Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aukin framleiðsla hefur ekki áhrif Olíuverð nálgast nú 56 dollara á fatið og er greinilegt að ákvörðun OPEC-ríkjanna í gær um að auka framleiðslu hefur engin áhrif haft á verð á mörkuðum. Verðið hefur til að mynda hækkað um tvo dollara á fatið á markaði í Bandaríkjunum í þessari viku. Sérfræðingar telja engar líkur á verðlækkun þar sem það jaðrar við olíuskorti. 16.6.2005 00:01
Afboðar líklega þjóðaratkvæði Danir munu að öllum líkindum afboða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarsáttmála Evrópusambandsins, en hún átti að fara fram 27. september næstkomandi. Heimildarmaður <em>Reuters </em>segir Anders Fogh-Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hafa miklar efasemdir um að samkomulag náist innan Evrópusambandsins um hvernig haga beri framhaldinu eftir að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarsáttmálanum fyrir skemmstu. 16.6.2005 00:01
Eigi ekki í viðræðum við Mladic Serbnesk yfirvöld neita því með öllu að þau reyni nú að semja við fyrrverandi hershöfðinga Bosníu-Serba, Ratko Mladic, um að hann gefi sig fram við yfirvöld og verði í kjölfarið framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag. 16.6.2005 00:01
Rætt við ríkisendurskoðanda Fjárlaganefnd Alþingis kemur saman nú í hádeginu til að ræða skýrslu Ríkisendurskoðanda um hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi verður kallaður fyrir nefndina. Stjórnarandstaðan telur ýmislegt orka tvímælis í úttekt hans á hæfi forsætisráðherra og ætlar að ákveða næstu skref í málinu eftir fundinn í dag. 16.6.2005 00:01
Vilja að Gill verði látinn laus Íslendingarnir tveir sem tóku þátt í mótmælaaðgerðunum á Nordica-hótelinu ásamt Englendingnum Paul Gill telja gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir Gill óskiljanlegan og ranglátan. Meðferðinni á Gill verður mótmælt við dómsmálaráðuneytið klukkan tvö í dag. 16.6.2005 00:01
Hafi vitað af vilja til samninga Ný gögn benda til þess að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi vitað af vilja fyrirtækis sem sonur hans vann hjá til að fá arðbæran samning við Sameinuðu þjóðirnar vegna áætlunar um olíu fyrir mat í Írak. 16.6.2005 00:01
Frekari aðgerðir gegn handrukkurum Ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra þrjátíu sem grunaðir eru um handrukkun eða tengsl við handrukkara verði ákærðir. Talið er að hópurinn sem ná þarf til sé mun stærri og eru frekari aðgerðir í undirbúningi. 16.6.2005 00:01
Engin von um að Schiavo næði sér Engin von var til þess að Terri Schiavo næði sér. Krufning leiddi þetta í ljós en ekki tókst að finna ástæðu þess að hún féll í dá fyrir fimmtán árum síðan. 16.6.2005 00:01
Fjárdráttur á sambýli verði kærður Meintur fjárdráttur starfsmanns á sambýli á vegum Reykjavíkur verður kærður til lögreglu, reynist grunur á rökum reistur. 16.6.2005 00:01
Hefur ekki þegið fleiri boð Dorrit Moussaieff forsetafrú hefur ekki þegið fleiri boð með einkaþotu Baugs en það, sem <em>Séð og heyrt</em> sagði frá í gær. Forsetaskrifstofan hefur gefið þá skýringu að Dorrit hafi hitt forstjóra Baugs og unnustu hans í Feneyjum og þá boðist að fljúga með þeim heim í einkaþotunni. 16.6.2005 00:01
Kosningabaráttu lokið í Íran Líflegri forsetakosningabaráttu lauk í nótt í Íran. Ungt fólk var áberandi á kosningasamkundum þrátt fyrir lítinn stjórnmálaáhuga en margir sögðust þar einungis til að skemmta sér. 16.6.2005 00:01
Töldu sprengjuhótun felast í miða Lögreglan var kvödd að útibúi Íslandsbanka við Lækjargötu fyrir hádegið vegna grunsamlegs miða. Samkvæmt lögreglu töldu starfsmenn bankans sig geta lesið sprengjuhótun út úr þeim skilaboðum sem á honum voru og var lögregla því kölluð til. Talið er að börn hafi staðið að baki gabbinu en miðinn sem fjaðrafokinu olli er í vörslu lögreglunnar. 16.6.2005 00:01
Bíll fastur undir Höfðabakkabrú Umferðartafir hafa orðið á Vestulandsvegi undir Höfðabakkabrúnni í vestur en þar er flutningabíll fastur. Bíllinn, sem er frá fyrirtækinu BM-Vallá, var með mikið járnvirki á pallinum, þar af stóð járnsúla hátt upp í loftið og hún rakst undir brúna með þeim afleiðingum að bíllinn er fastur. 16.6.2005 00:01
Bjartviðri syðra á morgun Íbúar í höfuðborginni og á suðvesturhorni landsins geta glaðst yfir því að veðrið á morgun, þjóðhátíðardaginn, verður með besta móti. 16.6.2005 00:01
Áfrýjar úrskurði til Hæstaréttar Englendingurinn Paul Gill sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald þar til á mánudag eftir að hafa slett grænum vökva á fundargesti álráðstefnu á Nordica-hótelinu hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. Tveir Íslendingar tóku þátt í mótmælunum með honum á hótelinu en var sleppt úr haldi lögreglu. 16.6.2005 00:01
Efla kennslu í tryggingarétti Háskóli Íslands og Tryggingastofnun ríkisins hafa gert með sér samning sem hefur það markmið að efla kennslu og rannsóknir í almannatryggingarétti með sérstakri áherslu á lífeyristryggingar. Þetta er í fyrsta sinn sem lagadeild Háskólans gerir slíkan samning við stofnun utan Háskólans að því er segir í sameiginlegri tilkynningu frá stofnunum. 16.6.2005 00:01
Nektarmyndir af stúlkubörnum Meðal þess sem lögreglan fann í tölvu reykvísks manns sem sætir nú rannsókn vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn fjórum stúlkubörnum, voru nektarmyndir af þeim. 16.6.2005 00:01
Fyrsti samningur sinnar tegundar Háskóli Íslands og Tryggingastofnun ríkisins hafa gert með sér samning um eflingu kennslu og rannsóknir í almannatryggingarétti með sérstakri áherslu á lífeyristryggingar. Um tímamótasamning er að ræða því lagadeild Háskóla Íslands hefur ekki áður gert slíkan samning við stofnun utan HÍ. 16.6.2005 00:01
Dæmdur fyrir að taka við þýfi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag þrítugan karlmann í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa þann 5. janúar síðastliðinn tekið við þremur fartölvum að verðmæti um 700 þúsund krónur úr höndum bróður síns þrátt fyrir að honum hafi mátt vera ljóst að þeim hefði verið stolið úr versluninni Office One um nóttina. 16.6.2005 00:01
Vill stofna OPEC-samtök fiskveiða Færeyingurinn Högni Hoydal lagði til á fiskveiðiráðstefnu vestnorræna ráðsins, sem haldin er í Þórshöfn í Færeyjum, að stofnuð yrðu í samstarfi við Noreg ný fiskveiðisamtök, nokkurs konar OPEC-samtök fiskveiðanna, eins og hann orðaði það með skírskotun til samtaka olíuframleiðsluríkja. Þetta kemur fram á vef Norðurlandaráðs. 16.6.2005 00:01
Varað við lausagöngu kinda "Þær eru farnar að sýna sig á þjóðveginum og fólki vissara að hafa varann á þegar ekið er hér um," segir Reynir Gunnarsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Hornafirði. 16.6.2005 00:01
Gripu samstarfsmann al-Zarqawis Bandaríkjaher greindi frá því í dag að hann hefði handsamað háttsettan samstarfsmann Abus Musabs al-Zarqawis, leiðtoga al-Qaida í Írak, nærri Mósúl. Mohammed Khalif Shaiker, sem einnig gengur undir nafninu emírinn af Mósúl, var handtekinn á þriðjudaginn var eftir að íbúar í Mósúl höfðu vísað á hann. Hann veitti litla mótspyrnu við handtökuna að sögn talsmanns Bandaríkjahers. 16.6.2005 00:01
Úthlutað úr Barnamenningarsjóði Barnamenningarsjóður hefur lokið úthlutun styrkja í ár. Alls sóttu 53 aðilar um styrki til 57 verkefna og var styrkjum samtals að fjárhæð 1,5 milljónir króna úthlutað í ár. 16.6.2005 00:01
Ógnvænlegt ástand vegna offitu Offita er samfélagslegt vandamál, sem allir verða að taka saman höndum gegn, segir Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu. Hún segir ástandið hér á landi ógnvænlega. 16.6.2005 00:01
Þrír mánuðir fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa í apríl árið 2001 slegið annan mann í andlitið með glasi með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á neðri vör og fimm framtennur brotnuðu. Ákærði neitaði sök en sannað þótti í samræmi við framburð vitna að hann hefði hent glasinu framan í manninn. 16.6.2005 00:01
Vildi fresta staðfestingarferli Jean Claude Jucker, forsætisráðherra Lúxemborgar, lagði til að staðfestingarferli stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins yrði lagt til hliðar í níu mánuði til eins árs á meðan leiðtogar aðildarríkjanna ákvæðu næstu skref í kjölfar þess að Frakkar og Hollendingar felldu stjórnarskrána. Tillöguna bar hann upp á fundi leiðtoga íhaldsflokka innan Evrópusambandsins í Brussel í dag og þrátt fyrir að Joes Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefði ljáð honum stuðning sinn fékk tillagan ekki náð fyrir augum íhaldsleiðtoganna. 16.6.2005 00:01
Þýðingarsjóður úthlutar styrkjum Þýðingarsjóður úthlutar í ár styrkjum til 60 verkefna að andvirði 12,5 milljóna króna, en alls sóttu 30 aðilar um styrki til 99 þýðingarverkefna. Hæsta styrkinn fékk bókaútgáfan Bjartur, 2,35 milljónir króna til ellefu verkefna, en þar eftir kom Edda - útgáfa með 1,8 milljónir króna til átta verkefna. 16.6.2005 00:01
Sprengjutilræði í Sofíu Sex slösuðust þegar sprengja sprakk undir bíl í úthverfi Sofíu, höfuðborgar Búlgaríu, í dag. Talsmaður innanríkisráðuneytis Búlgaríu sagði í samtali við <em>Reuters</em>-fréttastofuna að ekki væri ljóst hver stæði á bak við tilræðið en hann taldi ólíklegt að um hryðjuverkaárás væri að ræða. Deilur milli glæpaklíkna, sem eru atkvæðamiklar í landinu, eru sagðar hafa kostað fjölda fólks lífið undanfarið ár en tilræðum sem þessum hefur verið beitt í átökunum. 16.6.2005 00:01
Ísland dýrast í öllum flokkum Íslenskir neytendur greiddu hæsta verð í Evrópu fyrir ADSL tengingar sínar á síðasta ári samkvæmt úttekt dönsku Tækni og fjarskiptastofnunarinnar. Greiddu Íslendingar rúmar sex þúsund krónur fyrir 512 kb/s áskrift á mánuði meðan Hollendingar, þar sem verðið var ódýrast, greiddu aðeins tæpar tvö þúsund krónur. 16.6.2005 00:01
Dóu í aurskriðu í Gvatemala Að minnsta kosti nítján manns létust þegar aurskriða æddi yfir bæinn San Antonio Senahu í fjallahéruðum Gvatemala í dag. Rigningar og flóð eru talin hafa komið aurskriðunni af stað og er fjöldi húsa og bíla í bænum á kafi í aurnum. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka en björgunarstörf standa enn yfir. 16.6.2005 00:01
Hæstiréttur ómerkti dóm héraðsdóms Máli þriggja pólskra verkamanna sem handteknir voru í mars vegna gruns um að þeir störfuðu hér á landi án atvinnuleyfa var vísað aftur til héraðsdóms fyrir Hæstarétti í gær. Höfðu mennirnir verið dæmdir hver um sig til mánaðar fangelsisvistar skilorðsbundið fyrir Héraðsdómi Suðurlands en niðurstaða Hæstaréttar var að sá dómur yrði ómerktur gerður. 16.6.2005 00:01
Segir bin Laden ekki í Afganistan Sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan, Zalemy Khalilzad, telur að hvorki Osama bin Laden né Mohammed Mullah Omar, leiðtogi talibana, séu í landinu. Þetta lét sendiherrann hafa eftir sér á síðasta blaðamannafundi sínum í Afganistan en hann færir sig nú til Íraks þar sem hann mun gegna sama embætti. Khalilzad vildi ekki gefa upp hvart hann teldi að tvímenningarnir væru niður komnir en lesa mátti úr orðum hans að þeir væru hugsanlega í Pakistan. 16.6.2005 00:01
Fé í uppbyggingu smáfyrirtækja Samherji hefur ákveðið að leggja 20 milljónir í uppbyggingu smærri fyrirtækja á Stöðvarfirði. Er það liður í atvinnuþróunarverkefni sem félagið hefur unnið að ásamt Austurbyggð og Þróunarstofu Austurlands í kjölfar þess að Samherji ákvað að hætta landvinnslu á Stöðvarfirði í haust. 16.6.2005 00:01
Vill neyðarfund um framtíð ESB Jacques Chirac Frakklandsforseti fór fram á það í dag að haldinn yrði sérstakur neyðarfundur um framtíð Evrópusambandsins í ljósi þess vanda sem upp er kominn vegna þess að Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskrársáttmála sambandsins. Á fundi með öðrum leiðtogum ESB í Brussel í dag sagði Chirac að nauðsynlegt væri að ræða hvernig brúa mætti bilið milli sambandsins og almennings í álfunni. 16.6.2005 00:01
Nýjar upplýsingar breyti engu Ríkisendurskoðandi hefur lokið athugun sinni á hæfi forsætisráðherra varðandi sölu ríkisbankanna og segir að nýjar upplýsingar sem lagðar hafi verið fram á fundi fjárlaganefndar breyti engu, Halldór Ásgrímsson hafi ekki verið vanhæfur til að fjalla um bankasöluna. Lögfræðingi félagsins Skinney-Þinganes hafði sést yfir hlut venslafólks Halldórs í öðru fyrirtæki, sem átti um 18 prósent í Skinney-Þinganesi. Forsætisráðherra sjálfur átti þó ekkert í því. 16.6.2005 00:01
Dómur héraðsdóms staðfestur Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness frá janúar síðastliðnum um tæplega sjö ára fangelsi til handa Berki Birgissyni sem slasaði mann alvarlega þegar hann réðst á hann á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði vopnaður öxi. 16.6.2005 00:01
Sprengjugabb í Íslandsbanka Lögregla var kölluð í útibú Íslandsbanka við Lækjargötu í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í gær vegna miða sem starfsmenn bankans töldu vera sprengjuhótun. Reyndist um gabb eða misheppnað spaug að ræða. 16.6.2005 00:01
Greenpeace kemur í heimsókn Í dag 17. júní hefst vikuheimsókn skips náttúrverndarsamtakanna Greenpeace, MV Arctic Sunrise, hingað til lands þegar skipið leggur að við Ægisgarð í Reykjavík. Gestum og gangandi er boðið að skoða skipið í dag. 16.6.2005 00:01
Safnaðarformaður veldur usla Þetta er í sjálfu sér ekkert fréttnæmt því þetta er bara eins og gengur og gerist," segir Matthías G. Pétursson, formaður hestamannafélagsins Andvara í Garðabæ en tveir stjórnarmenn af fimm hafa sagt sig úr stjórninni á þessu ári og neita báðir að tjá sig um hvort ósætti við formanninn sé ástæða úrsagnarinnar. 16.6.2005 00:01
Hriktir í stoðum R-listans Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarfélagnna í Reykjavík á miðvikudag var almenn sátt meðal fundarmanna um að leggja til að haldið yrði prófkjör meðal flokkanna þriggja, sem standa að R-listanum, þar sem borgarbúar fengju að koma að ákvörðun um vægi einstaklinga og flokka á listanum. 16.6.2005 00:01
Sat fastur undir Höfðabakkabrú Vörubifreið með tengivagn festist undir Höfðabakkabrú yfir Vesturlandsveg um klukkan tuttugu mínútur fyrir 12 í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar hafði ekki gætt að því að farmur tengivagnsins var hærri en svo að hann kæmist undir brúnna og því fór sem fór. 16.6.2005 00:01
Sömu fargjöld hjá flugfélögunum Bandaríska flugfélagið Delta hækkaði þann 15. júní flest fargjöld í flugi yfir Atlantshafið. Þotueldsneyti hefur hækkað töluvert í verði síðustu mánuði og gætu fleiri fargjöld átt eftir að hækka. Íslensku flugfélögin búast þó ekki við að hækka fargjöld á næstunni. 16.6.2005 00:01
Ummæli Jóns Baldvins ómerkt Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra sem hann viðhafði í Dagblaðinu um fyrrum tengdason sinn Marco Brancaccia, yfirmann ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, voru á miðvikudag ómerkt í Héraðsdómi Reykjavíkur. 16.6.2005 00:01
Stærra hótel í Stykkishólmi Hótel Stykkishólmur stækkar um rúmlega helming þegar nýbygging hótelsins verður tilbúin á næstu dögum. Nýja byggingin verður alls þrjár hæðir en þegar hefur neðsta hæðin verið opnuð en eftir stækkunina verða alls áttatíu herbergi á hótelinu en voru fyrir hana rúmlega þrjátíu. 16.6.2005 00:01
Sjö og hálft ár fyrir axarárás Hæstiréttur staðfesti dóm yfir Birki Birgissyni sem hlaut sjö og hálfs árs fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði. Birkir réðst á mann með exi og sló hann í höfuðið. Hann var enn fremur dæmdur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og umferðarlögum. 16.6.2005 00:01