Fjölmargra Norðurlandabúa saknað 29. desember 2004 00:01
Um það bil 3500 erlendra ferðamanna er enn saknað eftir hamfarirnar í Asíu, þar af um fimmtánhundruð Svía og fjögur hundruð og fimmtíu Norðmanna. Þarlend yfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa áttað sig seint á alvarleika málsins. Norðurlandabúar og þá sérstaklega Svíar og Norðmenn eru stór hluti þeirra erlendu ferðamanna sem saknað er á hamafarasvæðunum. Fundist hafa lík 473 erlendra ferðamanna en ljóst er að sú tala á eftir að hækka mikið. Yfirvöld bæði í Noregi og Svíþjóð hafa nú tekið við sér eftir að hafa verið mjög sein í gang vegna þessara hamfara og flugfélagið SAS ákvað í morgun að opna loftbrú á milli Norðurlanda og hamfarasvæðana til að flytja ferðamenn heim og hjálpargögn út. Þá er flugvél Loftleiða, dótturfélags Flugleiða, einnig á leið til hamfarasvæðanna til að sækja ferðamenn. Utanríkisráðherra Svía hélt blaðamannafundi í gær og utanríkisráðherra Noregs í morgun. Báðir segja hugsanlegt að um sé að ræða eitt mesta mannfalla sænskra og norskra ríkisborgara í einu vetfangi í áratugi. Leila Freivalds, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að líklega hefðu ekki fleiri Svíar látist í einu síðan farþegaskipið Estonia sökk árið 1994 með þeim afleiðingum að yfir fimm hundruð Svíar féllu í valinn. Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, segir að andrúmsloftið í landinu sé afar dapurlegt. Hann segir fréttir stöðugt allan sólarhringinn í landinu vegna hamfaranna og meðal frétta sem berist séu hjartaskerandi sögur af börnum sem týnt hafi foreldrum sínum. Hann segir sálfræðinga og presta vera til staðar á aflokuðu svæði og þeir þjónusti það fólk sem eigi um sárast að binda. Sænskir fjölmiðlar hafa í dag sagt sögu hins tveggja ára Hannesar Bergstrom sem kallaður er kraftaverkabarnið. Bandarískt par fann hann aleinan, vafinn inn í teppi og bjargaði honum undan flóðbylgjunni. Mynd hans var sett á netið og hann hefur nú komist til fjölskyldu sinnar. Pabbi hans er mikið slasaður og liggur á sjúkrahúsi en enn er leitað að móður hans. Af þeim erlendu ferðamönnum sem saknað er eru Svíar fjórði fjölmennasti þjóðarhópurinn, hinir eru Bretar, Frakkar og Þjóðverjar. Svavar segir að ferðamennska frá Svíþjóð til Taílands hafi verið meiri en í flestum öðrum Evrópulöndum. Því sé þetta enn sárara í Svíþjóð en víðast annars staðar í Evrópu. Meðal annars hafi fjöldi fólks frá Svíþjóð eytt jólum sínum í Taílandi undanfarin ár og því fólki hafi farið fjölgandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira