Fleiri fréttir

Borgaði með grínpeningaseðli

Kona sem var ákærð fyrir þjófnað verður ekki látin svara til saka eftir að hún greiddi aftur fyrir vörur sem hún keypti upphaflega með fölsuðum peningaseðli. Lögmaður hennar sagði að hún hefði ekki haft hugmynd um að 200 dollara seðillinn með mynd af núverandi Bandaríkjaforseta væri ekki löglegur gjaldmiðill.

Skólastarf lamað

Tugum þúsunda grunnskólabarna var snúið frá skólum sínum víða um land í morgun. Margir skólar voru lokaðir og starfsemin hálflömuð vegna fjarvista kennara. Grunnskólakennarar virtust svo harmi slegnir, vegna lagasetningar stjórnvalda, að þeir réðu ekki við að mæta til vinnu í morgun.

Framhaldið óljóst

Enn er á huldu hvort, hvar og hvenær skólastarf hefst á nýjan leik í grunnskólum landsins. Kennarar segjast munu taka ákvörðun um slíkt einn dag í senn og hver fyrir sig. Fræðsluyfirvöld binda þó vonir við að kennsla hefjist á morgun.

Hvetur kennara til að mæta

Forsætisráðherra hvatti kennara á Alþingi í dag til að fara að lögum. Sama gerði formaður Samfylkingarinnar. Staðan í kennaradeilunni kom til umræðu við upphaf þingfunda í dag þegar þingmaður Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson, innti menntamálaráðherra eftir því hvernig grunnskólabörnum yrði bættur skaði vegna tapaðra kennsludaga.

Stefnt að samningum innan 5 daga

Samninganefndir sveitarfélaga og grunnskólakennara stefna að því að ná samningum innan fimm daga, eða áður en deilan fer fyrir gerðardóm sem aðilar eru sammála um að sé slæmur kostur.

Besta orkuverð hér á landi

Orkuveita Reykjavíkur samdi við Norðurál um besta orkuverð til stóriðju sem fengist hefur hér á landi, staðhæfir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar. Hann segir samninginn afar þýðingarmikinn fyrir atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu.

Íslensk innrás

Íslenska innrás kalla norskir fjölmiðlar bankakaup Íslendinga í Noregi. Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, segist þó ekki óttast þessa íslensku útþenslu, hann hafi ekki ástæðu til að ætla annað en að íslenskir bankamenn séu heiðarlegir.

Íslensk börn tala ekki dönsku

Skólastjóri grunnskóla í einu af svokölluðum Íslendingahverfum í Danmörku, hefur hrist upp í mörgum foreldrum, með ummælum sínum um að íslenskir unglingar neiti að tala dönsku í skólanum. Skólastjórinn segir að munur á skólakerfum leiði til þess að erfitt sé fyrir íslenska nemendur að aðlagast.

Kjósa ekki um verkfall

Samninganefnd Félags leikskólakennara ákvað á fundi í gær að fara ekki í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um boðun verkfalls. Þess í stað hefur nefndin óskað eftir skammtímasamningi við sveitarfélögin fram á næsta ár.

Kennsla með öllum tiltækum ráðum

Kennsla á að fara fram í öllum skólum í Reykjavík í dag. Fræðsluráð Reykjavíkur sendi skólastjórum boð um þetta í gær. Stefán Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs, segir að tíðindi gærkvöldsins bendi til þess að ástand í skólunum verði betra í dag en í gær, þegar aðeins um fimmtán prósent kennara mættu til starfa og kennsla féll víða niður.

Ráðuneyti kannar palljeppa

Fjármálaráðuneytið ætlar að skoða til hvaða ráðstafana megi grípa til að tryggja að ökutæki sem bera þrettán prósenta vörugjald verði einungis notuð í atvinnuskyni. Þetta kom fram í svari fjármálaráðuneytisins við bréfi sem Landvernd sendi í september.

Vill opið bókhald stjórnmálaflokka

Bókhald stjórnmálaflokka á að vera opið og aðgengilegt að mati Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa. Hann telur það setja fyrirtæki í erfiða stöðu þegar þau styðja félagsstarf þar sem eitthvert pukur er í gangi.

