Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skjálfti við Eyjafjörð Jarðskjálfti um 3,4 á Richter varð úti fyrir mynni Eyjafjarðar klukkan hálf eitt. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni varð skjálftinn á svokölluðu Húsavíkur-Flateyjarmisgengi en skjálftar þar eru tíðir. Einhverjir kunna að hafa fundið fyrir skjálftanum Ólafsfirði eða Siglufirði, en Veðurstofan hafði ekki spurnir að því. 22.11.2004 00:01
ESB vill að kosið verði að nýju Evrópusambandið fer fram á að forsetakosningarnar í Úkraínu verði endurteknar, þar sem þær hafi ekki uppfyllt lýðræðisleg skilyrði. Talsmenn allra aðildarríkja ESB hyggjast senda Úkraínumönnum orðsendingu, þar sem hvatt verður til þess að kosningarnar verði endurteknar og farið verði að ítrustu skilyrðum um lýðræðislega framkvæmd þeirra. 22.11.2004 00:01
Þingið hafni kosningúrslitum Stjórnvöld í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, hafa hvatt úkraínska þingið til þess að samþykkja ekki úrslit nýafstaðinna forsetakosninga. Í yfirlýsingu frá borgarráði Kænugarðs segir að miklar efasemdir séu uppi um að rétt hafi verið staðið að kosningunum og því sé eðlilegt að þingið neiti að samþykkja úrslitin. 22.11.2004 00:01
5 létust í skotbardaga veiðimanna Fimm létu lífið og þrír eru í lífshættþegar til skotbardaga kom milli dádýraveiðimanna í skóglendi nærri litlu þorpi í Wisconsin í gærkvöld. Bardaginn varð einungis sólarhring eftir að veiðitíminn hófst. Einn maður hóf að skjóta á þrjá veiðimenn eftir að þeir vísuðu honum burt af merktu veiðisvæði. 22.11.2004 00:01
Ánægja á Ísafirði Bæjarstjórn Ísafjarðar samþykkti samhljóða tillögu þar sem ánægju er lýst með að samninganefndir hafi loks náð samkomulagi og þakkaði kennurum fyrir þá ábyrgð sem þeir hefðu sýnt í launadeilu liðinna vikna. Ísfirskir kennarar mættu til starfa að lokinni lagasetningu, annað en margir kollegar þeirra annars staðar á landinu. 22.11.2004 00:01
10-15 þúsund með breytilega vexti Tíu til fimmtán þúsund einstaklingar tóku íbúðalán með breytilegum vöxtum hjá Íbúðalánasjóði, árið 1986. Lánin voru upphaflega með 3,5% vöxtum en þeir voru fljótlega hækkaðir í 4,9%. Breytilegir vextir eiga að laga sig að markaðsvöxtum á hverjum tíma. 22.11.2004 00:01
Ekki eitrað fyrir Arafat Dánarorsök Jassirs Arafats kemur ekki fram í læknaskýrslum hans að sögn frænda hans sem hefur fengið skýrslurnar afhentar. Eiturefnapróf sýndu þó að engin dularfull eiturefni fundust í blóðrás Arafats og því ólíklegt að honum hafi verið byrlað eitur. 22.11.2004 00:01
Hagamelsmálið þingfest Mál móður sem varð dóttur sinni að bana og særði son sinn á heimili þeirra við Hagamel í vor, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Dómari tekur síðar afstöðu til þess hvort að konan er sakhæf. Móðirin, sem er á fimmtugsaldri varð 12 ára dóttur sinni að bana á heimili þeirra á meðan dóttirin svaf og hún særði eldri bróður hennar með hnífi. 22.11.2004 00:01
Brögð í tafli? Viðtæk kosningasvik voru framin í Úkraínu, að mati kosningaeftirlitsmanna. Forsætisráðherra landsins var í dag lýstur sigurvegari forsetakosninga, en tugir þúsunda mótmælenda sætta sig ekki við niðurstöðurnar. 22.11.2004 00:01
Sagt upp fyrir að losa úrgang Starfsmanni ítalska fyrirtækisins Impregilo við Kárahnjúkavirkjun hefur verið sagt upp störfum fyrir að hafa losað spilliefnaúrgang með hætti sem ekki samræmist umhverfisreglum fyrirtækisins. Í tilkynningu frá Impregilo segir að þegar hafi verið gripið til ráðstafana til þess að útiloka að umhverfistjón hlytist af verknaðinum. 22.11.2004 00:01
Halldór í Svíþjóð Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Sigurjóna Sigurðardóttir eiginkona hans verða í opinberri heimsókn í Svíþjóð dagana 25 og 26 nóvember. Í heimsókninni mun Halldór Ásgrímsson meðal annars hitta Göran Person forsætisráðherra Svíþjóðar. 22.11.2004 00:01
Eldsvoði á Grensásvegi Allt tiltækt slökkvilið í Reykjavík hefur verið kallað á Grensásveg 12, þar sem eldur braust út fyrir skömmu. Eldurinn kviknaði innandyra, en ekki er meira vitað um tildrög eldsvoðans að svo stöddu. 22.11.2004 00:01
Engin viðbrögð frá bönkunum Engin viðbrögð hafa komið frá stóru viðskiptabönkunum vegna vaxtalækkunar Íbúðalánasjóðs. Vextir sjóðsins eru nú 4,15%, en bankarnir bjóða 4,2%. Útboð húsbréfa fór fram á föstdaginn, en alls tók Íbúðalánasjóður við tilboðum fyrir 8 milljarða króna að nafnvirði. 22.11.2004 00:01
Umburðarlyndið á undanhaldi Margt bendir til að gjá sé að myndast á Vesturlöndum á milli múslimskra innflytjenda og þeirra sem aðhyllast önnur trúarbrögð. Formaður Félags múslima á Íslandi hefur áhyggjur af þróuninni. 22.11.2004 00:01
Hóf fíl á loft með hugarorkunni Sri Chinmoy hugleiðslumeistari hefur með lyftum sínum sýnt að andinn er efninu yfirsterkari. Nýlega lyfti hann yfir 130 tonnum á friðarhátíð í Bandaríkjunum. 22.11.2004 00:01
Eldur í Grensáskaffi Eldur kom upp í Grensáskaffi í Reykjavík rétt fyrir klukkan sex í kvöld. Allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar út. Lítið mál reyndist að slökkva eldinn sem virðist hafa komið upp nálægt uppþvottavél í eldhúsi kaffihússins. Húsið var mannlaust og því var enginn í hættu. 22.11.2004 00:01
Fallist á fyrsta hlutann Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrsta hluta Sundabrautar, með skilyrðum. Fyrsti áfangi er frá Sæbraut yfir Kleppsvík að Hallsvegi og Strandvegi. Það voru þrjár leiðir sem rætt var um, hábrú eða botngöng um leið 1, sem er frá Holtagörðum og yfir og síðan eyjaleið, sem liggur á uppfyllingu frá Elliðavogi. 22.11.2004 00:01
Kosningasvindl í Úkraínu Forsetakosningarnar í Úkraínu voru ólýðræðislegar. Viktor Janukovitsj er sakaður um kosningasvindl. Forseti Rússlands óskaði honum samt til hamingju með sigurinn en Evrópusambandið gerði það ekki. Málið verður rætt á fundi fastafulltrúa Natóríkjanna í dag. 22.11.2004 00:01
Læknir SÞ handtekinn Tíu manns voru handteknir í Kabúl í gær í tengslum við mannrán á þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna. 22.11.2004 00:01
Sistani fordæmir árás á mosku Æðsti sjíaklerkur Íraks, Ali Husseini al Sistani, fordæmir árás bandarískra hermanna á moskuna Abu Hanifa í Bagdad. 22.11.2004 00:01
Verkfalli rútubílstjóra lokið Verkfalli rútubílstjóra í Finnlandi er lokið. Það stóð í tvær vikur. Samgöngur voru að komast í samt horf í gær en einhverjir hnökrar voru þó á þeim. 22.11.2004 00:01
Vilja selja úran til Kína Ástralska námafyrirtækið WMC á nú í viðræðum við kínversk stjórnvöld um sölu á úran. Ástralskar reglur um útflutning á úrani eru mjög strangar. 22.11.2004 00:01
Engar reglur um tölvuleiki Móðir segir verslunina BT hafa selt þrettán ára syni hennar tölvuleik sem ekki sé ætlaður börnum að átján ára aldri. Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna, segir margítrekaðar beiðnir til menntamálaráðuneytisins um að reglur séu settar um tölvuleiki ekki hafa borið árangur. 22.11.2004 00:01
Lágreist brú besti kosturinn Skipulagsstofnun hefur úrskurðað um umhverfisáhrif Sundabrautar. Lágreist brú yfir Kleppsvíkina er besti kosturinn. Talið er að hábrú yrði lokuð í 50 klukkustundir á ári vegna veðurs. Botngöng geta haft verulega neikvæð áhrif á lífríkið. 22.11.2004 00:01
Færri stefna á kennslu Færri stúdentar Kennaraháskóla Íslands huga að kennslu við útskrift næsta haust en fyrir verkfall grunnskólakennara, segir Sigurður Grétar Ólafsson formaður stúdentaráðs KHÍ. 22.11.2004 00:01
Senda eftirlitsnefnd til Palestínu Evrópusambandið mun senda eftirlitsnefnd til Palestínu til að fylgjast með forsetakosningunum þegar kosið verður um eftirmann Jassers Arafat sem lést á sjúkrahúsi í París 11. nóvember. 22.11.2004 00:01
Áhyggjufullir yfir prófunum í HÍ Helmingur stúdenta sem eiga börn á grunnskólaaldri segja að verkfall kennara hafi haft áhrif á nám þeirra. Jarþrúður Ásmundsdóttir, formaður stúdentaráðs, segir ráðið hafa gert óformlega athugun á Netinu á aðstæðum foreldra í Háskólanum en 28 prósent stúdenta séu foreldrar. 22.11.2004 00:01
Tunnur með spilliefnum grafnar Starfsmaður Impregilo á Kárahnjúkum hefur verið rekinn eftir að hafa grafið í jörðu tvær 200 lítra tunnur með tuskum sem notaðar höfðu verið til þess að hreinsa olíu. 22.11.2004 00:01
Strax hneyksli Hneyksli skyggði á fyrsta starfsdag nýs forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jose Manuel Barroso mætti í dag til vinnu í fyrsta sinn og þurfti þegar í stað að taka á uppljóstrunum um aðild samgöngustjóra sambandsins að fjármálahneyksli í Frakklandi fyrir nokkrum árum. 22.11.2004 00:01
Frjálslyndi í öndvegi Frjálslyndir straumar virðast gera vart við sig í Bandaríkjunum, miðað við þá sem almenningur gæti helst hugsað sér sem forsetaframbjóðendur árið 2008. Könnun Gallups leiðir í ljós, að Bandaríkjamenn vilja helst sjá þau Hillary Clinton og Rudy Guiliani berjast um forsetaembættið eftir fjögur ár. 22.11.2004 00:01
Undirstaða lífsins Mjólk er undirstaða lífsins segir Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sem í dag tilkynnti um óbreytt mjólkurverð, þriðja árið í röð. Guðni eru reiðubúinn að skoða opinbera niðurgreiðslu mjólkur og annarra matvæla til skólabarna og segir alla Íslendinga eiga að hafa efni á góðum mat. 22.11.2004 00:01
Enn frekari undanþágur í vændum Íslensk stjórnvöld ætla að fara fram á frekari undanþágur frá Kyoto-bókuninni sem gerir þeim kleift að draga hægar úr losun gróðurhúsategunda en öðrum iðnríkjum. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, upplýsti þetta á Alþingi í dag. Hann sagði þingmenn Vinstri grænna vera á móti bættum lífskjörum landsmanna og fékk þau svör á móti að málflutningur hans væri ósmekklegur. 22.11.2004 00:01
Gervihné ein besta uppfinningin Gervihné með gervigreind frá Össuri er ein athyglisverðasta uppfinning ársins, að mati Time Magazine, en slíkt hné gjörbyltir göngulagi og möguleikum þeirra sem þurfa að nota gervifót. Ungur verktaki, sem missti fótinn eftir að hafa klemmst á milli bíla, segist geta unnið öll verk á slíkum fæti. Þá er Össur byrjaður að þróa nokkurs konar gervivöðva. 22.11.2004 00:01
Hefðu farið öðruvísi að Formaður Samfylkingarinnar segir skattalækkanir ríkisstjórnarinnar vera ranglátar og að tímasetning þeirra sé slæm. Sjálfur lofaði hann 16 milljarða skattalækkunum fyrir síðustu kosningar. Hann segist mundu hafa staðið við þau loforð en fara aðrar leiðir. 22.11.2004 00:01
Eldur í ruslafötu Engin var í hættu þegar eldur kom upp í ruslafötu innandyra á Grensáskaffi á Gensásvegi rétt fyrir klukkan sex í gær. Þrjár stöðvar slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru sendar á staðinn. 22.11.2004 00:01
Eimskip greiddi launin Eimskip greiddi laun skipverja Ocean Caroline sem lögðu niður störf í fyrrakvöld vegna vangoldinna launa. Skipið siglir undir norsku flaggi en skipverjarnir eru frá Póllandi og Litháen auk íslensks skipstjóra. Skipið er í eigu norsks fyrirtækis en dótturfyrirtæki Eimskips í Noregi, Coldstore and transport group, er með skipið á leigu. 22.11.2004 00:01
Engin innbrot um helgina Engin innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í Kópavogi um síðustu helgi, hvorki í bíla né íbúðarhús og vakti það athygli lögreglunnar. Helgin var að mestu tíðindalítil en tilkynnt var um fimm minniháttar árekstra. 22.11.2004 00:01
25 bílum stolið í nóvember 25 bílum hefur verið stolið á höfuðborgarsvæðinu síðan fyrsta nóvember. Nítján bílum var stolið í Reykjavík, fimm í Kópavogi og einum í Hafnarfirði. 22.11.2004 00:01
Ákærð fyrir manndráp Mál gegn móður, sem grunuð er um að hafa orðið ellefu ára dóttur sinni að bana á heimili þeirra á Hagamel í byrjun júní, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Konan er ákærð fyrir manndráp og tilraun til manndráps en hún stórslasaði fjórtán ára son sinn sömu nótt. 22.11.2004 00:01
Eldur við Sundahöfn í Reykjavík Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins berst við eldhaf á athafnasvæði endurvinnslustöðvar Hringrásar við Klettagarða 9. Slökkvilið varar fólk við að vera utandyra í nágrenni eldsins þar sem reykurinn sem frá honum berst er mjög eitraður. Fólki í nágrenninu er jafnframt ráðlagt að loka gluggum. 22.11.2004 00:01
Ekki pláss fyrir áfengissjúka Landspítalinn getur ekki tekið við hundruðum flýti- og bráðainnlagna áfengissjúkra sem Vogur hefur boðið upp á. Landlæknir segir mjög miður ef dregið verður úr meðferðarúrræðum unglinga og umönnun ópíumfíkla á vegum SÁÁ. 22.11.2004 00:01
Sjö milljörðum meira í bætur Öryrkjum fjölgar meira á þessu ári en árin á undan. Greiðslur til þeirra hafa hækkað úr fimm milljörðum í tólf. Fjölgar mikið eftir að læknar utan Tryggingastofnunarinnar tóku að meta örorku. Ráðherra vill rannsókn. 22.11.2004 00:01
Börnin óörugg og kvíðin Heimili og skóli - landssamtök foreldra hvetja kennara og foreldra til að sýna börnunum, sem nú setjast aftur á skólabekk eftir erfitt og langt óvissutímabil, nærgætni og umhyggju. Mörg börn hafi verið óörugg og kvíðin undanfarið og séu það enn, meðal annars vegna óvissu um hvernig skólastarfið verði á næstu vikum og mánuðum. 21.11.2004 00:01
53 létust í flugslysi Fimmtíu og þrír létust þegar flugvél endastakkst ofan í ísi lagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak í svokallaðri Innri-Mongólíu í Kína í morgun. Ekki er vitað hvað kom upp á, veður var gott þegar slysið varð og margir á ferli við flugvöllinn. 21.11.2004 00:01
Eldur í bifreið Eldur varð laus í bifreið sem ekið var eftir Reykjanesbraut á Strandarheiði laust eftir miðnætti. Ökumaður náði að forða sér úr bifreiðinni og slökkvilið Hafnarfjarðar var kallað til slökkva eldinn. 21.11.2004 00:01