Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reksturinn verði aðskilinn Skilja verður fullkomlega að rekstur og stjórn Flugleiða-Fraktar annars vegar og Bláfugls og Flugflutninga hins vegar samkvæmt ákvörðun Samkeppnisráðs í gær. Samkeppnisyfirvöld töldu ástæðu til íhlutunar vegna samruna FL Group, Bláfugls og Flugflutninga til að tryggja virka samkeppni í flugfrakt milli Íslands og annarra landa. 17.6.2005 00:01
Sendiráðum lokað í Nígeríu Sendiráði Bandaríkjanna í Abuja, höfuðborg Nígeríu, og skrifstofu bandaríska konsúlsins í Lagos, stærstu borg landsins, var lokað í morgun af öryggisástæðum. Bretar fylgdu í kjölfarið skömmu síðar og lokuðu sendiráði sínu í Lagos af sömu ástæðu. 17.6.2005 00:01
Ráðherrann gagnrýnir Schröder Forsætisráðherra Tyrklands gagnrýndi Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, í morgun í kjölfar þess að þýska þingið harmaði meint þjóðarmorð Tyrkja á Armenum í fyrri heimsstyrjöld. 17.6.2005 00:01
Nýr kjarasamningur samþykktur Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning í dag. Samningurinn og bókanir eru á sömu nótum og samningur sem gerður var við Samflot bæjarstarfsmanna í lok maí. 17.6.2005 00:01
Tuttugu teknir fyrir hraðakstur Tuttugu voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal milli klukkan sjö í gærkvöld og tvö í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á 164 kílómetra hraða. 17.6.2005 00:01
Miklar deilur á leiðtogafundi ESB Það logar stafna á milli á leiðtogafundi Evrópusambandins sem hófst í Brussel í gær. Samþykkt stjórnarskrársáttmála sambandsins hefur verið slegið á frest um óákveðinn tíma og nú er hart tekist á um fjárframlög þjóðanna í sameiginlega sjóði. 17.6.2005 00:01
Breyting á skipan ráðuneyta Það er tímabært að breyta skipan ráðuneyta og sú endurskoðun mun hefjast í haust. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í þjóðhátíðarávarpi sínu í morgun. 17.6.2005 00:01
Fleiri sendiráð rýmd í Nígeríu Ítalir og Indverjar hafa látið rýma sendiráð sín og skrifstofubyggingar í Nígeríu líkt og Bandaríkjamenn og Bretar gerðu fyrr í morgun. Mikill viðbúnaður er í borginni Lagos eftir að óljósar fregnir bárust af því að íslömsk hryðjuverkasamtök myndu láta til skarar skríða gegn erlendum erindrekum. 17.6.2005 00:01
Sænskur dómari kaupir sér blíðu Sænskur héraðsdómari var staðinn að því að kaupa sér blíðu vændiskvenna. Athygli vekur að þetta er þriðji sænski dómarinn á þessu ári sem staðinn hefur verið að þessari iðju. 17.6.2005 00:01
Raforkukerfi Danmerkur eflt Danir leggja nýjan rafstreng undir Stórabelti fyrir rúman milljarð danskra króna. Þannig sameina þeir og efla raforkukerfi austur- og vesturhluta Danmerkur. Fyrir tveimur árum fór rafmagn af samtímis í suðurhluta Svíþjóðar og Danmörku og kom þá í ljós hve viðkvæmt rafveitunetið er. 17.6.2005 00:01
Hraðakstur vandamál Áberandi mikið var um hraðakstur á þjóðvegum landsins í gær og fyrradag og höfðu flest lögregluembætti við þjóðveginn nóg að gera við eftirlit. 17.6.2005 00:01
Endaði sár á spítala Eftirför lögreglunnar á Selfossi vegna ökumanns sem sinnti í engu stöðvunarmerkjum endaði með því að viðkomandi ók bíl sínum útaf og þurfti að flytja hann á slysadeild. 17.6.2005 00:01
Sex látnir eftir loftárásir Að minnsta kosti sex eru látnir eftir að Bandaríkjamenn gerðu loftárásir á aðsetur meintra hryðjuverkamanna í Írak í nótt. F-16 orrustuþotur flugu yfir skotmörkin, sem flest eru í og við bæinn Qaim í vesturhluta landsins, og vörpuðu fjölda mjög öflugra sprengna. 17.6.2005 00:01
Seldi dóttur sína í vændi Fjörutíu og fjögurra ára gamall karlmaður var dæmdur í níu ára fangelsi í Svíþjóð fyrir að nauðga dóttur sinni og selja hana í barnavændi á aldursbilinu fjögurra til níu ára. Fjórir menn í viðbót eru sakfelldir fyrir að beita stúlkuna kynferðislegu ofbeldi, allir yngri en faðirinn. 17.6.2005 00:01
Tólf Íslendingar sæmdir fálkaorðu Tólf Íslendingar voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Á meðal þeirra voru Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður, Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. 17.6.2005 00:01
Aflýst vegna banaslyssins Hátíðarhöldum í tilefni þjóðarhátíðardagsins var aflýst í Garðinum í dag vegna banaslyssins í Öxnadal í nótt. Annar piltanna sem lést var búsettur í bænum og hinn, sem búsettur var í Keflavík, átti ættir að rekja þangað. 17.6.2005 00:01
Chirac samþykkir frestun Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði fyrir stundu að hann væri reiðubúinn að fresta atkvæðagreiðslu um tillögu þess efnis að Bretar fái ekki lengur afslátt af gjöldum Evrópusambandsins, gegn því að það verði til þess að breyting verði á fjárframlögum til sambandsins í heild. 17.6.2005 00:01
Nöfn piltanna sem létust Piltarnir sem létust í umferðarslysi í Öxnadal í nótt hétu Sigurður Ragnar Arnbjörnsson, 18 ára, til heimilis að Kirkjuvegi 18, Reykjanesbæ, og Þórarinn Samúel Guðmundsson, 15 ára, til heimilis að Silfurtúni 18c í Garði. Þjóðhátíðahöld í Garðinum voru látin niður falla vegna slyssins í dag, enda eiga báðir ættir að rekja þangað. 17.6.2005 00:01
Lögfræðiálit á hæfi Halldórs Stjórnarandstaðan ætlar að kalla eftir áliti lögfræðinga á hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu Búnaðarbankans. Formaður Samfylkingarinnar segir nauðsynlegt að skoða öll tengsl sem hafi getað valdið vanhæfi, meðal annars vinatengsl forsætisráðherra og Finns Ingólfssonar, forstjóra VÍS. 17.6.2005 00:01
Sláum því á frest „Sláum því á frest“ er helsta niðurstaða leiðtogafundar Evrópusambandsþjóðanna um sameiginlega stjórnarskrá sem lýkur í Brussel í kvöld. Þá var hart deilt um frjárframlög í sameiginlega sjóði. 17.6.2005 00:01
Endurskipulagning hefst í haust Það er tímabært að breyta skipan ráðuneyta. Endurskipulagning hefst í haust og á að ljúka á sem skemmstum tíma. Þetta var meðal þess sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í morgun í sínu fyrsta þjóðhátíðarávarpi. 17.6.2005 00:01
Fimm féllu í ómegin við Austurvöll Hátíðarhöld fóru vel fram í Reykjavík í dag og lögðu tugir þúsunda leið sína í miðborgina. Veðurblíðan var með eindæmum og hitinn var reyndar svo mikill - og kannski hátíðleiki stundarinnar - að ekki færri en fimm féllu í ómegin undir hátíðardagskránni á Austurvelli í morgun. 17.6.2005 00:01
Ráðuneytum fækkað í sex? Árni Magnússon félagsmálaráðherra telur að fækka megi ráðuneytunum í allt að sex og sameina ríkisstofnanir um leið. Hann segir stjórnarflokkana sammála um þörfina á breytingum. 17.6.2005 00:01
Parið úrskurðað í gæsluvarðhald Erlent par, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, var seint í gærkvöldi úrskurðað í gæsluvarðhald fram á fimmtudag. Nauðsynlegt þótti að tryggja að fólkið færi ekki úr landi og var parið því úrskurðað í gæsluvarðhald á forsendum rannsóknarhagsmuna. 17.6.2005 00:01
Dómararnir sækja í vændiskonur Á einu ári hafa þrír sænskir dómarar verið staðnir að því að kaupa sér blíðu vændiskvenna sem er refsiverður verknaður í Svíþjóð. 17.6.2005 00:01
Lögin opna fyrir íslensk föðurnöfn Umdeild nafnalög voru samþykkt á danska þinginu í morgun. Lögin auðvelda útlendingum í landinu að taka upp dönsk eftirnöfn og opna fyrir íslensk föðurnöfn. 17.6.2005 00:01
Rjómablíða í Reykjavík Það var sannkölluð 17. júní stemning í miðbæ Reykjavíkur enda léku veðurguðirnir við hvern sinn fingur. Borgarbúar spókuðu sig léttklæddir um borgina, sem skartaði sínu fegursta. Á Arnarhóli var skipulögð dagskrá langt fram á nótt. 17.6.2005 00:01
Eiður Smári fékk riddarakross Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti í gær tólf einstaklingum heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn að Bessastöðum. 17.6.2005 00:01
Allt í hnút í ESB Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, gerði hlé á leiðtogafundi Evrópusambandsins stuttu eftir hádegi í gær. Umræður um fjárlög sambandsins fyrir tímabilið 2007 til 2013 fóru í hnút og Juncker mun hafa boðað hina leiðtogana 24 á sinn fund til þess að ræða einslega við þá áður en lengra verður haldið. 17.6.2005 00:01
Nafnalög samþykkt Danskir þingmenn samþykktu ný nafnalög sem fela meðal annars í sér að öllum skuli vera frjálst að taka upp eftirnafn sem fleiri en tvö þúsund Danir bera. 17.6.2005 00:01
Fólk féll í öngvit Fimm áhorfendur fengu aðsvif á hátíðarsamkomunni á Austurvelli í gærmorgun. 17.6.2005 00:01
Tveir dóu í umferðarslysi Tveir unglingspiltar létu lífið þegar bifreið sem þeir voru í lenti utan vegar í mynni Öxnadals aðfaranótt föstudags. 17.6.2005 00:01
Búnir að semja Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning á fundi sem haldinn var í gær, 17. júní. 17.6.2005 00:01
Stoltur af íslensku þjóðinni Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra boðaði breytingar á stjórnsýslu landsins í sinni fyrstu þjóðhátíðarræðu í blíðskaparveðri á Austurvelli í gær. Hann kallaði jafnframt eftir auknu samstarfi ríkis og atvinnulífs á sviði nýsköpunar. 17.6.2005 00:01
Milljarða fram úr áætlunum Skólar og heilbrigðisstofnanir fóru mest umfram heimildir árið 2004. Átta ráðuneyti héldu sig innan marka en þrátt fyrir það fór rekstur stofnana 1,7 milljarða fram úr fjárlögum. 17.6.2005 00:01
Norður-Kóreumenn vilja funda Norður-kóresk stjórnvöld segjast vilja funda með bandarískum stjórnvöldum í næsta mánuði og ræða um kjarnorkuafvopnun. 17.6.2005 00:01
Íranar fjölmenntu á kjörstað Afar góð kjörsókn var í írönsku forsetakosningunum í gær. Úrslit munu liggja fyrir í dag en búist er við að kjósa þurfi aftur á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. 17.6.2005 00:01
Ökklabrotnaði í Rauðuskörðum Björgunarsveitir frá Ólafsvík og Dalvík voru kallaðar út í dag til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum Ytri Árdal. Kona í hópnum datt og öklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn á sjötta tímanum í kvöld og var reiknað með að þeir kæmu á tíunda tímanum í kvöld með konuna í sjúkrakörfu, niður að sjúkrabíl sem flytur hana til Akureyrar. 17.6.2005 00:01
Danir mega nota íslensku aðferðina Á þjóðhátíðardegi Íslendinga hafa danskir þingmenn samþykkt ný nafnalög sem fela meðal annars í sér endurvakningu föðurnafna að íslenskri hefð. 17.6.2005 00:01
Þrjátíu handteknir Höfð voru afskipti af 30 manns á aðfararnótt laugardags í aðgerðum lögreglu gegn handrukkurum. Enginn þeirra er enn í haldi lögreglu. 16.6.2005 00:01
Héldu börnum í gíslingu Eitt barn og tveir byssumenn létu lífið þegar lögregla réðst til atlögu og yfirbugaði mannræningja í Kambódíu sem höfðu haldið tæplega þrjátíu leikskólabörnum í gíslingu í morgun. Sex menn vopnaðir byssum ruddust inn í leikskólann í morgun og tóku um fjörutíu börn í gíslingu en ellefu þeirra var sleppt fljótlega. 16.6.2005 00:01
Ekki búist við niðurstöðu á fundi Ekki er búist við að nein niðurstaða náist um fjármál Evrópusambandsins á fundi leiðtoga landa sambandsins sem haldinn verður síðar í dag. Aðallega er deilt um 400 milljarða skattaafslátt Breta sem samið var um árið 1984 á þeim forsendum að þeir fengju minna í styrki en önnur lönd. Öll lönd sambandsins, önnur en Bretar, vilja að afslátturinn verði afnuminn hið fyrsta. 16.6.2005 00:01
Tekinn með fíkniefni í bíl Lögreglan í Kópavogi tók mann með fíkniefni nú undir morgun. Fíkniefnin fundust við reglubundið umferðareftirlit en maðurinn var farþegi í bíl sem lögreglan stöðvaði. Skýrsla var tekin af manninum og telst málið upplýst. Í ljós kom við þetta tækifæri að ökumaður bifreiðarinnar var með útrunnin ökuréttindi. 16.6.2005 00:01
Herþota brotlenti í bakgarðinum Meira en þrettán hundruð manns þurftu að yfirgefa heimili sín í Arizona í Bandaríkjunum í gærkvöldi þegar herþota brotlenti í bakgarði íbúðarhúss. Flugmaðurinn slapp með lítils háttar meiðsl og ekki er vitað til þess að neinn annar hafi slasast þó að kviknað hafi í húsinu. Mikil hætta var á ferðum þar sem inni í þotunni voru fjórar 200 kílógramma sprengjur og mikið af skotfærum. 16.6.2005 00:01
Fengu hákarl á línuveiðum Áhöfnin á Bensa Egils frá Hólmavík fékk óvæntan afla fyrr í vikunni þegar hún var að línuveiðum í Húnaflóa. Þetta kemur fram í <em>Bæjarins besta</em>. Þegar línan var dregin fannst áhöfninni eins og síðasti fiskurinn væri óvenju stór og þungur enda reyndist þar vera á ferðinni hákarl sem var 4,3 metrar á lengd. 16.6.2005 00:01