Tjónið virðist lítið 13. október 2005 15:02
Ótrúlega lítið tjón virðist við fyrstu sýn hafa orðið á fyrirtækjum og heimilum í nánd við brunann. Íbúar á svæðinu geta þó fundið fyrir áhrifum síðar. Þegar hæst stóð í nótt sást varla í höfuðstöðvar Olís við Sundagarða vegna reykjarmökks og í dag blöktu sótsvartir fánar við höfuðstöðvarnar. Brunabjallan gall við inni í mannlausu húsinu, og ástandið leit ekki vel út. En þegar starfsmenn félagsins mættu til starfa síðdegis kom í ljós að betur fór en á horfðist. Ragnheiður B. Guðmundsdóttir, starfsmannastjóri OLÍS, segir að fyrirtækið hafi sluppið ótrtúlega vel vegna snarræðis þeirra sem að komu í nótt. Skammt frá, hjá Kassagerðinni, varð að hætta framleiðslu þegar verksmiðjan var rýmd. Í dag varð slökkviliðið að reykræsta og ljóst er að framleiðsla hefst ekki strax. Hjá Kassagerðinni vildu menn alls ekki fá myndatökumenn Stöðvar 2 í heimsókn. Hátt í 600 manns þurftu að yfirgefa heimili sín í skyndingu í gærkvöldi af ótta við eitraðan reyk frá brunanum og eru flestir þeirra nú á komnir eða á leið heim, þeirra á meðal Einara Sigurbjörg Einarsdóttir. Í stigaganginum heima hjá henni, á Kleppsvegi 34, var megn reykjarfnykur og sót á handriðinu en í íbúðinni var lítil ummerki að sjá. Hún segir að það sem fyrst og fremst hafi verið að þegar hún kom aftur heim hafi verið lyktin. Eins hafi verið töluvert sót í stigaganginum. Slökkviliðsmenn fóru á milli íbúða og könnuðu hvort að nauðsynlegt væri að reykræsta, sem reyndist ekki vera. Þeir sögðu víðast hvar brunalykt en ekki meira og að fólki ætti að reynast nóg að opna glugga og svaladyr. Ellý Guðmundsdóttir hjá Umhverfis- og Heilbrigðisstofu, varar þó við því að fólk geti hugsanlega fundið fyrir afleiðingum reyks og sóts síðar. Hún segir ákveðin einkenni geta komið strax fram, en einnig geti einkenni gert vart við sig allt að 2-3 dögum síðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira