Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þúsundir flýja Andijan Þúsundir Úsbeka hafa safnast saman við landamæri Úsbekistans og Kirgisistans í kjölfar átaka í borginni Andijan í gær. Að sögn yfirvalda í Kirgisistan hafa um 500 manns komist yfir landamærin, þar á meðal fangar sem frelsaðir voru úr fangelsi í borginni í gær, en landamærunum var lokað í gær vegna frétta af átökunum. 14.5.2005 00:01
Herinn hafi orðið að skjóta Sjónarvottar og fulltrúi mannréttindasamtaka í Úsbekistan segja að um fimm hundruð manns hafi fallið í skotárás hersins í borginni Andian, í gær. Forseti landsins segir að herinn hafi orðið að skjóta á mannfjöldann til að bæla niður uppreisn. 14.5.2005 00:01
Flugskattur til hjálpar fátækum Evrópusambandið veltir nú fyrir sér hvernig hægt sé að leggja sérstakan skatt á flugfarþega sem yrði notaður til aðstoðar í fátækari ríkjum heimsins. 14.5.2005 00:01
Fann lítið tungl við Satúrnus Geimfarið Cassini hefur fundið agnarlítið tungl sem er falið á milli hringja Satúrnusar og er þar á braut um plánetuna. 14.5.2005 00:01
Vegi lokað vegna alvarlegs slyss Mjög alvarlegt umferðarslys varð skammt fyrir sunnan bæinn Syðri-Bægisá í Hörgárbyggð um klukkan hálfsex í dag. Tveir bílar lentu í harkalegum árekstri en þrjár manneskjur voru í bílunum. Lögregla lokaði hringveginum í Öxnadal og má búast við að hann verði lokaður í um klukkustund í viðbót. 14.5.2005 00:01
Mannfjöldamet á Öræfajökli? Mannfjöldamet var að öllum líkindum sett á Öræfajökli í dag en tæplega 200 manns komust þá á Hvannadalshjnúk, hæsta tind Íslands. Fjallgöngumennirnir hófu gönguna klukkan fjögur í nótt frá Sandfelli í Öræfasveit. Langflestir göngumanna voru á vegum Ferðafélags Íslands, um eitt hundrað manns, undir fararstjórn Haraldar Arnar Ólafssonar pólfara. 14.5.2005 00:01
Framkvæmdir gætu hafist 2007 Fulltrúar Norðuráls á Grundartanga, Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um að kanna möguleika á rekstri álvers í Helguvík. Framkvæmdir gætu hafist árið 2007. 14.5.2005 00:01
Áfram unnið að álveri fyrir norðan Stjórnvöld munu áfram vinna að því að álver rísi á Norðurlandi, segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. Hún vonast til þess að samkomulagið sem undirritað var í gær þrýsti á Norðlendinga að sýna nauðsynlega samstöðu. 14.5.2005 00:01
Óánægja með sýknudóm yfir Lettum Óánægja er innan Alþýðusambandsins með niðurstöðu Héraðsdóms Austurlands sem sýknaði í gær tvo Letta af ákæru fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga en þeir störfuðu hér á landi án þess að hafa atvinnuleyfi. 14.5.2005 00:01
Listahátíð líka utan höfuðborgar Listahátíð í Reykjavík var sett í dag með pompi og prakt. Hátíðin verður þó ekki bundin við höfuðborgina því í ár er hún helguð alþjóðlegri samtímamyndlist og verður á þriðja tug sýninga allt frá Dagsbrún undir Eyjafjöllum til Eiða á Austurlandi. 14.5.2005 00:01
Stefna áfram að eigin vatnsveitu Formaður bæjarráðs Kópavogs fagnar vilja Orkuveitu Reykjavíkur til lækkunar á vatnsverði til Kópavogsbæjar. Hann segir bæinn engu að síður stefna að eigin vatnsveitu á næsta ári. 14.5.2005 00:01
Selma heillar alla Það er alveg ljóst að Selma Björnsdóttir átti daginn í blaðamannaherberginu í Kænugarði þar sem hún fór hreinlega á kostum. Þar tók hún lagið auk þess sem geislandi framkoma hennar bræddi alla viðstadda. Hún tók þrjú lög þar á meðal söng hún All out of luck, þar sem hún tók viðlagið á þýsku og þá söng hún gamalt króatískt eurovisionlag. 14.5.2005 00:01
Upplausn í Úsbekistan Upplausnarástand ríkir nú í borgini Andijan í fyrrverandi Sóvétlýðveldinu Úsbekistan. Tíu lögreglumenn voru í morgun teknir í gíslingu og minnst níu hafa verið drepnir og nokkur hús eru alelda. Í nótt gerðu uppreisnarmenn úr röðum herskárra múslíma áhlaup á fangelsi í borginni og talið er að þeim hafi tekist að ná þúsundum fanga lausum. 13.5.2005 00:01
Óttast útbreiðslu lömunarveiki Óttast er að lömunarveiki sé að breiðast út í heiminum á nýjan leik eftir að tekist hafði að halda henni í skefjum um árabil. Á þessu ári hafa 357 ný tilvik komið upp í sautján löndum þar sem veikinnar hafði ekki orðið vart um árabil. Fyrir aðeins tveimur árum var aðeins vitað um veikina í sex löndum og vonast var til að búið yrði að útrýma henni alveg á þessu ári. 13.5.2005 00:01
Ekið á ölvaðan umferðarstjóra Uppátæki sem líklega hefur átt að vera brandari fékk heldur slæman endi á Laugaveginum í nótt. Að sögn lögreglunnar höfðu einhverjir spaugsamir vegfarendur tekið bíl sem var í stæði á Laugavegi og dregið hann út á götu þannig að hann truflaði umferð. Maður sem leið átti hjá og ekki var allsgáður sá að ófremdarástand var að skapast og ákvað upp á sitt einsdæmi að taka að sér umferðarstjórn. 13.5.2005 00:01
Raðmorðingi tekinn af lífi Raðmorðinginn Michael Ross var tekinn af lífi í morgun í Connecticut í Bandaríkjunum, en þetta er fyrsta aftakan þar í nærri hálfa öld. Ross var gefinn banvæn sprauta en hann játaði að hafa myrt átta konur á níunda áratugnum. Á þriðja hundrað manns safnaðist saman fyrir utan fangelsið til að mótmæla aftökunni en vitni segir að ættingjar fórnarlamba hans, sem voru viðstaddir, hafi lýst því yfir að andlát morðingjans hafi verið of friðsælt. 13.5.2005 00:01
Löng barátta fram undan Æðsti yfirmaður landhers Bandaríkjamanna segir að baráttan við uppreisnarmenn í Írak gæti tekið mörg ár. Richard Myers hershöfðingi segir að það sé ekki hægt að búast við að sjá árangur af baráttunni í Írak næstum því strax og um mikið þolinmæðisverk sé að ræða. Uppreisnarmenn séu sífellt að aðlaga sig breyttum aðstæðum og finna nýjar leiðir til þess að ná ætlunarverki sínu. 13.5.2005 00:01
Setti Íslandsmet í blindskák Henrik Danielsen, skólameistari Hróksins, setti Íslandsmet í blindskák í gær. Henrik tefldi átján blindskákir, vann fimmtán þeirra og gerði jafntefli í þremur þannig að hann tapaði ekki einni einustu. Fjölteflið stóð í sex klukkustundir. Mótherjarnir voru margir af efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar. 13.5.2005 00:01
Læknaði ísbjörn af tannpínu Fyrir flesta er auðvelt að skreppa til tannlæknis ef tannpína gerir vart við sig. Málið flækist hins vegar nokkuð þegar 400 kílógramma ísbjörn á í hlut. Einn stærsti íbúinn í dýragarðinum í Moskvu hefur undanfarið verið hálflystarlaus eftir að hann fór að finna fyrir eymslum í tönnunum. Því var bugðið á það ráð að kalla til breskan tannlækni sem sérhæfir sig í að gera við tennur í dýrum til þess að losa ísbjörninn stóra við Karíus og Baktus. 13.5.2005 00:01
Sjö látnir í mótmælum í Afganistan Alls hafa sjö manns látist og nærri 80 slasast í átökum lögreglu og mótmælenda í Afganistan undanfarna daga. Eftir að það kvisaðist út að fangaverðir í herstöðinni á Guantanamo-flóa á Kúbu hefðu vanhelgað Kóraninn hefur gríðarleg reiði brotist út í Afganistan og fólk mótmælt á götum úti. 13.5.2005 00:01
Mannfjöldanum ekki viðhaldið Fæðingar á Íslandi eru færri en svo að þær dugi til að viðhalda mannfjöldanum. Þetta er samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands um fæðingar á Íslandi. Undanfarin fimm ár hefur frjósemi hverrar íslenskrar konu verið undir þeim viðmiðum sem höfð eru. Þó er frjósemi meiri hér en almennt á Vesturlöndum og sú mesta í Evrópu að Tyrklandi undanskildu. 13.5.2005 00:01
Fljótlega í dýrlingatölu Jóhannes Páll páfi annar fær flýtimeðferð og verður tekinn í dýrlingatölu fljótlega, að sögn eftirmanns hans, Benedikts sextánda. Hann lýsti því yfir við presta kaþólsku kirkjunnar að hann hefði vikið til hliðar reglunni um að fimm ár þurfi að líða áður en undirbúningur að því að taka menn í dýrlingatölu hefjist. 13.5.2005 00:01
Khodorkovskí á von á fleiri ákærum Saksóknarar í Rússlandi segja nýjar ákærur á hendur auðkýfingnum Míkhaíl Khodorkovskí væntanlegar. Khodorkovskí bíður nú dóms vegna skattaundanskots og fjárdráttar. Dóms í því máli er að vænta á mánudaginn kemur en saksóknarar hafa farið fram á tíu ára fangelsisdóm. 13.5.2005 00:01
Stofna félag um stóriðju Blása á til sóknar í stóriðjumálum á Norðurlandi. Stofnfundur félags með þetta markmið verður á Akureyri á þriðjudag. Í yfirlýsingu frá hópnum segir að mikið sé af óbeislaðri orku bæði í fallvötnum og jarðvarma. Félagið ætlar að beita sé með beinum og óbeinum hætti fyrir því að þessi orka verði beisluð og nýtt til eflingar atvinnulífs. 13.5.2005 00:01
Taldir hafa flegið ungan dreng Tveir menn hafa verið handteknir í Tansaníu grunaðir um að hafa myrt 9 ára gamlan dreng og selt húðina af honum fyrir 18 dollara. Húðin var notuð í lukkugripi sem þarlendur töframaður bjó til. Lögreglan komst á snoðir um málið eftir að mennirnir lentu í háværu rifrildi þar sem annar þeirra sakaði hinn um að ætla að drepa sig og flá. 13.5.2005 00:01
Lithimnuskönnun á flugvelli Farþegar á leið í sumarfrí á Flórída mega búast við annars konar eftirliti á flugvellinum en hingað til. Alþjóðaflugvöllurinn í Orlando er fyrsti flugvöllurinn sem tekur upp lithimnuskönnun til að reyna að bera kennsl á grunaða hryðjuverkamenn. Þeir sem eiga leið um völlinn stilla sér upp fyrir framan skanna og horfa í spegil á meðan lithimnan er lesin inn. 13.5.2005 00:01
Næstfrjósamastir í Evrópu Fæðingartíðni á Íslandi er komin niður fyrir það mark sem þarf til að viðhalda mannfjöldanum. Aðeins í Tyrklandi er þó frjósemi meiri en hér á landi af Evrópuríkjunum. 13.5.2005 00:01
Samið við Kína um fríverslun Ísland verður að öllum líkindum fyrsta ríkið í Evrópu sem mun gera fríverslunarsamning við Kína. Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Bo Xilai, utanríkisviðskiptaráðherra Kína, hafa undirritað samkomulag milli landanna sem er undanfari fríverslunarviðræðna. 13.5.2005 00:01
