Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Út á hvað gengur stjórnarskrá ESB? Út á hvað gengur þessi umdeilda stjórnarskrá Evrópusambandsins sem virðist vekja hörð viðbrögð um alla álfuna? Fréttamaður Stöðvar 2 rýndi í skjalið og skýrir málið. 26.5.2005 00:01
Óskir um líf og dauða skráðar Guðjón Sigurðsson varð í dag fyrstur Íslendinga til að skrifa undir lífsskrá. Guðjón, sem þjáist af MND- sjúkdómnum, tilgreinir meðal annars í skránni hverjum hann treystir til að taka ákvarðanir sem snerta líf hans og dauða, geti hann ekki lengur tjáð sig. 26.5.2005 00:01
Endurbótum á Engey lokið Engey RE, stærsta skip á Íslandi, liggur við Miðbakkann í Reykjavík og gnæfir þar yfir önnur skip og byggingar. Skipið er í eigu HB Granda en það var keypt um síðustu áramót og hafa breytingar á skipinu staðið yfir síðan. 26.5.2005 00:01
Gefa Frakkar ESB spark? Jacques Chirac, forseti Frakklands, gerði í sjónvarpsávarpi í gærkvöld lokaáhlaup að því að telja landa sína á að samþykkja stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins er þeir ganga til þjóðaratkvæðis um hann á sunnudaginn. Chirac, sem ákvað að eigin frumkvæði að skjóta málinu í þjóðaratkvæði, óttast nú hið versta. 26.5.2005 00:01
Chirac ákallar þjóð sína Jacques Chirac, forseti Frakklands, ákallaði þjóð sína í sjónvarpsávarpi í gær til að veita stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins samþykki sitt þegar hún gengur til atkvæða um hann á sunnudaginn. 26.5.2005 00:01
Eyjaborgin Reykjavík Sjálfstæðismenn vilja allt að 350 hektara uppfyllingu við sundin, meðal annars frá Örfirisey út í Akurey og byggð í Engey með brú og göngum. Einnig er gert ráð fyrir byggð í Viðey. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna kynnti í gær hugmyndir um nýja byggð fyrir 30 þúsund íbúa á eyjunum við sundin 26.5.2005 00:01
Kosningar lögmætar Kjörstjórn landsfundar Samfylkingarinnar segir að kosningar í öll embætti á landsfundinum hafi verið lögmætar og í samræmi við reglur flokksins. 26.5.2005 00:01
Aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi Í kjölfar 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi tók til starfa aðgerðahópur sem hefur nú lagt fram drög að aðgerðaráætlun og komið henni á framfæri við ráðuneyti dómsmála, félagsmála, menntamála og heilbrigðismála. Boðað er<font color="#ffff00"> </font>til fundar um málefnið á Grand Hótel á morgun. 26.5.2005 00:01
Sprenging í Madríd Bílsprengja sprakk í Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Fregnir af þessu eru enn mjög takmarkaðar en samkvæmt lögreglu er þó staðfest að einn hafi særst. Sprengjan sprakk þremur stundarfjórðungum eftir að basknesku dagblaði barst tilkynning í nafni ETA, samtökum aðskilnaðarsinnaðra Baska 25.5.2005 00:01
Vatnsæð til Hafnarfjarðar sprakk Önnur af aðalvatnsæðum sem liggja til Hafnarfjarðar sprakk nálægt Smáralindinni í Kópavoginum um áttaleytið í gærkvöld. Sigurður Guðmundsson, vélfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, segir Hafnfirðinga þó ekki þurfa að óttast vatnsleysi þar sem um varaæð úr Vífilstaðarbrunni er að ræða. 25.5.2005 00:01
Níu látist undanfarinn sólarhring Þrír bandarískir hermenn létu lífið er bílsprengja sprakk í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í gær og hafa því níu hermenn látist á undanförnum sólarhring. Hermaðurinn lést þegar skotið var á hann úr bifreið á ferð og annar er skotið var á hann úr launsátri. Þá létust fjórir hermenn lífið í sprengingu í landinu í gær á fjölfarinni götu. 25.5.2005 00:01
Tvö innbrot í nótt Brotist var inn í tölvuverslun HP við Brautarholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur fartölvum, samtals að verðmæti um hálf milljón króna. Þá rannsakar lögreglan innbrot í íbúð við Eyjabakka í Breiðholti í nótt. 25.5.2005 00:01
Valdarán í Gíneu-Bissá Valdarán var framið í Gíneu-Bissá í morgun. Það var Kumba Jalla, fyrrverandi leiðtogi landsins, sem rændi völdum. Sjálfum var honum steypt af stóli árið 2003. 25.5.2005 00:01
34 smitaðir af hermannaveiki Alls hafa nú þrjátíu og fjórir smitast af hermannaveiki í Noregi. Undanfarinn sólarhring leituðu átta til sjúkrahússins í Österfold vegna gruns um lungnabólgu, þar af tveir í nótt. Af þessum átta er staðfest að a.m.k. einn er með hermannaveiki. 25.5.2005 00:01
Fundu flöskuskeyti á fjöllum Flöskuskeyti, líklega sextíu ára gamalt, fannst á fjalli á Vestfjörðum í vikunni. Skeytið fannst í Erni við Skutulsfjörð og voru það tveir skíðamenn sem komu auga á það. 25.5.2005 00:01
Stærsta eldgos í meira en áratug Eldfjallið Colima í vesturhluta Mexíkó gaus á mánudag og er nú aska þrjá kílómetra upp í loftið. Sérfræðingar segja gos þetta það stærsta í landinu í meira en áratug. 25.5.2005 00:01
Abbas fundar með Bush Leiðtogi Palestínu, Mahmoud Abbas, kom til Washington seint í gærkvöld en til stendur að hann og George Bush Bandaríkjaforseti fundi í dag. Abbas vill staðfestingu á því að Bandaríkjamenn hjálpi til við að tryggja að eftir að Ísraelar dragi herlið sitt til baka frá Gaza í sumar muni þeir ekki nota það sem afsökun til að styrkja stöðu sína enn frekar á Vesturbakkanum. 25.5.2005 00:01
Beint flug til Indlands? Beint flug frá Indlandi til Íslands gæti hafist innan tíðar samkvæmt fregnum indverskra fjölmiðla. Þeir segja loftferðasamning verða gerðan á milli ríkjanna þegar forseti Indlands, A.P.J. Abdul Kalam-he, kemur hingað til lands á næstunni. 25.5.2005 00:01
Aðeins stafræn sjónvörp árið 2012 Evrópusambandið hefur sett sér það markmið að öll sjónvarpstæki í ríkjum sambandsins verði stafræn fyrir árið 2012 og ekkert verði eftir af sjónvarpstækjum með svonefndri hliðrænni tækni. Aðgerðin er liður í Lissabon-áætlun Evrópusambandsins sem miðar að því að auka samkeppnishæfni sambandsins. 25.5.2005 00:01
119 daga löng ræða Breskur lögmaður mun í dag ljúka lengstu ræðu sem haldin hefur verið við réttarhöld í landinu. Ræða hans hefur staðið yfir í eitt hundrað og nítján daga. Hann er verjandi Englandsbanka en BCCI-bankinn hefur krafið Englandsbanka um nærri níutíu milljarða króna í bætur vegna mistaka. 25.5.2005 00:01
Al-Qaida með aðsetur í V-Afríku? Al-Qaida hryðjuverkasamtökin hafa hreiðrað um sig á vesturströnd Afríku. Þessu heldur saksóknari við stríðaglæpadómstólinn vegna Síerra Leóne fram. 25.5.2005 00:01
Íslendingur með hermannaveiki Íslendingur liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans með hermannaveiki. Maðurinn kom heim úr fríi á Ítalíu í síðustu viku og er talið að hann hafi smitast af hermannaveiki á hóteli í Róm. Maðurinn nýtur nú meðferðar en hann er sagður þungt haldinn, bæði með lungnabólgu og hermannaveiki. 25.5.2005 00:01
Veikin gæti breiðst út með Glommu Hermannaveikin í Noregi gæti breiðst út með stærstu á landsins, Glommu. Þrjátíu og fjórir hafa nú greinst með hermannaveiki í Noregi og voru tveir til viðbótar lagðir inn á sjúkrahús í nótt. 25.5.2005 00:01
VG harmar hótanir Alfreðs Stjórn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs harmar hótanir Alfreðs G. Þorsteinssonar um að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að geta selt rafmagn til stóriðju. 25.5.2005 00:01
Væntingarnar hvetja til aðhalds Væntingar um frekari stóriðjuframkvæmdir koma til með að hafa áhrif á aðgerðir í peningamálum á næstunni, samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka í dag. Segir að framkvæmdir þær sem nú sé rætt um, bæði í Helguvík og fyrir norðan, séu af þeirri stærðargráðu að þær hreyfi umtalsvert við hagkerfinu. 25.5.2005 00:01
Þrír særðust í árásinni Staðfest hefur verið að þrír hafi særst í sprengjuárásinni í Madríd í morgun. Viðvörun barst dagblaði um þremur stundafjórðungum áður en sprengjan sprakk og því var unnt að rýma svæðið. 25.5.2005 00:01
Flug milli Póllands og Egilsstaða Beint flug á milli Póllands og Egilsstaða hefst í haust og nú þegar er komið á flug á milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar og Vilníus í Litháen. 25.5.2005 00:01
2600 umsóknir í 1200 störf Um 2600 ungmenni hafa sótt um tólf hundruð sumarstörf í gegnum Vinnumiðlun ungs fólks í Reykjavík. Þegar hafa tæplega níu hundruð ungmenni fengið vinnu. 25.5.2005 00:01
Indverjar vilja opna sendiráð Indverjar telja ástæðu til að kanna opnun sendiráðs hér á landi. Ástæðan er lykilstaðsetning landsins. Beint flug milli landanna er líka í kortunum. 25.5.2005 00:01
Símaskráin komin út Vinsælasta bók landsmanna, Símaskráin, fyrir árið 2005 er komin út. Skráin er hvorki meira né minna en 1485 blaðsíður og prentuð í 230.000 eintökum. Í skránni eru 335.000 skráningar en sú breyting var gerð í fyrra að skráin var á ný sett í eitt bindi og hefur það mælst vel fyrir. 25.5.2005 00:01
1000 hermenn í samræmdri aðgerð Hátt í þúsund írakskir og bandarískir hermenn létu til skarar skríða í vesturhluta Íraks í dag í leit að hryðjuverkamönnum. Leitað hefur verið hús úr húsi í bænum Haditha og hafa margir þegar verið yfirheyrðir. 25.5.2005 00:01
Ráðherra endurskoði gjaldskrá <font face="Helv"></font> Umboðsmaður Alþingis hefur í úrskurði sínum beint þeim tilmælum til menntamálaráðherra að endurskoða gjaldskrá fyrir Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. 25.5.2005 00:01
Lyf gegn ótímabæru sáðláti Vísindamenn við háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum hafa þróað lyf gegn ótímabæru sáðláti karla. Á milli 10 og 30 prósent allra karla þjást af vandamálinu að sögn sérfræðinga. 25.5.2005 00:01
Ný reglugerð gegn smitsjúkdómum Alþjóðaheilbrigðisþingið hefur samþykkt nýja alþjóðaheilbrigðisreglugerð. Markmiðið með henni er að hindra alþjóðlega útbreiðslu smitsjúkdóma og sjúkdóma af völdum eiturefna og geislavirkra efna án þess að valda ónauðsynlegri röskun á alþjóðlegri umferð og viðskiptum. 25.5.2005 00:01
Skattsvikamál fyrir héraðsdómi Ríkislögreglustjóri hefur krafist refsingar til handa fyrrum eigendum og forsvarsmönnum Allrahanda - Ísferða vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda. 25.5.2005 00:01
Fuglaflensuveiran er hér Fuglaflensuveiran er án vafa til staðar í villtum fuglum hér á landi, segir sóttvarnarlæknir. Hann segir þó nær útilokað að hér skapist hætta á að faraldur verði til eða breiðist út. Tiltekin skilyrði þurfi til að slíkt geti gerst. </font /></b /> 25.5.2005 00:01
Mikilvægt að verja fólk og dýr Beðið er fjárveitingar frá stjórnvöldum til að hægt sé að hefja skimun fyrir fuglaflensu í alifuglum og vatnafuglum hér. Landbúnaðarráðherra segir að mikilvægt sé að leggja áherslu á varnir fyrir fólk og dýr. </font /></b /> 25.5.2005 00:01
Leitar að olíu við Færeyjar Norski olíurisinn Statoil undirbýr nú frekari leit eftir olíu við Færeyjar. Þrjú skip munu stunda rannsóknir á hafsbotninum við eyjarnar í sumar og er eitt þeirra þegar komið á vettvang. 25.5.2005 00:01
Banna birtingu auglýsinganna Auglýsingar Umferðarstofu, sem birst hafa í sjónvarpi og blöðum og sýna lítil börn í hættulegum aðstæðum, brjóta í bága við samkeppnislög og hefur birting þeirra verið bönnuð samkvæmt ákvörðun Samkeppnisráðs í dag. 25.5.2005 00:01
Bozize kjörinn forseti Jean-Francoise Bozize sigraði í síðari umferð forsetakosninganna í Mið-Afríkulýðveldinu og er því réttkjörinn forseti landsins. Bozize hlaut um 65 prósent atkvæða en helsti keppinautur hans, Martin Ziguele, fékk 35 prósent. 25.5.2005 00:01
Hefur gefið gagnlegar upplýsingar Pakistanskir embættismenn greindur frá því í gær að meintur al-Kaída liði, Abu Faraj al-Libbi sem handtekinn var fyrr í mánuðinum, hefði þegar gefið mikilvægar upplýsingar sem leitt hefðu til handtöku um tíu manna. 25.5.2005 00:01
Hermannaveikin á undanhaldi Norsk stjórnvöld telja sig hafa komist fyrir frekari útbreiðslu hermannaveikinnar sem kom upp á Østfoldsvæðinu sunnan við Osló um síðustu helgi. Milli 30 og 40 manns hafa sýkst og fimm hafa látist. 25.5.2005 00:01
Svíar brjóta gegn barnasáttmála Hópur sænskra barnalækna heldur því fram að sænsk stjórnvöld brjóti iðulega gegn barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sömuleiðis gegn sænskum útlendingalögum. 25.5.2005 00:01
ETA enn við sama heygarðshornið Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, sprengdu öfluga bílsprengju í Madríd í gær. Átján særðust í tilræðinu en enginn mjög alvarlega. Þetta er sjötta árás ETA síðan forsætisráðherra Spánar sagðist reiðubúinn til að hefja viðræður við samtökin að vissum skilyrðum uppfylltum. 25.5.2005 00:01
Með 64 tonn af kvikasilfri um borð Norski sjóherinn hefur staðfest að 64 tonn af kvikasilfri séu um borð í þýsku kafbátsflaki undan ströndum Noregs. Norsk náttúruverndarsamtök hafa krafist þess að kvikasilfrinu verði bjargað úr flakinu. 25.5.2005 00:01