Fleiri fréttir

Bótakrafa friðargæsluliða samþykkt

Tryggingastofnun hefur samþykkt bótaskyldu vegna þriggja friðargæsluliða sem slösuðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Afganistan í fyrrahaust. Stofnunin, sem hafði áður hafnað bótaskyldu, hefur nú samþykkt að um bótaskylt slys hafi verið að ræða samkvæmt vinnuslysatryggingu almannatrygginga.

Leitin að stríðsglæpamönnum hert

Aukin harka hefur færst í leitina að stríðsglæpamönnum í Bosníu en nú styttist í að tíu ár séu liðin frá fjöldamorðunum í Srebrenica. Í morgun réðust hermenn NATO inn í íbúð sonar Radovans Karadzic, leiðtoga Serba í stríðinu í Bosníu.

Hópur barnaníðinga upprættur

Spænska lögreglan hefur upprætt hóp barnaníðinga sem nauðgaði smábörnum og dreifði myndum af ódæðisverkunum á Netinu. Fimm voru handteknir.

Komið aftan að tugþúsundum heimila

Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir komið aftan að fimmtíu til sextíu þúsund heimilum í landinu ef vaxtabætur verði skertar enn frekar. Á síðustu tveimur árum hafa vaxtabætur verið skertar um 900 milljónir.

Kosningar á landsfundi lögmætar

Ný kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar hefur gefið út yfirlýsingu um að kosningar í öll embætti á landsfundi Samfylkingarinnar hafi verið lögmætar og í samræmi við reglur flokksins.

Mannbjörg þegar Gideon sökk

Áhöfn íslenska togarans Péturs Jónssonar RE bjargaði öllum fimmtán í áhöfn lettneska skipsins Gideon þegar það sökk á Flæmska hattinum um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld. Barst neyðarkall frá skipinu laust eftir klukkan fjögur og höfðu allir skipverjar bjargast rúmum þremur klukkustundum síðar.

Gáfu 13 sjónvörp

Lionsmenn komu færandi hendi á Grensás fyrr í þessari viku þegar þeir afhentu 13 sjónvarpstæki sem þeir höfðu safnað fyrir.

Niður með áfengisneysluna

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur aðildarríki sín til að setja sér skýr markmið til að draga úr skaðlegri notkun áfengis í því skyni að bæta almennt heilsufar þjóða sinna.

Þurrkar hamla gróðursetningu

Ekki er hægt að hefja gróðursetningu í Heiðmörk vegna langvarandi þurrka. Fyrirhugað er að setja niður á annað hundrað þúsund trjáplöntur, en það verk getur ekki hafist fyrr en jörðin hefur fengið góða vætu. Plöntur frá því í fyrra eru í hættu. </font /></b />

Björguðu mönnum af brennandi skipi

Áhöfnin á Pétri Jónssyni RE bjargaði í gær fimmtán manna áhöfn brennandi skips frá Lettlandi. Þrír Íslendingar voru í áhöfn lettneska skipsins. Skipstjórinn á Pétri Jónssyni segir það mikla gæfu að bjarga fimmtán mannslífum.

Hengdi sig vegna ákærunnar

Ítalskur maður, sem var ákærður fyrir að hlaða niður grófu barnaklámi af Netinu, hengdi sig í kjölfarið. Hann viðurkenndi að hafa hlaðið niður kláminu í bréfi sem hann lét eftir sig til unnustu sinnar, fjölskyldu og vina en neitaði að hafa áreitt börn kynferðislega.

Fyrirtækið virti ekki samninga

Fjórir menn voru í gær sýknaðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu fyrrverandi vinnuveitanda þeirra, Iceland Seafood International, sem fór fram á dómurinn staðfesti lögbann á að mennirnir hæfu störf hjá samkeppnisaðila í samræmi við upprunalegan ráðningarsamning mannanna.

Deyja 100 árlega vegna mistaka?

Gera má ráð fyrir að mistök í meðferð sjúklinga hér á landi leiði árlega til um það bil til 130 dauðsfalla og kosti þjóðarbúið um 1,3 milljarða króna. Þá má ætla að um eitt þúsund manns verði fyrir heilsutjóni árlega vegna rangrar meðferðar í heilbrigðiskerfinu.

Svíar brjóta mannréttindi

Nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum hefur úrskurðað að Svíum sé óheimilt að vísa 33 ára gömlum manni frá Azerbadjan og fjölskyldu hans úr landi eins og sænsk stjórnvöld hafa ákveðið.

Einelti á meðal háskólamenntaðra

Málum sem varða hugsanlegt einelti félagsmanna í Bandalagi háskólamanna hefur fjölgað verulega undanfarnar vikur. Þetta eru mál þar sem einstaklingar leita aðstoðar stéttarfélagsins vegna vandamála í samskiptum við stjórnendur.

Skuldir heimilanna 900 milljarðar

Heimilin í landinu skulduðu tæpa 900 milljarða um síðustu áramót sem jafngildir um þremur milljónum á hvern Íslending. Skuldirnar jukust um 107 milljarða á einu ári. Heimilin hafa eignast meira og var eignamyndunum meiri en skuldir á sama tíma.

Sakar DV um gróft virðingarleysi

Forstjóri Landspítalans sakar DV um að sýna manni, sem sýktist af hermannaveiki, gróft virðingarleysi með því að birta mynd af honum og nafn hans í blaðinu í dag.

Skákeinvígi í undirbúningi

Unnið er að því að koma á skákeinvígi á Íslandi síðar á árinu þar sem Bobby Fischer myndi tefla opinberlega í fyrsta sinn síðan 1992. Bandarískur auðkýfingur Alex Titomirov er reiðubúinn að leggja fram stórar fjárhæðir í verðlaunafé.

Blásið til stórsóknar

Íraska ríkisstjórnin tilkynnti í gær að hún hygðist skera upp herör gegn uppreisnarmönnum í landinu. Að minnsta kosti fimmtán Írakar dóu í árásum gærdagsins.

Flóð í Brasilíu

Gríðarleg úrkoma var í suðurhluta Brasilíu í vikunni og myndaðist mikill vatnselgur af þeim sökum.

Pillan dregur úr kynhvötinni

Ný rannsókn vísindamanna við Boston-háskóla í Bandaríkjunum bendir til þess að getnaðarvarnapillan geti dregið varanlega úr kynhvöt kvenna.

Gagnvirkt sjónvarp ekki fyrir alla

Gagnvirkt sjónvarp, sem Síminn er þessa dagana að kynna viðskiptavinum sínum, verður aðeins í boði á Akureyri og Húsavík, utan suðvesturhorns landsins.

Misvísandi fréttir um al-Zarqawi

Á vefsíðu sem al-Kaída í Írak notar gjarnan birtust í gærmorgun fregnir um að nýr yfirmaður samtakanna hefði verið skipaður til bráðabirgða í forföllum Abu Musab al-Zarqawi.

Fljótum sofandi að feigðarósi

Í stað þess að bregðast við fuglaflensuvánni fljóta ráðamenn heims sofandi að feigðarósi. Áætlanir um útbreiðslu veikinnar eru í besta falli bjartsýnar. Þetta er mat vísindaritsins Nature sem kom út í gær.

Afstaðan farin að bera ávöxt

Aðeins degi eftir að Íranar lofuðu að hætta auðgun úrans ákvað Alþjóðaviðskiptastofnunin, WTO, að hefja á ný viðræður við Írana um aðild að stofnuninni. Formlegar viðræður við Írana áttu sér síðast stað árið 1996 en þeim var þá hætt vegna andstöðu Bandaríkjamanna.

Sótt að Barroso

Vantrauststillaga hægrisinnaðra Evrópuþingmanna á Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, var felld með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu á Evrópuþinginu í gær.

Fjölmiðlar sýni virðingu

Forstjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss segir í tilkynningu á heimasíðu Landspítalans að DV hafi sýnt sjúklingi, sem dvelur á sjúkrahúsinu og fjölskyldu hans gróft virðingarleysi með myndbirtingu og nafngreiningu á honum. <font face="Helv"></font>

SA vilja lækkun vaxtabóta

Skiptar skoðanir eru um tillögur Geirs H. Haarde fjármálaráðherra um að til greina komi að endurskoða vaxtabótakerfið hér á landi. Yfirlýsingar ráðherrans koma í kjölfarið á skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD um að draga beri úr útgjöldum hins opinbera vegna vaxtabóta.

Berlingske skrifar um Hannesarmál

Danska dagblaðið Berlingske Tidende birti í gær alllanga frétt um málaferli ættingja Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni og þeim deilum sem ævisaga Hannesar hefur vakið.

Kanna arðsemi og umhverfisáhrif

"Áður en hægt er að taka afstöðu til álvers í Helguvík þarf fyrst að kanna arðsemi jafnt álversins og þeirra jarðvarmavirkjana sem því tengjast. Jafnframt finnst mér ljóst að fara þarf yfir umhverfisþætti málsins," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar 

Sýna vöðva og tennur

Fulltrúar flokkanna þriggja, sem koma að Reykjavíkurlistanum, funduðu í gær um framtíð samstarfsins.

Barið á egypskum mótmælendum

Atkvæðagreiðsla fór fram í fyrradag um endurbætur á kosningalöggjöf Egyptalands og lágu úrslit þeirra fyrir í gær.

Palestínumönnum heitið aðstoð

George W. Bush Bandaríkjaforseti og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, funduðu í gær í Hvíta húsinu en þetta er í fyrsta sinn sem Abbas sækir Bandaríkjaforseta heim.

Actavis undir spám

Uppgjörið í takt við væntingar forstjórans sem sér fram á mikinn vöxt á þessu ári. Hagnaðurinn var 11,1 milljón evra eða 900 milljónir króna.

Fischer að skákborðinu að nýju

Bobby Fischer sest að líkindum við skákborðið á ný á næstunni til þess að taka slembiskák við einn af sterkustu skákmönnum heims. Fornvinur Fischers, Borís Spasskí, kom ásamt rússneskum auðmanni hingað til lands til að sannfæra Fischer um ráðagerðina.

Refsa Chirac fyrir efnahagsmálin

Á sunnudaginn kemur fella Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu ef að líkum lætur. Nýjustu kannanir benda til þess að fimmtíu og fimm prósent þeirra sem ætla á kjörstað hyggist greiða atkvæði gegn stjórnarskránni.

Friðargæslumenn tryggðir

Tryggingastofnun ríkisins sem áður hafði synjað friðargæsluliðunum þremur sem slösuðust í sprengjuárás í Kabúl síðasta haust um bætur hefur nú breytt afstöðu sinni og samþykkir nú að um bótaskylt slys hafi verið að ræða.

Fyrrum starfsmenn sýknaðir

Fjórir fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood International í Hafnarfirði voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af kröfum félagsins sem vildi að þeim yrði bannað að ráða sig í þjónustu keppinautarins, Seafood Union, til júníloka á þessu ári.

Tveir af þremur sýknaðir

Dómur féll í Héraðsdómi Norðurlands eystra yfir þremur mönnum sem gert var að sök að hafa lamið þann fjórða það illa á Húsavík í fyrrasumar að hann hlaut sýnilega áverka á höfði.

Leikfélagið sýknað

Leikfélag Akureyrar hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi leikara félagsins um vangoldin laun vegna ólögmætrar uppsagnar.

Nýr dagur slapp við sekt

Héraðsdómur Norðurlands eystra ógilti fjárnám Bílastæðasjóðs Akureyrar í bíl fyrirtækisins Nýr dagur sem gert var vegna þess að fyrirtækið neitaði að borga stöðumælasekt.

Ætlaði að selja efnin

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem tekinn var með 300 grömm af amfetamíni á heimili sínu í ársbyrjun 2004.

Kynferðisbrotsdómur staðfestur

Rúmlega tvítugur maður var í Hæstarétti dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa haft kynmök við tólf ára gamla stúlku á heimili sínu á Akureyri árið 2002.

Sjá næstu 50 fréttir