúnað samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hæstiréttur sneri í vikunni fyrri dómi Héraðsdóms Reykjaness frá því í desember í fyrra. 14.10.2005 00:01
Ísland er komið á kortið Hagfræðingar KB Banka meta það svo að áhætta af erlendri skuldabréfaútgáfu sé minni en menn hafa ætlað. Ísland sé komið á kortið hjá erlendum fjárfestum og því sé minni hætta á falli en ætla mætti þegar að gjalddaga erlendu bréfanna kemur. Í nýrri skýrslu bankans er gert ráð fyrir að skuldabréfaútgáfa haldi áfram og því muni áhættan jafnast út. 14.10.2005 00:01
Rjúpnaveiðar hefjast á ný Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands, segist sannfærður um að skotveiðimenn stilli rjúpnaveiðum í hóf en rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun. Hann telur að um 3000 veiðimenn séu á leið á veiðar. 14.10.2005 00:01
Segir eftirlaunafrumvarpið dýrara Umdeilt eftirlaunafrumvarp alþingis sem samþykkt var naumlega á þingi fyrir tveimur árum jók lífeyrrisskuldbindingu ríkisins um 650 milljónir á árinu 2004. Þetta segir Helgi Hjörvar alþingismaður á heimasíðu sinni í dag. Hann segir kostnaðinn orðinn miklu mun hærri en gert hafi verið ráð fyrir. 14.10.2005 00:01
Kjúklingabændur óttast fuglaflensu Kjúklingabændur innan Evrópusambandsins óttast hrun á markaðnum ef svokölluð fuglaflensa breiðist út í Evrópu. Ellefu milljón tonn af kjúklingakjöti eru framleidd á hverju ári og þar af er tíundi hlutinn seldur utan sambandsins. Um er að ræða markað upp á rúmlega sjötíu milljarða íslenskra króna. Starfsmenn á kjötsmarkaðnum í Rungis, rétt fyrir utan París, hafa tekið eftir sölutregðu og segja að salan hafi minnkað um tíu prósent síðan í októberbyrjun, miðað við árið í fyrra. 14.10.2005 00:01
Bresk þota hrapar Þota úr konunglega breska flughernum hrapaði í sjóinn við austurströnd Skotlands í dag. Samkvæmt upplýsingum frá breska varnarmálaráðuneytinu hrapaði flugvélin um 16 km frá flugherstöðinni, RAF Leuchars, við austurströnd Skotlands. Flugmennirnir tveir sem voru um borð í þotunni náðu að skjóta sér úr henni áður en hún brotlenti. Ekki er vitað um orsakir slyssins. 14.10.2005 00:01
Fuglaflensan til Íslands næsta vor Fuglaflensutilvik hafa undanfarna daga komið upp í bæði Tyrklandi og Rúmeníu. Flest bendir til að fuglaflensa breiðist út um alla Evrópu næsta vor. Yfirdýralæknisembættið á Íslandi hefur fengið tæpar tvær milljónir króna til að rannsaka alifugla hérlendis og farfugla sem koma hingað næsta vor. 14.10.2005 00:01
Viðræður í næstu viku Viðræðum um framtíð bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður fram haldið í Washington í næstu viku. 14.10.2005 00:01
Leit að eftirlifendum hætt Björgunarmenn eru hættir að leita að eftirlifendum jarðskjálftans í Suður-Asíu. Engin von þykir til þess að nokkur finnist á lífi úr því sem komið er. 14.10.2005 00:01
Ráðist að súnníum Uppreisnarmenn í Írak beindu í gær spjótum sínum að leiðtogum súnnísks stjórnmálaflokks sem lýst hefur stuðningi sínum við drög að stjórnarskrá landsins. Fimm tilræði voru framin gegn þeim í gær en enginn slasaðist í árásunum. 14.10.2005 00:01
Hækka skatt þegar þeir sjá hann Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi félagshyggju í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og kvað talsmenn hennar vilja skattahækkanir. 14.10.2005 00:01
Telur sig vanhæfan Bogi Nilson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá Baugsmálinu þar sem hann sé vanhæfur til að fjalla um málið. Ríkslögreglustjóri óskaði eftir því að Ríkissaksóknari fjallaði um málið, í kjölfar dóms hæstaréttar. 14.10.2005 00:01
Atburðir kalla á fjölmiðlalög Í fyrirspurnartíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær vísaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra til þverpólítískrar samstöðu sem náðs hefur í fjölmiðlanefnd á hennar vegum. 14.10.2005 00:01
Stálu skipi en skiluðu því svo Sómalskir sjóræningjar sem fyrr í vikunni rændu flutningaskipi sem Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna hafði á leigu hafa nú séð að sér og skilað fleyinu. Eigandi skipsins segist ekki hafa þurft að greiða neitt lausnargjald. 14.10.2005 00:01
Engin miskunn hjá Pútín Engin miskunn var fyrirskipunin sem Pútín Rússlandsforseti gaf sveitum sínum og þær hlýddu. Tugir hryðjuverkamanna sem gerðu árásir í bæ í Suður-Rússlandi voru þurrkaðir út í dag. Við vörum við myndunum sem fylgja þessari frétt. 14.10.2005 00:01
Sjö handteknir í Haag Hollenskir lögreglumenn umkringdu mikilvægar stjórnsýslubyggingar í höfuðborginni Haag í gær vegna gruns um að hryðjuverk væru í uppsiglingu. Ráðist var inn í hús og sjö manns handteknir í tengslum við málið. 14.10.2005 00:01
Leitinni hætt Björgunarsveitir hættu formlegri leit að fórnarlömbum jarðskjálftans í pakistanska Kasmír í gær en nánast útilokað er að finna fleiri á lífi í rústunum. 14.10.2005 00:01
Níðingsskap mótmælt Félagar í dýraverndunarsamtökunum PETA komu saman í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í gær og mótmæltu meðferð Ástrala á sauðfé. 14.10.2005 00:01