Fleiri fréttir

Látinna hermanna minnst

Árleg minningarathöfn um þá bresku hermann sem hafa fallið í stríði var haldin í London í gær. Elísabet Englandsdrottning var viðstödd athöfnina ásamt m.a. Tony Blair forsætisráðherra og Karli Bretaprins, sem hélt upp á 56 ára afmæli sitt þennan sama dag. Sonur hans, Vilhjálmur, tók þátt í athöfninni í fyrsta sinn.

Falluja í hendur Bandaríkjanna

Eftir tæplega vikulanga bardaga segjast bandarískir og íraskir hermenn í Falluja í Írak hafa náð stjórn á næstum allri borginni, en hún var áður undir yfirráðum skæruliða.

Ný tækifæri hafa opnast

George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segja að ný tækifæri hafi opnast til að koma á friði í Mið-Austurlöndum

Tveir skotnir til bana

Tveir meðlimir öryggissveita Palestínu voru skotnir til bana þegar Mahmud Abbas, leiðtogi öryggisráðs Palestínu, heimsótti tjald sem hafði verið sett upp í Gaza-borg til minningar um Jasser Arafat, fyrrum leiðtoga Palestínumanna.

Dauðadómum fækkar

Þrjátíu ár eru liðin síðan jafn fáir einstaklingar voru dæmdir til dauða í Bandaríkjunum og á síðasta ári.

Játuðu smyglið

Hollensk kona og þrítugur maður hafa játað innflutning á 200 til 300 grömmum af kókaíni. Lögreglan vill ekki staðfesta magn efnisins að svo stöddu. Konan faldi kókaínið í leggöngum sínum þegar kom til landsins.

Skemmdir unnar

Robert Ballard, sem fann flak skemmtiferðaskipsins Titanic fyrir tæpum tveimur áratugum, er ósáttur við þær skemmdir sem hafa orðið á flakinu á undanförnum árum.

Kvörtunum rignir inn

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg er að drukkna í kvörtunum frá almennum borgurum. Þetta kemur fram í danska dagblaðinu Jyllands-Posten.

Harði diskurinn í frysti

Saga af framkvæmdastjóra sem setti harða diskinn úr tölvunni í frysti er efst á lista yfir furðulegustu ráð sem fólk notar í von um að bjarga gögnum úr tölvunum sínum.

Félagar Skotans niðurbrotnir

Félagar Skotans sem veitti danska hermanninum Flemming Tolstrup banahögg aðfaranótt laugardags segjast niðurbrotnir.

Ekki eitrað fyrir Arafat

Philippe Douste-Blazy, heilbrigðisráðherra Frakklands, segir enga ástæðu til að ætla að eitrað hafi verið fyrir Jasser Arafat, forseta Palestínu, sem lést á sjúkrahúsi í París síðastliðinn fimmtudag.

Játar að hafa slegið Danann

Tæplega þrítugur Skoti, búsettur hér á landi, hefur játað að hafa slegið danska hermanninn Flemming Tolstrup höfuðhöggi á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík aðfaranótt laugardags. Daninn missti meðvitund við höggið og lést skömmu síðar. Skotinn var látinn laus klukkan hálf þrjú í gær en hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til í dag.

Spjótunum beint að Hallgrími

Eiginkonur og unnustur íslensku friðargæsluliðanna í Kabúl sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þær mótmæla fréttaflutningi af málum þeirra. Yfirmaður íslensku friðargæslunnar í Kabúl er gagnrýndur harkalega. Ekki er útilokað að mennirnir muni leita réttar síns.

Brunnlokunum bísað

Gripdeildir af óvenjulegu tagi gera Bretum nú lífið leitt en þjófnaður á járnsteyptum brunnlokum hefur færst þar mikið í vöxt að undanförnu. Rétt eins og hérlendis eru brunnarnir ofan í götum og strætum og er einfalt mál að fjarlægja lokin á þeim þótt þung séu.

Vill halda í bjartsýnina

Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndar sveitarfélaganna, er ekki úrkula vonar um að kennarar og sveitarfélög nái að semja um kaup og kjör. Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi á laugardag kemur gerðardómur saman laugardaginn 20. nóvember.

Morð í Keflavík?

Lögreglan í Keflavík rannsakar andlát dansks hermanns í nótt og er útlendingur í haldi lögreglu, grunaður um að vera valdur að láti hans. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni í Keflavík kemur fram að henni hafi verið tilkynnt um það laust upp úr klukkan fjögur í nótt að danskur hermaður væri slasaður á veitingastað í Keflavík.

Merihlutinn sprunginn

Meirihlutasamstarfið í bæjarstjórn Vestmannaeyja er sprungið. Í bókun Lúðvík Bergvinssonar sem birt er á eyjar.net segir að ekki sé rétt að halda áfram samstarfi V-lista og Framsóknarflokks í ljósi trúnaðarbrest sem upp er kominn. Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans hafi tekið þessa ákvörðun með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Eyjar.net hafa eftir Andrési Sigmundssyni Framsóknarflokki að þetta sé pólitískt áfall sem komi algjörlega í bakið á honum og hann áskili sér allan rétt til að fjalla um málið síðar.

Frumvarpið verði endurskoðað

Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að endurskoða frumvarp til laga um kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunnskólum með það að leiðarljósi að kennarar verði ekki sendir inn í skólana með óbreytt kjör. Sambandið vill með öðrum orðum ekki að bið verði á kjarabótum kennara eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.

Blair viðstaddur minningu Bigleys

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar í dag að vera viðstaddur minningarþjónustu um breska gíslinn Kenneth Bigley, sem drepinn var í Írak fyrir nokkru. Blair flaug til heimabæjar Bigleys, Liverpool, að loknum fundum með George Bush, Bandaríkjaforseta, í Washington.

Kosningar innan tveggja mánaða

Ahmed Kúrí, forsætisráðherra Palestínu, hét því í morgun að forsetakosningar yrðu haldnar í Palestínun innan sextíu daga, eins og lög mæla fyrir um. Engar kosningar hafa verið haldnar frá því að Jassir Arafat vann yfirburðasigur í kosnungunum árið 1996. Pílagrímar flykkjast nú að gröf Arafats, sem jarðsettur var í Ramallah í gær.

Moska brennd í Hollandi

Moska múslíma í bænum Helden í Hollandi brann til grunna í morgun og telur lögregla að kveikt hafi verið í henni. Grunur leikur á að íkveikjan sé enn eitt hefndarverkið fyrir morðið á kvikmyndagerðarmannin Theo van Gogh, en kveikt hefur verið í tíu moskum í Hollandi í kjölfarið.

Ástand í Fallujah hræðilegt

Tugir þúsunda óbreyttra borgara hafast við í Fallujah í Írak við skelfilegar aðstæður, án matar, vatns og rafmagns. Uppreisnarmönnum virðist vaxa ásmeginn í Írak. Talsmenn hjálparstofnana segjast í vaxandi mæli hafa áhyggjur af óbreyttum borgurum í Fallujah, þar sem vatns- og rafmagnslaust er og matvæli af skornum skammti.

Nýr meirihluti í Eyjum

Lúðvík Bergvinsson og Arnar Sigurmundsson skrifuðu í gærkvöld undir viljayfirlýsingu um nýtt meirihlutasamstarf Vestmannaeyjalista og Sjálfstæðisflokks. Sex bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans eru sem sagt búnir að mynda meirihluta með einum bæjarfulltrúa Sjálfsstæðisflokks. Samkomulagið er undir orðunum „Friður og framfarir."

Friður í nánd?

Friðarumleitanir gætu hafist á ný innan skamms fyrir botni Miðjarðarhafs. Til stendur að kjósa nýjan forseta Palestínu fyrir 9. janúar næstkomandi. Pílagrímar flykkjast nú að gröf Jassirs Arafats, sem jarðsettur var í Ramallah í gær. Þeir leggja ólífugreinar, blóm og palestínska fána á gröfina.

Gáfu 6 ára gömlum dreng raflost

Lögreglumenn í Miami í Bandaríkjunum skutu í skutu í gær raflosti í sex ára gamlan dreng, sem hótaði að skera sig á skrifstofu skólastjóra í grunnskóla nokkrum í Miami. Drengurinn hafði þegar skorið sig á tveim stöðum þegar lögreglumenn komu á vettvang og þegar hann hugðist skera sig enn eina ferðina, var honum veitt rafstuð upp á 50 þúsund volt.

Kýpurbúar vilja viðræður við Tyrki

Stjórnvöld á Kýpur hafa farið þess á leit við Tyrki að koma af stað umræðum til þess að leysa þann hnút sem verið hefur í samskiptum ríkjanna. Tyrkir samþykkja ekki Kýpur sem sjálfstætt ríki og forseti Kýpur segir það verða að breytast ætli Tyrkir sér inngöngu í Evrópusambandið.

Taugagas olli persaflóaheilkenni

Persaflóaheilkennið svokallaða er tilkomið vegna eitrunar af völdum efnavopna og taugagass, samkvæmt nýrri skýrslu frá samtökum hermanna í Bandaríkjunum. Persaflóaheilkennið eru hrina sjúkdómseinkenna sem hafa hrjáð tugþúsundir hermanna sem börðust fyrir botni Miðjarðarhafs í fyrra Íraksstríðinu .

29 ára Breti í haldi lögregu

29 ára gamall Breti er í haldi lögreglunnar í Keflavík grunaður um að hafa valdið dauða 33 ára dansks hermanns í nótt. Hinn látni kom til landsins í gærkvöldi með herflugvél danska hersins og átti að gista ásamt flugáhöfninni á hóteli í Keflavík. Hann fór ásamt félögum sínum út að skemmta sér í miðbæ Keflavíkur í gærkvöld.

Synda frá Ægisíðu að Bessastöðum

Þrettán manns hófu fyrir skömmu boðsund frá Ægisíðu að Bessastöðum í tilefni af útkomu ævisögu sundkappans frækna Eyjólfs Jónssonar. Eyjólfur var einn dáðasti afreksmaður Íslendinga um miðja síðustu öld. Árið 1962 bauð Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands Eyjólfi í eftirmiðdagskaffi, en boðið var háð því skilyrði að Eyjólfur kæmi syndandi að Bessastöðum.

Frumvarpinu breytt

Allsherjarnefnd hefur gert breytingar á frumvarpi ríkisstjórnarinnar sem miðað er að því að stöðva verkfall grunnskólakennara og setja kjör þeirra í gerðardóm. Þær gera ráð fyrir að gerðardómur verði skipaður þegar í næstu viku og að úrskurður dómsins verði afturvirkur til þess tíma þegar kennarar koma aftur til vinnu.

Lúðvík beitti bolabrögðum og reyndist ódrengur

"Lúðvík beitti mig bolabrögðum, hann reyndi að kúga mig til að játa á mig sakir sem ekki voru fyrir hendi, hann beitti ósiðlegum aðferðum – á mörkum hins löglega – og reyndist ódrengur undir lok samstarfsins," segir Andrés Sigmundsson,bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kjölfar slita á meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn í gær.

Nauðganir á Fílbeinsströndinni

Ofbeldismenn á Fílabeinsströndinni eru sakaðir um að nauðga hvítum konum sem reyna að flýja landið. Uppreisnarmennirnir hunsa friðarviðræður í Suður-Afríku. Skærur brutust út í síðustu viku þegar stjórnarher landsins rauf vopnahlé og varpaði sprengjum á norðurhluta landsins, þar sem uppreisnarmenn hafa haldið til frá því að þeir gerðu tilraun til valdaráns árið 2002.

Ekki lengur leynd hjá ESSO

Framlög ESSO til stjórnmálaflokka og ýmissa stjórnmálaframboða á árunum 1994 til 2004 voru samtals 21,6 milljónir króna. Í tilkynningu frá forstjóra ESSO segir að sundurliðun verði ekki gefin upp, enda líti félagið á öll þessi framlög sem trúnaðarmál milli viðkomandi aðila. Hins vegar hafi ESSO ákveðið að héðan í frá verði gefnar nánari upplýsingar um framlög sem félagið mun veita.

Lög á kennaradeilu samþykkt

Frumvarp til laga um kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunnskólum, með áorðnum breytingum var samþykkt á Alþingi rétt eftir hádegi í dag. Samkvæmt lögunum verður gerðardómur skipaður til að leysa kjaradeilu kennara, náist ekki samkomulag við Launanefnd sveitarfélaga fyrir 20. nóvember. <font size="4"></font>

Meira en þúsund skæruliðar drepnir

Öryggismálaráðherra Íraks segir Bandaríkjamenn og þjóðvarnarlið Íraka hafa drepið yfir þúsund skæruliða í borginni Fallujah og handtekið tvöhundruð, í aðgerðum sem miða að því að ná borginni úr heljargreipum uppreisnarmanna.

Þrjár bílveltur í mikilli hálku

Þrjár bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gærmorgun. Allar bílvelturnar urðu vegna ísingar og hálku, en á svæðinu var rigning og þíða sem breyttist strax í krapa og ísingu á veginum.

Útsvar í Reykjavík hækkað

Borgarstjórnarflokkur Reykjavíkurlistans mun leggja til að útsvarsprósenta næsta árs hækki úr 12,7 í rúm þrettán prósent og fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði hækki úr 0,32% í 0,35%, á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn kemur. Áætlaður tekjuauki vegna þessa verður notaður til að greiða niður skuldir eða til að mæta hugsanlegum launahækkunum.

Í framboð úr fangelsi

Palestínumenn kjósa sér nýjan forseta í síðasta lagi 9. janúar, sagði Ahmed Qureia, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, sem hét því að láta kosningar fara fram eins fljótt og auðið er. Samkvæmt palestínskum lögum þurfa þær að fara fram innan 60 daga frá andláti forsetans.

Hafa áhyggjur af almenningi

Hjálparsamtök lýsa miklum áhyggjum af aðbúnaði óbreyttra borgara í Falluja sem enn hafast við í borginni. Birgðalest Rauða hálfmánans var hleypt að sjúkrahúsi í vesturhluta borgarinnar en var bannað að dreifa matvælum til fólks í borginni meðan bardagar stæðu enn yfir.

Blaðamannafélagið semur við SA

Samninganefndir Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu í gær skammtímakjarasamning til eins árs. Samningurinn nær aðeins til blaðamanna Morgunblaðsins, en aðrir fjölmiðlar semja sér.

Benda enn á Bandaríkjastjórn

Það er vel mögulegt að leysa kjarnorkudeiluna á Kóreuskaga ef bandarísk stjórnvöld láta af því markmiði sínu að steypa Norður-Kóreustjórn af stóli. Þetta sagði talsmaður norður-kóreska utanríkisráðuneytisins í fyrstu yfirlýsingu þarlendra stjórnvalda um kjarnorkudeiluna eftir endurkjör George W. Bush Bandaríkjaforseta.

Löggur og hermenn börðust

Tveir afganskir lögreglumenn og tveir liðsmenn afgansks stríðsherra létust þegar kom til skotbardaga á milli fylkinga þeirra í Helmand-héraði. Atvikið þykir undirstrika þau vandamál sem stjórnvöld standa frammi fyrir, stríðsherrar halda enn í fylkingar sínar auk þess sem lögregla, her og öryggissveitir stríða á stundum hver við aðra.

Kínverskar kolanámur hættulegastar

Fjórir af hverjum fimm kolanámumönnum sem létu lífið í slysum á síðasta ári létust í Kína. Þá létust 6.702 einstaklingar í námuslysum í Kína. Fyrstu níu mánuði þessa árs létust 4.153 í námuslysum þrátt fyrir átak stjórnvalda til að auka öryggi í kolanámum.

Leyniþjónusta í uppnámi

Bandaríska leyniþjónustan, CIA, er í upplausn í kjölfar þess að Porter Goss tók til starfa sem nýr yfirmaður hennar. Fjöldi háttsettra manna hótar að segja af sér í kjölfar deilna við manninn sem Goss lætur stjórna daglegum rekstri, að því er fram kom í Washington Post.

Löggur hjálpuðu til við innbrot

Franskur innbrotsþjófur taldi það ekki eftir sér að fá lögregluna til að hjálpa sér við innbrot. Maðurinn hringdi á lögreglustöðina í Enghien-les-Bains, smábæ norðvestur af París, síðla kvölds og bað um hjálp við að komast inn í skartgripaverslun. Hann sagðist vera eigandi verslunarinnar en kvaðst hafa týnt lyklunum og kæmist því ekki inn.

Sjá næstu 50 fréttir