Færri herstöðvum lokað en til stóð Herstöðvum Bandaríkjamanna á heimavelli verður fækkað mun minna en til stóð. Áhrifin á Keflavíkurstöðina eru óljós en fjölmargar tillögur hafa verið lagðar fram um framtíðarfyrirkomulag stöðvarinnar. 13.5.2005 00:01
Fjölmenn mótmæli í Úsbekistan Þúsundir mótmæla eftir að meintir íslamskir öfgamenn slepptu hundruðum fanga í Úsbekistan í morgun. Vísbendingar eru um að mótmælendur séu þó ekki andstæðingar öfgamannanna meintu heldur beinist mótmælin að stjórnvöldum. 13.5.2005 00:01
Von á dómi vegna HIV-máls í Líbíu Hæstiréttur í Líbíu mun í dag skera úr um hvort fimm búlgarskir hjúkrunarfræðingar og einn palestínskur læknir, sem dæmdir eru fyrir að sýkja börn þar í landi af HIV-veirunni, muni verða líflátnir. Sexmenningarnir voru dæmdir til dauða í mars síðastliðnum en þeir áfrýjuðu. Að minnsta kosti 380 börn sýktust af HIV þegar þau fengu sýkt blóð á spítala í borginni Benghazi þar í landi. 13.5.2005 00:01
Góð veðurspá fyrir helgina Prýðis ferða- og útvistarveður verður um hvítasunnuhelgina sem er fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins. Fullvíst má telja að tugir þúsunda verði á faraldsfæti. Lögreglan á Selfossi býst við mikilli umferð um sitt umdæmi enda mikil sumarbústaðabyggð þar auk þess sem margir eiga væntanlega leið í gegnum umdæmið. 13.5.2005 00:01
Hermenn skjóta á mótmælendur Hermenn skutu á þúsundir mótmælenda í bænum Andijan í Úsbekistan í dag en mótmælendurnir kröfðust afsagnar Islams Karimovs, sem hefur setið á stóli forseta um árabil. Ekki er enn vitað hversu margir eru látnirr en skotið var af pallbíl sem hermennirnir voru á. Ástæða mótmælanna er sögð sú að múslímar sem ekki sætta sig við ríkisútgáfu trúarinnar eru hnepptir í fangelsi og kúgaðir. 13.5.2005 00:01
Guðjón hættur hjá Keflavík Guðjón Þórðarson, þjálfari Keflvíkinga í knattspyrnu, tilkynnti forsvarsmönnum félagsins fyrir stundu að hann hefði rift samningi sínum. Ástæðan sem hann gaf upp eru vanefndir á samningi. Rætt verður við Guðjón í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 13.5.2005 00:01
Íranar búi brátt yfir tækni Íranar munu búa yfir tækniþekkingu til að smíða kjarnorkusprengju innan sex til níu mánaða. Þetta sagði Silvan Shalom, utanríkisráðherra Ísraels, í útvarpsviðtali í Ísrael í dag. Ísraelar, sem talið er að eigi um 200 kjarnorkusprengjur, óttast mjög að Íranar komist sér upp kjarnavopnum því þeir eru mjög andvígir Ísraelsríki. 13.5.2005 00:01
Skærur milli Ísraela og Hizbollah Til átaka kom á milli Hizbollah-skæruliða og ísraelskra hermanna nærri landamærum Ísraels og Líbanons í dag. Að sögn talsmanna skæruliðasamtakanna var sprengikúlum skotið á bækistöð Ísraelshers nærri landamærunum til þess að hefna fyrir árásir Ísraela, eins og það er orðað, og svöruðu ísraelskir hermenn með því að skjóta á hæðir nærri líbönskum landamærabæ þar skæruliðahópurinn hefur stöðvar. 13.5.2005 00:01
Sýknað af kröfum tóbaksfyrirtækja Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfu British American Tobacco Nordic í Finnlandi og British American Investment í Bretlandi en stefnendur kröfðust viðurkenningar dómstóla á því að takmarkanir í tóbaksvarnarlögum frá árinu 2001 um sýnileika brytu í bága við eignarréttarákvæði, tjáningarfrelsisákvæði og atvinnufrelsisákvæði. Héraðsdómur var þó ósammála stefnendum og sýknaði ríkið. 13.5.2005 00:01
Meirihluti fylgjandi stjórnarskrá Naumur meirihluti Frakka hyggst samþykkja stjórnarskrá Evrópusambandsins samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni sem birt var í dag. Hún var gerð fyrir dagblaðið <em>Le Monde</em>,<em> RTL-útvarpsstöðina</em> og sjónvarpsstöðina <em>LCI</em>. Samkvæmt henni ætla 52 prósent aðspurðra að haka við já á kjörseðlinum 29. maí næstkomandi en 48 prósent segjast munu hafna stjórnarskránni. 13.5.2005 00:01
Níu látnir í mótmælum í Afganistan Að minnsta kosti níu manns hafa látist í mótmælum í Afganistan í dag, en mótmælendur fóru út á götur fjórða daginn í röð í kjölfar frétta af því að bandarískir hermenn hefðu vanhelgað Kóraninn í fangabúðunum á Guantanamo-flóa við Kúbu þar sem hundruð Afgana eru í haldi. Fréttir berast af átökum milli mótmælenda og hers og lögreglu víða í landinu, en mótmælin hófust í kjölfar föstudagsbæna múslíma. 13.5.2005 00:01
Sauðburður á fullt í Laugardalnum Sauðburður er hafinn í Húsdýragarðinum í Laugardal og hafa þrjár ær af níu þegar borið. Ærin Söðulkolla var fyrst til að bera þetta vorið þegar hún bara tveimur lambhrútum aðfaranótt 30. apríl. Fréttir af því voru ekki sendar út strax að burði loknum þar sem Söðulkolla afneitaði öðru lambinu en hún hefur nú tekið það í sátt. 13.5.2005 00:01
Eigi enn á hættu illa meðferð Amnesty International segir fanga í haldi Bandaríkjamanna í Írak og víðar enn eiga á hættu illa meðferð þrátt fyrir mikla umræðu vegna hneyklisins í Abu Ghraib fangelsinu fyrir ári. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ríkisstjórn George Bush Bandaríkjaforseta sýni lítinn sem engan vilja til að hlýða alþjóðalögum og lítinn vilja til að reyna að gera betur í sínum málum. 13.5.2005 00:01
Norðmenn fá Konungasögur að gjöf Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra mun á fundi með Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, sem haldinn verður á morgun afhenda norsku þjóðinni gjöf Íslendinga í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Norðmenn öðluðust sjálfstæði og norska konungdæmið var endurreist. Gjöfin er 500 eintök af Konungasögum í fjórum bindum með norskum inngangi. Áætlaður kostnaður við verkið er 14-16 milljónir króna. 13.5.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar enn Atvinnuleysi í apríl var 2,3 prósent samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar og hefur ekki mælst jafnlítið í þessum mánuði síðan árið 2001, en þá mældist það 1,6 prósent. Alls voru skráðir rúmlega 74.200 atvinnuleysisdagar á landinu öllu í síðasta mánuði sem jafngildir því að 3.542 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. 13.5.2005 00:01
Fórst í bruna í Stokkhólmi Hin heimsþekkta sænska söng- og leikkona Monica Zetterlund fórst í eldsvoða í Stokkhólmi í fyrradag. Eldur kom upp í íbúð hennar í miðborg Stokkhólms og var Zetterlund látin þegar slökkvilið kom á vettvang. Hún var fötluð og bundin í hjólastól síðustu ár ævinnar. 13.5.2005 00:01
Fjöldamorðingi dæmdur í Lettlandi Dómstóll í Ríga, höfuðborg Lettlands, dæmdi í vikunni mann í lífstíðarfangelsi fyrir morð á 13 manns. 13.5.2005 00:01