Aðgerðum ekki lokið í Fallujah 14. nóvember 2004 00:01
Bandarískar hersveitir kljást enn við síðustu skæruliðana í borginni Fallujah, að sögn talsmanna hersins, þó að íröksk yfirvöld hafi í gær lýst því yfir að aðgerðum í borginni væri lokið. Andspyrnan við hersetuliðið fer vaxandi í norðurhluta landsins. Talsmenn Bandaríkjahers fullyrða að krafturinn í skæruliðum í Fallujah fari þverrandi, enda er hermt að þúsund skæruliðar hafi verið felldir og tvöhundruð handteknir. Ríkisstjórn Íraks sendi í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu þess efnis, að aðgerðum í borginni væri lokið. Í morgun hefur þó sprengjum verið varpað á skotmörk í borginni. Átökin koma í veg fyrir að sendisveitir rauða hálfmánans komist inn í borgina með neyðarbirgðir, og talsmaður samtakanna segir mannlegan harmleik yfirvofandi þar. Íbúi í Fallujah, sem Reuters-fréttaþjónustan ræddi við, sagði fjölskyldu sína mjög illa haldna sökum vatns- og matarskorts. Öll börnin sín væru með niðurgang og veik. Í norðurhluta Íraks virðist andspyrna við bandarískar og írakskar hersveitir fara vaxandi. Mósúl var í gær sögð á valdi uppreisnarmanna, en bandarískur hershöfðingi fullyrðir að hún sé á ný í höndum yfirvalda og herliðs. Hann kvaðst þó hafa af því áhyggjur, að uppreisnarmenn stálu skotheldum vestum, skotfærum og lögreglubúningum af nokkrum lögreglustöðvum í borginni. Í Bakúba er barist, og fregnir af skærum hafa borist frá Howeidscha. Lögreglumaður var skotinn til bana í Samarra og í Kirkúk var kveikt í olíuleiðslu.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira