Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hámarkssektir þrefaldaðar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur með nýrri reglugerð þrefaldað upphæð hámarkssekta við umferðalagabrotum. Þær hækka úr 100 þúsund krónum í 300 þúsund krónur. 15.12.2004 00:01
Fiskilifur olli nærri slysi Minnstu munaði að illa færi þegar tvö stór fiskkör, full af fiskilifur, losnuðu á palli vörubíls, sem var á leið niður Kambana í gærkvöldi, og féllu á veginn. Ökumanni bíls, sem komu úr gagnstæðri átt, tókst með naumindum að forða sér undan körunum, en annað þeirra lenti utan í bílnum og skemmdi hann eitthvað. 15.12.2004 00:01
Slasaðir eftir eld í kvikmyndahúsi Yfir hundrað manns slösuðust þegar eldur kviknaði í kvikmyndahúsi í Istanbúl í Tyrklandi í gærkvöldi. Hundruð gesta voru við frumsýningu nýrrar tyrkneskrar myndar þegar eldurinn kviknaði. Töluverður fjöldi gesta varð fyrir reykeitrun, en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá kertum sem notuð voru sem skreyting á frumsýningunni. 15.12.2004 00:01
3 hermenn látnir eftir sprengingu Þrír afganskir hermenn fórust í sprengingu í borginni Kandahar í morgun, að sögn lögreglustjóra borgarinnar sem taldi líklegt að tala fallinna myndi hækka. Blaðamönnum var meinað að kanna vettvanginn. 15.12.2004 00:01
Réttað yfir eiturefna-Ali Réttarhöld yfir eiturefna-Ali, einum helsta samstarfsmanni Saddams Hússeins, hefjast í Bagdad í dag. Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, tilkynnti í gær óvænt um að réttarhöld yfir nokkrum af fyrrverandi ráðamönnum Íraks hæfust von bráðar og fyrir stundu var greint frá því að eiturefna-Ali yrði fyrstur. 15.12.2004 00:01
Alli ríki hættur útgerð Alli ríki, eða Aðalsteinn jónsson útgerðarmaður á Eskifirði, er endanlega hættur útgerð og Elvar Aðalsteinsson, sem verið hefur starfandi stjórnarformaður Eskju hefur selt allan sinn hlut og lætur af stjórnarformennsku. 15.12.2004 00:01
Láta nótaskipin um veiðina Sjómenn á þremur stórum fjölveiði- og fullvinnsluskipum, sem eru á síldarmiðunum fyrir austan land, eru hættir að hafa fyrir því að veiða sjálfir. Nú láta þeir nótaskipin um það og dæla svo aflanum úr þeim yfir í stóru skipin til fullvinnslu. 15.12.2004 00:01
5 hafa verið látnir lausir Mannræningjar í Aþenu sem rændu rútu í morgun hafa látið fimm gísla lausa af þeim 26 sem þeir höfðu í haldi. Þeir segjast munu láta allar konur um borð lausar ef þeir fá bílstjóra um borð, ella fari þeira að taka gísla af lífi. Þeir vilja komast á flugvöllinn í Aþenu og fljúga þaðan til Rússlands. 15.12.2004 00:01
6 ráðherrum skipt út Ahmed Qureia, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínumanna, ætlar að skipta um sex ráðherra í heimastjórninni. Ráðherrarnir voru allir nánir samstarfsmenn Yassers Arafats, forseta Palestínu, sem féll frá í nóvember. Það eru utanríkisráðherra og innanríkisráðherra sem fá að fjúka, auk fjármálaráðherra og þriggja annarra. 15.12.2004 00:01
Vilja komast til Rússlands Mannræningjar sem rændu strætisvagni í Aþenu í morgun krefjast einnar milljónar evra í lausnargjald fyrir á þriðja tug gísla sem þeir hafa enn í haldi. Þeir hafa látið fimm lausa, en segjast munu halda hinum þar til þeir komast með flugi til Rússlands. 15.12.2004 00:01
Jón frá Pálmholti látinn Jón Kjartanson frá Pálmholti er látinn, 74 ára að aldri. Jón frá Pálmholti var formaður Leigjendasamtakanna um árabil, sat í stjórn Rithöfundafélags Íslands og einnig í stjórn Ásatrúarfélagsins. Eftir Jón liggja fjölmörk ritverk, á þriðja tug bóka auk blaða- og tímaritagreina. 15.12.2004 00:01
15% brottfall af háskólastigi Brottfall nemenda af háskólastigi var tæp 15 prósent milli áranna 2002 og 2003. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman. Niðurstöðurnar sína meðal annars að brottfall er minna meðal nemenda í dagskóla og fjarnámi en talsvert meira meðal nemenda í kvöldskólum. 15.12.2004 00:01