Allir fari að lögum

"Mér finnst náttúrlega að allir borgarar landsins verði að fara eftir lögum," segir Guðmundur Halldórsson, heiðursfélagi og fyrrverandi formaður smábátafélagsins Eldingar á Vestfjörðum, um fjarvistir kennara frá vinnu í gær í kjölfar lagasetningar sem sett var á verkfall þeirra.

Meirihlutinn samþykktur

Félagsfundur Vestmannaeyjalista samþykkti í gærkvöld yfirlýsingu um nýtt meirihlutasamstarf V-listans og Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisfélagið í Eyjum samþykkti meirihlutasamstarfið á fundi á laugardag.

Mac OS X á Íslensku

Apple á Íslandi hefur íslenskað Mac OS X stýrikerfið. Um er að ræða grunnþýðingu á öllum helstu þáttum kerfisins, auk þess tvö mest notuðu forritin, Safari netvafrinn og tölvupóstforritið Mail, voru þýdd.

Fasteign vill fjármagna göngin

Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. hefur áhuga á að fjármagna jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja, segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður og oddviti Vestmannaeyjalistans, en hann var í lok síðustu viku kosinn í stjórn félagsins.

Ástæður verða að vera mjög brýnar

Þótt stjórnvöld hafi oft gripið inn í kjaradeilur með lögum eru lögin á kennaraverkfallið einstök. Ríkar ástæður þurfa að búa að baki slíkri lagasetningu og álitamál er hvort þær séu fyrir hendi nú

Cheney á sjúkrahús

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahús vegna andnauðar. Cheney hefur átt við hjartasjúkdóma að stríða og fékk fyrir þremur árum gangráð. Rannsóknir leiddu ekkert óeðlilegt í ljós, og fékk Cheney að fara heim að rannsóknunum loknum. Talsmaður hans sagði ástæðu andnauðarinnar vera kvef.

Enn tekist á í Fallujah

Bandarískar hersveitir kljást enn við síðustu skæruliðana í borginni Fallujah, að sögn talsmanna hersins. Átökin koma í veg fyrir að sendisveitir rauða hálfmánans komist inn í borgina með neyðarbirgðir. Íbúi í Fallujah, sem Reuters-fréttaþjónustan ræddi við, sagði fjölskyldu sína mjög illa haldna sökum vatns- og matarskorts.

Tveggja vikna gæsluvarðhald

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur ásamt hollenskri konu verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald fyrir fíkniefnasmygl. Konan flutti nokkur hundruð grömm af kókaíni til landsins innvortis og voru þau handtekin þegar maðurinn gerði sig líklegan til að sækja fíkniefnin til hennar á hótel í Reykjavík.

34 íslenskir sendiherrar

Þrjátíu og fjórir sendiherrar eru í dag starfandi í þjónustu íslenska ríkisins, tuttugu erlendis og fjórtán á Íslandi. Í þessum hópi eru tvær konur og eru þær báðar starfandi á Íslandi eftir að Tómas Ingi Olrich tók við sendiherrastöðunni í París af Sigríði Snævarr sem nú starfar að undirbúningi að fyrirhuguðu framboði Íslendinga til Öryggisráðsins.

Bannað að auglýsa ruslfæði

Auglýsingar fyrir ruslfæði verða bannaðar í bresku sjónvarpi á barnatíma, það er að segja á milli klukkan sex og níu á kvöldin. Heilbrigðisráðherra Bretlands vill að skyndibitastaðir og matvælaframleiðendur gangist inn á reglur þessa efnis, en hótar ellegar lagasetningu.

Eldur í „Rave"-klúbbi í Hollandi

Einn fórst og sex slösuðust þegar eldur kviknaði í "Rave"-klúbbi í Amsterdam í morgun. Nokkur hundruð manns voru á staðnum þegar eldur kviknaði í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði þar sem hústökumenn höfðu komið sér upp skemmtistað. Þykkar reykjarmökk lagði frá staðnum og þurfti fimmtán slökkvibíla með mannskap til að ráða niðurlögum eldsins.

5 dópmál í Hafnarfirði

Fimm fíkniefnamál hafa komið upp í Hafnarfirði síðastliðinn sólarhring. Málin eru ekki talin tengjast, en þau komu upp við venjubundið eftirlit lögreglu með umferðinni. Í öllum tilvikum var fólkið með fíkniefni í neysluskömmtum, ýmist hass eða amfetamín. Tveir sextán ára piltar voru teknir með lítilræði af hassi síðdegis í gær.

Aðgerðum ekki lokið í Fallujah

Bandarískar hersveitir kljást enn við síðustu skæruliðana í borginni Fallujah, að sögn talsmanna hersins, þó að íröksk yfirvöld hafi í gær lýst því yfir að aðgerðum í borginni væri lokið. Andspyrnan við hersetuliðið fer vaxandi í norðurhluta landsins.

Jóakim tekinn fyrir hraðakstur

Jóakim Danaprins, hefur verið kærður til lögreglu fyrir háskalegan akstur á hraðbraut í gærkvöldi. Synir Jóakims, prinsarnir Nikolai og Felix, voru einnig í bílnum.

Eru ekki tilfinningalausir

Shit Happens. Þannig lýsti Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður íslenski friðargæslunnar í Kabúl, atburðunum þegar sjálfsmorðsárás var gerð á íslenska friðargæsluliða, samkvæmt yfirlýsingu eiginkvenna og unnusta friðargæsluliðana. Þrettán ára gömul stúlka og bandarísk kona fórust í árásinni.

Málið upplýst

Sakborningur í manndrápsmálinu í Keflavík frá því í gær var látinn laus fyrr í dag. Skýrslutökum lögreglu af sakborningi og vitnum er lokið og málið telst upplýst. Farbann sem sett var á sakborninginn til 13. mars árið 2005 er þó ekki fallið úr gildi. Sakborningurinn er 29 ára gamall Skoti og er talið að hann hafi orðið manninum að bana með aðeins einu hnefahöggi.

Fundur klukkan átta í kvöld

Samninganefndir kennara og viðsemjenda þeirra munu koma saman í húsnæði ríkissáttasemjara klukkan átta í kvöld. Á fundinum ætla kennarar að krefjast þess að fá eingreiðslu upp á 130 þúsund krónur og fara fram á að laun þeirra hækki nú þegar um 5,5 prósent eins og launanefnd sveitarfélaganna hafði fallist á í miðlunartillögu ríkissáttasemjara.

Kerry aftur á þingið

John Kerry mun snúa sér aftur að þingstörfum í bandarísku Öldungadeildinni í næstu viku. Búast má við heldur átakalitlu þingi næsta árið en Repúblikanar eru með góðan meirihluta í báðum deildum þingsins og svo að sjálfssögðu forsetann sjálfan, George Bush.

Hraðakstur á Ólafsfirði

Tíu ökumenn voru stöðvaðir í Ólafsfjarðargöngum á laugardag fyrir hraðakstur, við sameiginlegt umferðareftirlit lögreglu á Ólafsfirði og í Dalvík.

Óvenju mikið um fíkniefni

Óvenjumörg fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Hafnarfirði um helgina. Um klukkan 16.30 á laugardag voru þrír piltar í bíl stöðvaðir. Í ljós kom að allir voru með kannabisefni á sér og farþegarnir tveir undir áhrifum. Piltarnir gengust við efnunum og var sleppt að yfirheyslunni lokinni.

Gripnir við að flagga

Dalvísk ungmenni skemmtu sér við það aðfaranótt sunnudags að flagga á frumlegan hátt í bænum

Hrina árekstra í Reykjavík

Nokkuð var um árekstra í Reykjavík í gær að sögn lögreglu. Rétt eftir miðnætti varð tveggja bíla árekstur á gatnamótum Ljósvallagötu og Ásvallagötu. Við Norðurbrún var ekið á bifreið en tjónvaldur hvarf af vettvangi. Um níuleytið á sunnudagsmorgun rákust tveir bílar saman á Vesturlandsvegi en tjón var óverulegt.

Bæjarráð fjalli um deiluna

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi hafa farið fram á fund í bæjarráði til að fjalla um kennaradeiluna.

Vilja 130 þúsund í eingreiðslu

Kennarar ætla að fara fram á 130 þúsund króna eingreiðslu og 5,5 prósenta kauphækkun nú þegar til að skapa frið á meðal kennara. Samningafundur hefur verið boðaður í kvöld.

Cheney í lagi

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var í gærkvöldi fluttur á sjúkrahús vegna andnauðar. Cheney hefur átt við hjartasjúkdóma að stríða, hefur fengið hjartaáfall í fjórgang og fékk fyrir þremur árum gangráð. Rannsóknir á sjúkrahúsinu í gær leiddu ekkert óeðlilegt í ljós, og fékk Cheney að fara heim að rannsóknunum loknum. Talsmaður hans sagði ástæðu andnauðarinnar vera veirusýking in hálsi.

Góð stemmning hjá Sjónarhóli

Brosandi andlit og einlæg stemmning einkenndu andrúmsloftið á Háaleitisbraut 13 í dag, þar sem haldið var upp á að langþráð ráðgjafamiðstöð fyrir aðstandendur langveikra barna var tekin í notkun.

Skotárás á Abbas

Skotárás var gerð þegar Mahmoud Abbas, fyrrverandi forsætisráðherra Palestínu, kom að greftrunarstað Jassirs Arafat síðdegis í dag. Talið er að Abbas hafi verið skotmark palestínsku skæruliðana sem réðust inn í tjaldið sem er við gröfina, en Abbas er forsetaefni Fatah-hreyfingar Arafats og þykir líklegur til að taka við forystuhlutverki meðal Palestínumanna.

Hermanna minnst með Valmúa

Elísabet Englandsdrottning lagði í dag blómsveig við skör minnismerkis um fallna hermenn í Lundúnum. Athöfnin er árlegur viðburður og fer fram þann sunnudag sem næst er lokadegi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Valmúinn er ljóðrænt tákn fyrir þá sem látið hafa lífið fyrir frelsi þjóðar sinnar og bera margir Bretar því valmúanælur þessa dagana.

Snjór fyrir norðan og vestan

Snjó hefur kyngt niður fyrir norðan og vestan í dag og áhugamenn um skíðaiðkun og snjósleðaferðir kættust verulega á Vestfjörðum en þar var síðdegis kominn um tuttugu sentímetra jafnfallinn snjór. Segja þá sumir bara meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó.

Harmleikur í Fallujah

Mannlegur harmleikur blasir við í borginni Fallujah í Írak. Þrátt fyrir yfirlýsingar um að bardögum þar sé lokið heldur sprenguregnið áfram og óöldin breiðist út.

Ætla ekki að mæta

Óvíst er með hvaða hætti skólastarf í grunnskólum landsins verður á morgun. Búast má við að fjölmargir kennarar tilkynni veikindi í fyrramálið. Kennarar í Keflavík ætla að hitta prest í Keflavíkurkirkju í fyrramálið, biðja saman og fá hjá honum áfallahjálp.

Afbrýðisemi leiddi til höggsins

Maðurinn sem grunaður er um að vera valdur að dauða danska hermannsins í Keflavík í fyrrakvöld var látinn laus í dag. Lögregla segir málið upplýst og að játning mannsins liggi fyrir. Kona sem stóð við hliðina á Dananum þegar hann var kýldur segir að afbrýðisemi sé rót þessa harmleiks.

Segir fjármálastjórn slaka

Hækkun útsvars í Reykjavík þýðir að borgin tekur þriðjung af áformaðri lækkun tekjuskatts um áramótin. Oddviti sjálfstæðismanna segir þetta beina afleiðingu af slakri fjármálastjórn og langvarandi skuldasöfnun R-listans.

Sjá næstu 50 fréttir