Ekkert fikt með flugeldana 29. desember 2004 00:01 "
Ef fólk fer rétt með skoteldana og fylgir leiðbeiningum þá er hættan af þeim hverfandi," segir Valgeir Elíasson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Hann segir alvarlegustu slysin verða þegar strákar séu að fikta í flugeldunum, safna saman púðrinu úr þeim og búa til stærri sprengjur. "Við ætlum að einbeita okkur að því í ár að koma í veg fyrir að verið sé að leika sér með púðrið. Bæði eiga afgreiðslumenn að vera duglegir við að ræða þessi mál við strákana og eins verða foreldar að vera vakandi yfir því hvað börnin þeirra eru að gera. Slysin í fyrra voru flest af völdum fikts og þau slys urðu einkum dagana fyrir áramót. Meirihluta flugeldaslysa á gamlárskvöld má hins vegar rekja til áfengisnotkunar og það er annað vandamál. Það verður aldrei of brýnt fyrir fólki að brennivín og flugeldar passa engan veginn saman." Valgeir segir þýðingarmikið að skera flipana vel af kössum utan af tertum annars geti þeir breytt skotstefnunni. Þá biður hann fólk að huga vel að skepnum. Húsdýr beri að loka inni með ljósi og tónlist svo þau verði síður vör hávaðans og hann bendir þeim sem kveðja árið í sumarbústað á að gæta að hvort hrossastóði í nágrenninu geti hugsanlega stafað hætta af sprengingunum. Góðu fréttirnar segir Valgeir þær að nánast hafi náðst að útrýma augnslysum síðan farið var að nota hlífðargleraugu, enda um 70 þúsund flutt inn af þeim árlega. Hann segir merkingar á skoteldunum líka alltaf í þróun. "Við erum með mjög nákvæmar öryggisleiðbeiningar á íslensku og einnig skýrar myndir af hlutunum enda verðum við að forðast slysin. Þetta á að vera ánægjutími og hann verður það ef farið er eftir settum reglum," segir Valgeir að lokum.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Sjá meira