3 Pólverjar dóu er þyrla hrapaði Þrír pólskir hermenn fórust þegar herþyrla hrapaði í Írak í dag. Fjórir aðrir særðust. Svo virðist sem einhverskonar vélarbilun hafi orðið til þess að þyrlan hrapaði með þessum afleiðingum. 15.12.2004 00:01
Misnotaði systurdóttur sína Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega þrítugan karlmann í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir kynferðisbrot gegn systurdóttur sinni. Stúlkan var aðeins níu ára gömul þegar maðurinn braut fyrst gegn henni, en brotin áttu sér stað á árunum 1998 til 2002. 15.12.2004 00:01
Bjargaði lífi ungs Dana Þrítugur Íslendingur, Einar Helgason, sýndi mikið snarræði þegar hann bjargaði ungum Dana sem hafði dottið niður á lestarteinana í Österport-stöðinni í Kaupmannahöfn seint á laugardagskvöldið, og lá þar ósjálfbjarga rétt áður en lestin brunaði inn á stöðina. 15.12.2004 00:01
Hóta að krefjast skaðabóta Skeljungur hótar Kópavogsbæ að krefjast skaðabóta ef bærinn heimilar Atlantsolíu að reisa bensínstöð í grennd við bensínstöð Skeljungs við Dalbraut. Framkvæmdastjóri Atlantsolíu segir þetta vera samkeppnislegt skemmdarverk. 15.12.2004 00:01
Fá nú borgað fyrir egg Konur geta selt egg sín til tæknifrjóvgunarstofunnar Art Medica, vegna skorts á eggjum. Slíkt hefur ekki áður tíðkast hér landi. Þrátt fyrir að kallað hafi verið eftir gjafaeggjum hefur það litlu skilað hingað til. Um 15 tæknifrjóvganir eru framkvæmdar árlega en talið er að þörfin sé tvöfalt meiri. 15.12.2004 00:01
Vaxandi hópur með jólakvíða EA-samtökin halda sinn árlega fund um jólakvíða í Hallgrímskirkju á morgun en vaxandi hópur berst við mikinn kvíða fyrir hátíðarnar. EA samtökin, eða Emotions Anonymous starfa eftir sömu hugmyndafræði og AA samtökin. Unnið er eftir tólf spora kerfi en í stað áfengis er það andleg vanlíðan sem félagar í EA kljást við. Samtökin funda í hverri viku í Reykjavík en ástæða þótti til að halda opinn fund í aðdraganda jólanna. Kristbjörg Árnadóttir, talsmaður félagsins, segir hátíðarnar mörgum erfiðar og ýmislegt komi til, eins og hjónaskilnaðir, sjúkdómar og ekki síst fjárhagsörðugleikar. Hún segir þá hugmynd hafa myndast að allir þurfi að eyða mjög miklu um jólin og því séu jólin erfiður tími fyrir þá sem eiga minnst. Fundurinn, sem haldinn verður í Hallgrímskirkju klukkan fjögur á morgun er öllum opinn og að sjálfsögðu verður nafnleyndar gætt. Fólki gefst þar kostur á að ræða um eigin tilfinnignar eða hvað eina sem því liggur á hjarta. Kristbjörg segir að fundurinn verði öðruvísi en venjulega að því leyti að fólki verði leyft að tjá sig um það sem það vill á þessum fundi. 15.12.2004 00:01
Hluti Stokkhólms girtur af Lögreglan í Stokkhólmi í Svíþjóð hefur girt af stóran hluta borgarinnar vegna tilraunar til þess að sprengja upp gjaldeyrisbanka í miðborg Stokkhólms fyrr í dag. Starfsmaður gjaldeyrisbankans gekk inn í hann með sprengju bundna við bringuna. 15.12.2004 00:01
Líkur á öflugum skjálfta í Tokyó Jarðskjálftasérfræðingar í Japan segja miklar líkur á því að öflugur jarðskjálfti, sem gæti orðið allt að 13 þúsund manns að bana, muni ríða yfir Tokyo, höfuðborg Japans á næstu 30 árum. Í skýrslu frá yfirvöldum, sem lak til fjölmiðla, segir að 70 prósent líkur séu á að skjálfti upp á 7 á richter muni verða innan 30 ára. 15.12.2004 00:01
Starfsmannastjóri var varaður við Starfsmannastjóri Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðanda í Úkraínu, segist hafa fengið viðvaranir um að líf Júsjenkós kynni að vera í hættu fyrir meira en fjórum mánuðum síðan. Hann segist hafa fengið símtal frá fyrrverandi sérsveitarmönnum í júlí, sem sögðust ætla að koma frambjóðandanum fyrir kattarnef og líklegast væri að þeir myndu nota til þess eitur. 15.12.2004 00:01
