Þrefaldur verðmunur milli hverfa 29. desember 2004 00:01
Verð á fermetra í eftirsóttustu íbúðunum á vinsælum svæðum í höfuðborginni getur farið í rúmlega 300 þúsund krónur á meðan fermetrann en í samsvarandi íbúð á öðrum svæðum getur kostað um 100 þúsund. Verðmunur milli hverfa hefur aukist verulega í þeirri þróun fasteignaverðs sem orðið hefur að undanförnu. "Það ber að hafa í huga, að þarna er alls ekki um að ræða einhver meðaltöl," sagði Björn Þorri Viktorsson formaður Félags fasteignasala. "Hæsta verðið sjáum við í einhverjum súper eignum. Lægstu verðin geta verið eitthvað um 100 þúsundum í stöku eignum. Þetta eru ítrustu verð í báðum tilvikum. Hitt er staðreynd, að sú verðþróun sem verið hefur á fasteignamarkaðinum undanfarið hefur skýrt þann verðmun sem er á milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að sá munur eigi eftir að verða meiri þegar fram í sækir." Spurður um dýrustu hverfin í borginni sagði Björn Þorri að nefna mætti ákveðin svæði í póstnúmeri 101. Þá mætti nefna ákveðin svæði í vesturbænum, 107, svo og ákveðin svæði á Seltjarnarnesi. Einnig væri Fossvogur ofarlega á blaði hvað verð snerti, svo og tiltekin svæði í Garðabæ, Kópavogi, Grafarholtið og svæði í Grafarvogi. "Í Grafarholti er til að mynda verið að auglýsa í dag einbýlishús, sem jafnvel eru ekki fullbúin á um og yfir 40 milljónir króna og þau eru að seljast. Það hefði einhvern tíma þótt merkilegt í ekki eldra hverfi, sem ekki er orðið gróið. Ég held því að allar hrakspár sem gengu milli manna um það svæði fyrir 2 - 3 árum síðan séu hreint ekki að rætast. Mér hefur sýnst að mjög vel gangi að selja fasteignir þar." Varðandi ódýrustu svæðin sagði Björn Þorri að þau væru í jaðarbyggðum höfuðborgarsvæðisins og nágrenni. Hann sagði að kaupendur væru í mjög auknum mæli að leita út fyrir þessi svokölluðu höfuðborgarmörk og mætti þar nefna Reykjanesbæ, Grindavík, Voga á Vatnsleysuströnd, Akranes, Hveragerði og Selfoss. Í Hveragerði væri til að mynda mikið byggt og allt seldist það.
Fréttir Innlent Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Sjá meira