Fleiri fréttir

Kanar jákvæðir

Meirihluti Bandaríkjamanna segjast vera jákvæðir gagnvart öðru kjörtímabili George W. Bush sem forseta, en margir hafa einnig áhyggjur af nokkrum stefnumálum, eftir því sem kemur fram í New York Times/CBS News skoðanakönnun. 

Varð alelda á nokkrum mínútum

Hafþór Þórsson vaktmaður varð fyrstur var við eldinn á svæði Hringrásar við Klettagarða um klukkan hálf tíu í fyrrakvöld. Hann var að klára vakt sem átti að ljúka klukkan tíu og fór í síðustu eftirlitsferðina. "Ég gekk út og varð þá var við smá loga í þakhorninu á skemmunni," segir Hafþór.

Nágranninn vildi ekki fara

Heiðar Smárason þurfti að yfirgefa heimili sitt við Brekkulæk ásamt fjölskyldu sinni vegna stórbrunans sem varð á svæði Hringrásar. Heiðar segir fyrst hafa komið lykt inn í íbúðina en á einum og hálfum tíma hafi verið kominn nokkur reykur inni.

Hugurinn hjá þeim sem flúðu

Hringrás varð fyrir verulegu tjóni í brunanum í fyrrinótt að mati Einars Ásgeirsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann segir að tryggingarfélag sé að meta tjónið og ekki sé hægt að slá neinu föstu sem stendur. Það sé líka aukaatriði í málinu þar sem hugurinn sé hjá fólkinu sem þurfti að yfirgefa heimili sín í tengslum við brunann.

Hver klukkutími eins og korter

Jóhann Viggó Jónsson slökkviliðsmaður var heima hjá sér í rólegheitum þegar útkallið kom. Hann var búinn að vera við slökkvistörf í fjórtán klukkutíma þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær. Jóhann hefur áður staðið í ströngu á svæði Hringrásar þar hann tók þátt í slökkvistarfi á sama stað árið 1991.

Fyrsta verk að hefta útbreiðslu

Fyrsta verk slökkviliðsins við stórbruna eins og þann sem varð á svæði Hringrásar er að hefta útbreiðslu eldsins. "Það leit kannski í fyrstu út fyrir að við værum ekki að gera mikið en þá vorum við forða eldmati frá brennandi hrúgunni auk annarra ráðstafana," segir Jón Viðar Matthíasson aðstoðarslökkviliðsstjóri.

Austanáttin lán í óláni

Stöðug austanátt blés í Reykjavík á meðan logaði í dekkjunum á mánudagskvöldið. Ef vindáttin hefði verið úr norðri er ljóst að mun meiri hætta hefði verið á ferðum.

Eigandinn ábyrgur

Eigendur Hringrásar bera ábyrgð á brunanum, að sögn Björn Karlssonar hjá Brunamálastofnun ríkisins. Hann segir leiðinlegt að benda svona harkalega og afgerandi á fyrirtækið en þetta liggi í augum uppi.

Hrafnista slapp

Ef vindur hefði verið norðanstæður í eldsvoðanum í fyrrakvöld hefði þurft að rýma nokkur dvalarheimili aldraðra sem eru í Laugarásnum.

Grunur beinist ekki að íkveikju

Rannsókn lögreglu á eldsupptökum vegna brunans á svæði Hringrásar er hafin. Tveir lyftarar voru í húsinu og var annar þeirra í hleðslu og beinast grunsemdir meðal annars að hleðslutækinu en margt annað getur komið til greina. Hörður Jóhannesson, hjá lögreglunni í Reykjavík, segir ólíklegt að kveikt hafi verið í en vill þó ekki útiloka það.

Tjónið virðist lítið

Ótrúlega lítið tjón virðist við fyrstu sýn hafa orðið á fyrirtækjum og heimilum í nánd við brunann. Íbúar á svæðinu geta þó fundið fyrir áhrifum síðar.

Erill hjá tryggingarfélögum

Mikill erill hefur verið hjá starfsmönnum tryggingafélaganna í dag vegna brunans. Ef íbúðareigendur eru ekki sjálfir með tryggingar, þurfa þeir að bera tjón vegna sóts og reyks sjálfir.

Fyrir hinn vinnandi mann

Þingmenn tókust harkalega á um skattalækkunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar í dag. Fjármálaráðherra segir að með frumvarpinu sé komið til móts við hinn vinnandi mann, en stjórnarandstaðan segir skattaleiðangur stjórnarinnar vera glapræði. Formaður Samfylkingarinnar segir Framsóknarflokkinn einn flokka vera á móti lækkun virðisaukaskatts á matvöru.

Ógjörningur er að meta tjónið

Ekki er enn hægt að meta tjónið sem varð af völdum brunans í Hringrás. Á sjötta hundrað þurfti að yfirgefa heimili sín og á fjórða hundrað tók þátt í aðgerðum. Umhverfisvandamál hafa fylgt Hringrás um árabil. </font /></b />

Rauði krossinn veitti mikla aðstoð

Um tvö hundruð manns komu í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Langholtsskóla í fyrrinótt. 83 gistu í húsnæði á vegum Rauða krossins en aðrir leituðu til vina og vandamanna. Rauði krossinn greip til aðgerðaráætlunar undir miðnætti. Allt gekk vel og þeir sem nutu aðstoðar luku lofsorði á störf hreyfingarinnar. </font /></b />

Slysin gera ekki boð á undan sér

"Það veit enginn hvenær slysin verða" segir forstöðumaður Umhverfisstofu sem hefur eftirlitsskyldu með fyrirtækjum á borð við Hringrás. Starfsleyfi fyrirtækisins var útrunnið en líkur á að úr því yrði bætt á næstunni. Hjá Umhverfisstofu sáu menn ekki eldhættu í háum dekkjahaug en það gerði Eldvarnareftirlitið svo sannarlega.

Þurfum undanþágu

Forsætisráðherra segir að Íslendingar þurfi frekari undanþágu frá Kyoto-bókuninni til að geta ráðist í frekari stóriðjuframkvæmdir. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir það geta orðið torsótt vegna andstöðu þróunarríkjanna.

Ramsey fær að æfa með Keflavík

Fótboltastjarnan Scott Ramsay sem varð dönskum hermanni að bana fyrr í mánuðinum fær enn að mæta á æfingar með liði sínu í Keflavík. Rúnar Arnarson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, segir liðsmenn standa alla sem einn að baki Scotts. Atburðurinn var hræðilegt slys segir lögmaður hans. Beðið er eftir lokaniðurstöðum úr krufningaskýrslu Danans.

Létt við heimkomuna

Ekki urðu miklar skemmdir á heimilum á Kleppsvegi af völdum eldsvoðans sem varð þegar endurvinnslustöðin Hringrás brann til kaldra kola á mánudag. Lyktin eftir eiturmettaðan reykinn sat þó í teppum stigaganga og fannst einnig í íbúðunum.

Fyrsta athugun á íbúð eftir eldinn

Zdravko Studic mætti fyrstur íbúa að Kleppsvegi 44 eftir að lögreglan hafði gefið leyfi. Hann býr þar ásamt konu sinni og hafði yfirgefið íbúðina seint í gærkvöldi.

Tilbúnar tölur frá ráðherra

Forsendur sem lagðar eru til grundvallar hækkunar innritunargjalds í Háskóla Íslands standast ekki að mati Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Það telur hækkun gjaldsins úr 32.500 í 45 þúsund krónur, nái frumvarp menntamálaraðherra fram að ganga, hafi verið fyrirfram ákveðna og forsendur fundar til að réttlæta hana.

Tíu bæjarfélög tengd

Síminn og Skjár einn eru að hefja hringferð um landið með það fyrir augum að "færa íbúum tíu bæjarfélaga á landsbyggðinni Skjá einn og enska boltann," eins og segir í tilkynningu.

Eitraðan reyk lagði frá eldsvoða

Hús voru rýmd í Reykjavík vegna eitraðs reyks sem lagði frá stórbruna í endurvinnslustöð Hringrásar ehf. við Klettagarða 9 í Reykjavík.Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað til vegna brunans skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöld.

Stjórnarmenn bera ríka ábyrgð

Dæmi eru um að Hæstiréttur hafi dæmt stjórnarmenn hlutafélaga til ábyrgðar þrátt fyrir að ekki hafi verið sýnt fram á að þeir hafi vitað af brotinu. Stjórnarmenn olíufélaganna hafa margir sagst grunlausir um samráð sem er talið hafa staðið í tæp tíu ár. </font /></b />

Taka Flugleiðir yfir easyJet?

Breskir fjölmiðlar spá í morgun yfirtökutilboði frá Flugleiðum í lággjaldaflugfélagið easyJet. Gengi bréfa í félaginu hækkaði vegna sögusagnanna, en búist er við lækkun og hugsanlegu yfirtökutilboði í kjölfar þess að afkomutölur verða birtar á morgun.

Brögð í tafli?

Ásakanir um kosningasvindl eru komnar fram í Úkraínu þar sem forsetakosningar vour í gær. Útgönguspár bentu til þess að stjórnarandstæðingurinn Viktor Yushchenko hefði náð meirihluta, en tölur kjörnefndar, sem birtar voru á sjöunda tímanum í morgun, gefa hins vegar til kynna að forsætisráðherra landsins, Viktor Yanukovich, hafi hlotið fleiri atkvæði og hafi um hálfs prósents forskot.

Powell í Mið-Austurlöndum

Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Ísraels þar sem hann hyggst reyna að endurvekja friðarferlið þar. Palestínumenn vona og vilja að hann hlutist til um að Ísraelsstjórn standi ekki í vegi fyrir forsetakosningum á svæðum Palestínumanna, en þær eru fyrirhugaðar eftir um einn og hálfan mánuð.

Viðræður í dag

Viðræður hefjast í dag um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn á Dalvík eftir að meirihlutinn klofnaði um helgina vegna ágreinings Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna um framtíð Húsabakkaskóla í Svarvaðadal. Listi Sameiningar er nú í lykil stöðu og getur myndað meirihluta með hvorum flokknum sem er.

Saltfiskurinn mun skila sér

Minnstu má muna að þrálát óveður á Íslandsmiðum fari að hafa áhrif á jólahald í Portúgal, Grikklandi og á Spáni, því fjöldinn allur í þessum löndum hefur saltfisk í jólamatinn og er íslenskur saltfiskur jafnan hæst skrifaður. Vegna ótíðar hafa bátar lítið getað róið og því vantar víða meiri þorsk í saltfiskvinnsluna.

Auðvelda baráttu gegn hryðjuverkum

Bretar hafa áhyggjur af hryðjuverkum og hyggjast breyta lögum til að auðvelda baráttuna gegn þeim. Meðal hugmynda sem eru til umræðu eru að grípa til forvarna gegn fólki sem talið er að leggi á ráðin um hryðjuverk. Auk þessa er rætt um dómstóla án kviðdóms og að leyfa upptökur af hleruðum samtölum sem sönnunargögn.

Fjölga hermönnum í Afghanistan

Danir ætla að fjölga hermönnum sínum í Afganistan. Politiken segir hermönnunum ætlað að vinna að mannúðarstörfum og þjálfa nýjan, afganskan her. Eftir fjölgunina verða 225 danskir hermenn í Afganistan.

Göngunum lokað

Hvalfjarðargöngunum var lokað í tvær klukkustundir í gærkvöldi eftir að bíll ók utan í gangavegginn og hjón, sem voru í bílnum, slösuðust, en þó ekki alvarlega. Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög slyssins, en bíllinn skemmdist mikið og þurfti að fjarlægja hann með kranabíl. Umferð var beint um Hvalfjörð á meðan björgunarmenn athöfnuðu sig á vettvangi.

Íranir hætta auðgun úrans

Íranar hafa ákveðið að hætta auðgun úrans, en kjarnorkuáætlun íranskra stjórnvalda er mjög umdeild á alþjóðavettvangi. Bandaríkjamenn telja Írana vinna að þróun kjarnorkuvopna og er það ein meginástæða þess, að auðgun úrans er hætt: til að draga úr spennu.

Hóta að loka Rækjuveri

Sveitarfélagið Vesturbyggð hefur hótað að loka Rækjuveri, einum stærsta vinnustaðnum á Bíldudal vegna skulda fyrirtækisins vegna vatnsnotkunar. Gefinn hefur verið frestur til loka nóvember til að ná samkomulagi við forsvarsmenn fyrirtækisins en náist það ekki verður lokað fyrir vatnið og málið sent lögfræðingi til meðferðar.

Víða vatnsleki

Nokkuð var um vatnsleka þegar draga tók úr frostinu og vatn fór á ný að renna um frostsprungin rör. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fjórum sinnum í gær vegna vatnsleka í fyrirtækjum á svæðinu en hvergi hlaust þó alvarlegt tjón af nema þá helst á veitingastað við Hverfisgötu.

Samruni við Granda?

Það ræðst á morgun hvort útgerðarfyrirtækið Tangi á Vopnafirði og Svanur í Reykjavík renna inn í HB-Granda á næstunni. Afstaða verður tekin til samrunans á stjórnarfundum í félögunum á morgun. Tangi er aðalútvegsfyrirtækið á Vopnafirði en Svanur gerir út samnefndt fjölveiðiskip frá Reykjavík.

Fellst á fyrsta áfanga

Skipulagsstofnun getur fallist á alla þá kosti, sem Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa lagt fram um fyrsta áfanga Sundabrautar frá Sæbraut að Hallsvegi og Strandarvegi á Gufunesi. Framkvæmdir eru þó háðar margvísilegum skilyrðum, sem hafa ber í heiðri.

Ekkert grunsamlegt

Engar vísbendingar um banamein Jassirs Arafats er að finna í læknaskýrslum hans, samkvæmt því sem Nasser al-Kidwa, frændi Arafats, segir. Hann fékk skýrslurnar afhentar hjá frönskum yfirvöldum. Al-Kidwa segir eiturefnapróf hafa verið gert á Arafat, en að ekkert grunsamlegt hafi þar komið í ljós. <font size="4"></font>

Óbreytt mjólkurverð

Verðlag á mjólk og mjólkurvörum verður óbreytt, þriðja árið í röð. Þetta er niðurstaða verðlagsnefndar búvara, sem landbúnaðarráðherra mun kynna á blaðamannafundi í hádeginu. Verðmyndun á mjólkurvörum heyrir ekki undir samkeppnislög heldur búvörulög

Aðeins verið að skila fjórðungi

Útgjöld ríkisins vegna vaxtabóta lækka um þrjúhundruð milljónir á næsta ári vegna breytinga á vaxtabótakerfinu sem lýst er í skattafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar, segir að útgjöld ríkisins vegna barnabóta hafi lækkað um tíu milljarða á níu árum. Fjórðungi þess verði skilað samkvæmt frumvarpinu nú.

Vísitalan hækkar

Vísitala launa hefur hækkað um 0,3% frá því í október. Síðastliðna tólf mánuði hefur hún hækkað um 5,3 prósent. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,21% á sama tímabili og er því 3,8% síðustu tólf mánuði.

Meira en 50 handteknir

Fleiri en fimmtíu voru handteknir í rassíu lögreglunnar gegn mafíunni í suðurhluta Ítalíu í morgun. Meðal þeirra sem eru í haldi eru þingmaður og fjöldi annarra stjórnmálamanna. Nokkur fjöldi kaupsýslumanna er einnig í haldi, en mennirnir eru allir grunaðir um tengsl við skipulagða glæpastarfemi, peningaþvætti og fjárkúgun.

Lækka niður í 4,15%

Vextir af húsnæðislánum Íbúðalánasjóðs lækka í dag úr 4,3% niður í 4,15%. Þar með eru vextirnir komnir niður fyrir það sem bankarnir bjóða, að sögn Halls Magnússonar sviðsstjóra hjá Íbúðalánasjóði. Hann segir að ávöxtunarkrafa hafi lækkað á föstudaginn og það hafi þýtt að hægt yrði að lækka vexti niður í 4,15%.

Mótmæli í Kænugarði

Forsætisráðherra Úkraínu eru nú sagður hafa verið kosinn næsti forseti landsins, en hann hefur þriggja prósenta forskot á meginkeppinaut sinn sem naut þó mun meira fylgis í útgönguspám í gær. Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar segja greinilegt að maðkur sé í mysunni og eru þúsundum saman á megintorginu í Kænugarði.

Sjá næstu 50 fréttir