Sigurður maður ársins Frjáls verslun hefur útnefnt Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, sem mann ársins 2004 í íslensku atvinnulífi. Hann hlýtur þennan heiður fyrir einstaka hæfni við stjórnun félagsins. Sigurður hefur verið forstjóri Flugleiða frá því í júní árið 1985, eða í tæp tuttugu ár. 15.12.2004 00:01
SMS í heimasíma Fyrsta SMS skeytið var sent í heimasíma hér á landi í síðustu viku. Um var að ræða tilraunasendingu hjá Símanum en að undanförnu hafa tæknimenn fyrirtækisins unnið að uppsetningu SMS kerfis fyrir heimasíma. Búist er við viðskiptavinum Símans standi þessi þjónusta til boða strax í byrjun næsta árs. 15.12.2004 00:01
Reyna að koma í veg fyrir útboð Rússneski olíurisinn Yukos hefur farið þess á leit við dómsstóla í Bandaríkjunum að þeir reyni að koma í veg fyrir að meginhluti fyrirtækisins verði boðinn upp á sunnudaginn kemur. Til stendur að yfirvöld í Rússlandi bjóði út dótturfyrirtæki Yukos, sem framleiðir 60 prósent af allri olíu fyrirtækisins, á sunnudaginn, vegna vangoldinna skatta upp á 9 milljarða bandaríkjadala. 15.12.2004 00:01
5 í haldi vegna hryðjuverkahótana Fimm menn eru í haldi lögreglunnar á Spáni vegna gruns um aðild að skæruliðahóp sem hugðist sprengja hæstarétt Spánar og hótaði í síðustu viku sprengingu á Bernabeu-knattspyrnuvellinum á meðan á leik Real Madrid og Real Sociedad stóð. Flauta þurfti leikinn af, en ekki reyndist fótur fyrir hótuninni. 15.12.2004 00:01
Ætluðu að ræna gjaldeyrisbankann Sænska lögreglan leitar að hópi manna sem grunaðir eru um að hafa gert tilraun til að ræna gjaldeyrisbanka í höfuðborginni fyrr í dag. Mennirnir komu sprengju fyrir á starfsmanni bankans og fyrirskipuðu honum að fara til vinnu í morgun og krefjast peninga. Til að fá vilja sínum framgengt héldu þeir sambýliskonu hans fanginni á heimili þeirra. 15.12.2004 00:01
Aðildarviðræður verði samþykktar Jose Manuel Barosso, forseti framkvæmdastjórnar evrópusambandsins, segir rétt að gefið verði grænt ljós á aðildarviðræður Tyrkja að sambandinu á föstudaginn, þegar formleg ákvörðun þar að lútandi verður gerð heyrinkunn. 15.12.2004 00:01
Óskað eftir aðstoð í Rússlandi Á fundi félagsmálaráðherra Evrópuríkja sem haldinn var í Tallinn í gær óskaði fulltrúi Rússlands eftir tafarlausri sérfræðiaðstoð og samstarfi sjúkrahúsa til að hefta útbreiðslu eyðni í Rússlandi. Talið er að 300 þúsund manns séu eyðnismitaðir í landinu. Þeir sem smitast nú eru nær eingöngu gagnkynhneigðir einstaklingar. 15.12.2004 00:01
Hafa látið 12 lausa Mannræningjar sem rændu strætisvagni í Aþenu í morgun krefjast einnar milljónar evra í lausnargjald fyrir tólf gísla sem þeir hafa enn í haldi. Þeir hafa látið aðra tólf lausa, en segjast munu halda hinum þar til þeir komast með flugi til Rússlands. Um þjóðerni mannræningjanna er ekkert vitað, en talið er að þeir séu annað hvort Rússar eða Albanar. 15.12.2004 00:01
Farið fram á að ferðum fjölgi Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra fékk afhenta áskorun til ríkisstjórnarinnar um að hún stuðli að því að ferðum Herjólfs fjölgi í þrettán á viku, til hagsbóta fyrir sjávarútvegsfyrirtækin í Eyjum. Þetta mál hafði áður verið rætt utan dagskrár á Alþingi á dögunum að frumkvæði Hjálmars Árnasonar Alþingismanns. 15.12.2004 00:01
Minnst 8 látnir í Kerbala Að minnsta kosti átta létust og á fjórða tug eru sárir eftir sprengingu í borginni Kerbala í Írak. Meðal hinna særðu er aðstoðarmaður al-Sistanis, æðsta manns Shíta í Írak. Ekki er vitað hvað býra að baki árásinni, en líklegt þykir að hún tengist kosningabaráttunni í Írak, sem hófst fyrir alvöru í dag. 15.12.2004 00:01
Skeljungur hótar skaðabótakröfu Skeljungur hefur mótmælt því að Atlantsolía fái að reisa sjálfsafgreiðslustöð á lóð Teits Jónassonar hf. við Dalsveg í Kópavogi við hliðina á bensínstöð Skeljungs. Í bréfi til skipulagsnefndar Kópavogs segir að vegna nálægðar við bensínstöð Skeljungs muni breytingin leiða til minni eldsneytissölu fyrirtækisins og verulegs fjárhagstjóns. 15.12.2004 00:01
Skilorð vegna dráttar á rannsókn Rúmlega þrítugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn systurdóttur sinni, sem er þroskahömluð. Sjálfur er maðurinn nokkuð þroskahamlaður og í slakri félagslegri stöðu. 15.12.2004 00:01
Sótti veikan sjómann Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann um borð í togarann Guðmund frá Nesi sem staddur var um eitt hundrað sjómílur norðvestur af Snæfellsnesi. 15.12.2004 00:01
Festu sprengju við starfsmann Þrír menn eru eftirlýstir í Svíþjóð fyrir að ræna starfsmanni gjaldeyrisbanka, festa sprengju við hann og ræna svo bankann. Þegar maðurinn kom heim til sín eftir vinnu í gærkvöld biðu hans þar þrír ókunnir menn og höfðu sambýliskonu hans í haldi. 15.12.2004 00:01
Sendiráði Breta ekki lokað Breska sendiráðið á Íslandi er ekki eitt af þeim sem Bretar ætla að loka vegna niðurskurðar. Greint var frá því í mars að sendiráðið væri ofarlega á lista yfir þau sem loka ætti. Nú hefur listinn verið birtur og eru það níu sendiráð sem verður lokað, í Afríku og Asíu. Auk þess verður nokkrum ræðismannsskrifstofum lokað. 15.12.2004 00:01
Samið um viðbótarframlag Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og BSRB hafa undirritað samkomulag um viðbótarframlag borgarinnar í lífeyrissjóði starfsmanna hennar. Það felur í sér að Reykjavíkurborg greiðir viðbótarframlag í lífeyrissjóð; allt að tveggja prósenta framlag gegn jafnháu framlagi starfsmanns. 15.12.2004 00:01
Skrifað undir vegna sýningarskála Borgarstjóri skrifaði í dag undir kaupsamning vegna kaupa fasteignafélagsins Stoða hf. á þúsund fermetra sýningarskála fornminja, sem staðsettur er undir Aðalstræti 16. Kaupverðið er 160 miljónir króna. Einnig var skrifað undir leigusamning sem kveður á um leigu Reykjavíkurborgar á húsnæðinu fram til árisins 2030. 15.12.2004 00:01
Reykbúr flutt vegna dópsala Reykaðstaða sjúklinga á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut verður flutt á næstunni. Ástæðan er meðal annars sú að dópsalar hafa stundað að bjóða fíkniefni til sölu þar og fólk hefur jafnvel sofið þar. </font /></b /> 15.12.2004 00:01
Eggjakaup af konum á gráu svæði Landlæknir segir það "á mjög gráu svæði" að kaupa egg af konum til tæknifrjóvgunar eins og boðað hefur verið hér á landi. Hann segir þó ekkert í lögum sem banni það. Embættið mun ræða málið við forráðamenn Art Medica. </font /></b /> 15.12.2004 00:01
Kvartanir vegna umönnunar aldraðra Landlæknisembættinu berast árlega kvartanir vegna ónógrar umönnunar og hjúkrunar aldraðra sem dvelja á stofnunum, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis. 15.12.2004 00:01
Sátt um Lund Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma skipulagstillögur Lundar í Fossvogsdal. Fyrri tillögur sem gerðu ráð fyrir 460 íbúðum á lóðinni reyndust mjög umdeildar og var mótmælt af íbúum í nágrenni lóðarinnar. 15.12.2004 00:01
640 þúsund til Palestínu Hagur heyrnardaufra barna í Palestínu kann að vænkast á næstunni því senn verða sendar 640 þúsund krónur til kaupa á sérstökum búnaði þeim til handa. Um helmingur fjárins hefur safnast í hlutaveltum sem íslensk börn hafa efnt til um stræti og torg en hinn helmingurinn kemur frá Leikskólum Reykjavíkur. </font /></b /> 15.12.2004 00:01
Verður varðveitt í Vestmannaeyjum Ríkið kaupir teikningar Sigmunds fyrir 18 milljónir króna. Ætlunin er að varðveita þær í óreistu meningarhúsi í Vestmannaeyjum. 15.12.2004 00:01
Hópuppsagnir fyrirhugaðar Uppsagnir eru fyrirhugaðar hjá Ratsjárstofnun vegna aukinnar sjálfvirkni í rekstri ratsjárstöðva stofnunarinnar. Ólafur Örn Haraldsson, sem unnið hefur að verkefnum hjá Ratsjárstofnun og tekur við forstjórastöðunni um áramótin, segir að hvorki liggi fyrir hversu mörgum verði sagt upp né hvenær. 15.12.2004 00:01