Innlent

Álver rafmagnslaust í klukkutíma

Rafmagnslaust varð í um það bil klukkustund í álverinu og járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga í nótt þegar rafmagnstruflanir urðu víða á Suður- og Vesturlandi eftir að hvassviðri brast á í nótt, með ofankomu. Framleiðsla stöðvaðist en ekki varð þó tjón á framleiðslubúnaði í verksmiðjunum. Rafmagnslaust varð um alla Árnessýslu í rúma hálfa klukkustund og sömu sögu er að segja af Vesturlandi og Vestfjörðum. Þá varð augnabliks rafmagnstruflun í Reykjavík í nótt án þess að rafmagn færi alveg af, en truflunin ruglaði tölvur, sem verið var að nota. Þórhallur Hrafnsson verkfræðingur hjá kerfisstjórn Landsvirkjunar var í stjórnstöðinni að greiða úr vandanum. Hann segist telja að ísing eða eldingaveður hafi valdað rafmagnsleysinu. Hann segir ekkert tjón hafa orðið á mannvirkjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×